Vísir - 07.03.1975, Blaðsíða 4
4
Vísir. Föstudagur 7. marz 1975
apUnTtEbR útlönd í morgun útlöndí morgun útlönd í morgun útlönd í morgu
LÍBANIR BÚAST VIÐ ARAS
Líbanir eru viðbúnir,
að ísraelsmenn reyni
hefndaraðgerðir fyrir
árás skæruliða Pales-
tinu-Araba á Tel Aviv i
gær. ísraelsmenn virð-
ast leggja áherzlu á að
kæfa allar hugmyndir
um, að Egyptar hafi átt
nokkurn þátt i árásinni.
Forsætisráðherra Libanon
sagði blaðamönnum, að öryggis-
ráð landsins sæti á stöðugum
fundum og aðgerðir hefðu verið
gerðar til að mæta hefndarað-
gerðum, sem væri búizt við.
Israelsmenn svöruðu fyrir árásir
skæruliða á byggðir i Norður-
Jsrael i fyrra með sprengjuárás-
um, eldflaugaárásum og vél-
byssuskothrið á búðir flóttafólks
frá Palestinu, sem eru I Libanon.
Mörg hundruð flóttamenn og
skæruliðar féllu þá eða særðust.
Kissinger utanrikisráðherra
Bandarikjanna kemur til Kalró I
dag I nýja „friðarför”. Þótt
Israelsmenn séu ævareiðir vegna
árásarinnar i gær, þar sem sex
ísraelsmenn og sjö skæruliðar
biðu bana, að þvi er nú er sagt,
sagði Rabin forsætisráðherra
ísraels i gær, að aðalviðfangsefn-
ið væri að skapa frið.
Eitt slagorð Palestinu-Arab-
anna, sem réðust inn i Tel Aviv,
var „tilraunir Kissingers munu
mistakast”. Siðustu tilraunir
Kissingers til að skapa frið i Mið-
Austurlöndum hafa gengið út á að
fá ísraelsmenn til að draga herlið
sitt til baka gegn þvi, að Egyptar
lýsi yfir, að þeir muni ekki fara
með strið á hendur þeim.
Rabin forsætisráðherra sagði I
gær, aö Israelsmenn mundu
„refsa skæruliðum”, sem að
árásinni stóðu. Annað sem talið
er benda til hefnda, er bréf frá
fulltrúa Israels til öryggisráðs
Sameinuðu þjóðanna, þar sem
bent er á, að fyrsta viðurkenning
samtaka Palestinu-Araba á aðild
að hermdarverkunum i gær hafi
borizt frá Beirut, höfuðborg
Libanon. Sú borg væri aðsetur
foringja frelsishreyfingar Pales-
tlnu-Araba. 1 rauninni barst
viðurkenningin frá Damaskus i
Sýrlandi, segir talsmaður
stjórnarinnar i Libanon.
Skæruliðar segja, að árásin i
gær hafi átt að sannfæra Banda-
rikjámenn og Israelsmenn um, að
ekki yrði unnt að semja um frið I
Mið-Austurlöndum nema Pales-
tinu-Arabar væru með.
„EKKI AFTUR
TILINDÓKÍNA"
Ford Bandaríkjafor-
seti reynir að gera
beiðni sina um viðbótar
hernaðaraðstoð við
Kambódiustjórn þolan-
legri fyrir þingmenn
með þvi að heita þvi, að
slik hernaðaraðstoð
muni ekki þýða, að
bandariskir hermenn
fari aftur til Indókina.
„Þetta er á elleftu stundu,”
sagði Ford i gærkvöldi og
höfðaði til tilfinninga þing-
manna i Kambódíumálinu.
Þingmaður hafði áður sagt for-
setanum, að sennilega yrði
beiðni hans hafnað. A blaða-
mannafundi, sem var
sjónvarpað, sagði Ford, að
helmingslikur væru til þess að
þingið féllist á að leggja um 33
milljarða króna i hernaðarað-
stoð til stjórnar Lon Nols i
Kambódiu og um 45 milljarða
króna til stjórnarinnar i Saigon,
Suður-VIetnam.
„Allir bandarisku her-
mennirnir eru komnir heim.
Þeir fara ekki aftur,” sagði
Ford.
ísbrjótar fastir í ís
Tveir isbrjótar, bandariskur
og argentinskur, eru fastir i
þykkum is við Suðurskautsland-
ið og kunna að verða að sitja
þar fastir I vetur.
Hinn bandariski Glacier og
Generai San Martin frá
Argentinu verða að losna á
næstu vikum, ellegar verða
áhafnir að horfast i augu við
vetur i Isnum. Glacier festist
eftir að hafa brugðið við til
hjálpar hinu skipinu, sem varð
fyrir vélarbilun, er það var að
flytja vistir til stöðva Argen-
tinumanna á Suðurskautsland-
inu.
Bandarlsk stjórnvöld hafa
fyrirskipað brottflutning allra i
höfn, sem ekki er full þörf fyrir
á skipinu, og allra farþega. A
Glacier eru 224 manns.
Milli skipanna eru um 18 mll-
ur.
!■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
PLÖTULOPI — HESPULOPI
Verölaunasamkeppni
Álafoss
Vegna fjölda áskorana um að lengja
skilafrestinn í lopasamkeppni
okkar höfum við ákveðið að framlengja
hann til lO.apríl n.k.
ÁLAFOSS h.f.
LOPITWEED — LÉTTUR LOPI
!■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
Vann byssukúluna
Myndavélin i þessum banka varð snarari en kúlan. Bankaræninginn
skaut vélina I klessu, en hann myndaðist samt eins og hér sést. Þetta
var i Clevelandborg i Bandarikjunum. Skömmu eftir ránið náðist einn
ræninginn og tveggja, sem vitað var, hverjir eru, var leitað.
Forsetinn fékk skýrslu
Aðild CIA að samsœri
um morð ó þremur er-
lendum þjóðaleiðtogum
Bandarik ja forseta
hefur borizt skýrsla um
aðild leyniþjónustunnar
CIA að samsæri um að
myrða nokkra leiðtoga
annarra rikja.
Ford forseti staðfesti
þetta á blaðamanna-
fundi i gærkvöldi.
Hann kvaðst ekki vilja upplýsa
frekar um skýrsluna að sinni, en
hana samdi yfirmaður CIA.Willi-
am Colby. Blaðið Washington
Post segir, að samsæri hafi á veg-
um CIA verið gert til að myrða
Fidel Castro forsætisráðherra
Kúbu, Rafael Trujillo einræðis-
herra i Dóminikanska lýðveldinu
og Patrice Lumumba I Kongó.
Tveir hinir sfðastnefndu voru
myrtir.
CIA hefur verið I athugun
bandarisku rikisstjórnarinnar að
undanförnu. Eitt og annað er talið
uppvist um refjar leyniþjónust-
unnar og orðrómur er á kreiki um
aðild hennar að hermdarverkum
viða um lönd.
Castró lagast
Kólumbia tók i gær upp
stjórnmálasamband við Kúbu og
varð tólfta Amerlkurikið til að
viðurkenna stjórn Castros.
Kólumbia sleit stjórnmálásam-
bandi við Kúbu árið 1961. Asamt
Venesúela og Costa Rica lýsti
Kólumbia þvi yfir I nóvermber,
að Kúba ógnaði ekki lengur
Ameriku með byltingu eins og
verið hefði fyrir áratug.