Tíminn - 19.07.1966, Blaðsíða 14
ÞRIÐJUDAGUR 19. júlí 1966
14
TÍMINN
BARN DRUKKNAR
Framhald af bls. 1.
Systir drengsins náði ihonum úr
sjónum meðan bróðir hans náði
í móður sína. Þegar móðirin kom
á slysstaðinn hóf hún þegar lífg
unaraðgerðir með blástursaðferð
(hún lærði þessa aðferð á nám-
skeiði s.l. vor).
Héraðslæknirinn kom fljótt á
staðinn og tók hann þegar við
drengnum og hóf lífgunaraðgerð
ir. Síðan var drengurinn fluttur í
sjúkrahúsið hér á staðnum, og var
haldið stanzlaust áfram lífgunar-
tilraunum þar til kl. 18 en árang-
urslaust.
Foreldrar barnsins eru þau
Kristbjörg Magnúsdóttir og Jó-
hannes Guðmannsson, Sæbóli.
VÍSA FRÁ
Framhald af bls. 1.
Suður-Afríku-stjórn fagnaði
nijög úrskurði dómstólsins, vest-
urveldin önduðu léttara, þar sem
engin hætta er á að úrskurður-
inn komi fyrir Öryggisráð Sam-
einuðu þjóðanna, en vesturveld-
in, einkum Bretland, licfðu lent
í erfiðri afstöðu, ef úrskurður
dómsins hefði gengið gegn Suð-
ur-Afríku og Öryggisráðið þurft
að fullnægja dómnum. Afríkuríki
lýstu yfir furðu sinni á úrskurð-
inum, sem byggðist einungis á
mjög „tæknilegum atriðum." Full
trúi Líberíu hjá Sameinuðu þjóð-
unum kvaðst furðu lostinn yfir
úrskurði dómstólsins.
Það var Sir Percy, sem las
upp dóminn. Réttarsalurinn var
þéttsetinn, er dómararnir 14
gengu inn í salinn.
Eþíópía og Líbería, sem bæði
voru aðilar að þjóðabandalaginu,
höfðu fyrir hönd allra annarra!
afrískra ríkja ákært Suður-Afríku
fyrir að hafa brotið það umboð,
sem þjóðabandalagið veitti land-
inu yfir Suðvestur-Afríku, sem
áður var þýzk nýlenda, með því
að innleiða Apartheid-stefnu sína
(aðskilnaðarstefnuna í landinu,
og með því að vinna ekki að
hagsmunum íbúanna.
Suður-Afríka fullyrti, að þessi
tvö ríki hefðu engan lagalegan
rétt til þess að skipta sér af því
hvernig Suður-Afríka færi með
umboð sitt í Suðvestur-Afríku.1
Meirihluti dómstólsins úrskurð-1
aði, að Líbería og Eþíópía hefðu !
ekki lagalega heimild til þess að
hefja mál þetta, og skyldi því
ákærunni vísað frá.
Þeir dómarar, sem stóðu að
meirihlutanum, voru fyrir utan!
Sir Percy Spender, suður-afríski I
dómarinn J.T. Van Vijk, B. Wieni-1
arski frá Póllandi, J. Spiropoulos
frá Frakklandi. Á móti voru
mauriee frá Bretlandi, Gaetano
Morgeli frá ítalíu og André Gros
frá rakklandi. Á móti voru
Dr. Vellington Koo frá Formósu,
V.M. Koretsky frá Sovétríkjunum,
K. Tanaka frá Japan, J. C. Jessup
frá Bandaríkjunum, Luis Padilla
Nerva frá Mexicó, Isajc Forster
frá Senegal og S. Mbanefo, sem
er skipaður af Eþíópíu og Líberíu.
Awfjivsið i hmenun>
Mál þetta hófst árið 1960, og
hefur dóimurinn 28.000 orð að
lengd.
Fréttamenn segja, að nú sé mál
þetta komið á stjórnmálasviöið fyr
ir alvöru. Ernest Gross frá New
York, einn af lögfræðingum ákær
andanna sagði, að dómsúrskurður
inn væri tap fyrir báða aðila. Það,
að hin lögfræðilega þróun málsins
hafi verið stöðvuð á þennan máta,
getur leitt til óútreiknanleigra pólí
tískra afleiðinga, sem enginn hef-
ur ástæðu til að gleðjast yfir, —
sagði hann.
Verwoerd, forsætisráðherra S-
Afríku, sagði í útvarpsræðu í kvöld
að úrskurður dómstólsins væri mik
ill sigur, og hið þýðingarmesta
væri, að ekki væri hægt að nota
úrskurðinn til árása á Suður-Af-
ríku í Öryggisráðinu. Hvíti minni-
hlutinn í S-Afríku tók dómsúr-
skurðinum með ánægju og varp-
aði öndinni léttara, þar sem eng-
inn hafði búist við slíkum úr-
skurði. Blöð í landinu gáfu út
aukablöð.
Fulltrúar Eþíópóu og ‘Líberíu
hjá Sameinuðu þjóðunum létu í
Ijósi mikla undrun yfir dómnum.
í Stokkhólmi var farið í mót-
mælagöngu til sendiráðs Suður-Af-
ríku þar í borg um leið og kunn-
ugt var um dóminn, segja heimild
ir þar.
Jens Otto Krag, forsætisráðherra
Danmerkur, sagði í kvöld, að
danska stjórnin hefði orðið fyrir
miklum vinbrigðum með úrskurð
alþjóðadómstólsins, og lagði
áherzlu á, að dómstóllinn hefði
ekki tekið afstöðu til kjarna máls-
ins — nefnilega hvernig Suður-
Afríka hafi framkvæmt umboð sitt
í Suðvestur-Afríku.
Kjell Bondevik, sem gegnir störf
um forsætisráðherra Noregs um
þessar mundir, sagði, að dómstóll-
inn hefði farið framhjá kjarna
málsins, og þar með látið hjá líða
að segja meinigu sína í þýð-
ingarmiklu máli. Dómurinn kom
mjög á óvart, og að mínu áliti
er hann ekki sérlega traustur, þar
sem atkvæði hefði raunverulega
fallið jafnt — sjö dómarar gegn
sjö. Hann sagði, að hann teldi úr-
skurðinn mjög vafasaman.
GEIMSKOT
F'ramfiald af bls 1
geimfarinu og dvelja utan þess
um nokkurn tíma. Á hann meðal
annars að losa tæki, sem fest er
við Agena-8 og festa annað tæki
við eldflaugina.
Verður þetta í fyrsta sinn, sem
geimfarar reyna að komast í beint
samband við tvær eldflaugar í
sömu geimferðinni.
Samkvæmt áætluninni eiga geim
fararnir að ná 753 km jarðfirð, og
verður það nýtt met. Gamla metið
var 498 km. f þessari miklu hæð
koma þeir mjög nálægt hinu
hættulega Van Allen-belti.
HEIMSÓKN
Framhald at bls. 16.
störfum fyrir ríkisstjórn lands síns
aðallega á sviði samgöngumála, þ.
á.m. flugmála.
Móðir mín,
SiqríSur Sveinsdóttir
klæðskerameistari, Kleppsvegi 20,
sem lézt í sjúkrahúsi Hvítabandsins þann 14. þ. m.. verður jarð-
sungin frá Fossvogskirkju, miðvikudaginn 20. þ. m. kl. 3.
Halldór Bjarnason.
Eiginkona mín og móðir olckar,
Valaerður Guðnadóttir
lézt að Elli- og hjúkrunarheimilinu Grund, sunnudaninn 17. þ. m.
Sigurbergur Sigurbergsson og börn.
Gestirnir koma hingað til lands
kl. 02.30 á þriðjudag, og þann
dag heimsækja þau forseta íslands,
og fara með Agnari Kofoed-Han-
sen í flugferð til Surtseyjar og
e.t.v. einnig yfir Veiðivötn.
Á miðvikudaginn verður flogið
með gestina til Grænlands í flug-
vél frá Flugfélagi íslands, og dvelja
þau þar til föstudags. Munu gest-
irnir m.a. sjá Bröttuhlíð og Garða.
Á föstudaginn hitta gestirnir
Ingólf Jónsson, flugmálaráðherra,
og á laugardaginn verður farið
með þau í flugferð um Austur-
eða Vesturland. Fara gestirnir til
Luxembourgar á hádegi á sunnu-
dag.
TVEIR BÍLAR ÚT AF
Framhald af bls. 16.
niður hjá Vífilstöðum.
Hefur lögreglan sett upp tvö
skilti, á Öskjuhlíðinni við Bú-
staðarveg og við Nýbílaveg í
Kópavogi, þar sem hún beinir
umferðinni inn fyrir borgina
upp á Vatnsendaveginn. Sá
vegur er mjór og byggist um-
ferðin þar á tillitssemi. Þó
höfðu tveir bílar farið þar út
af í dag.
Á föstudaginn og laugardag-
inn var lokið við að malbika
kaflann frá Engidal að Silfur-
túni, og í dag og á morgun
verður kaflinn Silfurtún-Arnar
nes malbikaður. Því næst verð-
ur þriðji og síðasti áfanginn,
Arnarnes að Kópavogsbrú, mal-
bikaður á miðvikudag og
fimmtudag, ef veður leyfir.
Við fyrsta og þriðja áfang-
ann var ruddur vegur við hlið-
ina á aðalveginum, en það
reyndist ekki unnt við annan
áfangann. Því verður Hafnar-
fjarðarvegurinn lokaður í dag
og á morgun, nema hvað al-
menningsvögnum er leyft að
fara þá leið.
Kostnaður við verkið nemur
hálfri sjöttu milljón.
SÍLDIN
Framhald af bls. 16.
Gjafar og Hafrún með síld
til Siglufjarðar.
Talsmaður Síldarlei-tarinnar á
Siglufirði sagði í dag, að bræla
væri á miðunum og bátarnir hefðu
margir leítað í var hjá Jan May
en. Ægir er nú í Reykjavík og er
talið, að hann muni leita aftur á
Norðursvæðinu síðar, en engir
bátar eru nú þar um slóðir.
Á Siglufirði var verið að salta
af tveimur bátum — Gjafar kom
með 85 tonn til söltunarstöðvar
Þráíns Sigurðssonar og Hafrún
með 170 tonn til söltunarstöðvar
Skafta Stefánssonar. Síldin er á-
gæt hvað stærð og fitumagn snert
ir.
Siglingin til Siglufjarðar af mið
unum tekur 27—8 tíma, um 5 klst.
lengri sigling en til Raufarhaftiar,
en álíka löng og til Seyðisfjarðar.
Síldarverksmiðjurnar hafa báð-
ar verið gangsettar, en magnið,
sem hefur verið brætt, er sáralitið.
TJÖLDIN FUKU
Framhald af bls. 2.
ið þyrptist inn í skólahúsið á með
an á rigningunni stóð. Allan tím
ann, sem mótið stóð að Hólum,
urðu engin vandræði vegna matar-
eða kaffisölu á sumarhótelinu, og
líkuðu veitingarnar vel. — höfð-
inglega fram bornar.
Hann Magnús í Staðarskála í
Hrútafirði sagði við okkur nokkra
blaðamenn, sem vorum á suður-
leið frá Hólum j nótt, að i hans
minni hefði aldrei verið eins mik
il umferð á þjóðvegunum þar í
kring og um þessa helgi „Það er
bara einfc og bílaflota landsmanna
hafi verið stefnt hingað á okkur,
og engin verzlunarmannahelgi
kemst i háifkvisti við þetta. Og
það ei eins og helmingurinn af
þessu fólki hafi ekki vitað, hvert
það var að fara, því að margirj
þeirra, sem fóru til Hóla voru
orðnir benzínlitlir hérna í Hrúta
firðinum, og þá var barið upp. Eg
gat því ekki lokað fyrr en klukkan
um fjögur aðfaranótt föstudagsins
því að straumurinn var alveg
stanzlaus, og svona hefur það ver
ið í nótt allt fram að þessu, en
nú held ég maður fari að leggja
sig, enda sólin komin vel á loft.”
Lindermann í Varmahlíð sagði:
„Við erum að verða búnir með
allt, sem við höfum til sölu, og ég
er bara búinn að fá nóg af allri
þessari umferð. Þetta hefur aldrei
verið eins mikið”.
BRUNAVARÐAMÓT
Framhald af bls. 16.
víkur heimil þátttaka eftlr
vilía og getu.
Síðdegis í dag hlýddu gest
irnir á erindi dr. Sigurðar
Þórarinssonar um * Surtsey
og sýnd var stutt kvikmynd
um Surtsey. Að henni lok-
inni var farlð í kynnisför
um borgina og nágrenni.
Einn daginn fara þátttak
endurnir í flugferð til Akur-
eyrar og Mývatns, annan
dag verður Áburðarverk-
smiðjan skoðuð en auk þess ,
verða flutt mörg erindi, ni.
a. mun hinn nýskipaði
slökkvistjóri, Rúnar Bjarna
son, flytja erindi um sprengi
og eitrunarhættu við slokkvi
starf í ammoniumnítrati.
Mótinu lýkur á föstudag-
inn.
LÁTINN
Framihald af bls. 2.
onmur Erlendsson hjá Fé-
lagi ísl. iðnrekenda 1939, og
var það í tvö ár. Hann varð
aðalendursikoðandi reikn-
inga Reykjavíkurborgar
1941, hdl. í nóvember 1940
og hrl. í ágúst 1944. Frá
1952 til 1962 var hann í
niðurjöfnunarnefnd og for-
maður framtalsnefndar írá
1962.
Kvæntur var Guttormur
Guðlaugu Þorfinnsdóttur.
HÓFADYNUR
Framhald af bls. 8.
Naglaboðreið Norðlendinga
og Sunnlendinga féll niður en
tveir milliriðlar í 300 metra
stökki fóru fram þá um dag-
inn. Völlurjnn var þá ágætur
til kappreiða, hafði þornað mik-
ið í þurrviðrinu undanfarna
daga.
Tíndist fólk að þessum dag-
skráratriðum loknum í tjöld
sín, sem flest voru á Víðnes-
eyrum, og hafði tjaldborgin
stækkað mjög þá um daginn.
Útreiðartúrar voru ofarlega
í hugum margra þarfna á laug-
ardagskvöldið eftir að hafa
augum litið alla þá gæðinda og
gæðingaefni á sýningarsvæðinu
um daginn sem þar komu fram.
Þustu flokkar hestamanna um
grundirnar í Hjaltadalnum og
reyndu hesta sína, á meðan
yngra fólkið á hestamannamót-
inu og stráhattalýðurinn sem
slegið hafði tjöldum sínum á
bakkana þusti á reiðsikjótum
nútímans — bílunum — á dans
leikina þrjá sem haldnir voru
í sambandi við mótið. Við sem
vorum svo heppin að hafa val-
ið útreiðatúrana fengum sér-
staklega fagurt útsýni og sér-
kennilegt vestan úr dalnum og
yfir tjaldbúðirnar. Var líkast
því sem flogið væri yfir stór
borg sem klofin er af stórfljóti
og iðar af lífi, þegar litið var
austur yfir Iljaltadalsána þar
sem Víðinesáin rennur í hana.
Hestakaupin voru f fullum
gangi þessa fallegu sumarnótt,
og að sið hestamanna voru
kaupin gjarnan innsigluð með
brennivínsstaupi, sem þó var
allt í hófi hjá hestakaupmönn-
um.
Hin forna og sögufræga Hóla
dómkirkja var vettvangur
fyrsta dagskráratriðisins, en
þar var helgistund og prédikaði
sr. Björn Björnsson prófastur
að Hólum fyrir troðfullri kirkj-
unni.
Þá var gengið á sýningar-
svæðið og dómum lýst á kyn-
bótahrossum, og verðlaun af-
hent. Nokkuð hafði þykknað í
lofti um nóttina, og var orðið
allhvasst að SV um hádegisbil-
ið er tók að rigna, svo fella
varð niður hópreið hestamanna
félaga og fresta ávarpi land-
búnaðarráðherra. Hægt var þó
að halda dagskránni áfram
klukkan þrjú, og þá var aftur
komið allgott veður, hiti og
skýjað. Landbúnaðarráðherra
Ingólfur Jónsson gat þess m.a.
í ræðu sinni að hugmyndir
væru uppi um að reisa fleiri
skóla á Hólum, og efla stað-
inn á annan hátt, en vék síð-
an máli sínu að hestum og
hestamönnum.
Nú var komið að því að sýna
mesta gæðinginn og var það
Blær frá Langholtskoti í Ár-
nessýslu sem þá nafnbót hlaut
og þar með bikar þann sem
Björn Gunnlaugsson fyrrv. for-
maður Fáks í Reykjavík hafði
gefið „Gæðingabikar L.H.“ Blær
er 11 vetra, faðir er óþekktur,
móðir Gola frá Langholtskoti,
undan Skugga frá BjarnanesL
Alls voru það sjö hestar sem
sem hlutu heiðursverðlaun og
núimer tvö varð Viðar Hjalta
son frá Fák í Reykjavík, þá
Gáski frá Stíganda í Skagafirði,
Draumur frá Funa í Eyjafirð^
Gautur frá Fák, Sindri frá Óðn!
í A.-Hún. og Blakkur frá
Hornafirði í A.-Sksft.
Úrslit kappreiða voru næst
á dagskrá, og hafði skeiðvöll-
urinn blotnað mjög frá því deg-
inum áður, og því ekki eins
hagstæður til kappreiða, enda
voru tímar hestanna eftir því.
Enginn hestur vann til 1.
verðlauna í 250 metra skeiði
en 2. verðlaun hlaut Hrollur,
úr Reykjavík rann skeiðið á
26.4 sek og 3. verðlaun hlaut
Neisti, brúnn úr Árnessýslu 26.
8 sek. í 300 metra stökíd urða
úrslit þessi: 1. Ölvaldur á 24.1
sek. þá Áki á 24.2. Glóð 24.4
Blossi 24.5 og Fjalla-Skjóni 24.
7 sek. Glóð hafði verið talin
sigurstranglegust, en fékk
slæmt „start“ og auk þess var
tvívegis riðið í veg fyrir hana
á sprettinum.
800 metra stökkið var há-
punktur kappreiðanna, og var
fyrir hlaupið spáð mestri
keppni á milli Þyts og Glanna.
Þytur vann hlaupið á 66.1 sek.
í öðru sæti varð Funi á 67.3
og í þriðja sæti Glanni á 67.4
sek. Knapaverðlaun hlaut Aðal-
steinn Aðalsteinsson, sem sat
Þyt.
Að þessu hlaupi loknu sleit
Haraldur Árnason formaður
undirbúningsnefndar, mótinu
og mótsgestir fóru að tínast
heim á leið. Er talið að nokk-
uð á fimmta þúsund manns
hafi sótt Hóla heim mótsdag-
ana, og í heild má segja að
mótið hafi tekist með ágætum
og Skagfirðingum til mikils
sóma, þótt alltaf megi tína til
eitthvað sem betur hefði mátt
fara.
Mjög hafði létt til síðari hluta
sunnudagsins, og var komið fag
urt sumarveður er mótsgestir
lögðu af stað hver til síns
heima, sumir ríðandi en aðrir
í bílum, og það var sama fagra
sjónin sem blasti við af Vatns-
skarðinu á sunnudagskvöldið
þegar aðkomumaðurinn kvaddi
Skagafjörð, og þegar hann kom
þar, fagur fjallahringur, eyjarn
ar á firðinum, og hestalestir á
leið frá hinu fornfræga biskups
setri — Hólum í Hjaltadal.