Vísir - 22.04.1975, Page 1
65. árg. — Þriðjudagur 22. aprll 1975 — 91. tbl.
„ATVINNUROGUR"
— segia forráðamenn VERKS h.f.
- bls. 3
FLUGIÐ STÖÐVAST f NÓTT
— flugmenn höfnuðu frestun verkfallsins á
sáttafundi, sem stóð til klukkan 5 í nótt
Flugmenn höfnuðu i nótt
tilmælum f lugfélaganna
um að fresta verkfalli,
sem á að hefjast á mið-
nætti næstkomandi. Sátta-
fundur stóð fram undir
klukkan fimm. Annar
f undur er boðaður klukkan
tvö í dag, og munu flugfé-
lögin þá enn reyna að ná
fram frestun verkfallsins.
Verkfall flugmanna á að standa
i fjóra sólarhringa, svo að flug
hæfist aftur á sunnudag. Sam-
kvæmt upplýsingum Sveins Sæ-
mundssonar, blaðafulltrúa hjá
Flugleiðum i morgun, hefur áætl-
un verið breytt verulega vegna
yfirvofandi verkfalls. Sveinn
sagði, að fólk virtist hafa flýtt
ferðum sinum, yfirleitt væri full-
bókað i innanlandsflugi i dag og
hefði verið siðustu daga, en litið
pantað næstu daga. Chicago-flug-
ið hefur verið stöðvað. 1 dag
verður aukaferð klukkan fjögur
til Glasgow og Kaupmannahafn-
ar, og á þotan að vera komin
hingað aftur fyrir miðnætti.
Lundúnaferð verður samkvæmt
áætlun i dag. Aukaferð verður til
fsafjarðar klukkan sjö i kvöld. Þá
verður fyrirhugaðri ferð til Glas-
gow og Lundúna, se.m vera átti á
laugardag, frestað um 24 klukku-
tima, ef til verkfallsins kemur.
Farþegum, sem ætla með vélum
Loftleiða milli Evrópu og Ame-
riku, verður komið i vélar ann-
arra flugfélaga, sem samvinna er
við. Um hádegi i dag kunna að
vera gerðar frekari ráðstafanir,
ef ástæða er talin til.
Sveinn sagði, að samkvæmt
kröfum flugmanna ættu há-
markslaun flugmanna á Boeing-
þotum til dæmis að hækka úr 169
þúsundum á mánuði i 310 þúsund
og hámarkslaun flugmanna á DC-
8 úr 197 þús. á mánuði i 338 þús-
und. Hámarkslaun flugstjóra á
Boeing mundu hækka úr 278.700 i
470 þús., svo að nokkur dæmi séu
nefnd. —HH
LETU LOKA SIG INNI
OG BRUTUST SVO ÚT
Þegar menn komu til starfa i
Birgðastöð StS I Geirsgötu I
morgun, var slæm aðkoman I
kaffistofunni. Þar hafði meðai
annars verið brotinn upp fata-
skápur og dýrum sykri dreift út
um allt. Augljóst var, að þeir
sem þarna voru á ferð, höfðu
svo látið sig siga út um giugga á
rafmagnskapli niður, en kaffi-
stofan er á annarri hæð.
Starfsmenn stöðvarinnar
telja sig muna eftir tveim pilt-
um, sem voru að sniglast þarna
um lokunartlma I gærkvöldi, og
telja, að þeir hafi lokazt — eða
látið loka sig — inni. Undir þaö
er einnig rennt þeim stoöum, að
I birgðageymslunni eru tvö reið-
hjól, og er nú beðið eftir þvi, að
eigendirnir vitji þeirra.
Þá var i nótt ráðizt á litinn
sendiferðabll, sem stóö fyrir
utan Lágmúla 5, og brotin I hon-
um hver einasta rúða.
Loks var fariö inn I fyrirtæki i
Armúla, fariö um allt húsið, en
aðeins stolið um 7 þúsund krón-
um i skiptimynt. —SHH
Býður lán til
brúar yfir
Borgarfjörð og
Ölfusárósa
— baksíða
•
„Neikvœð"
þróun í bú-
setumálum
— baksíða
•
Stökk út
úr logandi
húsi
— baksíða
Bretta
upp
Þó að dagurinn I gær hafi
veriðeinn sá sólrikasti á þessu
vori, var golan óneitanlega
köld. Með tilliti tii þess,
hversu sólardagar eru fáir
hér, þótti ungu stúlkunum
nauðsynlegt að nota geislana I
gær. Þær brettu upp ermarnar
og brutu upp á buxnaskálm-
arnar. Þetta er þó alitaf upp-
hafið á þeirri viðleitni að ná
sér I lit.
Það var I Austurstrætinu I
hádeginu I gær, sem þessar
stúlkur urðu á vegi ljósmynd-
arans. Göngugatan var þegar
farinaðgefa sumarkomuna tii
kynna. Setið var á hverjum
bekk og ekki óviða stóðu
kunningjarnir á spjalli. Það lá
engum á. 1 morgun var svo
byrjað að rigna gróðrarskúrir,
— vonandi'.
ÞJM/Ljósm. Bragi.
Tóku
vélhjól
með ofbeldi
1 gærkvöldi réðust þrlr strák-
ar að þeim fjórða I Reykjavik og
tóku með valdi af honum vél-
hjól. Siðan skiptust þeir á um að
haida hjóleigandanum, meðan
þeir sjálfir þeystu um á hjólinu.
Þeir þrir, sem beittu ofbeldi á
þennan hátt, voru fæddir 1958,
en hjóleigandinn er ári yngri.
—SHH
LAXVEIÐI HAFIN í ELLIÐAÁNUM
— en að sjálfsögðu ólögleg
Laxveiði I Elliðaám er hafin.
Það voru nokkrir pjakkar, sem
tóku laxinn, þar sem hann lá I
pollum, eftir að hleypt hafði
verið úr Elliðaárstlflunni. Hins
vegar er laxinn ekki sem girni-
legastur til átu nú, og þar að
auki er þessi veiðiaðferð engan
veginn heimil. Laxinn ienti þvl I
vörzlu Arbæjarlögreglunnar til
bráðabirgða, og piltunum var
veitt tiltal. Að sögn Arbæjarlög-
reglunnar er töluvert um lax I
ánum um þessar mundir og allt
upp I Bugðu. —SHH
15 manns í
ölvunargeymslu
Óvenju mikil ölvun var I mið-
borginni I gærkvöidi og nótt, og
varð lögreglan að taka 13 manns
úr umferð á þessum tlma vegna
ölvunar. Tveir voru teknir I gær,
svo að á einum sólarhring þurfti
miðbæjariögreglan að taka 15
manns I slna vörzlu vegna ölv-
unar. —SHH