Tíminn - 06.08.1966, Qupperneq 13

Tíminn - 06.08.1966, Qupperneq 13
LAUGAKDAGUR 6. ágúst 1966 MMtmiméMwnmi R TÍMINN ÍÞRÓTTIR Frá leik Vals og ICR í fyrrakvöid. Þarna hefur skapazt mikil hætta viS KR-markið. Hermann Gunnarsson er með knöttinn og býr sig undir að skjóta og Guðmundur markvörður kemur út á mótí. En skot Hermanns fór framhjá. Það er Óskar Sigurðsson, sem liggur, en hjá honum stendur Ársæit Kjartansson. (Tímamynd Bjamleifur) W I Islancfsmót- skýrast um helgina Keflvíkingar mæta Akureyri á sunnudag og Valur Akranesi. Á mánudagskvöl d leika neðstu liðin í deildinni, Þróttur og KR Alf-Reykjavík. — Fullur skrið- ur er nú kommn á 1. deildar keppn ina aftnr. Á sunnudag og mánu- dag fara fram þrír leikir og ættu línurnar að skýrast nokkuð eftir þá. Á Njarðvíkur-vellinum leika á sunnudag klukkan 16 Keflavík og Akureyri, og um kvöldið, kl. 20, leika á Laugardalsvellinum Valur og Akranes. Á mánudagskvöld leika svo á Laugard alsvellinum botnliðin í deildinni, Þróttnr og KR. Allir þessir leikir eru þýðingar- miklir, og kannski ekki sízt Jeikur Vals og Akraness. Spurningin er, hvort Skagamönnum tekst að stöðva Val, sem í svipinn er í efsta sæti. Takist þehn það ekki' og hreppi Valur bæði stigin, væri staða Vals orðin mjög góð, sem væri þá með 11 stig. Akranes er með 6 stig eftir 5 leiki — þ.e. 2 leikjum færra en Valur. Fyrir utan leikinn við Akranes á Valur eftir að leika gegn Þrótti og Ak- ureyri. Því er ekki að leyna, að örlítil heppni hefur fylgt Val í keppninni til þessa, en þó var liðið óheppið að tapa báðum stig unum í Keflavík. Skagamenn eru harðir í horn að taka og senni- lega staðráðnari í því en nokkurn tíma áður að verða sér úti um íslandsmeistaratign. Liðið er ný- komið úr keppnisför til Færeyja — og að sögn í mjög góðri æfingu. Það verður eflaust mjög gaman að fylgjast með uppgjöri Vals og Akranéss og líklega hverfa þeir ekki báðir með bros á vör af velli eftir leikinn „harðjaxlarnir" Arni Njálsson og Ríkharður Jónsson. Leikinn dæmir Magnús Pétursson. Leikur Keflavikinga og Akureyr inga ætti einnig að geta orðið Framhald á bls 12 Alf-Reykjavík. — Eins og sagt hefur verið frá á íþrótta síðunni, fór 1. deildar lið Akraness í keppnisför til Færeyja fyrir skemmstu. Skagamenn eru nú komntr heim aftur úr keppnisför- inni, og náðum við tali af Ríkharði Jónssyni, sem snöggvast í hléi leiks Vals og KR í fyrrakvöld. Skýrði Ríkharður frá því, að ferð- in hefði verið nijög skemmti leg í flesta staði. Alls lék Akranés-liðið þrjá leiki í för inni, þann fyrsta gegn úr valsliði Þórshafnar og tap aðist sá leikur 3:4. Annar leikurinn var gegn B 36 og vaun Akranes þann leik með 5:1 Þriðji og síðasti leilcur inn var svo gegn HB og var það mikill markaleikur, en alls voru skoruð 10 mörk í leiknum, þar af skoruðu Skagamenn 7, en HB 3. Vann Akranes því tvo leiki í förinni og tapaði einum. Moore áfram hjá West Ham Bobby Moore, hinn frægi fyrir- liði ensku heimsmeistaranna í knatt spyrnu, hefur undirritað nýjan 3ja ára samning við félag sitt, West Ham. Undanfarið hafa menn frek- ar reiknað með því, að Moore hyrfi frá West Ham, því á síðasta keppn istímabili vegnaði honum ekki of vel hjá félaginu og missti m.a. fyrirliðastöðuna. Tver leikir í 3. deild háðir á morgun Tveir leikir verða háðir i 3. deild fslandsmótsins í knattspyrnu um helgina. f Borgarnesi leika heimamenn gegn Sauðkræklingum —• og á Selfossi mæta heimamenn Ölfusingum. Báðir leikirnir hefjasí klukkan 16. Borgnesingar og Sel- fyssingar eru efstir í deildinni með 8 stig. Á sunnudag fer frain í Rvík leik- ur í bikarkeppni KSÍ og mætast Fram a og Breiðablik á Melavell- ínum kl. 16. KR og (R í lokakeppni Það er í dag, sem einvígi beirra Cassiusar Clay og Bri an London fer fram. Á myndinni hér að ofan London — ófríður í andliti — ásamt konu sinni og sy ni. Veðmálin í Lundúnum eru 6:1 Clay í hag. sest I fyrrakvöld lauk á Melavell- inum keppni í Reykjavíkur- riðli í Bikarkeppni FRÍ. Eins og vænta mátti, hlutu KR og ÍR flest stig — og taka því þátt í lokakeppninni, sem háð verður á Laugardalsvellinum um miðjan þennan mánuð. Hlaut KR samtals 166 stig, IR 124 — og Ármann rak lestina hlaut 75 stig. Sæmilegur árang ur náðist í nokkrum greinum en veður var frekar óhagstætt Ólafur Guðmundsson náði bezts árangri, 10,8 sek. í 100 m hlaupi, en hafði meðvind.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.