Tíminn - 03.08.1966, Síða 8
TÍMINN
MIÐVIKUDAGUR 3. ágúst 196«
VARÚD Á VEGUM
Hin nýstofnuðu landssamtok,
VARÚÐ Á VEGUM, hafa á stefnu
skrá sinni að auka umferðaröryggi
og bæta umferðarmenninguna.
Samtökin hafa ráðið til sín Sigurð
Ágústssion, fyrrverandí lögreglu
þjón og bauð hann blaðamanni
Tímans og Bjamleifi ljósmynöara
að fara í stutta ökuferð um borg
ina til þess að kynnast nokkrum
af þeim hættum, sem liggja í leyni
fyrir fótgangandi fólki.
NOTIÐ GANGBRAUTIRNAR
Eitt erfiðasta viðfangsefni um-
ferðarlögreglunnar í miðboi'ginni
er að koma fólki í skiining um
það, að því ber að nota gangbraut
ir þær sem fyrir hendi eru og
einnig að ganga aðeins yfir á
grænu ljósi, þar sem götuvitar eru.
Á horni Bankastrætis og Lækjar-
götu sáum við lögregluþjón, sem
fylgdist með umferðinni og skyndi
lega stöðvaði hann fullorðinn
mann og rétti honum gulan miða.
Er við grennsluðumst eftir hvað
á miða þessum stóð, kom í ljós, að
á honum stóð kafli úr umferðar
lögunum um umferð gangandi
manna. Þar stendur meðal annars:
Gangandi menn skulu nota gang
stéttir og gangstíga, sem liggja
með akbrautum. Ef ekki er gang
stétt eða gang ‘ígur fyrir heudi,
skulu menn að jafnaði ganga á
hægri vegarbrún. Þar sem merkt
f er gangbraut yfir veg, skulu ínenn
nota hana, er þeir ætla yfir veg
inn. Ef ekki er gangbraut, skulu
menn ávallt ganga með jöfnum
hraða þvert yfir veginn og gæta
vel að umferð, áður en farið er
yfir.
Aðspurður kvaðst lögregluþjón
inn afhenda slíkan miða öllum
þeim, sem ekki virða umferðarregl
urnar.
Okkur bar saman um það, að um
ferðarljósin á gatnamótuim gætu
verið skýrari. í græna og rauða
Þessi maBur, sem þverbrýtur umferðarregturnar. er sðelns einn af mörgum. í Austursfræti má á hverr) minútu sjá einhvern vegfaranda ganga yfir götuna. Timi er til þess kominn,
a8 fölk farí a» nota gangbrautirnar og slysum fækkl.
Engin smábörn ættu að fara yfir göturnar nema í fylgd með fullorðnu
fólki eða stærri börnum. Geysimörg slys Hafa orðið vegna þess að lítil
börn, hlaupa yfir göturnar án þess að horfa til hægri né vinstrl.
Hérna er gott dæmi um góðar merkingar við gangbrautir, þar sem
unnið er að gangstéttarlagningu. Snúra hefur verið strengd við götuna,
þannig að vegfarendur njóta öryggis innan hennar.
liðkaði fyrir umferðinni, bæðl akandl og gangandl umferð.
og