Vísir - 21.04.1975, Blaðsíða 6

Vísir - 21.04.1975, Blaðsíða 6
6 Vlsir. Mánudagur 21. april 1975. VÍSIR Útgefandi: Heykjaprent hf. Framkvæmdastjóri: Sveinn R. Eyjólfsson Ritstjóri: Jónas Kristjánsson Fréttastjóri: Jón Birgir Pétursson Ritstjórnarfulltrúi: Haukur Helgason Auglýsingastjóri: Skúli G. Jóhannesson Auglýsingar: Hverfisgötu 44. Slmar 11660 86611 Afgreiösla: Hverfisgötu 44. Simi 86611 Ritstjórn: Slðumúla 14. Simi 86611. 7 linur Askriftargjald 700 kr. á mánuöi innanlands. t lausasölu 40 kr. eintakiö. Blaöaprent hf. Leppur kommúnista ( Kommúnistar og bandamenn þeirra hafa að / heita má hernumið alla Kambódiu. Vafalaust \ uppræta þeir á skömmum tima leifar hers fyrri ( stjórnar, sem er á köldum klaka eftir fall höfuð- í borgarinnar og æðstu manna sinna. Afleiðingar ) þessa sigurs kommúnismans munu verða viðtæk- ) ar. ( Norodom Sihanouk prins dvelst enn i Peking, / þar sem hann hefur notið verndar kinversku ) kommúnistastjórnarinnar undanfarin ár. \ Sihanouk hefur ekki verið talinn kommúnisti. Á ( valdatima sinum I Kambódiu reyndi hann eftir / megni að fara bil beggja og koma i veg fyrir, að ) Kambódiumenn flæktust i striðið i grannrikinu ( Vietnam. Þetta tókst honum ekki. Norður-Viet- ( nömum og þjóðfrelsishreyfingu Suður-Vietnams ) þótti Kambódia gott afdrep. Þeir tóku talsverðan \ hluta landsins og gerðu skyndiárásir inn i Suð- ( ur-Vietnam þaðan. Kambódia gat ekki staðið / utan Vietnamstriðsins. ) Það var mjög misráðið af Bandarikjamönnum \ að stuðla að falli Sihanouks. Hann var að visu ( óþægur Bandarikjamönnum og fylgdi fram hlut- / leysisstefnu, sem hallaðist frekar i átt til komm- ) únista en hægri manna. Lon Nol hershöfðingi, ( sem tók völdin og hrakti Sihanouk úr landi, var /i hins vegar þægur bandamaður Bandarikjanna, / en hann og stjórn hans náðu aldrei fjöldafylgi. ) Enginn veit, hvernig spilin hefðu stokkazt, ef ( Sihanouk hefði haldið völdum, en nú sést, hvern / dilk stjórn Lon Nols dró á eftir sér. ) Hinir rauðu Khmerar, sem hafa tekið völdin i \ Kambódiu, eru að miklum hluta ekki fylgismenn ( Sihanouks prins. í byltingunni hafa aðrir menn, / miklu róttækari, fengið mest áhrif á þjóðfrelsis- ) hreyfingu rauðu Khmeranna. Þótt Sihanouk snúi l aftur til Kambódiu, er jafnliklegt, að völd hans ( endist ekki lengi, heldur komist þau i hendur ) kommúnista. Þeir muni aðeins leyfa honum að ) sitja i hásæti, meðan þeir telja gagn að þvi að \ nota þetta gamla sameiningartákn til að ganga ( milli bols og höfuðs á andstæðingum sinum. ) Vietnamar og Kambódiumenn eru fornir \ féndur. Nú bendir flest til sigurs þjóðfrelsis- ( hreyfingarinnar og Norður-Vietnama í / Suður-Vietnam. Tvimælalaust hafa kommúnistar ) og bandamenn þeirra i Kambódiu og Suður-Viet- \ nam unnið saman, og liklega verður framhald á ( þvi þrátt fyrir fornar erjur. Falli bæði löndin i ) hendur þessum hreyfingum, má gera ráð fyrir, ) að sósialisminn eða kommúnisminn þar verði \ eitthvað ólikur i framkvæmd, en i reynd skapist ( samstaða um áframhaldandi sókn inn i nálæg / lönd. Þar má fyrst nefna Laos, þar sem uppreisn- ) armenn sóttu fram strax nú um helgina og nálg- \ uðust höfuðborgina. (( Fall Kambódiu er gifurlegt áfall fyrir utanrik- // isstefnu Bandarikjanna. Þeir hafa vonandi lært )) þá lexiu, að það borgar sig ekki að stuðla að \ valdatöku fylgislitilla hægri sinnaðra hers- ( höfðingja á kostnað hlutleysissinna, sem njóta ) verulegs fjöldafylgis. Hinum þægu bandamönn- \ um Bandarikjanna i Phnom Penh og Saigon hefur V haldizt illa á spilunum. Og auðvelt hefur verið / fyrir kommúnista og bandamenn þeirra að skir- ) skota til fólksins og safna liðsafla gegn óvin- \ sælum herforingjastjórnum. Bandarikjunum ( hefði verið nær að leita vináttu Sihanouks, meðan ) það var unnt. Nú er hann aðeins leppur kommún- \) ista. Tækifærið er glatað. —HH (( Þessi hvitvoöungur, sem kom til Los Angeles frá Vietnam, var einn tuttugu og tveggja, sem fluttir voru til Noregs. — Aörir voru lika fluttir til Sviþjóöar og Danmerkur. Þeir saka Bandarikin um aö reyna að ræna heilli kynslóö Vietnama og nema á burt. Margir Bandarikjamenn sam- sinna þessu sjálfir. Einkartlega þeir, sem standa nærri samtök- um, sem böröust gegn þátttöku Bandarikjanna i Vietnamstrið- inu. En aðrir geta alls ekki sætt sig við þá skýringu. Loftflutningarnir voru á tima, þegar loft var lævi blandið, og menn biðu með öndina i hálsinum eftir nýjum fréttum dag hvern. Annars vegar frá sigurgöngu herja kommúnista i Vletnam. Hins vegar frá viðbrögðum Bandarikjaþings við hjálpar- beiöni Fords forseta til handa Suður-Vietnömum. Það byrjaði með þvi, að Ford forseti kunngerði, að stjórn sin ætlaði að stytta sér leið i gegnum skriffinnskuna og flytja þúsundir vietnamskra munaðarleysingja upp á sitt eindæmi til Banaa- ætluðu að ættleiða. Daginn eftir brotlenti risaflug- vél meö kornabörnum innanborðs skammt frá Saigon, og fórust mörg þeirra meö henni. Siðan komst hver flugvélin af annarri heilu og höldnu alla leiö til USA með meira en 1.000 ung- börn. Það var mikiö táraflóð meðal foreldra, sem biðu á flug- vellinum — og höfðu sumir beðið mánuði og jafnvel ár — eftir að taka á móti börnum, sem þeir ætluðu að ættleiða. 1 kjölfar þessa vöknuðu svo um- ræðurnar. Spurningin, sem mönnum brann i muna, var þessi: „Voru þessir flutningar raunverulega nauðsynlegir?” Hvað réð barnaflutningum? SEKTARKENND EÐA PÓUTÍK? Hugsunina að baki loftflutning- unum á hundruöum munaöar- leysingja frá Suöur-Vietnam til nýs lifs i Bandarikjunum hefur borið töluvert á góma, en senni- lega hvergi vakiö jafnmiklar um- ræöur og i Bandarikjunum. Mikill tilfinningahiti hefur ein- kennt þessar umræöur og togast á i Bandarikjamönnum sekt og sjálfsánægja, þegar þcir velta fyrir sér spurningunni: „Geröum við rétt i þessu?” Margir, einkanlega and- stæðingar Vietnamstriösins, lita á þessa loftflutninga sem pólitiskt áróðursbragð. Þeir lita svo á, að tilgangurinn með þessu sé að reyna að flækja þjóðina aftur i neyð Suður-Vietnams, þar sem meir en 50.000 Bandarlkjamenn létu lifið I þessu óvinnandi striði. Aðrir, eins og t.d. sálfræði- prófessorinn Lucien Pye við Massachusetts-háskólann, telja, að þarna sé auðugasta þjóð veraldar að reyna að friðþægja fyrir þá sök sem hún finnur hjá sér gagnvart Vietnömum. Prófessor Pye sagði i blaðavið- tali, þar sem þetta mál bar á góma: „Þetta uppátæki, sem hlaupið er i af handahófi, kemur mér fyrir sjónir sem sálrænt fyr- irbrigði. — Við erum með þessu að reyna að sanna i verki, að við höfum alls ekki snúið baki við þessu fólki. Sektarkenndin er mjög mikil, jafnt hjá friöarsinn- um sem meðmælendum striðs- þátttöku. Við viljum fyrir alla muni reyna að halda i þá trú, að við séum gott heiðarlegt fólk, sem vill vel.” Vietcong, Norður-Vietnam og jafnvel margir Suður-Vietnamar hafa fordæmt barnaflutningana og hugsunarháttinn að baki þeim. Illlllllllll Umsjón: G.P. í kössunuin, sem fólkiö ber úr flugvélinni i land, eru kornabörn, niunaöarleysingjar frá Vietnam. <,Nei,” segja sumir. „Vietnamarnir fara ekki að éta börnin sin. Alveg sama hvor vinn- ur striðið.” ,,Já,” segja aðrir. „Björgun barnanna var það allra minnsta, sem við gátum gert. Hún var þýðingarmikil.” Til viðbótar þessum grund- vallarspurningum hafa svo vakn- að aðrar, sem ranghverfa málinu ekki litið. — Sumir halda þvi fram, að suður-vietnamskir emb- ættismenn hafi laumazt með barnaflugvélunum til Bandarikj- anna. Þvi hafa fulltrúar Washing- tonstjórnarinnar neitað. —■ Frétt- ir hafa birzt um, að allt að 10% þeirra barna, sem flutt voru frá Vietnam, hafi ekki verið munaðarleysingjar. Foreldrar þeirra séu enn á lifi og meira að segja tiltækir. Þetta hafa yfirvöld ekki borið til baka. Svo eru þeir, sem vilja vikja þessum spurningum alveg til hliðar. Þeir segja, að það sé al- gert aukaatriði, hvort sektar- kennd eða pólitik liggi að baki þessum flutningum. Það eina, sem skiptir máli i þeirra augum, er framtið og örlög saklausra barnanna. Þeir benda á, að mörg þessara barna séu kynblendingar, að hálfu Vietnamar og að hálfu ame- risk. Þau hefðu orðið hornrekur, þegar þau hefðu vaxið úr grasi i heimalandi sinu. Þeir, sem eru þessarar skoðunar, telja, að i rauninni séu Bandarikjamenn að leysa loks núna vandamál, sem þeir hefðu átt að láta til sin taka miklu fyrr. Loks eru svo þeir I hópi and- stæðinga þessara barnafiutninga, sem benda á, að það sé yfrið nóg af munaðarleysingjum fyrir i Ameriku, svo að hvers vegna sé þá verið að flytja þá inn?

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.