Vísir - 23.04.1975, Síða 3

Vísir - 23.04.1975, Síða 3
Visir. Miðvikudagur 23. april 1975. 3 Þar tekur þoð eino mínútu að slíto sambúðinni! — rœtt við Omar Almobarak frá Saudi-Arabíu sem er sonur olíusjejks ,,í Saudi-Arabiu vita menn ekkert um ykkur á lslandi. Ég vissi ekki neitt fyrr en ég kom til London. t>á heyrði ég um fiski- striðið ykkar, og i lögfræðinámi minu var mér sagt frá Þingvöll- um. Þið megið samt ekki ásaka fólkið fyrir að vita litið um ykk- ur. Ef ekki væri fyrir oliuna vissuð þið sjálfsagt mjög lítið um okkur. En þegar ég fer heim, er ég að hugsa um að skrifa bók um ísland og iifið hér.” Omar Almobarak heitir sá, sem þetta segir. Hann er frá Saudi-Arabiu og faðir hans var „oliusjeik”, — eins og við segj- um. Nú er faðir hans látinn, en eldri bróðir Omars tók við af honum. Omar hefur hins vegar verið við lögfræðinám i London i 5 ár, og nú er hann staddur hér á landi i heimsókn. Hvenær hann fer hefur hann ekki ákveðið. Við hittum hann á Hótel Sögu, þar sem hann býr og spjölluðum við hann. Omar hefur verið hér siðan á laugardag. „Mér lizt vel á mig hér.Hinsvegarleiðistmér þessi rigning. Ég er liklega búinn að fá nóg af henni i London. Ég hef séð talsvert siðan ég kom, t.d. Þingvöll og Skálholt. Miðbæinn hér og sitthvað af borginni á ég eftir að sjá, og ég er aðhugsa um að lita á hana 1 dag. Það eru miklar andstæður i landi og þjóð finnst mér eftir þessa þrjá daga”, segir hann. „Sumir eru vingjarnlegir, aðrir leiðinlegri. En ef ekki væru and- stæður væri sjálfsagt leiðin- legt”. Omar var mjög undrandi á þvi, að hann þurfti að biða i tvo daga eftir þvi að geta náð i móð- ur sina i Saudi-Arabiu i sima. Hins vegar tók það hálftima að biða eftir simtali frá London. Hann er undrandi á ýmsu fleiru, t.d. þvi að við skulum kaupa oliu frá Rússlandi, en hér sitji svo amerfskur her og þar fram eftir götunum. Hann er lika hissa á sviðaáti okkar. Hann kveðst hafa borðað hálfan kjamma en ekki meir. „Annars finnst mér maturinn ykkar góður.” Vin og tóbak er bannvara i heimalandi hans. „Þegar ég kom 19 ára til London hafði ég aldrei reykt eða drukkið. Nú geri ég hvorutveggja, það verður þvi erfitt fyrir mig að vera heima, enda býst ég ekki við að setjast þar alveg að.” — Er ekki leyfilegt fyrir einn mann að eiga fjórar konur i Saudi-Arabíu? „Jú. Og ef maðurinn vill skilja við þær, þá tekur það ekki nema eina minútu! Hér tekur það vist miklu lengri tima. Annars veit ég bara um einn mann, sem á þrjár konur. Að eiga fjórar konur finnst manni kannski óréttlátt. En það er kannski ekkert óréttlátara heldur en að maðurinn eigi eina konu og fari svo eitthvað út og nái sér i hjákonu. Ef hann á fjórar konur, þá vita þær, að hann fer til hinna þriggja.” Okkur finnst þeir vist margir undarlegir siðirnir hjá þeim þarna suður frá. Omar segir frá þvi, að ef maður gerist sekur um þjófnað þrisvar sinnum sé hönd hans höggvin af. „Annars hef ég aldrei séð mann, sem vantar höndina á. Ef til vill er svona litið um þjófnaði eða þá að þeir höggva hendurnar helzt ekki af..” Þegar við spyrjum hann að þvi, hvort faðir hans hafi ekki verið rikur, segir hann: „ekki rikur og ekki fátækur.” Og hann fræðir okkur á þvi, að þegar hann hafi látizt i fyrra, hafi hvorki meira né minna en 15 þúsund manns komið til þess að vera viðstaddir útför hans. „Það var ekki vegna þess að hann væri rikur, heldur vegna þess að hann var góður maður með stórt hjarta, þar sem rúm var fyrir alla. Og skáld var hann lfka,” bætir hann við. — Og þú? „Mini-skáld!” Hann segir okkur, að I fjöl- skyldu sinni, Almobarakfjöl- skyldunni séu 300 manns. „1 húsinu þar sem ég bý búa þó aðeins 7. En við erum hrifnir af stórum fjölskyldum og viljum hafa þær stórar.” Og hann getur þess, að hann ,,Æ, þarftu endilega að taka myndina i rigningunni......” sagði Omar Almobarak. Hann er litið gefinn fyrir rigningu, en hafði samt hugsað sér að skoða borgina þrátt fyrir það. Ljósm: Bragi. vildi mjög gjarnan fá aö búa hjá islenzkri fjölskyldu eitthvað af þeim tima, sem hann dvelur hér, þvi hann vill kynnast hinu daglega lifi okkar. Býður einhver sig fram? —EA Leiðrétting Ó-i ofaukið Fremur meinleg villa var I leiðara Visis I gær. Þar átti að standa: „Meinið á rot sina að rekja til verðlagskerfisins, sem skammtar kaupmönnum ákveðna prósentutölu ofan á innkaupsverð vörunnar. Þetta hvetur kaupmenn til að kaupa sem dýrastar (ekki ódýrastar, eins og stóð i blaðinu) vörur i hverjum vöruflokki og hafa samstarf sin á milli um inn- kaupin.” Gúfnamerki? Fokillur kvenmaöur hringdi i gærdag og las okkur greinilega vandlega upphugsaðan pistil: „Það er gáfnamerki að hugsa áð- ur en maöur setur eitthvað á blað. t blaðinu I dag stendur „dætur Arna Þórarinssonar” i staðinn fyrir Pálssonar”, sagði frúin og skelltisíðan á simtólinu að góðum og gildum, islenzkum sið. Liklega eru svona áskellingar lika gáfna- mcrki, eða hvað? Kiðlingarnir eru farnir að góna framan i vorið suður i Sædýrasafninu, — og á næstu dögum fara fyrstu ærnar að bera. Það er vor i lofti i safn- inu ekki siður en annars stað- ar og gestum fjölgar nú óðum. Á sunnudaginn var byrjaöi skriðan, og á góðviðrisdögum getur orðið margt um mann- inn. VOR í SÆDÝRASAFNI SUMARFAGNAÐUR MEÐ VARÐELDASIÐI — og skátar í Firðinum halda upp á 50 ára afmœli Nóg verður um að vera hjá skátum i Reykjavik á morgun. Fjórar skátamessur verða I borg- inni. t Neskirkju klukkan 11 verð- ur Skátafélagið Ægisbúar. Þeirri messu verður útvarpað. t Hall- grimskirkju er'messa kl. 10.30. Þar veröur Skátafélagið Land- nemar. t Fellaskóla kl. 10.30 veröur Skátafélagið Hafernir og i Breiðholtsskóla kl. 10.30 verður Skátafélagið Urðarkettir. Kl. 13.30 safnast allir skátar, ljósálfar og ylfingar saman á Rauðarárstig milli Hverfisgötu og Skúlagötu. Þaðan verður gengið kl. 13.45 I skrúögöngu að Laugardalshöll. Gengið verður austur Laugaveg, norður Kringlumýrarbraut og austur Sigtún að Laugardalshöllinni. Þar hefst sumarfagnaður skáta kl. 14.30, sem verður með varðeldasniði. öllum er heimill aðgangur að messunum og sumarfagnaði, en aðgangseyrir að Laugardalshöllinni er 50 kr. Skátafélagið Hraunbúar i Hafn- arfirði heldur liklega sumardag- inn fyrsta hátiðlegri en margir aðrir. Skátafélagið heldur nefni- lega upp á 50 ára afmæli sitt. Af- mælisdagurinn va>- að visu I febrúar, en þar sem sumardagur- inn fyrsti i Hafnarfirði hefur allt- af verið áberandi dagur skáta og skátastarfs var ákveðið að minn- ast afmælisins frekar þá. Klukkan 10 mæta Hraunbúar við skátaheimilið Hraunbyrgi. Þaðan verður farið i skrúðgöngu kl. 10.15 og gengið til kirkju. Þar hefst athöfn kl. 11. Hraunbyrgi og félagsheimili Hjálparsveita skáta i Hafnarfirði verða opin frá kl. 2-4 og geta menn þá komið og skoðað, og fengið svarað fyrirspurnum. Kl. 5 verður skemmtivaka i Hraunbyrgi fyrir yngri skáta, ljósálfa og ylfinga. Klukkan 9 um kvöldið hefst svo afmælisfagnaö- ur fyrir dróttskáta og eldri Hraun- búa I Hraunbyrgi. — EA Álandseyjavika í Norrœna húsinu 19.-27. apríl 1975 Miðvikud. 23. april kl. 17:00: Kvikmyndasýning um siglingar á segl- skipum. HARALD LINDFORS, skipstjóri, rifjar upp endurminningar frá timum seglskipaferðanna um öll heimsins höf. kl. 19:00 Samfelld dagskrá um Álandseyjar: LARS INGMAR JOHANSSON: Det álándska náringslivets utveckling. FOLKE SJÖLUND: Álands turism. KARL-ERIK BERGMAN: Fiske pá Áland. LARS INGMAR JOHANSSON: Álands sjálvstyrelse och förvaltning. Til skýringar efni verða sýndar mynd- ræmur og litskyggnur. Fimmtud. 24. april kl. 16:00: Kvikmyndasýning: ÁLAND. „SPELMANSMUSIK”. kl. 17:00 KURT WEBER ræðir um álenskt listalif. Föstud. 25. april kl. 17:00: Kvikmyndasýning: ÁLAND. Laugard. 26. april kl. 16:00: Vikulok: Tónleikar WALTON GRÖNROSS, óperusöngvari. Undirleikari: AGNES LÖVE. Sunnud. 27. april: Siðasti dagur álensku sýninganna. Kvikmyndasýningar. , ,Skerma”- sýningin frá Historiska museet i Stokkhólmi verður þó látin standa fram eftir vikunni. NORRÆNA HUSIÐ

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.