Vísir - 21.04.1975, Side 24

Vísir - 21.04.1975, Side 24
VÍSIR Mánudagur 21. apríl 1975. Mœldu sér 400 metra kappakst- ursbraut — á hringvegi nr. 1 Á niunda timanum i gærkvöidi kom lögreglan þar aö sem ungir menn höföu mælt sér út 400 metra langa kappakstursbraut á Suöur- landsvegi austan viö Bugöu, sem raunar er oftast kölluö Hólmsá nú til dags. Fyrirhugaö var aö reyna meö tryllitækjum á þessari braut. Klukkan tvö i nótt var svo aftur kominn stór hópur ungmenna á aflmiklum bilum á þessar slóöir, enda hart aö gera mælinguna og geta ekki notaö sér hana. En lög- reglan mun hafa veriö vel á veröi, svo minna varö um spól á malbiki en ætlað haföi veriö. —SHH Börn helga sér sumar- — ekki alltaf Ijóst, hverjir eigendurnir eru Sumarbústaöaeigandi kom á föstudagskvöldiö aö tveimur bú- stööum, sem hann á i hraun- jaörinum suöur af Bugöubrú, og voru þá tvö börn i öörum bústaön- um. Þau tóku til fótanna, þegar þau urðu eigandans vör, voru frárri á fæti en hann og tókst aö komast f hrauniö, þar sem maö- urinn missti af þeim. I ljós kom, aö fariö haföi veriö inn I nokkra bústaöi á þessu svæöi, en ekki er ljóst, hvort ein- hverju hefur veriö stoíiö eöa hve miklu. Aö sögn rannsóknarlög- reglunnar er ekki alltaf auövelt aö komast aö þvi, hverjir eiga þessa bústaöi, og væri eigendum þeirra ráölagt aö huga aö þeim og ástandi þeirra. —SHH Sinueldurinn kominn óþœgi- lega nœrri nýju bílunum t gær siödegis var slökkviliöiö kallaö aö porti Landssimans á Jörva, en þar logaöi glatt I sinu og rusli á stóru svæöi, og eldurinn var kominn iskyggilega nærri nýjum bilum, sem þarna standa. Báliö var siökkt fljótt og vel meö þvi aö sprauta á það vatni. Mikiö hefur veriö um sinubruna undanfariö, og oft hafa þar veriö aö leik börn, sem hafa fariö meira af kappi en forsjá. Eins og kunn- ugt er fer eldur I sinu meö tölu- veröum hraöa og breiöist oft meira út og veröur óviöráöan- legri en ætlaö er. Þar aö auki koma svo blessuö börnin stundum heim meö sviöiö hár og jafnvel föt, svo ekki sé minnzt á lyktina, sem þau bera meö sér. Annars fréttist lika af fram- takssömum pjökkum, sem voru aö kveikja i sinu um helgina, og tóku til þess hráoliu úr kerru- geymi, sem stóö skammt frá, til þess aö tryggja þaö aö bærilega logaöi i hálfblautri sinunni. —SHH Yfirleitt 8-9 prósent hœkkun SAMIÐ VIÐ PRENTARA: Nemar allt upp í tœp 19% kauphœkkun Prentarar fá nú 8-9 prósent kauphækkun og aðstoðarfólk og nemar allt upp i tæp 19 prósent. Kauptilboð, sem gengur út á þetta, var samþykkt á fundi i prentarafélaginu á laugardag. Mótatkvæði voru 6 á yfir 100 manna fundi. Prentsmiöjueigendur hafa ekki enn greitt atkvæöi um kauptilboöiö, sem samninga- nefndir gengu frá. Útlæröir prentarar fá kaup- hækkun, sem er á bilinu 8,12 upp I 9,13 prósent á dagvinnukaupi. Vaktavinna hækkar ámóta. Aöstoöarfólk fær sömu krónu- tölu i hækkun, sem er mun meira i prósentum, þar sem kaupiö er lægra. Aöstoöarfólk fær til dæmis 11,42 prósent hækkun fyrstu sex mánuöina. Nemar fá mesta hækkun I prósentum, þar sem kaup þeirra er lægst, en þeir fá sömu krónutölu og útlæröir I hækkun. Nemar á 1. ári fá til dæmis 18,78 prósent hækkun og nemar á 2. ári 15,75 prósent. Svipuö hækkun mun yfirleitt veröa á kaupi bókbindara og manna i grafiska sveinafélag- inu. — HH Þaö var mikiö Hf og fjör á sviöi Þjóðleikhússins I gær, þeg- ar Thorbjörn Egner, sjálfur höf- undur Kardemommubæjarins, stökk upp á sviö til leikaranna og söng meö þeim, á meðan áhorfendur klöppuöu þeim óspart lof i lófa. Nú eru liöin 25 ár frá vigslu Þjóöleikhússins og i tilefni af þvi voru hátíðahöld þar I gær. Sýning þessa geysivinsæla barnaleikrits var þar á meðal. Thorbjörn Egner hefur gefiö ÖII höfundarlaun sin vegna sýn- ingar Kardemommubæjarins hér I sérstakan sjóö til aö efla samskipti milli norsks og Is- lenzks leikhúsfólks. — EA/ljósm. Bj. Bj. HÖFUNDURINN SJÁLFUR Á SVIÐIÐ! Eru þetta éhrif samkeppninnar?: ÞÁTTTAKA í GÖNGUFERÐUM HEFUR AUKIZT STÓRKOSTLEGA — 150 manns í gönguferðum Útivistar og Ferðafélags íslands um síðustu helgi Samkeppni Feröafélags tslands og hins nýstofnaöa ferðafélags, Útivistar, hefur ekki oröiö á þann veg, aö bitizt sé um þátttakendur i feröum félaganna. Þvert á móti virðist samkeppnin hafa leitt tii þess, að enn flciri nota góða veðr- ið. Um siðustu helgi fóru félögin i tvær ferðir hvort. Samtals tóku 150 manns þátt i þeim ferðum, en það er þrisvar til fjórum sinnum fleiri en fóru i helgarferðir Ferða- félagsins, íneðan þaö var eitt starfandi. Nú eru ferðirnar að visu orðnar fleiri. Ferðafélagið fór sjaldnast nema eina ferð um hverja helgi i fyrra, en núna eru þær orðnar tvær um hverja helgi. Útivist fer einnig i tvær ferðir. Ef á að tala um sigurvegara þessarar þriðju lotu veröur F.l. að teljast hafa vinninginn. 1 ferð- um þess um helgina voru samtals 80 manns, en útivist var með 70. önnur ferö Ferðafélagsins var gönguferð á Keili. Var hún farin i gær og veður hið ákjósanlegasta. Þátttakendur voru þó ekki nema 14 talsins, en þegar útivist fór á Keili fyrir hálfum mánuði siðan, og þá i leiðindaveðri, voru þátt- takendur 71 talsins. Það var fyrsta lota, en i þeirri lotu sigraði Útivist Ferðafélagið. —ÞJM Búpeningur á ferð um borgarlandið — 50 kindur í heimsókn hjá lögregluvarðsfjóra Einum lögregluvarðstjóran- um brá I brún i gærmorgun, er hann leit út um gluggann heima hjá sér i Fossvogsdal og stóö þá augliti til augiitis viö 50 kindur, sem komnar voru i kurteisis- heimsókn. Búpeningurinn reyndist eiga heima I Kópavogi og vera aöeins á skemmtigöngu og jafnframt rannsóknarleiðangri. Ekki mun það þó hafa staðið lengi, þvi ibú- um hverfisins var mörgum ekki gefið um heimsóknir af þessu tagi og tóku ekki vel á móti gest- unum, heldur visuðu þeim þeg- ar brott. Uppi i Arbæjarhverfi eru það einkum hross, sem gera mönn- um gramt i geöi þessa dagana, þvi þau bera enga virðingu fyrir eignarrétti og eiga létt með að stiga yfir lágar giröingar, auk þess sem þau skilja eftir djúp spor, þar sem þau ferðast um gljúpa vorjörð. Aö sögn lögregl- unnar eru það oftast hestar sömu eigenda, sem eru aftur og aftur á ferðalögum af þessu tagi. —SHH

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.