Vísir - 03.05.1975, Blaðsíða 1
65. árg. — Laugardagur 3. mal 1975 — 99. tbl.
Alþingi undirbýr
hraðan lokasprett
Stefnt mun að þvi að ljúka
Alþingi fyrir hvltasunnu, það er
að segja I næstu viku, en til þess
þarf mikið átak. Mörg mál biða
enn afgreiðslu, sem rikisstjórn-
in stefnir að samþykkt á.
Þar má fyrst nefna frumvarp-
ið um útvegsmál, ráðstöfun
gengishagnaðar. Vegaáætlun er
enn óafgreidd, en fóstureyð-
ingafrumvarpið er á siðasta
snúningi i efri deild og verður
vafalaust samþykkt innan
skamms. Þá mun stjórnin vilja
láta samþykkja á þessu þingi
ýmis frumvörp um skólamál og
Þjóðleikhús, svo að eitthvað sé
talið. Þótt mörg frumvörp,
meðal annarra einhver stjórn-
arfrumvörp, muni „sofna” á
þessu þingi, svo sem alltaf er, er
mikil lota eftir, ef þingmenn
ætla að verja hvitasunnuhelg-
inni áhyggjulausir yfir óaf-
greiddum þingmálum. — HH
Hér eru þeir saman, elzti og
yngsti Fordinn á slökkvistöð-
inni I Reykjavlk. Það veröur.
tæplega séð, að margt sé likt
með skyldum — en þó eru báð-
ir með pílárafelgur.
MyndirVIsis: Bragi.
Erlendur Halldórsson, vél-
virkjameistari — hefur gert
bilinn eins og nýjan.
52 áro
slökkvi-
bíll
„Túristajöfnuðurinn" lagaðist í vetur
Útlendingar betur
„plokkaðir" en áður
Erlendum ferðamönn-
um, sem hingað komu,
fækkaði mikið en is-
lenzkum, sem ferðuðust
til útlanda, fjölgaði.
Hins vegar eyddu út-
lendingarnir miklu
meira en áður, i krónum
talið, og hjálpaði gengis-
fellingin nokkuð upp á
þær sakirnar.
Þetta var útkoman fyrstu vetr-
armánuðina. Hingað komu mán-
uðina október-desember 8313 er-
lendir ferðamenn en árið áður
voru þeir 9542. Islendingar, sem
fóru utanferðir, voru þessa mán-
uöi 10676 en 10015 árið áður.
Við höfðum i fargjaldstekjur af
útlendingum þessum 105 milljónir
nú en milljón meira árið áður, en
eyðsla þeirra hér innanlands er
talin hafa verið 490 milljónir
króna I október-desember í vetur
en aðeins 116 milljónir árið áður,
samkvæmt tölum i nýútkomnum
Hagtölum mánaðarins. Áætluð
útgjöld Islendinga erlendis jukust
minna, úr 237 milljónum i 350
milljónir króna á þessum tima.
Allt árið 1974 komu 68476 er-
lendir ferðamenn en höfðu verið
74019 árið 1973. Þeir munu hafa
látið okkur i té 750 milljónir i far-
gjöld samanborið við 800 milljón-
ir árið áður, en 1620 milljónum
munu þeir hafa eytt hér á landi,
en sú tala var 1146 milljónir árið
áður.
tslendingar juku ferðalög sin
utan geysimikið, úr 37807 manns
árið 1973 i 47661 árið 1974, og
eyðslan óx úr 1187 milljónum i
1815 milljónir króna. Eyðsla ts-
lendinga óx þannig um 628 millj-
ónir og eyðsla útlendinga hér inn-
anlands um 474 milljónir, en frá
siðari tölunni verður að draga 50
milljóna lækkun á tekjum, sem
við höfðum af þeim i fargjöldum.
—HH
Vill fá
jórdanskan
sjáanda til
að finna
Geirfinn
Engin furöa þótt hann breiði yfirhöfnina yfir höfuð sér, túristinn, sem Bjarnleifur myndaði á Keflavik-
urflugvelli I gærdag. Kuldi, hávaði frá flugumferð, — og óvæntur farmiöaskattur. Og svo eru „túrist-
arnir” betur „plokkaðir” en nokkru sinni fyrr.
— bls. 2
„LIFI FRJÁLSAR MÆTINGAR"
„Lifi frjálsar mæt-
ingar, ’ ’ er mottó þeirra
nemenda Kennarahá-
skóla íslands, sem boð-
að hafa til fundar i
skólanum i dag. I
dreifibréfi, sem Visir
hefur náð i eintak af,
segir að til fundarins sé
boðað vegna þeirrar á-
kvörðunar skólaráðs
Kennaraháskólans að
veita ekki fimm nem-
endum á fyrsta ári leyfi
til prófsetu i vor.
Skólaráð mun hafa vísað til á-
kvæðis í 22. grein reglugerðar
skólans þar sem segir, að 80 pró
sent mæting sé forsenda þátt-
töku i prófi. Beitingu þessa á-
kvæðis vilja fimmmenningarnir
og svonefnt hagsmunaráð nem-
enda skólans kalla „siðlaust at-
hæfi.”
„Akvæðið er tilkomið i þá tið
er skólinn var kennaraskóli og
sniðið að rikjandi ákvæðum um
mætingaskyldu i menntaskólan-
um þá,” segir i dreifibréfinu. Og
þar segir ennfremur: „Akvæðið
er til þess fallið að tefja eðlileg-
ar framfarir i kennsluháttum,
þ.e.a.s. veitir ekki kennurum
það aðhald, sem til þarf svo að
vinnubrögð þeirra og starfs-
skipulag innan skólans sé i stöð-
ugri endurskoðun.”
Þá segir og i dreifibréfinu:
„Akvæðið stingur i stúf við þau
vinnubrögð, sem almennt tiðk-
ast i háskólum, t.d. Háskóla Is-
lands.” Og loks: „Akvæðið er
fáránlegt.”
Það mun hafa verið sl. mið-
vikudag, sem skólaráð tilkynnti
fimm umræddum nemendum,
aö þeir hefðu ekki leyfi til þátt-
töku i prófunum, sem nú eru
framundan, en miðvikudagur-
inn var fyrsti upplestrardagur-
inn fyrir þau próf.
Vfsir náði tali af Brodda Jó-
hannessyni, skólastjóra Kenn-
araháskólans seint i gær. Vildi
hann ekki ræða mál þetta opin-
berlega, að minnsta kosti ekki
að svo stöddu. —ÞJM
— Nemendur í Kenn-
araháskóla íslands
mótmœla þeirri
ákvörðun skólaráðs,
að fimm nemendur
á fyrsta ári, sem
eru með minna en
80 prósent mœtingu
eftir veturinn, fái
ekki að taka
þátt í vorprófunum