Vísir - 07.03.1975, Page 1
Baksíða
65. árg. Föstudagur 7. marz 1975 — 56. tbl.
IKVEIKJUÆÐI
í BORGINNI?
HVASSAFELL STRANDAÐI VIÐ FLATEY:
Afgreiðslumaður á Húsavík
tilkynnti um skipstrandið
enginn skipsmanna í hœttu
Hvassafelliö strandaöi
snemma I morgun við
norðvestanverða Flatey á
Skjálfanda. Strax og vitað
var um strandið fengust
þær fregnir, að skipsmenn
væru ekki í hættu og skipið
ekki í frekari hættu.
„Veöur var af norð-austan, sjö
til átta vindstig, og mikill sjór,
þegar skipið strandaði,” sagði
Hannes Hafstein hjá Slysavarna-
félagi íslands, þegar Visir leitaði
upplýsinga hjá honum i morgun.
Hann var þá nýbúinn að ræða
við slysavarnamenn fyrir norðan
og hafði þær upplýsingar, að þá
væri kafaldsbylur og vonzkuveð-
ur á strandstaðnum.
Ábúandi er enginn i Flatey og
litillar aðstoðar þvi að vænta úr
þeirri áttinni. Björgunarsveit
slysavarnafélagsins á Húsavik
var hinsvegar að gera sig liklega
til að leggja af stað á staöinn með
64 tonna bát.
Auk þess fór björgunarsveit
slysavarnafélagsins á Siglufirði
af stað á strandstaðinn með flóa-
bátnum Drangi.
Hvassafellið hefur verið að
lesta á Norðurlandshöfnum, og
var á leið frá Akureyri til Húsa-
vikur þegar það strandaði.
Við strandið slitnuðu niður loft-
net skipsins meö þeim afleiðing-
um, að skipsmen náðu ekki frá
skipinu i Siglufjarðarradió, en
Siglufjarðarradió er ekki búiö
örbylgjustöð eins og aðrar
strandstöðvar Landssimans.
Loks náði Hvassafellið sam-
bandi við Dagnýju, sem var á
leiðinni til Siglufjaröar, og bar
báturinn á milli skipsins og Siglu-
fjarðarradiós. Auk þess náði
Hvassafellið i örbylgjustöð i
sambandi viö afgreiðslu SIS á
Húsavik. Var það afgreiðslumað-
ur þar, sem tilkynnti Siglu-
fjarðarradiói um strandið.
Eftir að tekizt hafði að koma
loftnetunum upp aftur á Hvassa-
felli, náðist gott samband frá
skipinu við Siglufjarðarradió,
sem siðan hefur verið i stööugu
sambandi við skipið.
— ÞJM.
Nýjustu fréttir
Um hádegisbilið bárust þær
fréttir frá Húsavik að mikill
sjór væri kominn i vélarúm og
iestar Hvassafelis, var sjórinn
I skipinu oröinn jafnhár og ut-
an þess. Björgunarmenn frá
Húsavik voru þá um það bil að
komast út i Fiatey, en þaðan
átti að bjarga áhöfn Hvassa-
feilsins i land. Ljósavél
Hvassafelis var þá enn i
gangi. Bátarnir, sem fóru út i
Flatey með björgunarsveit-
ina, voru Jón Sör og Svanur.
Atvinnuleysi:
Vörubílstjórar
verst settir
— baksíða
Við gerumst
digrir
— segja fata-
framleiðendur
— bls. 3
*
Ford lumar á
skýrslu um
aðild CIA að
morðsamsœri
— Sjó bls. 4
Líbanlr búast
við órós
— Sjó bls. 4
*
Jarðýta
kemur í
heimsókn
— og nú fœr
Síðumúlinn loks
að opnast í vestur
— baksíða
M
„Karakterinn"
í hljómsveitinni
Sjó bls. 7
,,Ég tjáni mig i tónum en ekki oröum,”
sagði hann, er Visir reyndi að fá hann til
viötals. Jún Múli Arnason var sá eini, er
náði tali af honum, og varð hann að veita
Pétri eftirför i marga daga og setjast að
lokum upp hjá honum til að það tækist.
Nordjasskvintettinn hélt utan i morgun
eftir viku hljómleikahald á islandi. Ferð-
inni er nú heitið til Danmerkur, Noregs,
Sviþjóðar og Finnlands.
Á menningarsiðu i dag er fjallað um
leik kvintettsins og þar gefur gagn-
rýnandinn Pétri Ostlund Islendingnum i
kvintettinum nafnið „karakterinn i
hljómsveitinni”.
Pétur fluttist til Sviþjóðar seint á árinu
1969 og komst fljótt i kynni viö fremstu
jassmennina þar i landi. Nú er hann
þekktur orðinn meðal Svia og fastagestur
bæði i útvarpi og sjónvarpi.
Pétur er nú i hljómsveit kontrabassa-
leikarans fræga Red Mitchell, sem fram
kemur eftir þvi sem hljómsveitarmenn
hafa tima til, þvi að þeir eru jafnframt
allir i öðrum störfum á tónlistarsviðinu.
Pétur hefur haldið áfram að nema tón-
list, jafnframt þvi sem hann flytur hana.
Fyrir nokkrum árum tók hann ásamt um
200 öðrum inntökupróf i Tónlistarháskól-
ann i Stokkhólmi, og var einn af 16 er
komust inn. Nú kennir Pétur trommuleik
við sama háskóla.
Pétur er hógvær maður og litillátur og
ófús að tala viö blaöamenn á dvöl sinni
Skrúfa fyrir drykkjuskapinn
— áfengisútsölunni í Eyjum lokað um skeið
Nokkuð mikið annriki
hefur verið hjá lögregl-
unni í Eyjum að undan-
förnu vegna drykkju-
skapar. i Eyjum er nú
mikill mannskapur vegna
vertíðarinnar og þykir
mörgum gott að fá sér í
staupinu sér til hressing-
ar.
Skipstjórar á bátum og út-
geröarmenn hafa átt i nokkrum
vandræðum með áhafnir sinar
af þessum sökum. Til að
stemma stigu við óreglunni lét
bæjarfógetinn i Eyjum i fyrra-
dag loka áfengisútsölunni og
verður hún væntanlega lokuð
fram yfir helgi.
Að sögn lögreglunnar hefur
dregið mikið úr drykkjunni fyrir
vikið, en samt hefur hún þurft
að hafa afskipti af nokkrum
vegna ölvunar.
I gær var flogiö til Eyja, og
áætlað var flug þangað i dag.
Þeir, sem eru aðframkomnir,
geta þvi eftir sem áður útvegað
sér vin frá höfuöstaðnum, en
lögreglan sagði, að sér væri ekki
kunnugt um, hvort mikið væri
farið i innkaupaleiðangra til
Reykjavikur á meðan áfengis-
útsalan i Eyjum væri lokuð.
Blaðinu tókst ekki aö ná tali af
bæjarfógetanum I Vestmanna-
eyjum til að kanna hversu lengi
áfengisútsalan yröi lokuð, þar
eð hann var staddur i Reykja-
vik.
Barinn i Hótel Vestmannaeyj-
um er jafnvel ekki nein úrlausn
fyrir þá, sem vilja fá sér hress-
ingu. Þar er einnig búiö aö
skrúfa fyrir hvern deigan
dropa. —JB—