Tíminn - 17.06.1966, Blaðsíða 11
11
FÖSTUDAGUR 17. jwní 1966
TÍMINN
HERMINA BLACK
— Ég verð sjáli að fara að
47
haldið áfram að búa hérna, and
varpaði Lafði Arnanda. Reyndu að
fá hana til að reyna ekki of mikið
á sig, þegar ég er ekki til staðar
til að gæta hennar.
— Ef hún vill vera kjáni, hef
ur henni verið sagt, hvað muni
gerast. Vere talaði mð sínum
gamla, snögga óþýðleika.
— Hafðu ekki áhyggjur, elsk
an. Sandra kom og hailaði sér yf
ir bakið á sófanum, þar sem Lafði
Amanda sat, og lagði handlegginn
utan um hana. Ég skal vera hlýðn
asta öskubuskan af þéim öllum, og
alltaf draga mig í hlé fyrir mið
nætti.
Vere horfði andartak á mynd-
ina — hún var mjög falleg, yndis
legt andlit ungu stúlkunnar beygt
niður að fríðu andliti gömlu Lafð
innar. En jafnvel meðan hann
horfði á þær, var hann meira með
vitandi um hina ungu stúlkuna,
sem sat í sjúpum hægindastólnum.
Hann hafði ekki ávarpað Jill
frá því hann heilsaði henni, en
nú sneri hann sér skyndilega að
henni.
— Hvað eruð þér að gera í Lon
don? spurði hann. — í stuttri
heimsókn?
— Nei. Ég — ætla að vera
hérna dálítinn tíma, svaraði hún.
— Ég skil. Það var ekki hægt
að heyra neitt á rödd hans, en
henni virtist, sem hann væri ekki
ánægður. Síðan kvaddi hann hús
móðurina og þegar Sandra gekk
með honum áleiðis til dyranna,
kinkaði hann stuttaralega kolli til
JilL
Sandra var ekki lengi í burtu.
Hún kom til baka syngjandi fjör
ugt lag.
— Jill, komdu með mér inn í
herbergi, elskan og talaðu við mig
meðan ég klæði mig, bað hún.
Ég verð að flýta mér svo að ég
verði ekki sein í kvöldverðarboð-
ið.
Jill hristi höfuðið, henni fannst
skyndilega, að hún gæti ekki um
foorið það, ef Sandra færi að tala
um Vere — hún gæti farið að
trúa henni fyrir einhverju.
koma mér, agði hún. Mér þykir
fyrir iþví, en ég — get ekki stanz
að lengur.
— Jæja, þú verður að koma í
fooðið mitt á morgun, sagði Sandra
og þegar Jill hikaði: — Elsku,
segðu ekki, að þú sért b-úin að
ákveða að gera eitthvað annað!
— Nei. Það lá við, að sannleiks
ástin væri ekki alveg svona sterk
í hennL og þó
— Þá kemurðu! Klukkan sjö —
foíddu, ég ætla að krota niður
heimilisfangið. Sandra þau yfir
að skriffoorðinu, þreif pappírs-
örk og fór að skrifa í mesta hasti.
Þegar Jill horfði á hana, gat hún
ekki annað en tekið eftir, hve
tíguiiegar allar hreyfingar nennar
voru. Reglulega yndisleg vera!
— Hérna. Sandra sneri sér tdð
og þrýsti samanforotnum pappírs-
miðanum í hendi Jill. Það verður
gaman.
Gaman!
Jill velti því fyrir sér, þegar
hún yfirgaf húsið nokkrum min-
útum seinna, og sneri í vestur-
átt. Það mundi að mi insta kosti
verða tilbreyting, en kannski
mundi einn af þessum óvæntu at
burðum sem Vere hafði talað um,
hindra hann í að koma.
Hún var of hreinsKtl'.n til að
láta sem hún vildi að svo væri,
hún vissi allt of vel, að aðal- I
ástæðan fyrir því, að hún tók
boði Söndru, var sú, að þá mundi
hún hafa tækifæri til að sjá Vere.
XVIII. kapítuli.
ífoúð Söndru var í Park Lane
þeim enda sem lá nálægt Picca
dilly. Byggingin með bogagluggu-
un-um, sem lágu út á langar og
breiðar svalir gnæfðu yfir almenn
ingsgarðinn. Það var ekki lengur
garður milli hússins og strætisins
en hið geysistóra herbergi, sem
Jill gekk inn í kvöldið eftir, var
þakið blómum og alls konar
gróðri, og ljómandi fallegar kín-
verskar gólfmottur lágu á víð og
dreif um gljáfægt gólfið.
Hún hafði verið óvenjulega
feimin og hafði því af ásettu ráði
komið of seint í boð Söndru í von
um, að geta þannig slopppið inn
óséð. Og heppnin virtist vera með
henni, því að nokkrar aðrar
manneskjur komu á sama tíma.
Þegar hún kom inn í móttöku-
herbergið sá hún strax hve skyn
samlegt það hafði verið af henni
að taka ekki húsmóðurina trúan
lega, þegar hún sagði, að þetta
yrði aðeins „óformlegt einkasam-
kvæmi“. A.m.k. var klæðnaður
kvenfólksins allt annað en óforrn
legur. Og Jill þakkaði guði fyrir
að hafa ákveðið þennan sama
morgun, að kaupa sér nýjan stutt
an kvöldkjól, sem hún gæti síðan
notað á dansleik kvöldsins.
Sandra stóð á miðju gólfinu um
kringd litlum hópi fólks. Hún var
yndislega falleg þetta kvöld, í
dökkfoláum ballerínukjól, -iern und
irstrikaði hvítt hörund hennai og
hunangsgult hárið. Hún kom þjot
andi yfir gólfið og hreyfingarnar
hennar voru svo léttar og mjúk
ar, að hún virtist helzt svífa gegn
um loftið.
— En hvað það var fallegt af
vkkur öllum að koma, elskurnai
mínar. sagði hún. Jill, komdu eng
illinn minn. ég ætla að kynna big
— og áður en Jill gat komið í
veg fyrir það, eða jafnvel getið
sér til u-m, hvað væri að gerast,
hafði hin stúlkan snúið sér víð, -
lagt höndina á ihandlegg hennar og
sagt með sinni skæru, hljómfögru
röddu:
— Góðir -gestir, ég vil kynna
j'kkur öll fyrir mjög mikilvægri
persónu. Hjúkrunarkonan mín
Jill Forster. Hún hjálpaði ekki ein
ungis til að annast mig af óend
legri þolinmæði, hún lét mér finn
ast lífið þes-s virði að lifa því, þeg
ar mig langaði helzt til að deyja
úr eintómum leiðindum.
— Húrra fyrir Systur Forster.
Skál fyrir henni og öllum falleg
um hjúkrunarkonum, hrópaði ung
ur, dökkhærður maður, sem Jill
hafði séð áður að Fagurvöllum, og.
hún vissi, að liann var höfund
ur foókar, sem hét „Dansmær tal-
ar“ — stutt yfirlit ævisögu
Söndr-u.
JiU til mikiils léttis kom fieira
fólk einmitt í þennan mund og
hún gat blandað sér I hópinn og
f-ann að lokum horn, þar sem hún
gat staðið og horft á án þess að
tekið væri eftir henni. Eins og
allar hjúkrunarkonur var hún vön
því að setja ljós sitt undir mæli
ker og tilkynning gestgjafa henn
ar gerði hana svo feimna, að hana
langaði mest til að sökkva ofan
í gólfið. Hún sky-ggndist áköf yfir
hópinn í leit að manninum, sem
hana langaði til að sjá og varp-
aði öndinni léttar, þegar hún gat
ekki komið auga á hann. Henni
fannst h-ún ekki geta verið nógu
þakklát fyrir, að hann ha-fði ekki
verið þarna til að heyra til Söndru
hún var viss um ,að honu-m hefðí
ekki geðjazt að því að hún væri
dregin inn í sviðsljósið á þennan
hátt, jafnvel ekki þetta stutta
augnaiblik.
En þótt hún leitaði og leitaði,
að há-um, velvöxnum líkama Vere
Carrington, næstu fimmtán mínút
umar, gat hún ekki komið auga
á hann. Hún var viss um, að hún
gæti ekki annað en séð hann, ef
hann væri þarna, og þegar hún
hún hefði róazt, hugsaði hún
með sjálfri sér: — Ég vona, að
Sandra ætli sér ekki að draga
hann fram í sviðsljósið, — það
ÚTVARPIÐ
í dag
Föstudagur 17. júní
Þjóðhátíðardagur fslendínga
8.00 Morgunbæn Séra Gunnar
Áraasoo flytur 8.05 Hornin
gjalla Lúðrasveitin Svanur leik
ur Stjómandi: Jón Sigurðss-m.
830 fslenzk
sönglög
og alþýðu-
lög 1010 Veðurfregnir 10.25
fslenzlk kór- og hljómsveitar-
verk. 12.00 Hádegisútvarp 13.
40 Frá þjóðhátíð í Rvík. a
Hátíðin se-tt Valgarð Briem lög
fræðin-gur, formaður þjóðlhátið
arnefndar flytur ávarp. b. Guðs
þjónusta í Dómkirkjunni Séra
Þorsteinn L. Jónsson prestur
í Vestmannaeyjum messar Dóm
kórinn óg Magnús Jónsson
óperusöngvari syngja. Máni Sig
urjónsson leikur á orgebð. c.
1415 Hátíðirathöfn við Austur
völl Forseti Íslands, herra Ás-
geir Ásgeirsson, leggur blóm
sveig að fótstalli Jóns Sigurðs
sonar. Þjóðsöngurinn letkinn
og sungin. Forsætisráðh. dr.
Bjarni Benediktsson, flytur
ræðu Ávarp Fjallkonunnar.
Lúðrasveitir leika d. 15 00
Barnasikemmtun á Arnarhóli.
Lúðrasveit leikur. kvartettsöng
ur, gamanþættir.barnakór, AUi
Rúts og Karl Einarsson leika
„Litla og Stóra“ SkátalÖg gam
anvísur, söngur. Stjórnandi
og kynnir barnatímans er Gísli
Alfreðisson. e. 16.00 Dans-
skemmtun í Lækjargötu fyrir
börn og ungling-a Magnús Pét
ursson píanóleikari og hljóm-
svettin Toxic leika fyrir dansi,
sem Hermann R. Stefánsson stj.
f. 1700 Hljómleikar í Hallar-
garðinum, Lúðrasveit Reykja-
víkur leikur Stj.: Páll P. Pals
son. g. 17.45 íþróttir á Laugar
dalsleikvangi Baldur Möller
form. íþróttabandalags Reykja
vfkur flytur ávarp. Jón Ásgeirs
son lýsir íþróttakeppni. 18.15
Miðaftanstónleikar Stúdenta-
lög og íslenzk píanólög 19.00
Tilkynningar. 19.20 Veðurfregn
ir 19.30 Fréttir 20.00 íslenzkir
kvöldtónleikar. 20.30 Frá þjóð-
hátíð í Reykjavík: Kvöldvaka á
Araarhóli- a. Lúðasveitin Svan-
ur leiikur. Stj. Jón Sigurðsson.
b. Geir Hallgrímsson borgarstj.
flytur ræðu.
c. Karlakórinn Fóstbræður
syngur. Stj.: Páll P. Pálsson.
d. Þorsteinn Ö. Stephensen lefls
ari les „Gunnarsihólma“ eftir
Jónas Hallgrímsson.
e. Svala Nielsen og Guðmund
ur Jónsson óperusöngvari
syngja Við hljóðfærið: Ólafur
Vignir Albertsson 22.00 Fréttir
og veðurfregnir. 22.10 Dansinn
dunar: Útvarp frá skemmr.un
um á Lækjartorgi, Lækjargötu
og Aðalstræti: Hljómsvej.tir
Ragnars Bjamasonar, Ásgeirs
Sverrissonar og hljómsveitin
Dátar leika. Söngvarar: Ragn
ar Bjarnason og Sigríður Magn
úsdóttir. Kynnir á Lækjartorgi:
Svavar Gests. 01.00 Hátíðarh-öld
unum slitið frá Lækjartorgl.
Laugardagur 18. júní.
7.00 Morgunútvarp 12.00 Há
degisútvarp 13.00 Óskalög
sj-úklinga Kri-sttn Anna Þórar
insdóttir kynnir lögin. 15.00
[Fréttir. 16.30.
Á nótum
æskunnar.
Pétur Steingrímsson og Jón
Þór Hannesson kynna Iétt lög.
17.00 Fréttir. Þetta vil ég
heyra Óskar Þorsteinsson full
trúi velur sér hljómplötur. 18.
00 Söngvar í léttum tón 18.45
Tilkynningar 19.20 Veðurfregn
ir 19.30 Fréttir 20.00 „Gay-
aneh“ ballettsvíta eftir Aram
Khatsjatúrjan 20.20 „Þá hlýt
ég að vera dauður", smásaga
eftir Soya Lesari: Gísli Hall
dórsson leikari 20.40 Góðir
g-estir Baldur Pálmason bregð
ur á fóninn plötum frægra
hljómlistarmanna, sem lagt
hafa leið sína til fslands á
síðari árum. 21.30 Leikrit:
„Því miður, frú“ eftir Jökui
Jakobsson. Leikstjóri: Helgi
Skúlason. 22.00 Fréttir og veð
urfregnir. 22.15 Danslög. 24.
00 Dagskrárlok.
Á morgun
FILCLAIR gróðurhús og vermireitaplast hefur á
örfáum árum rutt sér braut um gjörvalla Evrópu.
FILCLAIR er sérstök samsuða af plasti og nælon
og er því miög sterkt.
Vaxtarhraði plantna undir FILCLAIR er talinn
vera allt að 50% meiri en undir gleri.
Engin hætta er á, að plöntur skrælni undir FIL-
CLAIR. Gerið tilraun með FILCLAIR sem skjól-
belti eða yfir vermireit, og þér munuð komast að
raun um, að árangurinn er undraverður. En bezt-
an árangur fáið þér með því að kauoa gróðuj'hús
6x3.75 m, hæð 185 sm. Slík hús ættu að vera í
hverjum garði í sveit og við sjó. Það getur borgað
sig á einu sumri, ef skynsamlega er að farið.
Leitið upplýsinga hjá:
H. A. G.
HEILDVERZLUN ANDRÉSAR GUÐNASONAR
Hverfisgötu 72 — Símar 16250 og 20540.