Tíminn - 17.06.1966, Blaðsíða 14
14
TÍMINN
Ævintýrl Hoffmanns
Aðsókn á sýningar á óperunni
Ævinfýri Hoffmanns hefur verið
mjög góð að undanförnu. T. d. má
gefa þess að Hver einasti miði var
seldur á siðustu sýningu óperunnar
s. I. sunnudag, óperan hefur nú ver
ið sýnd 12 sinnum og verður eð-
eins hægt að hafa fimm sýningar
enn, þar sem senn líður að lokum
þessa leikárs Næsta sýning verður
á sunnudagskvöld. Myndin er af
Guðmundi Jónssyni i einu af hlut
verkum sínum í óperunni.
HEIMILA
SÍLDARSÖLTUN
Síldarútvegsnefnd ákvað
á fundi sínum í dag að heimila
síldarsaltendum norðanlands- og
austan að hefja söltun frá og með
18. þ m á takmörkuðu magni af
sykursaltaðri síld fyrir Finnlands
martcað. Jafnframt áikvað nefndin
að heimila söltun frá sama tíma
fyrir þá sænska og aðra síldarkaup
endur, sem þess kunna að óska,
enda samþ. þeir söltun síldarinn-
ar skriflega jafnóðum og hún fer
fram.
(Frá Síldarútvegsnefnd).
SEKTIN 1.5 MILLJÓN
Framhald af 16. síðu.
varningsins sýnir einbeittan vilja
þeirra til brotsins.
3. Sýnt er að hinir 6 fyrsttöldu
í ákæru höfðu stofnað með sér
samtök um smygl og höfðu þeir
verið í 'gæzluvarðhaldi á þriðju
viku, þegar samstaða þeirra rofn-
aði.
MJÓLKURDREIFING
Framhald af bls. 1
eru meðaltal ársins fyrir allt land
ið.
Tölurnar sýna, að prósentvís er
dreifingarkostnaðurinn lægstur á
íslandi, eða 23,3% af heildar
vinnslu- og dreifingarkostnaði pr.
lítra af mjólk. Sambærilegar tölur
fyrir nágrannalöndin eru: Noreg-
ur 32,1%, Svíþjóð 38,0%, Dan-
mörk 44,5%, Belgía 50,2%, Þýzka
land 46,3% og Frakkland 45,1%.
í krónutölu er fsland aftur á
móti í öðru sæti — aðeins Nor-
egur hefur lægri dreifingarkostn-
að í krónutölu, eða 1,98 kr. pr.
lítra. Á íslandi er dreifingarkostn
aðurinn 2,11 kr., í Svíþjóð 2,86, í
Danmörku 2,29, í Belgíu 3,09, í
Þýzkalandi 2,76, í Frakklandi 2,75
kr.
LÖGÐU NIÐUR VINNU
Framhald af bls. 1.
skýrt, slitnaði upp úr samn-
ingaviðræðum milli fram-
kvæmdastjórnar Verkamanna
sambandsins og atvinnurek-
enda fyrir nokkrum dögum, en
í ályktun, sem sambandsstjóm
Verkamannasambandsins sam
þykkti, og birtist í Tímanum
á fimimtudag, var þess kraf-
ist, að viðræður hæfust aftur
án tafar. Var framkvæmda-
stjórninni falið að vinna áfram
að því að ná bráðabirgðasamn-
ingum til haustsins, og mun
það hafa verið í samræmi við
þessa samþykkt að Eðvarð Sig-
urðsson fór á fund Vinnuveit-
endasambandsins í dag. Er við
því búist, að viðræður hefjist
brátt aftur.
Hafnarverkamennirnir lögðu
niður vinnu við Reykjavíkur-
Þökkum innilega samúð og vinarhug við andlát og jarðarför föður
okkar, tengdaföður, afa og langafa,
BöSvars Friðrikssonar
frá Einarshöfn.
Börn, tengdabörn, barnabörn og
barnabarnabörn.
höfn til þess að leggja áherzlu
á, að þegar í stað yrði samið
við verkalýðsfélögin. Eru þetta
fyrstu „skæruhernaðar“aðgerð-
irnar í sambandi við kjaraátök
in nú í vor, en hafnarverka-
menn munu sjálfir hafa skipu-
lagt þessar aðgerðir, án þess
að stjóm Dagsbrúnar hefði þar
nokkur afskipti af.
LEIGULÓDIR
Framhald af bls 1
selt hana fyrir 900 þúsund krón-
ur. Væri alvanalegt, að gróði
braskaranna á fbúð væri um 100—
200 þúsund krónur.
Síðar á fundi borgarstjórnar í
dag flutti Jón Snorri Þorleifsson
(Alþ.bl.) tillögu um, að skipuð
yrði sérstök lóðanefnd, og eins
að fastari reglur yrðu settar um
hvernig lóðanefnd skyldi starfa.
Þessari tillögu, ásamt breytinga-
tillögu við hana sem Kristján Ben
diktsson (F) flutti, og flutnings-
maður samþykkti, var vísað frá
með 8 atkvæðum borgarstjórnar-
meirihlutans gegn 7 atkvæðum.
SOVÉTBLAÐAMENN
Framhald af 16. síðu.
í flóanum svo eitthvað sé nefnt,
en til gamans má geta þess, að
sovézku blaðamennirnir sitja kvöld
verðarveizlu Loftleiða ásamt 10
bandarískum blaðamönnum.
Fjölda margir aðilar velviljað-
ir Blaðamannafélaginu, einkum að
ilar, sem viðskipti eiga við So-
vétríkin, hafa stutt félagið og
gert því kleift að taka móti hin-
um sovézku blaðamönnum.
AFURÐAVERÐ BÆNDA
Framhald af bls. 16.
Þá hafa ráðunautarnir unnið að
undirbúningi og framkvæmdum
vegna aukaframlagt til túnræktar
á býlum með mnina en 15 hektara
tún.
Á aðalfundinum var gengið frá
framboði til Búnaðarþings og kom
einn listi fram og var því sjálf-
kjörinn. Listann skipa þeir Þor-
steinn Vigfússon, bóndi Sand-
brekku, Sveinn Jónsson, bóndi
Egilsstöðum, Sigurjón Friðriksson
YtrÞHlíð og Hermann Guðmunds-
son, Eyjólfsstöðum.
Sveinn Jónsson hóf á fundinum
umræður um verðlagsmálin og
gerði Vilhjálmur Hjálmarsson, full
trúi í Framleiðsluráði, grein fyr-
ir ráðstöfunum ráðsins. Var til-
laga allsherjamefndar, sem birt.
var hér að framan samþykkt ein- i
róma og urðu litlar umræður um j
hana. Var kosin fimm manna i
nefnd til þess að sitja væntan- i
legan landsfund um verðlagsmál-
in, en hana skipa þeir Páll Metúsa
lemsson, Refsstað Steinn Jónsson,
Egilsstöðum, Björn Jónsson, kaup-
félagsstjóri, Egilsstöðum, Her-
mann Guðmundsson, Eyjólfsstöð-
um og Bragi Hallgrímsson, Holti.
Aðrar ályktanir fundarins voru
sem hér segir:
Aðalfundur Bsb. Austurl.
haldinn 11. til 12. júní ‘66 lýsir
ánægju sinni yfir framkomnum
frumvörpum um Bjargráðasjóð fs-
lands og búfjártryggingar. Jafn-
framt leggur fundurinn áherzlu á
að Breytingartill. Búnaðarþings
verði teknar til greina, við end-
anlega afgreiðslu frumvarpsins.“
3. „Fundurinn felur stjórninni
að ráða þriðja ráðunautinn til
sambandsins, og óskar þess ein-
dregið að leitað verði samninga
við Pál Sigurbjörnsson um endur
ráðningu.".
4. Samþykkt var að hækka ár-
gjöld sambandsfélaga til búnaðar-
sambandsins í kr. 300,00 á ári fyr-
ir hvern félagsmann.
5. „Aðalfundur Bsb. Austurl.
mælir með því að leitað verði
allra tiltækra ráða, til að auknar
verði efnagreiningar á jarðvegi og
teknar upp víðtækari efnagrein-
ingar á uppskeru, til leiðbeining
ar fyrir bændur."
6. „Aðalf. Bb. Auturl. felur
stjóm sambandsins að vinna að
því ásamt stjórnum ræktunarsam-
bandanna að sameina ræktunar-
sambönd á sambandssvæðinn eft-
ir því, sem hagkvæmt þykir”.
7. „Aðalf. Bsb. Austurl. 1966
beinir því til Búnaðaiþings, að
það beiti sér fyrir því að ferða-
kostnaður dýralækna vegna sjúkra
vitjana verði greiddnr af ríkinu
þegar um langar og kostnaðarsam-
ar ferðir er að ræða.“
8. „Aðalf. Bsib. Austurl. 11. og
12. júní ‘66 lýsir þakklæti til
ráðunautanna fyrir það framtak
þeirra, að hefja dreifðar tilraunir
og leggur áherzlu á, að þær verði
auknar á sambandssvæðinu, svo
að hægt verði að byggja á þeim
leiðbeiningar og rannsóknir á
kali.“________________________
LÖGREGLUKÓRAR
Framhald af bls. 16
munu fjölmenna í Miðbæinn til
að horfa á skrúðgönguna og hlusta
á sönginn. Páll ísólfsson tónskáld
hefur samið sérstakt lag við texta
eftir Steingrím Thorsteinsson, sem
er tileinkað mótinu. Heitir lag
þetta Á samhljómsvængjum, og
verður sungið i byrjun og enda
útisöngsins.
Á miðvikudaginn fara þátttak-
endur í ferðalag, en á fimmtu-
daginn verða tónleikar í Háskóla-
bíói og að þeim loknum kveðju-
hóf í Sögu.
Lögreglukór Reykjavíkur er
skipaður 28 söngmönnum, og
stjómandi er Páll Kr. Pálsson.
Formaður kórsins er Ingólfur Þor
steinsson yfirvarðstjóri rannsókn-
arlögreglunnar.
Sérstakt merki hefur verið gert
ír tilefni af söngmótinu, og átti
Ólafur Guðmundsson, varðstjóri
hugmyndina að því, en uppistað-
an er íslenzka lögreglustjarnan.
BXITJz^A.
iddi
3 hraðar tónn svo af ber
IZI HIJV
BELLA MUSICA1015
Spilari og FM-útvarp
i:i 7i : i x’ V
AIR PRINCE 1013
Langdrægt m. bátabylgju
Radióbúðin
Klapparstíg 26, simi 19800
FÖSTUDAGUR 17. júní 1966
BRIDGESTONE
HJÓLBARÐAR
Síaukin sala
BRIDGESTONE
sannar gæðin.
Veitir aukiS
öryggi í akstri.
BRIDGESTON E
ávallt fyrirliggjandi.
GÓÐ ÞJÖNUSTA —
Verzlun og viðgerSir,
sími 17-9-84.
Gúmmíbarðinn h.f.4
Brautarholti 8.
TREFJAPLAST
PLASTSTEYPA
Húseigendur! Fylgít með
tímanum. Ef svalirnar eða
þakið þarf að endurnýjun-
ar við, eða ef þér eruð að
öyggja, þá látið akkur ann
ast um lagningu trefja-
plasts eða plaststeypu á
þók, svaiir, gólf og veggi á
húsum yðar,: og þér þurf-
ið eki að hafa áhyggjur af
því í framtíðinni.
Þorsteinn Gíslason,
málarameistari,
sími 17-0-47.
Látið okkur stilla og herða
upp nýju bifreiðina. Fylg- !
izt vel með bifreiðinni.
BÍLASKOÐUN
Skúlagötu 32, sími 13100.
PÚSSNINGAR- !
SANDUR
VIKURPLÖTUR
Einangrunarplast
Seljum allar gerðir af
pússningasandi, heim-
fluttan og blásinn inn.
Purrkaðar vikurplötur
og einangrunarplast.
Sandsalan við Elliðavog sf.
Elliðavog 115, sími 30120.