Vísir - 14.04.1975, Qupperneq 1
VISIR
65. árg. Mánudagur 14. apríl 1975 — 84. tbl.
FÉKK BÍL í BINGÓI í
EFTIRMIÐDAGINN, -
UTANLANDSFERÐ UM
NÆRRI
KVÖLDIÐ
— baksíða
segir skipstjórinn ó Ottó Wathne, sem einnig só dularfullt
Ijós í eyðibyggðinni í Loðmundarfirði
Ljósagangurinn í Loð-
mundarf irði hef ur nú enn
verið staðfestur. Trausti
Magnússon, skipstjóri á
Otto Wathne, varð var við
ijós í Loðmundarfirði
laugardagsnóttina fyrir
páska. Þetta var á tíma-
bilinu milli 4 og 5 um nótt-
ina að hann telur. Nú er
Trausti vel kunnugur í
Loðmundarfirði og telur
hann að Ijósið hafi verið
frá Stakkahlíð. Þessar
upplýsingar fékk lögregl-
an í gærdag. „Þetta var
skært Ijós og enginn vafi
á hvaðan það kom," sagði
Trausti í morgun.
Séð frá Stakkahlfð
Loðmundarfjörð.
Leitað I Loðmundarfirði á laugardaginn. Sú leit bar ekki verulegan árangur, kökuleifar fundust, en
enginn maðurinn. Ljósmynd Visis Bragi Guðmundson
Rannsókn málsins heldur
áfram, sagði Richard Björg-
vinsson, lögreglumaður á
Seyðisfirði i morgun. ,,Við vilj-
um komast til botns i þessu máli
sem fyrst. Næst liggur fyrir að
fá nánari skýrslu frá þvi fólki,
sem varð mannaferða vart, og
fólki, sem sá ljósaganginn.
Leitin um helgina bar ekki
árangur, enda þótt Loðmundar-
fjörður og næstu byggðir væru
finkembdar af leitarflokkum
sem höfðu vélsleða og þyrlu sér
til aðstoðar. Á eyðibýlunum var
ekkertmerkilegtaðfinna, nema
e.t.v. brúnköku, sem þarna var i
plastumbúðum. Siðustu manna-
ferðir um dalinn hafa verið i
febrúarlok að taið er, ef frá er
talinn huldumaðurinn.
Richard Björgvinsson kvaðst
vera ósammála þeim, sem
héldu þvi fram að þarna gæti
verið um hreindýrsspor að
ræða. Ef slik spor væru athug-
uð, kæmi reginmunur i ljós, þar
sem klaufir hreindýranna
glennast út, þegar þau stiga i
fótinn. Ekki vildi hann leiða
neinum getum að þvi hvað hér
væri á seyði, en möguleikar
væru þó á að skytta hefði verið
á ferð enda þótt bannað væri að
drepa dýrin um þetta leyti árs.
— JBP —
ERU SPORIN EFTIR
HREINDÝR?
— frósögn af stuttri ferð Vísismanna
í Loðmundarfjörð — Bls. 3
Misþyrmdu
gamalli konu til
að hafa út úr
henni fé
— baksíða
Veturliði
afturkallar
umsókn sína
um
Kjarvalsstaði
— baksíða
HÚS
ELDI
EYÐILEGGST AF
Á AKUREYRI
- íbúar
hússins
björguðust
allir
Tvilyft timburhús á
Akureyri skemmdist svo
af eldi i nótt, að hæpið er
talið að við það verði
gert. íbúar hússins kom-
ust klakklaust út.
Klukkan rúmlega
fjögur i nótt var slökkvi-
liðinu á Akureyri til-
kynnt, að mikill reykur
væri i húsinu Strandgötu
39. Þegar liðið kom1 á
staðinn, var húsið fullt
af reyk, og eldur á ölium
hæðum, en húsið er tvi-
lyft timburhús, járn-
klætt, með háum,
steyptum kjallara.
1 húsinu eru þrjár ibúðir, en
ekki var búið i kjallaranum, þar
sem flutningar stóðuyfir. í hinum
Ibúðunum bjuggu átta manns,
þar af eitt þriggja mánaða gam-
alt barn. Það var leigjandi á neðri
hæðinni, sem vaknaði við reykinn
og vakti aðra ibúa hússins, og
voru allir komir út, þegar
slökkviliðið kom á staðinn.
Um þrjátiu slökkviliðsmenn
komu á vettvang, og tókst að ná
yfirhöndinni yfir eldinum, og tók
slökkvistarfið um þrjá tíma. Hús-
ið brann mikið að innan, svo og
innanstokksmunir, en þó eru her-
bergi á öllum hæðum, sem eldur-
inn komst ekki i. Þar urðu þó
skemmdir af reyk og vatni. Bönd-
in berast að kyndiklefa hússins
um upptök eldsins,~því þar er
mest brunnið i kring, og eldurinn
barst upp um húsið um rörastokk.
Eldsupptök eru þó ekki fullkönn-
uð.
Enn er vakt við húsið og verður
frameftindegi, þvi eldur komst i
einangrun þess, sem er reiðingur,
en I honum getur eldur kraumað
furðu lengi án þess að gera veru-
lega vart við sig. —SHH