Vísir - 21.04.1975, Side 3
Vísir. Mánudagur 21. april 1975.
3
Flugu á bíl
í Tjörnina
— kranastjórinn neitaði
að vaða út í með krókana
w
Asatrúarmenn:
SJÚKRAHÚS
EÐA ÚTRÝM-
INGARSTÖDVAR
Ungur maður með nýtt
ökupróf flaug stórum og
aflmiklum fólksbíl út í
Tjörnina í Reykjavík á
laugardagskvöldið.
Hvorki ökumann eða
farþega hans sakaði, né
heldur skemmdist bíllinn
nema kannski af vatni.
En þeir urðu að vaða til
lands, rétt eins og Þór
gerði forðum, þegar hann
hafði barizt við Mið-
garðsorm.
Ekki þótti þeim þó gott að
skilja bilinn eftir þarna úti i
Tjörninni, heldur urðu sér úti
um kranabil til að ná honum
upp. Kranabillinn kom um mið-
nættið, að nú haföifirifið að tölu-
verðan hóp áhorfenda.
Þegar kranamaðurinn hafði
virt fyrir sér kringumstæður,
var úrskurður hans hreinn og
ótrviræður. Hann sagðist eiga
eitthvað annað eftir frekar en
fara að bleyta sig i Tjörninni.
Annaðhvort yrðu piltarnir að
vaða út i aftur og krækja bönd-
unum i bilinn, eða þá að hann
fengi að liggja þarna um eilifð
hans vegna. Þessum dómi varð
ekki áfrýjað, og piltarnir héldu
út i á nýjan leik við mikil fagn-
aðarlæti áhorfenda, klapp og
hróp.
Þegar billinn kom upp úr,
duttu af honum drullukleprarn-
ir, þvi Tjörnin er vist ekki sem
allra hreinustu i botninn — full
af leðju og fuglaskit. Og piltarn-
ir hafa liklega orðið að halda
heim og fara i baö eftir baðið. —
SHH
Ásatrúarmenn eru sem fyrr á
móti fóstureyðingum og auknu
frjálsræði I þeim efnum. t gær-
dag hélt félagið fund að Prag-
hálsi i Svinadal og itrekaði þá
andmæli félagsins. „Fundurinn
telur, að með lagasetningu i þá
átt sé að þvi stefnt að gera is-
lenzk sjúkrahús að útrýmingar-
stöðvum, enda sé baráttan fyrir
sliku runnin undan rifjum al-
þjóðiegra hreyfinga, sem bein-
ast gegn Norðurlandaþjóðum og
norrænu kyni sérstaklega”,
segir i ályktun fundarins.
Telur fundurinn, að aðrar
ráðstafanir séu nauðsynlegri til
áð .hæ.ta, maonlif.á Islandi ep að
„myrða ófædd börn”, eins og
segir I fréttatilk. félagsins.
„Enginn veit að hvaða barni
gagn verður”, segir máltækið
og minnir fundurinn á það um
leið. Hann telur, að tslendingar
þurfi á öllu sinu að halda til þess
að geta gegnt sinu þjóðarhlut-
verki. Benda Ásatrúarmenn á,
að norska Stórþingið hafi hafnað
fóstureyðingarfrumvarpi og
gefið fordæmi, sem tslendingar
gætu verið vel sæmdir af að
fyigja.
Ekki fylgir það sögunni hvaða
álit Asatrúarmenn hinir nýju
hafa á aðferðum forfeðra vorra
úr heiðnum sið. Þeir létu nefni-
lega bera óæskileg börn út.
—JBP—
Ölvuðum öku-
konum fjölgar
ó kvennaóri
— ein slík meiddist
í árekstri
Kona ók bil aftan á annan á
Flókagötu við Rauðarárstig i
fyrrinótt og hlaut af nokkur
meiðsli. Bilinn hafði hún fengið að
láni eða tekið hann traustataki.
Þar að auki var hún ekki ailsgáð.
Það fer mjög i vöxt með
kvennaárinu, að konur séu teknar
fyrir ölvun við akstur. Á mánu-
dagsnóttina fyrir viku voru þrjár
teknar fyrir ölvun við akstur, og
um miðjan dag I gær höfðu fjórar
verið teknar það sem af var helg-
inni. Sú yngsta þeirra er fædd
1959. Aðeins þessari einu hafði
hlekkzt á við aksturinn, en hinar
vöktu á sér athygli fyrir það, hve
óöruggt aksturslag þeirra var.
—SHH
Spellvirki
ó húsi
í smíðum
Á laugardaginn fóru unglingar
inn i ibúðarblokk, sem Einhamar
er með I byggingu i Breiðholti, og
skemmdu þar tæki og efni, sem
ætiað var múrurum til að vinna
með og úr.
Unglingarnir höfðu farið upp á
stillansa við bygginguna og kom-
ust þaðan inn um ólæstar gáttir
hússins. Þegar inn kom, settu
þeir i gang lyftur og verkfæri og
unnu veruleg spellvirki.
Ekki var þetta fyrsta ferð
unglinganna á þessar slóðir, held-
ur hafa þeir komið margoft áður,
skarkað i verkfærum og lyftum,
brotið niður milliveggi, stolið
verkfærum og þess háttar.
Verkamenn við bygginguna töldu
svomikilbrögð orðin að þessu, að
þeim væri varla orðið óhætt að
bregða sér i kaffi.
Lögreglan hefur handsamað
nokkra peyja, sem þátt eiga i
þessu athæfi.
—SHH
SIGRÍÐUR SYNGUR
MEÐ FÓSTBRÆÐRUM
Karlakórar eru ekki lengur
svo stórir upp á sig, að þeir leiti
ekki til kvenna eftir aðstoð. Það
gera Fóstbræður a.m.k., en þeir
halda árlega samsöngva sina i
þessari viku. Hafa þeir fengiö
Sigriði E. Magnúsdóttur til liðs
við sig, en hún er komin heim
frá Vin. Þá hafa þeir fengið
Hákon Oddgeirsson og Þorgeir
Andrésson sem einsöngvara, en
Carl Billich sér um undirleik-
inn.
Samsöngvarnir fyrir
styrktarfélaga kórsins verða öll
kvöld frá miövikudegi til
iaugardags kl. 19. Myndin er af
æfingu hjá Fóstbræðrum, það
var verið að finpússa hina fjöl-
breyttu efnisskrá og Jónas Ingi-
mundarson stjórnar af krafti.
„Hunzor vilja meirihluta kjósenda"
„Það er óhætt að segja að
hreppsnefnd ólafsvikur hunzar
viíja meirihluta kjósenda
sinna”, varð Marteini Karlssyni
i ólafsvik að orði, þegar við
ræddum við hann, en Marteinn
stendur nú I striði við hrepps-
nefnd vegna veitinga- og kvöld-
söluleyfis.
t þrjár vikur hefur veitinga-
staður hans staðið tilbúinn til
opnunar. Það stendur hins veg-
ar á samþykki frá hreppsnefnd.
Marteinn getur fengið veitinga-
leyfið með vissum skilyrðum,
sem hann vill ekki ganga að.
Hann óskaði eftir kvöldsölu-
leyfi, en hefur fengið það svar,
að samkvæmt samþykkt, sem
eitt sinn var gerð hjá hrepps-
nefnd, skuli eingöngu aðilar
sem selja bensin og oliu hafa
kvöldsöluleyfi. Ein slik BP-stöð
er I Ólafsvik.
„Ég held aö það sé mjög erfitt
að reka svona veitingastað á
vissum árstimum nema hafa
eitthvað meira með”, sagði
Marteinn. Veitingaleyfi fær
hann með þvi skilyrði að hann
selji eingöngu mat, kaffi og kök-
ur, öl og gosdrykki og isrétti.
Eftir nokkurt þras var honum
svo veitt leyfi til þess að selja
tóbak lika.
„Leyfið er bundið þvi skil-
yrði,” sagði Marteinn, ,,að ég
undirriti yfirlýsingu þess efnis
að ég selji ekkert, sem heitir
sælgæti, tóbak né aðrar sjoppu-
vörur, sem BP hefur I sinu
leyfi”. Undanþága var hins veg-
ar veitt I sambandi við tóbakið.
Marteinn ákvað að kanna
vilja ólafsvikinga i þessum efn-
um og för af stað með undir-
skriftasöfnun. Var árangur góð-
ur og skrifuöu 284 kjósendur
undir. Sendi Marteinn það til
hreppsnefndar og fór fram á að
þeir endurskoðuðu afstöðu sina.
Töldu þeir ekki ástæðu til þess,
en heimiluðu honum tókbaks-
söluna. Veitingastaður Mar-
teins biður þvi enn um sinn.
— EA
— stríð um veitinga- og kvöldsöluleyfi í Ólafsvík
Þetta er veitingastofan, sem styrinn stendur um f ólafsvlk.