Tíminn - 19.07.1966, Síða 2
ÞRIÐJUDAGUR 19. júlí 1966
Myndin Kér a'ð ofan er af manntaflinu við hátiða höldin á
HÁTÍÐAHÖLDIN Á ÍSA-
FIRÐI TÓKUST VEL
G'S-ísafirði, mánudag.
Hátíðahöldin í tilefni af 100
ára afmæli ísafjarðarkaupstað-
ar fóru fram með miklum glæsi
brag og lyktaði þeim í gær-
kvöldi. Mikill fjöldi aðkomu-
fólks kom til ísafjarðar um há-
tíðisdagana og var það mest
fólk úr nærsveitum kaupstað-
arins. Bárust kaupstaðnum
margar dýrmætar gjafir í til-
efni afmælisins.
Á laugardaginn var glamp-
andi sólskin og hlýtt. Fóru há-
tíðahöld fram samkvæmt áætl-
un. Kl. 8 voru fánar dregnir að
hún, kl. 10.30 fór fram hátíða-
messa á hátíðasvæðinu við Tún
götu, predikaði Sigurður Kristj
ánsson prófastur, en biskupinn
yfir íslandi, herra Sigurbjörn
Einarsson flutti ávarp. Kl. 13.30
hóf Lúðrasveit ísafjarðar leik
á Silfurtorgi og kl. 14 var far-
in skrúðganga frá Silfurtorgi
á hátíðasvæðið við Túngötu.
Forseti bæjarstjórnar ísafjarð-
ar Björgvin Sighvatsson setti
hátíðina og síðan fóru fram
ýmis atriði svo sem kórsöngur.
Birgir Finnsson alþingismaður
flutti hátíðarræðu, þá flutti for-
sætisráðherra, Bjarni Bene-
diktsson ávarp og síðan full-
trúar vinabæja á Norðurlönd-
um. Allir færðu þeir kaupstaðn
um góðar gjafir, fulltrúi Lin-
kjöbing færði áletraðan
kristallsstall, fulltrúi Tanneberg
tvo forkunnarfagra silfurkerta-
stjaka, fulltrúi Joensuu í Finn
landi kom með fallega silfurskál
og frá Roskilde fékk ísafjarð-
arkaupstaður ljósprentað ein-
tak af Sturlungasögu útg. 19'ó8.
Að þessu loknu flutti fulltrúi
ísfirðingafélagsins í Reykjavík,
Ólafur Einarsson ávarp. Þá
söng Guðmundur Jónsson ein-
söng, og síðan hélt kvenfélagið
Hlíf þjóðbúningasýningu og kl.
18 var opnuð málverkasýning
í Gagnfræðaskólanum. Verkin,
sem sýnd voru, voru lánuð frá
Listasafni ríkisins, Listasafni al
þýðu, en Listasafn ísafjarðar
átti þó töluverðan hlut í þess-
ari sýningu. Hefur frú Elín
Halldórsdóttir gefið allar sínar
eigur til þessa nýstofnaða lista-
safns, svo og hafa þau hjónin
Herdís Þorvaldsdóttir leikkona
og Gunnlaugur Þórðarson gef-
ið safninu mörg verk.
Um kvöldið voru sýndar ým-
iss konar sjóíþróttir, sýndu þeir
Hafsteinn Sigurðsson og Auð-
unn Finnsson svig og stökk á
sjóskíðum. Um kvöldið hafði
bæjarstjórn ísafjarðar boð inni
fyrir fulltrúa vinabæjanna,
sýslumenn og oddvita á Vest-
fjörðum og aðra góða gesti.
Tóku þar margir til máls, m.a.
Framhaid a Dls. ló
TJÖLDIN FUKU A HÖLUM
KJ—Reykjavík, mánudag.
í rokinu og rigningunni, sem
gerði að Hólum í Hjaltadal um
hádegisbilið á sunnudaginn fuku
mörg tjöld af tjaldstæðinu, og
einnig varð vegna roksins að fella
stórt og mikið veitingatjald, sem
stóð heima við Hólabæinn.
Sum tjöldin, sem voru með föst
um botnum belgdust út og börð-
ust um í rokinu, þangað til Kári
Guttormur
Eriendsson
látinn
Á sunnudagsmorgun lézt
Guttormur Erlendsson for-
maður framtalsnefndar
Reykjavíkur. Guttormur
var fæddur 13. apríl, 1912 á
Breiðabólsstöðum á Áiíra-
nesi, og voru foreldrar hans,
Erlendur hreppstjóri þar
Björnsson og María Sveins
dóttír. Stúdent varð Gur.t
ormur frá MR 1932, og tók
síðan lögfræðipróf frá Há
sktóla íslands 1938. Eftir það
stundaði hann framthalds-
nám í lögfræði í Danmörku,
Þýzkalandi og Englandi.
Skrifstofustjóri varð Gutt
Framhalcl a bls la
karlinn hafði betur og feykti þeim
í burtu með vindsængum, svefn-
pokum og öllu saman. Þessi SV-
átt, sem gerði svo skyndilega
þarna í Hjaltadalnum er frekar
óvenjuleg þar um slóðir, en þeg
ar hún kemur, er hann hvass. Um
tíma leit út fyrir algjört neyðar-
ástand á tjaldstæðinu, því ofan
á rokið bættist rigning, en þegar
lægði og stytti upp, náði fólkið
saman föggum sínum, og er von-
andi, að hver hafi haft sitt.
Nokkuð mikið bar á ölvun og
ólátum í tjaldbúðunum aðfaranótt
sunnudagsins, og var þar að verki
stráhattalýðurinn, sem eltir all
ar útiskemmtanir, án þess þó í að
taka þátt í þeim, en er á tjald-
svæðum og drekkur og ólátast.
Gekk svo langt, að tjöld voru brot
in niður og skorin af þessum lýð,
VARDBERG
FIMM ÁRA
Um þessar mundir eru 5 ár lið-
in, síðan Varðberg — félag ungra
áhugamanna um vestræna sam-
vinnu var stofnað í Reykjavík. Að
stofnun Varðbergs stóðu ungir
menn úr röðum lýðræðisflokkanna
þriggja, Alþýðuflokksins, Fram-
sóknarflokksins og Sjálfstæð-
isflokksins.
Markmið Varðbergs er og hefur
verið: að efla skilnining meðal
ungs fólks á íslandi á gildi lýðræð-
islegra stjórnarhátta.
að skapa aukinn skilning á mik-
ilvægi samstarfs lýðræðisþjóðanna
til verndar friðnum.
að vinna gegn öfgastefnum og
öfgaöflum.
að mennta og þjálfa unga áhuga-
menn í stjórnmálastarfsemi með
því að afla glöggra upplýsinga um
samstarf og menningu vestrænna
þjóða, um markmið og störf At-
lantshafsbandalagsins, svo og að-
stoða í þessum efnum samtök og
stjórnmálafélög ungs fólks, er
starfa á grundvelli lýðræðisreglna.
Eftir stofnun félagsins, var efnt
til umræðufunda um land, og fjall-
að um þátttöku íslands í samstarfi
hinna vestrænu lýðræðisríkja, m.a. ■
á sviði varnarmála, stjórmáia og
menningarmála. Þær víðtæku um-
ræður, sem þar áttu sér stað, urðu
til þess að varpa nýju ljósi á mik-
ilvægi samstarfs lýðræðisþjóðanna
til verndar friði í heiminum —
og áttu verulegan þátt í að kveða
niður þær raddir, sem þá um tíma
höfðu andmælt þátttöku fslands í
þessu samstarfi.
Síðan hefur félagið beitt sér fyr-
ir margvíslegri kynningar- og út-
gáfustarfsemi, fræðsþistarfsemi á
þessu sviði, fyrirlestrum, kvik-
myndasýningum, kynnisferðum og
ráðstefnum.
Sá mikli áhugi, sem þegar í upp-
hafi ríkti um starfsemi félagsins,
leiddi brátt til stofnunar fleiri
Varðbergs-félaga — og hafa félög
verið stofnuð á Akureyri, Vest-
mannaeyjum, Akranesi, Siglufirði,
Skagafirði, Húsavík og Snæfells-
nesi. Starfandi eru nú 8 félög.
Framhald á bls. 15.
og ekki gat hann heldur séð bíla
í friði, númeraplöturnar urðu þeir
að rífa af, og úr einum bílnum,
rússajeppa austan af Héraði. tók
lýðurinn kveikjulok og hamar,
benzínleiðslur, kertaþræði o.fl.
svo að bíllinn varð af eðlilegum
ástæðum ógangfær. Urðu þeir,
sem með hann voru, að fá viðgerð
armann á staðinn til að kippa
öllu þessu í lag — og auðvitað
að greiða úr eigin vasa.
Vegna þess að fella varð veit-
ingatjaldið á Hólum, blotnuðu
töluverðar birgðir af eldspýtum,
sem keyptar höfðu verið inn, og
var svo komið á sunnudagskvöld,
að ekki fengust aðrar eldspýtur á
staðnum en minjagripastokkar á
35 kr. stk. Greiðasala öll gekk þó
með ágætum, þrátt fyrir, að fólk
Framhald á bls. 14
LAUGARVATN AKJOSAN-
LEGUR HVÍLDARSTADUR
Blaðamaður Tímans hitti ný-
Iega á förnum vegi tvo Reyk-
víkinga, óvenju hressilega og
ánægða, og kom í ljós, að þeir
voru nýkomnir frá Laugarvatni,
en þar höfðu þeir dvalið í
nokkra daga. Voru þeir yfir sig
ánægðir með dvölina þar og lof
uðu staðinn óspart.
— Landslagið á Laugarvatni
er eins fullkomið og hægt er
að hugsa sér — þar er fegurð
hvert sem litið er, — sögðu
þeir.
— En hvernig er aðstaðan
fyrir ferðamenn á Laugarvatni?
— Hún er mjög góð. Eins
og á undanförnum árum rekur
héraðsskólinn þarna sumarhót-
el, sem Bersteinn Kristjónsson
kennari á Laugarvatni, hefur
umsjón með. Aðbúnaðurinn er
góður, gestirnir búa í rúmgóð-
um og þægilegum tveggja
manna herbergjum. f hótelinu
er einnig skemmtileg og rúm-
góð setustofa fyrir gestina. Þeir
geta farið í gufubað á staðn-
um og í sundlaugina. Gufubað-
ið er nýuppgert og með nýj-
um búningsklefum og böðum.
Framhald á bls. 15.
Svona var umhorfs á tjaldstæðinu í rokinu. Tjöldin ýmist útþanin eða fallin, en fólk reynir að bjarga þvi sem bjargað verður. (Tímamynd: Kári).