Vísir - 05.02.1975, Side 1
65. árg. — Miðvikudagur 5. febrúar 1975 — 30.tbl.
„Vona að leið finnist,
sem þjónar hagsmunum
almennings" : ;r,“'
Gjaldeyris yfirvöld skammta úr hnefa
ÖUU FRCSTAÐ NEMA
ÞVÍ MBT ÁRÍÐANDI
Einn
árekstur
varð
að þrem
— hálkan í morg-
un reyndist
sumum erfið
Sex bilar pöruðu sig skipu-
lega saman á Digranesvegin-
um i morgun. Astæðan var sú,
að hálka var nokkur á vegin-
um og áttuðu ökumennirnir
sig ekki nægilega á þvf.
Óhöppin byrjuðu, er bilstjóri
ætlaði að hleypa út barni við
gangbrautina við Kópavogs-
skóla, rétt fyrir átta i morgun.
Annar bill kom aðvifandi og
bilstjórinn áttaði sig ekki
nægilega fljótt, þegar billinn
fyrir framan stanzaði, heldur
skall á honum.
Bilstjórinn á þriðja bilnum i
röðinni, sem kom þar á eftir,
varð heldur sneggri til og tókst
að stöðva sinn bil, en fjórði
bilst jórinn náði ekki að stöðva
bil sinn i tæka tið og lenti á
þeim þriðja.
Þegar hér var komið sögu
þótti rétt að kalla á lög-
regluna, en skömmu eftir að
hún var komin á staðinn,
varö einn áreksturinn enn.
Vildi hann til á nákvæmlega
sama hátt. Bilstjóri, sem var á
leið eftir Digranesveginum,
stöðvaði bil sinn aftan við þá
fjóra, sem lent höfðu í tveim
aðskildum árekstrum, en fékk
þá næsta bil aftan á sig og var
þar með orðinn þátttakandi i
þriðja árekstrinum.
Lögreglunni tókst nú fljót-
lega að greiða úr flækjunni og
kom þannig i veg fyrir að þessi
óhöpp héldu áfram. Enginn
slasaðist i þessum árekstrum,
en eignat jón varð talsvert.
JB.
Listamenn
og borgarróð
- bls. 7
„Getum
bjargað
andlitinu
með sigri
gegn
Dönum"
— segir fyrirliði
íslenzka
landsliðsins
— sjá íþróttir
í opnu
Gjaldeyrisyfirvöld
„velta á undan sér”
beiðnum um yfirfærslu,
öllu þvi, sem talið er, að
megi fresta. Yfirfærslur
hafa ekki verið bannað-
ar á vörum eins og
heimilistækjum og bil-
um, en þær bíða.
greiða það, sem er mest áriðandi,
eins og hráefni til iðnaðar, veið-
arfæri og helztu matvörur. Hitt
biður yfirleitt, en ekkert verður
fullyrt um framhaldið. Fer það
vafalaust eftir ákvörðunum rikis-
stjórnar um úrræði i efnahags-
málum.
Nú er mjög strangt fylgt fram
gjaldeyrisreglum. Áherzla er
lögð á, að allt sé gjaldfallið og
krafizt skjala, sem sanna það. Sjö
daga frestur er, ef um er að ræða
erlenda víxla og aðrar skuldir,
og þriggja daga frestur, ef um
ferðagjaldeyri er að ræða.— HH.
Óhjákvæmilegt er talið að af-
„FLENGJUM AUÐVITAÐ TIL ÞESS AÐ FA BOLLUR"
— bakarar og leikskólar farnir að hugsa til bolludags
„Við búum til 22 mann,” sagði fóstra i menn litu þar inn, en þá bolludaginn af fullum
bolluvendi, einn á Hagaborg, þegar Visis- var verið að undirbúa krafti.
Bolludagurinn er á mánu-
daginn, en ef hvert barn á að
geta flengt, þá er vist eins gott
að hefjast handa i tima. Það
lendir nefnilega að mestu á
fóstrunum að dunda við bollu-
vendina, þó að krakkarnir
hjálpi að sjálfsögðu til.
„Bolla, bolla....” — Það var nóg að gera þegar við litum inn á Hagaborg i gær, enda er bolludagurinn
á mánudag. Ljósm: Bragi.
„Við flengjum auðvitað til
þess að fá bollur,” sögðu
krakkarnir á meðan þau klipptu
niður marglitan pappir i
vendina, en það er einmitt
þeirra hlutverk.
Það eru vist flestir sem fá
vatn i munninn, þegar minnzt er
á þessar ljúffengu rjómabollur,
sem fylgja deginum. Bakariin
gefa mönnum kost á að bragða á
bollunum þó að hann sé ekki
runninn upp, og sum hver byrja
að baka þær viku áður. Einn
bakarinn sem við ræddum við,
sagði að það væri viss regla að
gefa aldrei upp hversu mikið
væri bakað, en hann kvaðst hafa
trú á þvi að fólk drægi svolitið
að sér nú.
Verð er ekki komið á
bollurnar ennþá, svo að bakarar
selja þær á rjómakökuverði.
-EA.
Fóru á leigubíl í innbrotaleiðangur:
6 UNGMENNI LATA GREIPAR
SÓPA í HVERAGERÐI
í húmi næturinnar
siðastliðna nótt hélt
bófaflokkur úr Reykja-
vik innreið sina i
Hveragerði og lét þar
greipar sópa, áður en
haldið var til höfuð-
staðarins á ný.
Hópurinn, fjórir piltar og tvær
stúlkur, kom akandi i leigubil úr
Reykjavik og hafði setið að
drykkju, það sem af var nætur-
innar. Leigubillinn ók unga fólk-
inu um Hveragerði nokkra
stund, en hleypti þvi að lokum
úr við Blómaskála Páls
Michelsens. Þá var klukkan
orðin hálfsjö um morguninn.
Hópurinn réðst þegar til at-
lögu við aðalhurð blómaskálans
og braut þar stór rúðu. Þegar
inn var komið voru greipar látn-
ar sópa og verðmætum fyrir allt
aö 200 þúsund stolið úr verzlun-
inni. Þá var einnig mikið sóðað
út og plöntur skemmdar.
Eftir að flokkurinn hafði hirt
nægju sina, var þýfið borið út i
leigubilinn og flóttinn hafinn.
Bílstjóranum var bent á að afl-
að hefði verið nóg og hélt hann
þvi af stað með flokkinn.
íbúi i næsta húsi við blóma-
skálann heyrði skarkalann i
morgunsárið og komst nægilega
fljótt á fætur til að sjá flóttabil-
inn hverfa fyrir hornið.
Lögreglunni á Selfossi var
þegar gert viðvart og kom hún á
staöinn. Jafnframt tilkynnti hún
nærliggjandi lögreglustöðvum
um leigubilinn, sem ungmennin
væru á.
Lögreglan i Árbæ hélt til móts
við leigubilinn og kom að honum
rétt ofan við Arbæ. Var leigubil-
stjórann þá greinilega farið að
lengja eftir lögreglunni. Stöðv-
aði hann þegar bilinn og hjálp-
aði lögreglunni við að safna
saman þýfinu og koma flokkn-
um yfir i lögreglubilinn.
Flokkurinn var fluttur i
fangageymslu lögreglunnar við
Hverfisgötu. Var reynt að yfir-
heyra unglingana, en það gekk
erfiölega vegna þess hversu
ofurölvi þeir voru. Fá þeir að
sofa úr sér vimuna hjá lögregl-
unni, áður en þeir verðá yfir-
heyrðir á ný.
t morgun var lögreglan búin
að safna saman mestum hluta
þýfisins, sem aðallega voru dýr-
mætar myndavélar og úr. Mikið
fannst i sjálfum leigubilnum,
en unglingarnir höfðu fleygt frá
sér einhverju magni, er þeir
urðu lögreglunnar varir og gekk
verr að hafa uppi á því.
Páll Michelsen sagði, að um-
gengnin i blómaskála hans hefði
ekki verið til neinnar fyrir-
myndar i nótt. Voru þrír menn i
morgun að setja nýja rúðu i og
hreinsa til.
—JB