Vísir - 18.01.1975, Blaðsíða 12
12 Vlsir. Laugardagur 18. janúar 1975.
n □AG | D KVÖLD | □ □AG | D KVOLD | □ □AG |
Sjónvarp, kl. 21.45:
/#HÚN ER OF FEIT"
— sögðu þeir fyrstu um Gretu Garbo sem fer með
aðalhlutverkið í Anna Karenina í kvöld
Það eru ekki leikarar
af verra taginu sem við
sjáum ! sjónvarpinu í
kvöld. Það er Greta
Garbo sjálf sem kemur
fram á skjáinn. Með
henni eru svo Frede-
rich March og Basit
Rathbone.
Þessir leikarar koma fram i
kvikmyndinni, sem gerö er eftir
hinni frægu skáldsögu rúss-
neska höfundarins Leo Tolstoj,
Anna Karenina. Myndin er
bandarisk og er frá árinu 1936.
Nafn Gretu Garbo gleymist
vfst seint. Hún fæddist i Stokk-
hólmi árið 1905, dóttir verka-
manns. Fyrsta atvinna hennar
var að setja sápu framan i menn
á rakarastofu. Siðan vann hún i
verzlun. Hún var beðin aðaug-
lýsa og sýna fatnað hjá þessari
verzlun, og eftir það má segja
að leiðin hafi legið út i kvik-
myndir.
Hún kom fyrst fram i kvik-
mynd árið 1924. Kvikmyndin
bar ekki árangur og litið var
tekiö eftir Garbo. Þó komst
Greta á fjögurra ára samning,
og hún hélt til Istanbul til þess
að leika i kvikmynd fyrir þýzk-
an framleiöanda. Sá varð þó
gjaldþrota áður en hægt var að
taka myndina, og Garbo fór til
Berlinar að leita sér að vinnu.
Meö henni var Mauritz Stiller
sem hafði fengið hana til þess að
leika i fyrstu kvikmyndinni. í
Þýzkalandi hitti hann fyrir
Louis B. Mayer, sem var á
ferðalagi um Evrópu til þess að
leita að hæfileikariku fólki.
Hann vildi fá Stiller, en Stiller
vildi ekki fara nema Garbo
kæmi lika. „Hún er of feit”,
sagði Mayer. En hann réð hana
og Garbo skrifaði upp á 3ja ára
samning.
1 Hoilywood veit fyrirtækið
MGM litið hvað hægt er að not-
ast við Garbo. En árið 1926 fór
hagur hennar að yænkast og hún
fékk hlutverk i The Torrent.
Sjálfri fannst henni hlutverkið
kjánalegt, en eftir henni var
tekiö, og einn sagði um hana:
„Þessi stúlka hefur allt til að
bera, útlit, hæfileika og góðan
karakter.”
Fyrir hlutverk sitt i Anna
Karenina fékk Garbo verðlaun
sem bezta leikkonan frá
gagnrýnendum i New York.
Hún fékk tilboð um að koma
fram á- Broadway fyrir 10 þús-
und dollara á kvöldi.
En þessa mynd fáum við svo
að sjá i kvöld. Að rekja feril
Garbo fer meö aðalhlutverk I sjónvarpsmyndinni I kvöld, Anna
Karenina, sem gerð er eftir skáldsögu Leo Tolstoj.
Garbo i leiklistinni tæki langan myndir hennar munu seint
tima, en eitt er vist, að kvik- gleymast. — EA
ÚTVARP •
Laugardagur
18. janúar
7.00 Morgunútvarp.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar. Tónleikar.
13.30 tþróttir. Umsjón: Jón
Asgeirsson.
14.15 Að hlusta á tónlist, XII.
Atli Heimir Sveinsson sér
um þáttinn.
15.00 Vikan framundan.
Magnús Bjarnfreðsson
kynnir dagskrá útvarps og
sjónvarps.
15.45 Evrópumeistarakeppnin
I handknattleik.Fyrri leikur
FH og Vorwarts frá Austur-
Þýskalandi. Jón Asgeirsson
lýsir siðari hálfleik beint frá
Laugardalshöll.
16.15 Veðurfregnir. Fréttir.
16.25 tslenskt mál. Asgeir Bl.
Magnússon flytur þáttinn.
16.45 Tiu á toppnum. örn
Petersen sér um dægur-
lagaþátt.
17.35 Sögulestur fyrir börn.
Gupnar Stefánsson les sið-
ari hluta sögunnar
„Akvæðaskáldsins” eftir
Sigurbjörn Sveinsson.
18.00 Söngvar i léttum dúr.
Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
19.35 t minningunni. Þor-
steinn Matthiasson kennari
talar við Theódóru Guð-
laugsdóttur, fyrrum hús-
freyju á Hóli i Hvamms-
sveit.
20.00 Hljómplöturabb. Þor-
steinn Hannesson bregður
plötum á fóriinn.
20.45 „Sinustrá”, smásaga
eftir Friðjón Stefánsson
Elin Guðjónsdóttir les.
21.00 Pianósónata i e-moll op.
7 eftir Edvard Grieg.Alicia
De Larrocha leikur.
21.20 t táradal er stundum
hlegið. Jónas Jónasson talar
við danska spéfuglinn og
pianóleikarann Victor
Borge.
22.00 Fréttir
22.15 Veðurfregnir. Dansiög.
23.55 Fréttir i stuttu máli.
Dagskrárlok.
SUNNUDAGUR
19. janúar
8.00 Morgunandqkt Séra
Sigurður Pálsson vigslu-
biskup flytur ritningarorð
og bæn.
8.10 Fréttir og veðurfregnir.
8.15 Létt morgunlög Hljóm-
sveit útvarpsins i Hamborg
leikur.
9.00Fréttir. (Jtdráttur úr for-
ustugreinum dagblaðanna.
9.15 Morguntónleikar. (10.10
Veðurfregnir). a. Sónötur
fyrir orgel og hljómsveit
eftir Mozart. Edward Pow-
er Biggs og Columbiu
sinfóniuhljómsveitin leika,
Zoltán Rozsnyai stjórnar. b.
Konsert i C-dúr fyrir pianó,
fiðlu, selló og hljómsveit op.
56 eftir Beethoven. Rudolf
Serkin, Jaime Laredo,
Leslie Parnas og Marlboro
hátiðarhljómsveitin leika,
Alexander Schneider
stjórnar. c. Sinfónia nr. 5 I
B-dúr eftir Schubert.
Hljómsveitin Philharmónia
hin nýja leikur, Dietrich
Fischer-Dieskau stjórnar.
11.00 Messa i safnaðarheimili
Langholtssóknar.Prestur:
Séra Sigurður Haukur Guð-
jónsson. Organleikari: Jón
Stefánsson.
12.15 Dagskráin. Tónleikar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar. Tónleikar.
13.10 Úr sögu rómönsku
Ameríku Sigurður Hjartar-
son skólastjóri flytur þriðja
hádegiserindi sitt: Venesú-
ela, Miö-Amerikurikin og
Vestur-Indiur.
14.10 A listabrautinni Jón B. -
Gunnlaugsson kynnir lista-
fólk.
15.00 Miðdegistónleikar: Frá
tónlistarhátið I Búdapest
(hljóðritun frá ungverska
útvarpinu)
16.15 Veðurfregnir. Fréttir.
16.25 Endurtekið efni: Gustav
Fröding Sveinn Asgeirsson
tekur saman dagskrá um
skáldið. Lesari með honum:
Ævar R. Kvaran. (Aður útv.
fyrir ári).
17.15 Létt tónlist frá útvarpinu
í Vinarborg
17.40 Útvarpssaga barnanna:
„Emil og leynilögreglu-
strákarnir” eftir Erich
Kastner. Haraldur Jó-
hannsson þýddi. Jón
Hjartarson leikari les (5).
18.00 Stundarkorn með
Adolphina kórnum i Ham-
borg og Silcher kórnum i
Stuttgart. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Tilkynningar.
19.25 „Þekkirðu land?”Jónas
Jónasson stjórnar spurn-
ingaþætti um lönd og lýði.
Dómari: ólafur Hansson
prófessor. Þátttakendur:
Stefán Hermannsson og
Pétur Gautur Kristjánsson.
19.50 Tónlist eftir Helga Páls-
son a. Björn Ölafsson og
Arni Kristjánsson leika þrjú
' lög fyrir fiðlu og pianó. b.
Hljómsveit Rikisútvarpsins
leikur Svitu I fjórum köfl-
um, Hans Antolitsch stjórn-
ar.
20.30 Finnska skáldkonan
Kerstin Söderholm Þórodd-
ur Guðmundsson segir frá
skáldkonunni og Margrét
Helga Jóhannsdóttir les úr
ljóöum hennar i þýðingu
Þórodds, fyrrri þáttur.
21.00„BunteBlatter” op. 99 eft-
ir Robert Schumann Jean
Martin leikur á pianó.
21.30 Spurt og svaraöErlingur
Sigurðarson leitar svara við
spurningum hlustenda.
22.00 Fréttir
22.15 Veðurfregnir Danslög
Hulda Björnsdóttir dans-
kennari velur lögin.
23.25 Fréttir i stuttu máli.
Dagskrárlok.
SJÓNVARP •
Laugardagur
18.janúar 1975
16.30 Iþróttir Knattspyrnu-
kennsla
16.40 Enska knattspyrnan
17.30 Aðrar iþróttir Meðal
annars mynd frá landsleik
tslendinga og Norðmanna i
körfuknattleik.
18.30 Lina langsokkur. Sænsk
framhaldsmynd, byggö á
barnasögu eftir Astrid Lind-
gren. 3. þáttur. Þýðandi
Kristin Má'ntyla. Aður á
dagskrá i október 1972.
19.00 Hlé.
20.00 Fréttir og veður.
20.25 Dagskrárkynning og
auglýsingar.
20.30 Vinur minn, Jónatan.
Stutt leikin kvikmynd, sem
ungur islenskur kvik-
myndagerðarnemi, Ágúst
Guðmundsson, gerði i Bret-
landi. Myndin er byggð á
sögu eftir Agúst sjálfan, og
gerði hann einnig islenskan
texta við myndina.
20.50 Julie Andrews. Breskur
skemmtiþáttur með söng og
grini. Þýðandi Heba Július-
dóttir.
21.45 Anna Karenina. Banda-
risk biómynd frá árinu 1936,
byggð á hinni frægu, sam-
nefndu skáldsögu eftir rúss-
neska höfundinn Leo Tol-
stoj. Leikstjóri Clarence
Brown. Aðalhlutverk Greta
Garbo, Frederich March og
Basil Rathbone. Þýðandi
Óskar Ingimarsson. Myndin
gerist i Rússlandi fyrr á ár-
um og lýsir daglegu lifi og
ástamálúm tignarfólksins
þar.
23.25 Dagskrárlok.
Sunnudagur
19. janúar
17.00 Vesturfararnir 6. þáttur
endurtekinn Þýðandi Dóra
Hafsteinsdóttir.
(Nordvision).
18.00 Stundin okkar Glámur
og Skrámur rabba saman
og Söngfuglarnir láta til sin
heyra. Þá kynnumst við
tveim kátum kaninum, sem
heita Robbi eyra og Tobbi
tönn. Trióið Þrjú á palli og
Sólskinskórinn syngja lög
við texta eftir Jónas Árna-
son, og sýnd verður teikni-
mynd um Jakob. Stundinni
lýkur svo með spurninga-
þætti. Umsjónarmenn
Sigriður Margrét Guð-
mundsdóttir og Hermann
Ragnar Stefánsson. Stjórn
upptöku Kristin Pálsdóttir.
18.55 Hlé
20.00 Fréttir og veður
20.25 Dagskrárkynning og
auglýsingar
20.30 Réttur er settur Laga-
nemar við Háskóla tslands
setja á svið réttarhöld i
máli, sem ris út af sölu bif-
reiðar. Stjórn upptöku
Rúnar Gunnarsson.
21.30 Heimsmynd i deiglu
Finnskur fræðslumynda-
flokkur um visindamenn
fyrri alda og athuganir
þeirra. 4. þáttur. Þýðandi
Jón Gunnarsson. Þulur Jón
Hólm. 1 þessum þætti
greinir frá Jóhannesi
Kepler og framlagi hans til
visindanna. (Nordvision
—Finnska sjónvarpið).
21.45 Vesturfararnir Sænsk
framhaldsmynd, byggð á
sögum eftir Vilhelm
Moberg. 7. þáttur. Vafasöm
auðæfi Þýðandi Dóra Haf-
steinsdóttir. Efni 6. þáttar:
Landnemarnir undu sér vel
við Ki-Chi-Saga. Börnin uxu
og döfnuðu og Karl óskar
ræktaði landið og byggði
stærra og betra hús. Aðrir
landnemar settust að i ná-
grenninu. Dag nokkurn kom
Róbert heim úr Kaliforniu-
förinni. Hann var veikur, og
Arvid var ekki i för með
honum. En hann hafði mikla
peninga meðferðis, sem
hann vildi gefa bróður
sinum. (Nordvision).
22,35 Að kvöldi dags. Séra
Valgeir Astráðsson flytur
hugvekju.
22.45 Dagskrárlok.
Julie Andrews býður upp á
söng og grin i sjónvarpinu I
kvöld, en þá er á dagskrá
skemmtiþáttur hennar, sem
einfaldlega heitir i höfuðið á
henni. Hann hefst klukkan
20.50 og stendur til kl. 21.45.
Við bregðum okkur I réttarsal annað kvöld klukkan 20.30, en þá er á
dagskrá sjónvarpsins þátturinn Réttur er settur. Aö þessu sinni sjá-
um við laganema setja á svið réttarhöld I máli, sem ris út af sölu
bifreiöar. Myndin er úr þættinum, en stjórn upptöku hans annaöist
Rúnar Gunnarsson.