Vísir - 12.04.1975, Side 3
Vísir. Laugardagur 12. april 1975.
3
— Nýtt hljóðupptökustúdíó hefur starfsemi sína — Fimm manna
hljómsveit getur sparað allt að hólfa milljón ó að lóta
hljóðrita hljómplötu sína hér frekar en í Bretlandi
Tölvan leysir margan
bankamanninn af hólmi
Iðnaðarbankinn jók afgreiðslur um 21% en þurfti aðeins að auka
starfskraftinn um 2,2%
Jöklabúnaði
Brotizt var inn i aösetur
Hjálparsveitar skáta I Kópavogi
um siðustu lielgi og stolið þaðan
splunkunýjum búnaði fyrir um
150 þúsund krónur. Ekki verður
annað séð en þeir sem þar voru á
ferð hafi vitaö nákvæmlega, hvað
þeir ætluðu að sækja, þvi ýmis-
legt verðmætt var látið óhreyft.
Dýrasti hluturinn, sem þarna var
stolið,var jöklatjald, sem kostar
50 þúsund. Þá voru teknar 5
Isaxir, 3 bakpopkar, og tveir sig-
kaðlar, hvor um sig fjörutiu
metrar að lengd, þar að auki
nokkur ljós og ein vasatalstöð —
labb-rabb.
Sá sem þarna var á ferð, leit
Tölvutæknin ieikur slfelit
stærra hlutverk I bankakerfinu.
Þannig hafa t.d. afgreiðslur
stolið
ekki við öðrum hlutum en þessum
og lét til dæmis gosdrykki og
sælgæti, sem þarna var, alveg
eiga sig. Hann hafði spennt upp
hengilásinn fyrir húsinu, þannig
að hann gat tyllt honum aftur, og
þess vegna uppgötvaðist
innbrotið slðar en ella.
Það eru vinsamleg tilmæli
skátanna, að ef einhver verður
var við varning sem þennan I
umferð, láti hann vita það. Þetta
var allt nýtt, sem fyrr segir,
nema talstöðin og ljósin.
En menn velta vöngum yfir þvi,
hvað til stendur, að gera við
jöklabúnað sem þann, sem þarna
var stolið. -SHH
ýmsar aukizt um 21% hjá Iðnað-
arbanka isiands á árunum
1972—1974. Starfsfólki hefur aft-
ur á móti ekki fjölgað að sama
skapi, eða um 2,2%. Kom þetta
fram, þegar Bragi Hannesson
bankastjóri útskýrði reikninga
Iðnaðarbankans fyrir hluthöf-
um á aðalfundi bankans I
siðustu viku.
Bragi kvað rekstrarafkomuna
betri en oftast áður, tekjuaf-
gangur án afskrifta nam 23.3
milljónum kr., afskriftir voru
4,4 millj. og I varasjóð fóru 6,8
milljónir. Til ráðstöfunar á
fundinum væru þvl 12,1 millj.
Rekstrarkostnaður bankans var
97,9 milljónir, en við bankann og
fjögur útibú hans starfa li»
lega 70 manns. Bankastjórar
eru þeir Pétur Sæmundssen og
Bragi Hannesson, en nýlega var
Valur Valsson ráðinn aðstoðar-
bankastjóri.
Heildarinnlán til bankans
voru á siðasta ári 2116 milljónir
króna og höfðu aukizt I krónu-
tölu um 29%. Heildarútlán
námu alls 1733 milljónum og
höfðu aukizt um 26,6%. Arður til
hluthafa var ákveðinn 12%.
Gunnar J. Friðriksson, for-
maður bankaráðs, gat þess I
ræðu sinni, að augljóst væri að
miklar hækkanir á rekstrar-
kostnaði framleiðslunnar á siö-
asta ári orsökuðu nú þörf á
verulega auknu rekstrarfé, þótt
ekki væri til annars en að halda
uppi sama framleiðslumagni.
Spurningin væri sú, hvern-
ig ætti að fjármagna þá
auknu veltu, sem verðbólga og
gengisfellingar hefðu skapaö.
Taldi hann að við núverandi að-
stæöur væri sú leið ein til, að
rýmka reglur Seðlabankans um
framleiðslulán til iðnaðarins, en
þessar reglur voru nú mjög
þröngar. Sagði hann sjálfsagt
að þau fyrirtæki, sem væru I
samkeppni við innflutning,
fengju að njóta þessarar fyrir-
greiðslu nú þegar.
Gunnar J. Friðriksson ræddi
einnig um vaxandi hlut rikis-
valdsins I þjóðfélaginu og gat
þess að á árunum 1963—1972
hefði opinberum starfsmönnum
fjölgað um 75%, en vinnuafli við
framleiðslustörf hefði aðeins
fjölgað um 30% á sama tíma.
Pétur Sæmundsen banka-
stjóri skýröi frá starfsemi Iðn-
lánasjóðs. Sjóðurinn veitti á ár-
inu 242 lán að upphæð 317,8
milljónir kr. Útistandandi lán I
árslok voru að upphæð 1.009.3
millj. króna. Eigið fé sjóðsins I
árslok var 832,9 millj. króna og
hafði aukizt um 186,4 milljónir á
árinu.
I bankaráði eru nú Gunnar J.
Friðriksson, Sigurður Kristins-
son, Haukur Eggertsson og I
varastjórn þeir Kristinn Guð-
jónsson, Þórður Gröndal og
Sveinn S. Valfells. Vigfús Sig-
urðsson baðstundan endurkjöri,
en 1 bankaráði hefur hann setið I
12 ár. —JBP—
Snúa dœminu alveg við:
Hljóðrita íslenzkir tónlist Bretanna?
Fóstrur sýna
hvað
þœr lœra
Fósturskólinn heldur sýningu á
húsakynnum skólans I Vonar-
stræti 1 I dag og á morgun. Þar
verður kynnt starfsemi skólans
og sýnt ýmislegt úr starfi hans,
meðal annars ýmsir skemmti-
legir hlutir, sem stúlkurnar vinna
að. Þeirra á meðal er þessi
hestur, scm stúlkurnar hafa gert
úr dagblöðum, og ýmiss konar
Ieikföng. Þá eru á sýningunni
likön að „Draumadagheimilum”
stúlknanna, en sýningin er öðrum
þræði til að vekja ath'ygli á þeim
húsakynnum, sem skólinn verður
að búa við. Ljdsm. JIM.
Hluthafar Iðnaðarbankans á aöalfundinum á Hótel Sögu.
Eigendur hins nýja fyrirtækis standa hér við hljóðupptökutækin I stúdlóinu við Trönuhraun f Hafnar-
firði. Á myndinni eru t.v.: Jónas R. Jónsson, Böðvar Guðmundsson, Sigurjón Sighvatsson og Jón Þór
Hannesson.
„Það kostar fimm manna
hljómsveit nálægt hálfri milljón
meira að fara til hljómplötu-
upptöku I Bretlandi heldur en ef
upptakan gæti farið fram hér
heima. Með tilkomu okkar full-
komna stúdiós verða utanferð-
irnar óþarfar”, sagði Jón Þór
Hannesson hljóðmeistari i við-
tali viðVIsi I gær. En Jón er einn
fjögurra eigenda fyrirtækisins
Hljóöritun hf„ sem tekur til
starfa I dag.
„Þó furðulegt megi virðast
hefur dæmið um upptökur hér-
lendis einnig snúizt viö á annan
og óvæntan hátt”, sagði Jón
ennfremur. „1 morgun fékk
Hljóöritun hf. fyrirspurn frá
Bretlandi um verð og aðstöðu,
þar sem enskur söngflokkur
hefur áhuga á þvi að koma hing-
að I sumar til hljóðritunar”.
Hljóðritun hf. er eign Jóns,
eins og áöur greinir, en hinir
eigendurnir þrlr eru þeir
Böðvar Guðmundsson hljóð-
tæknimaður og poppararnir
Jónas R. Jónsson og Sigurjón
Sighvatsson, sem hafa starfað
saman i tveim eða þrem lands-
þekktum hljómsveitum.
„Þetta fyrirtæki getur boðið
upp á tæknilega fullkomna
hljóðritunarþjónustu, sem er
fyllilega samkeppnisfær við
sambærileg fyrirtæki erlendis,
sem islenzkir aðilar hafa hingað
til þurft að leita til vegna hljóð-
ritunar á tónum og tali”, full-
yrtu þeir félagarnir er þeir
kynntu fjölmiðlum fyrirtæki sitt
I gær.
Húsnæöi Hljóðritunar hf. er
að Trönuhrauni 6 I Hafnarfirði.
Það er rúmlega 200 fermetrar
að flatarmáli. Hljóðupptökusal-
urinn er 80 fermetrar, stjórn-
klefi og úrvinnsluherbergi rösk-
ir 40 fermetrar, en þar að auki
er vistleg setustofa og skrif-
stofuherbergi.
„Hér eru möguleikar til hljóð-
ritunar fyrir kvikmyndir,
stereo-upptökur, plötuútgáfur,
kassettuframleiðslu, útvarps-
og sjónvarpsþætti”, sagði Jón
Þór. „Hér má hljóðrita allt frá
einsöng til flutnings sinfóniu-
hljómsveitar og kóra. Hið síöar-
nefnda hefur oft reynzt erfitt að
fá hljóðritað hérlendis. Ríkisút-
varpið, bæði hljóðvarp og sjón-
varps, hafa ákaflega oft þurft að
láta viðameiri upptökur efnis
sitja á hakanum vegna fullnýt-
ingar þess upptökupláss, sem
útvarpið hefur yfir aö ráöa eins
og stendur”.
Hljóðblöndunarborð Hljóðrit-
unar hf. er 18 rása og er af gerð-
inni Tore Seem. Segulbandstæk-
in eru tvö: Scully fjölrásartæki,
átta rása, og Scully Master
Tape, tveggja rása. Það kemur
að sjálfsögðu I hlut þeirra Jóns
og Böðvars að vinna viö þessi
tæki þar sem það er þeirra fag.
Jónas verður hins vegar upp-
tökustjóri og Sigurjón fram-
kvæmdastjóri.
—ÞJM