Vísir - 14.04.1975, Síða 11
Visir. Mánudagur 14. april 1975,
.
Þeir, sem ekki reykja, eru í meirihluta hér á landi, og þess
vegna eiga þeir að ráða lögum og lofum. Þetta fólk
hefur verið tillitssamt við reykingamenn og lítið
kvartað yfir þeim óþægindum, sem mengun af tóbaksreyk
hefur valdið því. En nú hafa vísindin lagt þeim
í hendur beitt vopn í réttindabaráttu þeirra með því
að sanna, að reykurinn er heilsuspillandi
fyrir þá, sem eru í návist reykingamanna.
Þeim, sem ekki reykja, er sama, þótt reykingafólk valdi
sjálfu sér heilsutjóni, — en það hefur
engan rétt á að eitra fyrir öðrum.
Reykingamenn ættu því að sýna tillitssemi og reykja ekki,
þar sem annað fólk er nærstatt, — eða velja
þann kostinn, sem öllum er fyrir beztu:
Segja alveg skilið við sígarettuna og leita eftir hollari
félagsskap.
SAMSTARFSNEFND UM
REYKINGAVARNIR