Tíminn - 22.06.1966, Síða 12
12
TÍIVINN
MIÐVIKUDAGUR 22. júaí 1966
UM VERNDUN
Framhald af bls. 8.
am þessum gauragangi gegn svart-
baknum og losa ríkið við kostn-
aðinn af honum. Æðarvarp telst
ekki til atvinnuvega, heldur til
hlunninda á jörðum, og það svo
mikil að þau eru næstum „hlut
ur á þessu landi.“ Það er því beint
furðulegt að ríkið skuli ausa hundr
uðum þúsunda til slíkra hluta, þótt
einhverjif varpeigendur telji sig
verða fyrir tjóni, og það á sama
tíma, sem ekki verður annað séð,
en verið sé að leggja í rúst, af
ráðnum hug, að því er virðist,
einn aðalatvinnuveginn, iðnaðinn,
með 'skefjalausum innflutningi iðn-
aðarvara, það er svo sem samræmi
í hlutunum, ekki vantar það, en
það er önnur saga.
Búast má svo við eftir því sem
á undan er gengið í hliðstæðum
málum, að röðin komi að grágæs-
unum og herferð hafin gegn
þeim, og þær, þegar á næsta
sumri, reknar hundruðum og þús-
undum saman í girðingar, þegar.
þær eru í sárum og eiga sér engr-
ar undankomu iauðið, svo ómann-
legt sem slíkt er, og drepnar þar
á hinn villimannlegast hátt, vegna
þess að þær eru með þeim ósköp-
um gerðar að eta eitthvaf af
grasi. Hvaða meindýr skyldi svo
verða fyrir næstu atlögu? ef þess-
Augiýsíð í íímanunv
EYJAFLUG
MEÐ HELGAFELLI njótið þér
ÚTSÝNIS, FLJÓTRA
OG ÁNÆGJULEGRA FLUGFERDA.
AFGREIÐSLURNAR
OPNAR ALLA DAGA.
REYKJAVfKURFLUGVELLI 22120
FYRJR HEIMILI OG SKRIFSTOFUR
DE
LjUXE
■ FRÁBÆR GÆÐI ■
■ FRlTT STANDANDI ■
■ STÆRÐ: 90X160 SM ■
■ VIÐUR: TEAK ■
■ FOLÍOSKÚFFA ■
■ ÚTDRA^SPIATA MEÐ ■
■ SKÚFFUR ÚR EIK ■
HÚSGAGNAVERZLUN
REYKJAVÍKUR
BRAUTARHOLTI 2 - SÍMIJ1940
um skrælingjaskap á að halda
áfram. Gæti það ekki t.d. orðið
sólskríkjan? Hún tínir eitthvað af
grasfræjum úr nýsánum túna-
sléttum á vorin og trúlega þyrfti
varla annað en einhver snakillur
bóndi reiddist þvílíkum dónaskap
og hnippti rösklega í viðkomandi
þingmann. Málið yrðj þá væntan-
lega komið til kasta Alþingis og
skipulögð herferð hafin gegn sól-
skríkjunni. Við hverju má svo
sem búast? Eitthvað verða þing-
menn líka að gera fyrir atkvæðin,
annars getur e.t.v. farið illa fyrir
þeim.
Það hefur sýnt sig áþreifan-
lega og eftirminnilega að þegar
maðurinn ætlar að fara að ráðs-
mennskast með breytingar í ríki
náttúrunnar, hafa slík rassaköst
ævinleiga leitt til ófarnaðar og í
mörgum tilfellum haft allt önnur
áhrif en til var ætlazt. Gott dæmi
um slíkt er þegar hin nýja rík-
isstjórn Kína tók á sig rögg og
hóf skipulagða herferð gegn spör-
fuglum landsins vegna þess að
þeir átu af korni bændanna á
ökrunum. Herferðin gekk að ósk-
um, en þá ætlaði allt að fara á
kaf í skorkvikindum, svo hún sá
sér þann kost vænstan að hætta
þeirri herferð, sem betur fer.
Lög um eyðingu svartbaks á
Alþingi á skilyrðislaust að afnema
tafarlaust og öðrum svipuðum laga
frumvörpum, sem Alþingi hefur
til meðferðar á að vísa á bug.
Það hefur mikið verið gortað af
Alþingi íslendinga, sem elzta þjóð-
þingi í heimi. Þerri stofnun er
því lítill heiður að því að gefa
út lög, sem fyrirskipa mönnum
að drepa dýr á hinn ómannleg-
asta og ruddalegasta hátt, svo
sem með eitri, dýrabogum og
fleiri aðferðum, sem ósæmandi eru
siðuðum mönnum. Breytir það
engu, þótt um svokölluð meindýr
sé að ræða. Svartbakur, hrafn og
kjói eru ófriðaðir allt árið, og
því réttdræpir hvenær og hvar
sem er, ekkert síður við hreið-
ur sín frá ósjálfbjarga ungum, sem
svo ekki bíður annað en kvalafull-
ur hungurdauði. Sííkt er hrein og
bein villimennska svo að engu
tali tekur og keyrir þó alveg um
þverbak, að íslenzka ríkið, sem
telur sig menningarríki skuli veita
verðlaun til þvílíkra og annara
svipaðra óhæfuverka. Það ber því
'taíarlaust að hætta öllum verð-
liaunaveitingum til dýradráps,
hverju nafni sem það nefnist. fs-
lenzku þjóðinni er, vægast sagt,
lítill sómi að slíkum ráðstöfunum
og vafaluast eru þær gegn vilja
mikils meirihluta hennar.
Á fjárlögum fyrir árið 1966 eru
ætlaðar kr. 300.000 til svartbaks-
dráps. Skifstofa laun og annar
kostnaður við embætti „veiði-
stjóra" getur varla verið minni en
sú upphæð, eða kr. 300.000. Þá
er eftir að telja verðlaunaveiting-
ar og annan kostnað við dráp
refa og minka, sennilegia ekki und
ir kr. 400.000 (og svo á vist að
fara að rækta mink aftur). ís-
lenzka ríkið, mun þannig eyða 1
milljón króna árlega til þess að
drepa og kvelj.a dýr. Slík er reisn
þessarar stegurlátu þjóðar, sem
aldrei þreylist á að raupa af
menntun sinni, ættgöfgi og íslend
ingasögum.
En hvernig er svo háttað dýra-
verndunarmálum á íslandi .Vil ég
drepa á það með nokkrum orðum.
AUar menningarþjóðir hafa öflug
dýraverndunarfélög og eyða miklu
fé tál dýraverndunarmála. Því mið-
ur hafa margir íslendingar farið
svo illa með dýr, og fara enn, þótt
ástandið hafi í þeim efnum batn-
að mjög hin síðari ár, að nauð-
synlegt þótti að setja lög um dýra
verndun og var loks gert fyrir
þrotlausa baráttu góðra manna. í
gildi eru lög um dýravernd, nýleg
eða frá árinu 1957 allítarleg og á
ýmsan hátt góð, en því miður dá-
lítið götótt. Hvernig eru þessi lög
svo haldin? Því er fljótsvarað, þau
eru þverbrotin á ýmsan hátt og af
mörgum að engu höfð. Löggæzlu-
valdinu ber vitanlega skylda til
þess að gæta að þessi lög séu hald-
in svo sem önnur lög, en áhugi
yfirvalda virðist harla lítil á
þessum lögum. f kaupstöðum eru
það lögreglustjórar og sýslumenn
ásamt lögregluþjónum, en í sveit-
um hreppsitjórar, sem þessara laga
eiga að gæta sem annarra, svo og
hinn almenni borgari, sem ber
skylda til þess að kæra til við-
komandi yfirvalda komist hann að
því, að lagabrot séu framin. Skal
ég nefna nokkur dæmi sem algeng
brot á þessum lögum. Settur regl-
ur um aflífun húsdýra eru víða
ekki haldnar. Meirihluti slátur
húsa á landinu fullnægir ekki sett-
um reglum um útbúnað. Friðaðir
fuglar eru víða drepnir miskunnar
laust í sumum sveitum eru álftir
drepnar í stórum stíl og viðkom-
andi svo ósvífinn að fá jafnvel
skrokka þeirra geymda í frystihús-
um nærliggjandi kaupstaða - og
sleppa með það, enda þótt lög-
regla sé á þeim stöðum. Bóndi
nokkur auglýsti í fyrr.a eftir mönn
um til þess að drepa gæsir á frið-
unartíma þeirra. Ekki heyrðist eitt
orð frá löggæzluvaldinu, og er þó
ólíklegt að auglýsingin hafi farið
fram hjá öllum löggæzlumönnum.
Ég er hræddur um að allmikið
fjaðrafok hefði orðið í „hænsna-
húsinu“ ef einhver hefði auglýst
eftir mönnum til að selja brenni-
vín eða tollsviknar sígarettur. Má
þó ekki skilja orð mín svo að ég
sé að mæla bót slíkum lögbrotum.
Ráðuneyti það sem dýraverndunar
lögin heyrir undir hefur oftar en
einu sinni og oftar en tvisvar veitt
mjög svo neikvæðar undanþágur
frá lögunum. Aliþind eitt getur
breytt þessum lögum, en ráðuneyti
hefur enga heimild til að veita und
anþágur nema undanþáguheimild
sé í lögunum sjálfum, en svo er
ekkí í þessum tilfellum sem ég á
við. Karl Kristjánsson og
annar þingmaður til, berjast fyrir
því að undanþága verði enn veitt
til flekaveiða við Dangey, eða jafn
vel bann við henni, svo sem er í
lögum, verði úr gildi numið. Það
er nóg til að eta á íslandi, þótt
fuglar séu ekki veiddir á svo ógeðs-
legan hátt. Vonandi ber Alþingi
gæfu til þess að vísa á bug þessari
óhæfu í eitt skipti fjrir öll. Engin
menningarþjóð leyfir slíkan bar-
barisma við fuglaveiðar. Verði
slíkt leyft, yrði fsland eitt um því-
líkan „heiður." Stuttu eftir síðustu
aldamót afnámu Vestmannaeying-
ar með samkomul. fyrir forgöngu
Oddgeirs Guðmundssonar sem þá
var sóknarprestur, þessa hrotta-
legu veiðiaðferð.
f mestu hrossasveitum landsins
eru hundruð og þúsundir hrossa,
sem hvorki eru til hús yfir né
fóður handa þeim, enda þótt slíkt
sé lögboðið. Það er oft ömurleg
sjón, sem blasir við, ef farið er eft
ir þjóðvegum norður um land
snemma á vorin, að sjá þessa vesa
linga skáldótta og horaða snult-
andi meðfram vegunum, eftir að
'hafa bitið gaddinn allan veturinn
og staðið úti í hvaða veðrum, sem
er.
Alls konar þjáningarfullar að-
gerðir eru gerðar á dýrum til að
reyna að halda í þeim líftórunni
án deyfingiar af óhlutvöndum og
oft klaufskum mönnum, og kall-
aðar lækningar, en eru ekki ann-
að en barbarismi af versta tagi.
Oft og tíðum deyja svo skepnurn
ar eftir ómælanlegar þjáningar,
sem af slíkri meðferð hafa hlot-
izt.
Það er sjaldan að dæmt er í
kærumálum vegna brota á dýra-
verndunarlögunum, eru dómar í
flestum tilfellum svo vægir, að
engu er lífcara en að dómsvaldið
sé að hæðast að málefnunum.
Dæmj þess eru deginum ljósari.
f þessu sambandi vil ég geta
þess hér að fjárbyssur hafa ekki
fengizt hér um margra ára skeið,
þrátt fyrir hinn óhemjulega inn-
flutning og allan heildsalaskar-
ann og þó að í Reykjavík einni
séu að minnsta kosti 7 sérverzl
anir, sem selja skotvopn til fugla
og dýraveiði svo og markskytteríis.
Að vísu hefur ein verzlun haft
til sölu sérstaka gerð af fjárbyss-
um, en hún er fyrir sláturhús, en
hentar alls ekki bændum vegna
þess, hve nákvæma meðferð og
hirðingu hún þarfnast.
Þessi mynd, sem ég hef í fáum
orðum dregið upp af því hvernig
dýraverndunarlög eru haldin hér
á landi, læt ég nægja að sinni, en
af nógu er að taka.
Alþingi veitir árlega kr. 25.000
styrk til dýraverndunarmála. Það
er allægsta fjárveiting, sem sú
virðulega stofnun veitir, og kvað
þó ekki vera sparsöm úr hófi fram
og mun vera einn íertugasti hluti
þess, sem íslenzka ríkið kostar
til þess að dreya dýr. Enginn sér-
stakur eftirlitsmaður frá ríkinu
með dýraverndun er til. En ríkið
hefur sérstakan eftirlitsmann tii
að annast dýradráp og líta eftir
því að dýr séu drepin af öðrum.
Mikil er sú menning
Það sem gert er til þess að
hamla á móti illri meðferð á dýr-
um er að öllu leyti sjálboðavinna
góðra manna í dýraverndunarfé-
lögunum, en þau eru máttvana
vegna fjárskorts fjárveitinganefnd
Alþingis sér um það.
Sjálfsagt er að leggja niður emb
ætti „veiðistjóra" að þvílíku emb
ætti er enginn vegsauki, sömuleið-
is að ríkið hætti öllum greiðslum
og verðlaunum, eða hvað annars
sem slíkt heitir til þess að drepa
dýr. Fjárupphæðum sem til slíks
hafa runnið ber, og það strax, að
veita, og það strax til dýravernd-
unarmála. Öll lög sem ómannúð-
leg eru gagnyart dýrum þer Al-
Jiingi að nema úr gildi, og það
tafarlaust. Skiptir engu máli þótt
um svokölluð meindýr sé að ræða.
Þýzki heimspefcingurinn Seliop-
enhauer sagði, „það er öruggt mál,
að sá maður, sem er grimmlyndur
við dýrin er efcfci góður maður.“
Sama hlýtur að gilda um þjóð.
Og íslendingar fara margir hverj-
ir illa með dýr og ríksisvaldið
gengur á undán slíku- í sumum
tilfellum, ýmist með lagaboðum
eða hirðuleyi og nízfcu. fslend
ingar eru því eftir þessu ekfci góð
þjóð og ekki menningárþjóð, með
an svo er um breytni hennar gagn
vart mestu og varnarlausustu smæl
ingjunum, dýrunum. Breytir þar
engu um allar hundruð milijón
króna austur til skóla og mennta-
mála og ekki heldur oflátungsleg-
ur menningarlofsöngur forustu
manna þjóðarinnar á helztu tylli-
dögum hennar.
Ýmsir þingmenn og ráðherrar
hafa kvartað undan þverrandi virð
ingu almennings fyrir æðstu stofn
un þjóðarinnar, Alþingi. Það eru
víst fá skiptj ef Alþingi hefur fjall
að um mál er varða dýraverndun
að það hafi ekki orið sér til van-
virðu. Nægir að nefna lögin um
aflífun húsdýra er tók tvö ár að
koma í gegnum þingið 1920—22.
Og lögin um vönun húsdýra tók
það þrjú ár að fá samþykkt 1930
—1933. Á eiriu þinginu kostaði
það miklar umræður um fraum-
varpið og var síðan svæft. Svo
sjálfsögð sem bæði þessi lög eru.
Sumir þingmenn höfðu frammi í
þess.um umræðum hinar furðu-
legustu og óhugnanlegustu stað-
hæfingar.
Vonandi eykur Alþingi sjálft
ekki enn á slíkt virð,ingarleysi
með því að gefa út lög, sem stríða
gegn siðgæðisvitund allra sæmi
legra manna.
Haukur Þ. Oddgeirsson.
FALLEGT HÁR
Framhald af bls. 8.
litir eða litbrigði af Black head
háralitnum, svo það er áreiðan-
legt, að hver kona getur fengið
þann ilt, sem hún óskar sér helzt.
Nú í augnablikinu eru gullnir lit-
ir og hlýir litir vinsælastir og
mest í tízku, en mér virðist ís-
lenzkar stúlkur hallast nokkuð mik
ið að gráum litum enn sem kom-
ið er.
Ellen Hey ræddi síðan stuttlega
um það, að hár kvenna væri mjög
ólíkt, en af því leiddi, að öllum
hentaði ekki sama tegund litar né
annars, sem notað er í hárið. Á
Norðurlöndunum er hárið t.d. mun
fínna en hár kvenna í sunnan-
veðri Evrópu. Þess vegna er
það, að ég tel Black head, sem er
þýzk framleiðsla, vera hentugara
á margan hátt fyrir Norðurlanda-
konur heldur en margar aðar teg-
undi, því hár þýzku kvennanna,
sem litunin er sérstaklega gerð-
ur fyrir, undir vísindalegu eftir-
liti, er líkast því, sem finna má
á Norðurlöndunum.
Heildverzlun Péturs Pétursson-
ar hefur nýlega fengið einkaum-
boð fyrir vörur Black heads á fs-
landi, og verður framvegis hægt
að fá þær á rúmlega 30 hár-
greiðslustofum. Ekki verða vör-
urnar seldar í buðum, heldur ein-
ungis á hárgreiðslustofum, enda
réð frú Hey konum eindregið frá
því að vera að fást við að lita
á sér hárið heima fyrir, að það
gæti stundum heppnast, en oftar
væru það misheppnuðu tilfellin,
sem að lokum lentu hjá hár-
greiðslustofunum, og þá væri
stundum erfitt að bjarga málunum
við.
TUNGAN ER . . .
Framhald af bls. 9.
ritgerð. Mig langar mjög mikið
að sfcrifa hana um SteþMn G.,
en ég veit ekki, hvort níér reyn
ist það kleift. Eg hef alltaf
haft sérstaka ánægju af verk
um þessa manris og mér hefur
fundizt hann eitt af stórbrotn
ustu skáldum, sem ort hafa á
íslenzku á síðari tímum. En
nuér finnst svo margt á huldu
uim hann og mig brestur full-
næigjandi þekfcingu á honum,
og það, að mig langar til að
rita um hann dofctorsritgerð,
kemur sumpart til af því, að
mig langar til að kynhast hon
um betur. Þetta er ennþá allt
í deigluni hjá mér. Eg á eftir
að ráðfæra mi-g við ýmsa menn
og ég geng þess efaki dulin, að
það verður mikil vinna fólgin
í þessu. Það er heldur ekki víst,
að ég geti samrýmt þetta mifcla
verfcefni þeim störfum, sem ég
þarf að ta'kast á hendur, þegar
ég kem heim, en eins og ég
gat um áðan hef ég lokið prófi
í hollenzfcu við Háskólann £
Leiden, og ætla mér að stunda
móðurmálskennslu þar heima.
— Þú ert þá ekfci að hugsa
um að kenna íslenzku?
Paula brosir lítið eitt.
— Vitanlega er ég ekki að
afla mér þessarar menntunar
til þess eins að hafa hana fyrir
mig en við Háskólann í Leiden
heyrir nútímaíslenzkan undir
Skandinavíudeild og til þess að
fá kennararéttindi við hana,
þarf ég að kunna eitthvað í
hinum Norðurlandamálunum,
en það geri ég ekki. Til þess
að kenna íslenzku, þarf ég þvi
að komast að hjá einhverjum
öðrum háskóla, og það geri ég
vafalaust síðar meir.
Eg er að hugsa um, að vera
hér fram í ágúst að sinni. Núna
les ég daglega uppi á lands-
bókasafni, en er að hugsa um
að bregða mér norður í Eyja
fjörð seinna í sumar. Mig lang
ar gjaman til að vera hér á
landi í vetur líka, en veit ekfci
hvort það er hægt. Mér finnst
fsland öðrum þræði mitt ann-
að heimaland. G. Þ. E.