Vísir - 23.01.1975, Blaðsíða 1

Vísir - 23.01.1975, Blaðsíða 1
65. árg. — Fimmtudagur 23. ianúar 1975—19. tbl. íþróttamenn á faraldsfœti: — íþróttir í opnu Agila gjald- þrota — baksíða Skólinn of lítill áður en bygging var Kafin - bls. 3 Blóð rennur enn í Víet- nam tveim árum eftir vopnahléð — sjá bls. 5 Trú manna á tilgang og mátt USA hefur ryðgað - segir Schlesinger varnarmála- ráðherra • Þjóðaratkvœði hjá Bretum vegna EBE? • Helms vill nú ekki kannast við heimanjósn- ir CIA Barnard vill nota lifandi menn fyrir hjartabanka — sjá bls. 5 Saltvinnsla, ál- og ferrosilisiumverksmiðjur í athugun Norðmenn vilja hefja stóriðju á íslandi íslendingar hafa i at- hugun hugmyndir norsku stórfyrir- tækjanna Norsk Hydro og Elkem-Spigerverket um stóriðnað hér á landi til að nýta jarðhita og vatnsafl. Hugsanlega verða reistar verk- smiðjur til framleiðslu á áli og ferrosilisium, og með norsk-islenzkri samvinnu kann að hefjast saltframleiðsla, byggð á hráefni úr hver- um á Reykjanesi. . Þetta segir i norska blaðinu Adresseavisen, sem birtir viðtal við Árna Snævarr ráðuneytis- stjóra I iðnaðarráðuneytinii. Arni staðfesti i morgun i viðtali við Visi, að norska blaðið hefði rétt eftir sér, en hann varaði við þvi, að of mikið yröi gert úr málinu. t viðtalinu segir Arni, að Norsk Hydro hafi mestan áhuga á að nýta jarðvarma á Reykjanesi, þar sem hverirnir hafi salt, og sé i fyrstunni einungis talað um framleiöslu á salti. Norsk Hydro sé einnig áhugasamt um áætlanir um raforkuver á Austurlandi, og þar komi álframleiðsla til greina. Elkem-Spigerverket vilji fram- leiða þar ferromangan og ferro- 15 tegundir af þorramat, það er ekkert sniáræði. Þær getur að lfta þarna á bökkunum, sem afgreiðslu stúlkur i Dalmúla halda á. Ljósm: Bragi. silisium, 47 þúsund tonn á ári af þvi siðarnefnda. 1 viðtali við Garðar Yngvarsson, ritara nefndar um orkufrekan iðnað, i Adresseavisen, segir hann, að málið sé allt á byrjunarstigi. Þó hafi aðilar ræðzt við margsinnis i Reykjavik, þar sem verið hafi bæöi fulltrúar Norsk Hydro og Elkem-Spigerverket. „Eftir hækkun oliuverðs hefur staða Islands breytzt i þessum efnum,” ér haft eftir Arna Snævarr i norska blaðinu. „Nærri ósnertar orkulindir Islands hafa vaxandi gildi fyrir orkufrekan iönað, og meðal fyrirtækja, sem hafa mikinn áhuga á að vera með i slikri uppbyggingu, eru Norsk Hydro og Elkem-Spigerverket. Afstaða okkar er, að eigi tsland að hæna að sér erlent fjármagn, vildum við gjarnan, að það væri norskt fjármagn. Meirihluti hlutaf jár yrbi hins vegar aö vera I höndum tslendinga og meirihlutinn mundi verða milli 51 og 65 prósent.” Garðar segir i viötalinu, að Islendingar hafi að undanförnu beint athyglinni aö þvi að ganga frá samningum viö Union Carbide og muni mál Norð- manna tekið fyrir aö þvi loknu, til gaumgæfilegri athugunar. — HH HAND- KNATT- LEIKS- DÓMARAR í VERK- FALL — íþróttir í opnu „700 BAKKAR PANTAÐIR í FYRRAMÁLID" — þorrinn heilsar á morgun „Það er ofboðslega mikið keypt af þorramatnum þegar þorrinn hefst. Ég get nefnt sem dæmi, að viö verðum að hafa 700 bakka tilbúna strax I fyrramál- ið, sem þegar er búið að panta.” Þetta sagði okkur afgreiðslu- maður i Kjötmiðstöðinni við Laugalæk, þegar við höfðum samband þangað, en þorrinn hefst á morgun meö bóndadegi. Eftir öllu að dæma ætti þvi aö verða mikið um gómsæta rétti i kjötverzluiium á morgun. Liklega eru margir farnir að strjúka sér um magann nú þeg- ar, enda er verið að undirbúa matinn fyrir morgundaginn. Sums staðar er hægt að fá hann i bökkum, sem ætlaðir eru fyrir um einn og hálfan mann, eins og i Kjötmiðstöðinni. Einnig er hægt að kaupa það magn, sem hver vill. t Kjötmiðstöðinni var okkur sagt, að bakkinn kostaði 450 krónur. Þegar við litum inn I kjörbúöina Dalmúla, sagði kaupmaðurinn okkur, að hann myndi ekki selja matinn i bökk- um heldur eins og hver vill, og þar er boðið upp á 15 tegundir af þorramatnum. Liklega þarf svo ekki að minna á hvaöa rétti þorrinn færir, hákarlinn, lundabaggann, svinasultuna, sviðin, hangikjöt- ið og allt hitt. — EA. Poppkornið var ágœtt Fjallað er um myndirnar „The Last Picture Show" og „Apaplánetuna" á kvikmyndasiðu í dag — sjá bls. 7

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.