Vísir - 21.04.1975, Blaðsíða 1

Vísir - 21.04.1975, Blaðsíða 1
65. árg. Mánudagur 21. aprll 1975 — 90. tbl. VERKBANN VIÐ SIGÖLDUVIRKJUN Það er næstum daglegt brauð, að starfsmenn við Sigölduvirkjun leggi niður vin iu. Verkbann var sett á jarðvegsflutningadeild síðastliðið laugardagskvöld og var þvi ekki aflétt fyrr en i nótt. Undirskrift samninga, sem byggðust á Alþýðu- sambandssamkomulaginu, hafði dregizt vegna ágreinings um ákveðin atriði. Höfðu starfsmenn jarðvegsflutningadeildarinnar gert kröfu um breytingu á vaktakerfinu. Kom sú breytingartil- laga fram nokkuð seint. Var þá verið að vinna við að hreinrita samningana eins og verktakarnir töldu þá geta farið til undirritunar samkvæmt fyrri umræðum. Þegar svo hin nýja breyting kom fram, voru verktakarnir ekki tilbúnir til að bæta henni viö samkomulagið fyrirvaralaust, en af þvi leiddi verkbann það, sem stóð þar til i nótt, er samning- arnir voru loks undirritaðir. — ÞJM Fengu styrk úr Kardemommu- sjóðnum Klemens Jónsson og Carl Billich fengu 100 þúsund krón- ur hvor úr Kardemommu- sjóönum svokallaða i gær. Klemens hefur sett upp öll leikrit Thorbjörns Egners og Carl Billich hefur séð um tón- listina við þau. Eru þeir hinir fyrstu, sem fá styrk úr sjóðn- um, en sjóðurinn á að efla samskipti milli norsks og is- lenzks leikhúsfólks. Meiri helgarfrí — aðeins samið til 1. júní Flest sjómannafélögin samþykkja samningana Mörg sjómannafélög hafa samþykkt nýju bátakjarasamningana, að sögn Jóns Sigurðs- sonar, forseta Sjó- mannasambandsins, i morgun. Þeir hafa ver- ið samþykktir á Grund- arfirði, Hellissandi, Akranesi, Stykkis- hólmi, Grindavik, Þor- lákshöfn og i mat- sveinafélaginu. Þeir voru felldir i ólafsvik. Jón sagði, að samningurinn gilti nú aðeins til 1. júni, en fyrri samningurinn, sem sjómenn felldu, átti að gilda til. 15. september. Samningurinn gildir nú frá 1. marz. Verði honum ekki sagt upp fyrir 21. mai, gild- irhann áfram til 15. september. Uppsagnarfrestur er 10 dagar. Þá kemur nú inn i samning- inn, að á reknetabátum skuli eigi róið á sunnudögum á tima- bilinu frá 1. april til áramóta, nema næsti dagur á undan eða eftir sunnudegi sé frfdagur, sem ekki skal róið á samkvæmt samningum. Er þetta gert til þess, að stöðvun verði ekki i tvo daga samfleytt. Helgarfri skal aldrei teljast minna en einn sólarhringur. Ef bátur er utan lögskráning- arstaðar sins, skal útgerðar- maðurinn sjá skipverjum fyrir fari til útgerðarstaðar skipsins i helgarfrium. Jón Sigurðsson sagði, að einn- ig hefði verið bætt við fyrri samninga ákvæði um, að á loðnuskipum skuli nýtt kaup- tryggingartimabil taka gildi, þegar loðnuskipiö fer til fjarlægra miöa, þegar I staö. Ella kynnu sjómenn, sem hefðu aðeins kauptryggingu að verða kauplausir á þessum tima, en nú væri úr þvi bætt. Jón sagði, að samningarnir yrðu teknir fyrir I sjómannafé- lögunum viða I dag. Nú hefði verið breytt fyrri stefnu og at- kvæði væru greidd I einstökum félögum en ekki Sjómannasam- bandinu sem heild, eins og sið- ast var. Samninganefndir sjó- manna og útvegsmanna gengu frá samkomulagi þessu um helgina. —HH „ÆTLI VIÐ FÖRUM ÞÁ EKKI BARA í SÓLBAÐ..." Flugtúr í Tjörnina — bls. 3 ,,Þetta er í fyrsta skipti, sem við drekkum kaffið okkar úti i vor", sögðu stúlkurnar, sem við hittum fyrir utan Bæjar- útgerðina á Grandanum í morgun. ,,En nú er það lika alveg tilvalið", bættu þær við. Sólin skein lika glatt, og sjálfsagt hafa flestir átt erf itt með að loka sig inni á vinnustöðum. Þær hjá Bæjarútgerð- inni sögðu okkur, að nóg væri af fiski út þessa viku. Þeim fastráðnu hefur hins vegar öllum verið sagt upp. ,,Ef til þess kemur? Ætli við förum þá ekki bara í sólbað svona til að byrja með", sögðu þær og virtust sannarlega ekki kunna illa að meta það. — EA/ljósm. Bragi. • • „TOK TAL A HANS EIGIN BROGÐUM — sagði Friðrik Ólafsson í morgun, en hann á enn möguleika ú toppsœti ## „Þetta var skemmti- leg skák við Tal,” sagði Friðrik Ólafsson i morgun i simaviðtali við Visi. „Ég vann hann i aðeins 24 leikj- um, og má segja, að ég hafi tekið hann á eigin brögðum.” inu, en eftir atvikum er frammi- staðan ekkert hroðaleg,” sagði Friðrik. Hann er nú i 5. sæti, en hefur vonir um að brjótast upp. Hann hefur til dæmis setið hjá i umferð, en tveir af þeim, sem fyrirofanhann eru, eiga eftir að sitja hjá. Þar gæti Friðrik til dæmis fengið vinning, meðan þeir sitja yfir. Friörik kvaðst ekki vita um úrslit biðskáka, sem hefðu verið tefldar i nótt, en Hort, sem hafði 7 vinninga eins og Friðrik, hafði betri stöðu i biðskák og þvi sennilega farið upp i 8. Efstur er Ljubojevic með 9 1/2 og annar Mecking með 8 1/2, en Mecking á eftir að sitja yfir i einni umferð. Friðrik hefur unnið tvær siðustu skákir. Þrjár umferðir eru eftir, og gæti hann náð Mecking, ef gæfan veröur honum hliðholl. í þriðja sæti er Anderson með 8, og Hort liklega orðinn jafn honum. Tal fyrrum heimsmeistari hefur 6 l/2og biðskák, þar sem linurnar eru ekki hreinar, segir Friðrik. Siðan kemur Petrosjan, fyrrum heimsmeistari með 6 vinninga og biöskák, sem Friðrik telur jafnteflislega. Ljubovic og Anderson hafa setið yfir eins og Friðrik. Hann er þvi 2 1/2 vinningi á eftir Ljubovic og 1 vinningi á eftir Anderson. Vinni Friðrik skák- irnar I þeim umferðum, sem Mecking og Hort sitja yfir i, nær hann Hort og verður aöeins 1/2 vinningi á eftir Mecking. Verði biöskák Tals jafntefli, verður hann jafn Friörik og ef biðskák Petrosjans verður einnig jafn- tefli, verður hann 1/2 vinningi á eftir Friðrik. Þannig getur enn margt gerzt i þessari jöfnu og spennandi stöðu i mótinu. Frið- rik er enn i baráttunni um topp- sætin. Hann er ekki ánægður með frammistöðuna, sem er vissulega lakari en hin frábæra frammistaða hans i mótinu i Tallin, Sovétrikjunum, fyrir skömmu, en á þessu móti á Kanarieyjum eru einnig margir beztu skákmenn heims saman komnir, og enn getur flest gerzt. —HH „Ég byrjaði stirðlega i mót- 1

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.