Vísir - 18.01.1975, Blaðsíða 4

Vísir - 18.01.1975, Blaðsíða 4
Alice Cooper: ,Ég lýg eins og vitlaus' Melody Moker tekur soman athyglisverðustu setningarnar í viðtölum við frœgt tónlistarfólk ó síðasta óri Brezka poppblaöib Melody Maker, lét nýlega gera yfirlit yfir popp-viöburöi ársins 1974, svo sem vinsælustu plöturnar og spaugilegustu ummælin. Af litlum plötum uröu eftirtaldar vin- sælastar i Bretlandi: 1. When will I see you again. Three Degrees. 2. Gonna make you a star. David Essex. 3. Annie’s song. John Denver. 4. Rock your baby. George McGrea. 5. Seasons in the sun. Terry Jacks. Þeir hijómlistarmenn er beztum árangri náöu á brezka vinsældalistanum voru aftur á móti: 1. Bay City Rollers. 2. Mud. 3. Alvin Stardust. 4. Wombles. 5. Gary Glitter. Eins og sjá má af nöfnunum eru þetta allt tónlistarmenn er helga sér léttari tegund tónlistar, og gefa aöallega út litlar plöt- ur. Þannig veröur listinn yfir toppsölu albúmin gerólíkur sölulista litilla platna: 1. Tubular Bells. Mike Oldfield. 2. Band on the Run. Wings (kom út, 1973). 3. The singles 1969-1973. Carpenters. 4. Darksideof the Moon. PinkFloyd. (útg. 1973). 5. Goodbye Yellow Brick Road. Elton John. Lp-hljómplötu ársins kaus MM „461 Ocean Boulevard” Eric Claptons. Litum svo á helztu ummæli ársins, sem flest komu fram I viö- tölum er MM átti viö frægt tónlistarfólk. RICHARD CARPENTER: „Viö erum ósköp venjulegir Amerikanar. Viö förum I baö einu sinni á dag og þvoum okkur um háriö, hlutur sem fæst okkar gera i dag, og förum svo á sviö- iö.” ALICE COOPER: „Ég lýg eins og vitlaus. Mér finnst gaman aö ljúga, það er mitt uppáhald.” GRAHAM NASH: „Astæöan fyrir þvi aö ég hætti I Hollies var einfaldlega sú, aö ég reykti hass en þeir ekki.” ARTHUR LEE: „Ég þoldi ekki rödd Janiis Joplin. Hún var að- eins öskrandi kjaftstór litil gæs.” CAPTAIN BEEFHEART: „Sá er tekur tónlist alvarlega, hlýt- ur aö vera að plata.” TODD RUNDGREN: „Lennon er enginn byltingarmaður, hann er helv. fábjáni.” IAN ANDERSON: „Ég verö aö fá aö vera hryggur og til- finninganæmur.” Vísir. Laugardagur 18. janúar 1975. Úr Sólskini í Eik Miklar hræringar hafa nú oröiö i islenzka popplifinu. Þaö liggur þegar ljóst fyrir að þrjár vin- sælar hljómsveitir hafa leystst upp. Hljómar eru hættir, Gunnar Þóröarson, er á förum til Eng- lands að taka upp sitt fyrsta sóló-albúm, (svo sannarlega i tima). Övist er um framtlö ann- arra meölima Hljóma, (sömu- leiöis Lónli blú bois)? ROOF TOPS eru hættir, og er mér ekki kunnugt um framtiö- aráætlanir þeirra félaga. Þeir komu þvi þó I verk að gefa út ágætis lp-plötu áður en þeir guf- uðu upp. SÓLSKIN leystist einnig upp fyrir jól. Þaö er dálitiö súrt aö horfa upp á það að hljómsveit sem Sólskin skuli leysast upp, hún var ekki okkar allra bezta, en geröi mikið i þvi að flytja frum- samið efni, sem yfirleitt gekk vel á böllum þeirra félaga. Herbert Guömundsson, söngvari Sólskins, lætur þó ekki kyrrt liggja, og er genginn I hljómsveitina EIK. Þó aö ekki hafi mikiö boriö á þeim félögun- um i Eik aö undanförnu, hefur grúppan verið á lifi I þrjú ár. EIKliösmaðurinn Herbert Guðmundsson tjáöi mér, aö þeir félagar hygöust bjóöa gestum sinum upp á frumsamda tónlist, blandaöa löngum frá ýmsum erlendum grúppum, aöallega ameriskum. Eik kemur fyrst fram eftir þessa breytingu i Tónabæ, þann fyrsta febrúar, og þá vonandi i fullu fjöri. EIK skipa þeir Ólaf- ur Sigurösson (áöur I Tilveru m.m.) trommur, Þorsteinn Magnússon á gitar, Lárus Grimsson á pianó og ýmis blást- urshljóðfæri, Haraldur Þor- steinsson á bassa og svo Her- bert Guðmundsson sem vitan- lega beitir raddböndum. — Örp. Þaö var ekki af verri endan- um liöiö sem þar kom fram. Jakob Magnússon lék á planó og orgel, Tómas Tómason á bassa, Asgeir óskarsson og Hrólfur Gunnarsson á trommur, Björgvin Glslason á gltar og Rúnar Georgsson á saxófón. Söngflokkurinn Spilverk þjóö- anna annaöist söng. Þvi miður spilaöi þetta liö ekki lengur en rúmlega klukku- stund og hljómburöur staðarins var vægast sagt hörmulegur og þvi erfitt aö dæma tónlist þá er var á boöstólum. En þaö fer vart á miili mála hve mikill hæfileikamaður Jakob er á pianó og sam- leikur hans viö þá félaga Tómas á bassa og Rúnar á saxófón var stórkostlegur. Rúnar er örugglega okkar allra bezti saxófónleikari i dag, (hvaö skyldu þeir nú annars vera margir, 2-4?), og sannaöi hann það meö skinandi sóló- köflum sínum. Tómas féll aftur á móti eilitiö I skuggann vegna hljómburðar staöarins. Þeir félagar, Hrólfur óg Asgeir, sýndu fram á pott- þéttan trommuleik, sérstaklega sá siöarnefndi sem eignaöi sér staöinn meö u.þ.b. fimm minútna trommusóló, gott þaö. Spilverk þjóöanna skipar gott söngfólk, sem þvi miöur fékk ekki notiö sin á þessum staö. En hvaö meö það, þetta var ánægjulegt kvöld og timi til kominn aö ungu fólki gefist tækifæri til aö hlýöa á efni sem þetta og islenzka t.ónlistarmenn sem geta meira en spila fyrir dansi. Persónulega fannst mér þetta of stutt. Hljómsveitin var rétt aö komast I stuð, þegar klukkan sló hálftólf. Söngfiokkurinn, sem lagöi til raddir I spiiiö. Þessa frábæru mynd tók Björgvin Pálsson af þeim Helgu Steinsen, Janis Carol og Drlfu Kristjánsdóttur, þegar þær lögöu sig hvaö bezt fram. Jakob Magnússon, stjórnandi hijómsveitarinnar og hljóm- borösleikari. Ljósm. Björgvin. t fyrrakvöld gekkst Klúbbur 32 fyrir tónlistarkvöldi I Sigtúni. Ömurlequr hljómburður skemmdl qott spil — Á hljómleikum með Jakobi Magnússyni og fleiri góðum hjó Klúbb 32 í Sigtúni Gitarieikararnir tveir, þeir Tómas Tómasson og Björgvin Glsla- son. Ljósm. Björgvin.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.