Vísir - 07.03.1975, Blaðsíða 8

Vísir - 07.03.1975, Blaðsíða 8
Vlsir. Föstudagur 7. marz 1975 Vlsir. Föstudagur 7. marz 1975 r • Bréf til íþróttasíðunnar: Boðsmiða-mafía, eða hvað? Hvers eiga handknattleiksunnendur aö gjalda i sambandi við miðasölu á landsleiki i handknattieik i Laugar- dalshöll? Undirritaður fór að biða utan forsölu aðgöngumiða að landsleik Tékka og tslendinga þ. 4. marz s.l., sent átti að HEFJAST kl. 17.30 þann saina dag. Þarna norpuðum við nokkrir tugir manna, sem ætluðum að tryggja okkur miða á góðum stað i húsinu og lögðum þvi á okkur þessa bið i brunakulda og töldum það vel þess virði, i skiptum fyrir góðan stað á spennandi leik. En viti menn, þegar miðasala hófst þá voru engir miðar til i B-stúku eða stærstu stúkuna i sætunum uppi! Hvernig getur þessu vikið við? Jú, það voru nefnilega boðsmiðar i henni, sagði stúlkan okkur. Já boðsmiðar, i alla stúkuna! Hvað skyldu vera mörg sæti i þeirri stúku? 200 eða kannski 300? Hafa menn gert sér grein fyrir þvi hvað það kostar, þegar miðinn er 600 króna virði? Ja, engin er furða þó H.S.l. sé á vonarvöl. Sé þetta hins veg- ar rangt, að ekki hafi verið boðsmiðar i öll þessi sæti, hvar voru þá miðarnir? Á maður virkilega að trúa þvi, að for- sala, sem á að hefjast þriðjudaginn 4. marz kl. 17.30, hafi þá þegar staðið i nokkra daga? Og hverjir eru þeir gæðingar, sem fá að verzla á undan al- menningi og velja úr beztu sætin? Það er ekki einungis þetta. Það lágu nefnilega ekki á lausu miðar i skástu sætin i hinum stúkunum tveim. I einu orði sagt þá virðist öll fram- kvæmd við miðasölu þarna vera i meira lagi furðuleg. Þegar leiknum var lokið var tilkynnt að miðasala á seinni leikinn væri þegar hafin. Eng- inn hafði hugmynd um þá fyrirætlan áður. Hvers áttu þeir að gjalda, sem urðu frá að hverfa á fyrri leiknum og sátu heima? Svona tuddamennska eins og hefur sýnt sig að er höfð I frammi, fólki mis- munað eftir einhverjum dyntum ráða- manna annaðhvort H.S.I. eða þeim sem hafa miðana undir höndum, er ekki hægt að láta viðgangast lengur. Þeir sem koma fyrstir og biða við for- sölu eiga skilyrðislaust að fá þá miða sem þeir óska. Ég kref H.S.I. um skýringar: Einar Gústafsson Athugasemd frá Skíðaráði Rvíkur líeykjavik 6/3 1975. I fréttatilkynningu i Visi fimmtudag- inn 27. feb. s.l. er frá þvi greint, að Skiðaráð Reykjavikur hafi bannað unglingum i eldri aldursflokkum að keppa i bikarmóti Skiðafélags Reykjavikur, sem haldið var sunnu- daginn 23. feb. s.l. fyrir yngri aldurs- flokkana. Skiðaráðið vill gera þá athugasemd að ákvörðun um frestun þessa hluta- mótsins var tekin af stjórn Skiðafélags Reykjavikur án vitundar né samráðs við skiðaráðið eða formann þess. Áður hafði verið gert ráð fyrir þvi að unglingamótið yrði haldið i öllum flokkum sunnudaginn 23. feb., enda samþykkt þannig i ráðinu 10. feb. s.l. Enn hefur ekki verið tekin ákvörðun um það, hvenær mótinu skuli lokið fyrir eldri flokkana, en skiðaráðið hef- ur bent skiðafélaginu á dagana 5. eða 6. april. Þriðja og seinasta bikarmót Skiða- félags Reykjavikur fyrir unglinga á þessu starfsári er svo áætlað 12. og 13. april n.k. SKRR. Bréf til íþróttasíðunnar: Handknatfleiíur á tímamótum Nú er svo komið að ekki verður lengurorða bundizt um ástandið innan isl. handknattleikslandsliðsins. Og sú krafa sett fram við stjórn H.S.Í. að þegar I stað verði gerö róttæk breyting á þjálfun, vali og stjórn liðsins. Það verður að vera hægt að ræða þetta mál af áhugamönnum, þannig að það verði ekki túlkað sem árás á einn eða neinn, þvi að þegja þunnu hljóði vegna þess að einhver getur orðið móðgaður er engum bjóðandi, þegar framtið þessarar iþróttar er i veði. Bráðabirgðaráðstöfun. Ein spurning? Var okkur ekki sagt og gefin yfirlýsing um það, þegar Birgir Björnsson tók við landsliðinu, að það væri bráðabirgðaráöstöfun þar til 1. flokks úrvalsþjálfari fengist, sem boðlegur væri þessum mestu afreks- mönnum okkar á iþróttasviðinu? Og aftur er spurt, hefur stjórn H.S.I. gengið i það með oddi og egg að standa við það loforð? Hvernig er valið i liðið? Á undanförnum árum hefur iðulega sitt sýnzt hverjum með val i liðið, þó oftast vegna þess að fleiri en einn af svipuðum styrkleika spiluðu sömu stööu á vellinum. Þessi umræða var oft skemmtileg og sýndi áhuga manna á iþróttinni. Nú er þetta gaman búið, þvi greinilegt er að mönnum er haldiö utan viö landsliðið af þvilikum þráa, að engu er likara en um persónulega óvild sé að ræða. Þó erfitt sé að trúa að þetta sé á svo lágu plani. Ég skal taka hér aðeins tvö d*mi af mörgum. Þórarinn Ragnarsson FH er einn traustasti varnarmaður okkar i dag og án alls vafa bezti hornamaður, sem nú spilar i 1. deild. Er búinn að vera markahæstur FH-inga leik eftir leik, þó að hann spili þá stöðu, sem einna minnsta möguleika gefur til skorunar. Við þetta bætist, að alltaf, þegar mest á riður i stórleikjum, er hann beztur. Hinn leikmaðurinn er Stefán Gunnarsson Val. Engum dylst, sem fylgzt hefur með og skilur leikinn, að Stefán er okkar. fremsti maður i að „blokkera”, það er að verja lang- skyttuna fyrir árás og opna smugu fyrir boltann i gegn. Svo skorar hann lika mörg mörk af linu, en auk þess er hann, eins og Þórarinn einn allra bezti varnarmaður, sem Island á. Svona mætti áfram telja upp menn, sem eru óumdeilanlega beztir i þeim stöðum, sem þeir leika, en sýnt er, að haldið verður utan við landsliðið meöan þeir menn ráða valinu, sem nú fara með völdin. Veldur ekki verkefninu. Ég hef um mörg ár verið aðdáandi Birgis Björnssonar þyi að hann hefur lagt mikið af mörkum sem leikmaður, svo viö skipum þann sess i handknatt- leiksheiminum, sem við gerum nú. Þess vegna er honum enginn greiði gerður að fá honum i hendur til fram- búðar verkefni, sem hann er ekki fær um að leysa. Hvar stöndum við? Vitað er að i handknattleiksheimin- um er þjóðum skipt að mestu i 4 flokka eftir getu. I 1. flokki eru þjóöir einsog Rúmenar, Júgóslavar, Rússar, Pólverjar, Austur- og Vestur- Þjóöverjar, Ungverjar, Tékkar og Sviar. t 2. flokki, sem er mjög nærri þeim fyrsta, eru Islendingar, Danir og Norðmenn. Svo kemur nokkurt bil i 3. flokki, en þar eru m.a. Sviss, Austur- riki, Finnland, Frakkland og Spánn. I 4. flokki eru lönd eins og Luxemburg, Holland, Belgia, Færeyjar og mörg önnur. Það er hryggilegt til þess að vita, að i dag megum við þakka fyrir, ef við erum taldir með þeim þjóðum, sem i 3. flokki eru, enda sjá allir að þegar Tékkarnir koma hingað beint frá Dan- mörku, þreyttir úr erfiðu móti, en við erum á heimavelli með 3 þúsund áhorfendur á bakvið, eigum við ekki minnsta möguleika á sigri. Ég geri mér fulla grein fyrir þvi, að það gætir talsverðrar gremju i þessum orðum, en fæ mig ekki til að strika neitt út, þvi vissulega eru menn gram- ir, en það er ekki bara vegna álits- hnekkis út á við og leiðindanna hér heima, heldur drepur þetta áhugann hjá áhorfendum og áhugamönnum svo þeir hætta að sækja landsleiki, og innan tiðar stendur höllin tóm. Það, sem hér aö framan hefur verið drepið á, er fátt eitt af þvi, sem ræða þyrfti um þessi mál, en höfuðsökin og ábyrgðin eru að sjálfsögðu hjá stjórn H.S.I., sem með ótrúlegri linku hefur starfað að öllum þessum málum. Ótal spurningar brenna á vörum manns, en ég ætla að enda þessa grein á að spyrja: Hefur H.S.l. gert eitthvað raunhæft i þvi að fá erlendan úrvals þjálfara fyrir landsliðið? Hefur nokk- urt samband verið haft viö Reyni Ólafsson eöa Hilmar Björnsson um aðstoð við þjálfun, val i liðið eða inná- skiptingu? Magnús Sigurjénssnn. I Heimsmeistarar í 3ja sinn Skautaparið heimsfræga, Irina briðia sinn i röð. sem betta sovézka er það I fyrsta skipti, aö sovézkur Skautaparið heimsfræga, Irina Rodnina og Alexander Zaitsev sigruðu örugglega I parakeppninni á HM I Colorado Springs í gær — og þaö er I þriðja sinn i röð, sem þetta sovézka par veröur heimsmeistari. I einstaklingskeppni karla sigraði Sergei Volkov — 25 ára Moskvubúi og Danska meistaramótið i Noregi! Danir hafa alitaf verið I hálf- gerðum vandaræðum með að halda sitt meistaramót I alpa- greinum á sklöum, af ástæðum, sem öllum er kunnugt um, sem heimsótt hafa landiö. Þeir hafa þurft að ferðast til út- landa til að halda mótið, og venjulega hefur Noregur orðiö fyrir valinu. Þannig er þaö einnig I ár, en mótið mun fara þar fram um helgina. Yfir 50 skiöamenn frá Dan- mörku munu taka þátt I mótinu. Sigurstranglegastur er Kurt Titusen, sem kemur frá Græn- landi þar sem möguleikarnir eru öllu meiri til að æfa svig og stór- svig en I hinni fjallalausu Dan- mörku. -klp- er það I fyrsta skipti, aö sovézkur skautamaöur verður heimsmeistari I listhlaupum frá því keppnin hófst 1896. Volkov varö fjórði á EM í Kaupmannahöfn. Annar I gær varö EM-meistarinn, Vladimir Kovalev, með 229,35 stig. — Volkov hlaut 231.35 stig. John Curry, Englandi, varð þriðji. tsdansinn hófst f gærkvöldi og eftir fyrstu æfinguna voru 2 pör jöfn og efst — Natalia Linichuk og Gennadi Karponosov, Sovétrikjunum, og Colleeen O.’Connor og Jim Millns, Bandarikjunum, með 39.52 stig — en sovézka parið var þó talið á undan, þar sem meirihluti niu dómara greiddi þeim atkvæði, er skorið var úr um fyrsta sætiö. -hsim. Umsjón: Hallur Símonarson 1 KR og Þróttur í basli með Breiðablik og ÍBK - í 2. deildinni í handboltanum í gœrkvöldi Gummersbach ekki í Evrópumeistarar Gummers- bach i handknattleiknum fengu skell á heimavelli i undanúrslit- um Evrópukeppninnar sl. laugar- dag. Töpuðu þá fyrir Vorværts, Frankfurt, Austur-Þýzkalandi — mótherjum FH I átta liða úrslit- um — að viöstöddum 12 þúsund áhorfendum i Dortmund. Loka- tölur urðu 22-18 fyrir austur- þýzka liðið, sem þar með hefur alla möguleika til að komast i úr- slit. Þetta er i annað sinn, sem Gummersbach tapar í Dort- munder Westfalen-iþróttahöllinni I Evrópukeppni, þar sem Vals- menn hafa m.a. fengið að kenna á Þjóöverjunum. Fyrri tapleikur- inn var úrslitaleikurinn 1972 gegn Partizan Bjelovar. Tapið nú fyrir Vorværtsvar mikið markverðin- um fræga, Kater, að kenna. Hann varöi aöeins eitt skot allan siðari hálfleikinn — svo kannski er Gummersbach ekki alveg von- NM-met í sundi Danska stúlkan Susanne Nils- son setti nýtt Norðurlandamet i 400 metra fjórsundi á móti i Árós- um nú I vikunni. Hún synti á 5.04, 6minútum, sem er mun betri timi en sænska stúlkan Anita Zarno- viccki átti, en það var 5.06,4 mln. laust I sfðari leiknum i Frankfurt 12. marz. Það var napurt i sfðasta leikn- um hjá Lugi i 1. deildinni sænsku — tap á heimavelli fyrir Heim — og Lugi, sem verið hefur i öðru sætii nær allan vetur, hrapaði viö tapið niður I fimmta sæti, en fjög- ur efstu liðin keppa um sænska meistaratitilinn. Lugi hafði yfir 11-9 i hálfleik gegn Heim og jafntefli hefði nægt liðinu til aö komast i úrslit. En allt för I handaskol í siðari hálf- leiknum —Heim skoraði 11 mörk, en Lugi aðeins sex. Jón Hjaltalin Magnússon skoraði fimm mörk fyrir Lugi, en Olle Olsson var markhæstur með sex. Curt Magnusson var markhæstur hjá Heim með fimm mörk. önnur úr- slit Drott — Ystad 23-12, Lidingö — Kristianstad 17-18, Saab — Hellas 28-23, Frölunda — Malmö 24-16. Lokastaðan varð þannig: Frölunda 18 13 1 4 342-299 27 Kristianstad 18 10 1 7 317-313 21 Heim Drott Lugi Ystad Hellas Malmö Saab Lidingö 18 18 18 18 18 18 18 18 846 336-339 20 918 331-309 19 828 310-312 18 747 320-325 18 8 1 9 329-345 17 729 283-287 16 7 110 332-339 15 4 113 329-361 19 Tvö neðstu liðin féllu niður Saab varð sænskur meistari i fyrra. —hsim. KR og Þróttur stóðu I hálfgerðu basli með mótherja sina i 2. deild tslandsmótsins I handknattleik I Laugardalshöllinni I gærkvöldi. Landslið gegn USA Bandariska kvennalandsiiðið I handknattleik er aftur væntan- legt til tslands og leikur hér landsleik n.k. sunnudag, 9. marz. Leikurinn verður i iþróttahúsinu I Hafnarfirði og hefst kl. 11 á sunnudagsmorgun. tslenzka landsliðið verður þannig skipað. A-landslið: Markm. Alfheiður Emilsdóttir Arm. Gyða Úlfarsdóttir, F .H. Oddgerður Oddgeirsdóttir, Valur Aðrir leikmenn: Amþrúður Karlsd., Fram Björg Jónsd., Valur Guðrún Sigurþórsd., Árm. Hansina Melsted, KR Harpa Guðmundsd., Valur Hjálmfriður Jóhannsd., KR Hrefna Bjarnad., Valur Oddný Sigsteinsd., Fram Ragnheiður Lárusd. Valur Sigrún Guðmundsd. Valur (0) (6) (0) (14) (6) (10) (17) (0) (5) (4) (9) (5) (19) Sá berfœtti bar sigur úr býtum Johnny Miller tók ekki þátt „Jackie Gleason golfkeppninni”, sem fram fór á Inverrary golf- vellinum I Flórlda og lauk I þess- ari viku. Þó var þetta ein af mestu peningakeppnunum i Bandarikjunum I ár — verðlaunin 260 þúsund dollarar. Sigurvegari varð Bob Murphy frá Bandarikjunum, sem lék 72 holurnar á 273 höggum — 15 undir pari. Var hann einu höggi betri en Eddi Pearce og þremur höggum betri en Jack Nicklaus, sem var í forustu þegar 5 holur voru eftir. Þá sló hann einn bolta út af vellin- um, og var svo einn yfir pari á næstu holu þar á eftir. Miller Barber varð fjórði á 276, en síðan komu Lee Trevino og Hale Irwin á 277 höggum. Trevino var með beztu 18 holurnar i keppninni — 65 högg. 1 atvinnumannakeppninni þar á undan „Glen Campell Open” sigraði nýliði I atvinnumanna- hópnum, Pat Fitzsimon að nafni. Var þetta I fyrsta sinn, sem hann nær framarlega i svona keppni, og þó lék hann berfættur siðustu 18 holurnar, þvi gaddaskórnir meiddu hann. Síðustu 18 holurnar lék hann á nýju vallarmeti á Riviera golf- vellinum i Los Angeles — kom inn á 64 höggum og 72 holurnar á samtals 275 höggum. Var hann 4 höggum betri en Tom Kit'e og Jack Nicklaus. Johnny Miller tók þátt I þessari keppni, en missti aila möguleika er hann fór par fjögur holu á 7 höggum og kom inn á samtals 287 höggum, sem gaf honum tólfta sætið. — klp — Ekkert stöðvaði Emilíu er gler- augun voru komin á sinn stað! Það var nokkuð liðiö á leik 1R og KR I bikarkeppni kvenna I körfuknattleik, sem fram fór um siðustu helgi, og voru tR-stúlk- urnar — sem eru nýbakaðir ís- landsmeistarar — komnar 10 stigum yfir hinar. Þá bað KR um leikhlé og not- aði það til að senda eina af slnum stúlkum —Emiliu Siguröardóttur — inn i búningsklefa til að ná I -gleraugun sin. Þegar hún kom til baka hófst ieikurinn að nýju, og allt fór að ganga i haginn fyrir KR.... sérstaklega þó Emillu, sem sá körfuna betur en nokkurn tima áður. Skoraði hún 16 stig i röð— sum langt utan af velli og kom boltinn ekki einu sinni við netið á leiðinni niður. Við þessu áttu meistararnir ekkert svar — enda önnur eins gleraugu ekki til I þeirra búðum — og uröu þeir að sætta sig viö 4 stiga tap fyrir KR, 39:35. En úr þvl að sigur vannst ekki var tekið á annað ráð, sem er nú mjög I tizku hjá Iþróttafélögun- um, en það er að kæra. Það hefur 1R gert og er beðið eftir úrskurði dómstóls I þeirri kæru. 1 kvöld verða tveir leikir leiknir I bikarkeppninni I Laugardals- höllinni. Þar leika Armann-IR i karlaflokki og íS-Þór I kvenna- flokki. .klp. Þau höfðu þó bæði sigur, en hann var ekki tryggur fyrr en undir lokin. KR-ingarnir höfðu 2 mörk yfir á móti Keflvikingum i hálfleik. En I sföari hálfleik náðu Keflviking- amir að jafna og héldu jöfnu I 16:16. Fór þá að fara um vestur- bæingana og tóku þeir þvi mikinn sprett —skoruðu 12 mörk á móti 1 frá þeim að sunnan — og það gerði útslagið. KR sigraði i leikn- um 28:17. Gat ekki losnað úr loðnunni! Loðnan veiðist það grimmt hér við land þessa dagana, að skipstjórinn á Héöni ÞH — Sig- urður Héöinsson — sem átti að vera fyrirliði og einn þriggja keppenda Golfklúbbsins Keilis á Evrópumeistaramóti klúbbliða á Spáni I næstu viku, sá sér ekki fært að fara ferðina. t hans stað hefur veriö valinn góökunnur handknattleiks- og knattspyrnumaður úr FH og Val — Sigurjón Glslason — sem hóf að leika golf fyrir nokkrum árum og hefur náð mjög athyglisverðum árangri. Auk hans verða i liðinu Sig- urður Thorarensen, sem var 1 unglinga og karlalandsliðinu s.I. sumar og Július R. Júliusson. Þeir hafa þegar fengið senda farseðlana til Madrid og heim aftur, og halda utan i fyrramálið. Austri hefur forustu Einn leikur var háður i Aust- fjarðariðli 3. deildarinnar i handknattleik á Eskifirði um helgina. Austri vann þá Þrótt, Neskaupstað, með 24-15. Staðan i riðlinum er nú: Austri 3 2 0 1 4 Huginn 4 2 0 2 4 Þróttur 3 10 2 2 Leiknir hætti þátttöku i keppn- inni og þess má geta, að Iluginn hefur kært leik sinn við Austra, sem var meö of ungan leikmann i liði sinu. — Hjörvar Þeir leika ó Norðurlandamóti Unglinganefnd H.S.t. hefur valið eftirtalda 11 leikmenn til að keppa fyrir hönd tslands I Norð- urlandamóti pilta I Finnlandi dagana 4.-6. april n.k. Bjarni Guðmundsson Val Jóhannes Stefánsson Val Óskar Ásgeirsson Vai Steindór Gunnarsson Val Ingi Björgvinsson K.R. Sigurður óskarsson K.R. Hannes Leifsson Fram Jón Árni Rúnarsson Fram Pétur Ingólfsson Ármanni Ingimar Haraldsson Haukum Þorbergur Aðalsteinsson Viking Markverðir: Pétur Hjálmarsson K.R. Hákon Arnþórsson t.R. Kristján Ingimundarson Þrótti Bommi skytta gat ekki sofið I flugvélinni i—i |— Vantar þig nokkuð, Bommi? J Takk,en ' hvernig þekktirðu N ;ð is © Ktnu realure* Sync!»c«Ie. Inc.. 1973 Wurld nghls recerved " I hinum leiknum áttust við Þróttur og Breiðablik. Þar höfðu Þróttaramir yfir I hálfleik 11:9. 1 siðari hálfleiknum náðu þeir að- eins aö auka bilið um eitt mark i viðbót — lokatölurnar urðu 21:18 fyrir Þrótt. Bjami Jónsson lét sér nægja að leika fyrri hálfleikinn með Þrótti — þetta var hans 11 leikur á 14 dögum með Þrótti og landsliöinu, og var hann búinn að fá meira en nóg, þegar þessi leikur var hálfnaður. — klp — Vilja ekki til fslands Fy rirliði danska landsliðsins I handknattleik, Jörgen Frand- sen, svo og þjálfari liðsins, Gert Andersen, verða ekki með danska landsliðinu, sem hér leikur eftir háifan mánuð. Hafa þeir báðir afþakkað ts- landsfcröina, og sömuleiðis hef- ur Bent Larsen, sem hefur verið fastur maöur I liðinu að undan- förnu, tilkynnt að hann geti ekki farið i þetta sinn. Ekki er endanlega búið að velja hópinn, né þjálfara og liðs- stjóra I stað Gert Andersen, en það verður gert einhvern næstu daga. Sum blöðin hafa haft á orði, að „tslandsbaninn” Jörgen Petersen fari nú aftur inn I liöið og einnig þeir Carsten Lund og Ftemming Hansen, en þeir hafa veriö ,,út i kuldanum” undanfarnar vikur. —klp— - Bókamarkaðurinn I HUSI IÐNAÐARINS VIÐ INGÓLFSSTRÆTI

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.