Vísir - 03.05.1975, Síða 3

Vísir - 03.05.1975, Síða 3
Vlsir. Laugardagur 3. mai 1975. 3 Flug til Fœreyja og Grœnlands innanlandsflug! INNHEIMTUM W FLUGVALLAR- SKATT FYRIR FÆREYJAFLUGVÓLL? Færeyjar og Græn- land tilheyra íslandi og eru ekki útlönd ef dæma má eftir lögun- um um flugvallarskatt, sem gengu i gildi i fyrradag. Þar eru settar reglur um, að flugvallarskatt- ur fyrir utanlandsfiug sé 2500 krónur en að skattur á innanlands- flug sé 350 krónur fyrir ,aðra ieið, en 700 krónur báðar leiðir til og frá Reykjavikurflugvelli. Þetta á jafnt við um flug til Færeyja og Grænlands og ann- arra staða „innanlands.” Túlkun á reglum þessum eru mjög á reiki, enda finnst þeim er eftir reglunum eiga aö fara sem þær séu mjög loönar. Þó er þegar ljóst að skatturinn er 350 krónur til eða frá Reykjavlk en helmingi lægri á milli annarra flugvalla innanlands. Þótt ekki hafi enn á það reynt, viröist sem þessi 700 króna skattur veröi einnig innheimtur fyrir flug til Færeyja og til baka aftur. 350 krónur eru skattur fyrir völlinn I Reykjavlk og hinar 350 krónurn- ar geta þá vart veriö annaö en skattur fyrir Voga-flugvöll I Færeyjum. Islenzka rlkiö er þvi á þann hátt farið aö leigja út flugvelli I öörum löndum og rukka inn skatta fyrir þá. Færeyingar mega annars þakka slnum sæla fyrir flugvall- arskattinn, sem nú hefur verið tekinn upp á Islandi. Sennilegt er aö aukinn kostnaöur viö flug- feröir laöi fólk aö sjóferöum og I sumar veröur einmitt færeyska skipiö „Smyrill” eina fólksferj- an á milli íslands og annarra landa og einnig er hugsanlegt, að nú láti fleiri Islendingar verða af þvf aö heimsækja Fær- eyjar á útleið til aö sleppa viö 2500 króna skattinn en borga þess I staö aðeins 350 krónur fyrir aö koma viö I Færeyjum. Þaöan býöst svo skattlaust flug áfram til Danmerkur en mis- muninn má nota til aö gista eina nótt á góöu hóteli I Þórshöfn. Jafnframt þvl sem flugvallar- skatturinn var tekinn upp fyrsta maí féll niður söluskattur af flugfarseölum innanlands. A sama tlma hækkuöu þó fargjöld Flugfélagsins um söluskatts- upphæöina. —JB MUNCH OG JÖRN MEÐAL NORRÆNNA MEISTARA í LISTASAFNI ÍSLANDS — norrœn myndlistarvika opnuð Nú fer I hönd norræn mynd- listarvika, þegar allar Norður- landaþjóöirnar halda sérstakar sýningar á myndlist grannland- anna. Hér er þaö Listasafn ts- lands, sem heldur merkinu uppi, og sýnir 65 listaverk grannþjóöanna, málverk, högg- myndir og graflk. Af þessum verkum eru 28 eftir Dani, 11 eftir Norðmenn, 4 eftir Svla og eitt eftir Finna. Meðal nafna má finna nöfn eins og Ed- vard Munch, Asker Jörn, Robert Jacobsen, Bent Lind- ström, Kræsten Iversen og Wil- helm Lindström, svo dæmi séu tekin. Allt eru þetta verk sem Lista- safn Islands á, en alls á það um 340 listaverk eftir granna okkar á hinum Norðurlöndunum. Sýningin verður haldin I húsa- kynnum Listasafns Islands I Þjóöminjasafnshúsinu, og verð- ur opin frá kl. 13.30-19.00 dag- lega frá sunnudeginum 4. mai til sunnudagsins 11. mal. t norrænu myndlistarvikunni veröa yfir 50 söfn á Norðurlönd- um meö sýningar á list grann- landa sinna. íslenzka sýningin hefur fengiö plaggöt og merk- ingar sams konar og notuö verða annars staöar, og eru þau eftir finnskan listamann. Listasafn tslands er ein elzta menningarstofnun íslands. Það var stofnað I Kaupmannahöfn I október 1884, og stofnandinn var Bjöm Bjarnarson, sem siðar varð sýslumaður Dalamanna. Meöal þeirra, sem fyrst gáfu myndir I safnið, var danska konungsfjölskyldan, sem gaf fjórar myndir. Safnið kom siðan heim til Islands á árunum 1885- 7. —SHH Gylfí berst fyrír zetu Gylfi Þ. Glslason bar I gær fram frumvarp um stafsetn- ingu, þar sem meöal annars er gert ráö fyrir cndurreisn þess merka stafs z. Hann segir: „Rita skal z fyrir upprunalegt ds, ös, ts, bæöi I stofni og endingum, þar sem tannstafurinn (d, ö eöa t) er fallinn burt I skýrum framburöi, til dæmis hanzki (handski), lenzka (lendska), gæzka (gæöska). Ennfremur þiö eöa þér kallizt (kalliö-st), berjizt (berjiö-st), setjizt (setjið-st), svo og hefur eöa haföi kallazt (kallaö-st), barizt (bariö-st), snúizt (snúið-st(, flutzt (flutt- st), breytzt (breytt-st), hitzt (hitt-st), stytztur (stytt-stur), og hann sezt (set-st), brýzt (brýt-st), flyzt (flyt-st). —HH „Hvað er Hvera- gerði til bjargar?" Borgarafundur um atvinnuleysið í þorpinu „Hvaö er Hverageröi til bjarg- ar?” spyrja félagar I Junior Chamber I Hverageröi. Eiga þeir þá viö þaö atvinnuleysi, sem ó- neitanlega er I þorpi þeirra, en fjöldi Hvergerðinga þarf aö sækja vinnu utan bæjarins. Félagarnir 1 JC þykjast kunna svariö viö ofangreindri spurn- ingu: „Þaö er skoöun okkar,” segja þeir, „aö hreppsnefndin eigi að gera stórátak I aö laða at- vinnufyrirtæki til Hverageröis og þá einkum og sér I lagi iönaöar- fyrirtæki, sem geta skapaö mikl- um fjölda vinnu.” I þvl sambandi vilja JC-félag- arnir benda á þá miklu notkunar- möguleika, sem jarðhitinn á staðnum býður upp á. Og um leið segjast þeir fagna fiskþurrkunar- stööinni, sem er að risa I Hvera- geröi. Hefur Junior Chamber Hvera- geröi boöaö til borgarafundar á Hótel Hveragerði klukkan tvö i dag, en þar flytur Haukur Björns- son, framkvæmdastjóri Félags Islenzkra iðnrekenda, framsögu- erindi um atvinnuuppbyggingu. Hreppsnefndin mun einnig sitja fundinn og taka þátt I umræðum um framtlö Hverageröis atvinnu- lega séö. —ÞJM Núerævin öll.eldurinn gekk endanlega frá gamla bflnum. Ljósm. job Ætlaði bara að logsjóða bílinn - kveikti þá í honum Maöur nokkur, sem hættur var að treysta gamla bllnum slnum i stórræöi, fór aö hiröa helztu heil- legu hlutina úr honum viö heimili . sitt á Teigunum um kl. 21 gærdag. Þegar skrúfjárn og skiptilykill dugöu ekki lengur greip hann til logsuðutækjanna og vildi þá ekki betur til en svo aö eldurinn fór vlðar en hann átti aö fara og breiddist eldurinn fljótt um allan bílinn. Slökkviliöiö kom á staöinn og slökkti eldinn I snarheitum, en sennilegt er aö brúninn marki endalok bilsins. —JB TÍMI PRÓF- SKREKKSINS „Jú, þaö er kominn I okkur prófskrekkur. Viö eigum aö fara I próf eftir einn og hálfan tlma”. Þær voru I óða önn viö aö hlýöa hvor annarri yfir þýzka mál- fræöi, þær Asta Schram og Helga Þóröardóttir, þegar okk- ur bar aö garði. Þær eru I 3. bekk I Menntaskólanum I Reykjavlk, og sögöu aö þegar þýzkuprófinu væri lokiö, væru 4 próf eftir. Þaö þarf vist ekki aö þvi aö spyrja að þaö veröur mikil gleöi þegar prófunum er lokið, og hægt er aö skella skollans skruddunum kirfilega aftur, þar til næsta vetur... — EA/Ijósm: Bragi. Leiða saman hesta sína — í orðsins fyllstu merkingu! Ahugafólk um hestamennsku fær sitthvaö viö sitt hæfi um helg- ina. Tvennar kappreiöar veröa I nágrenni Reykjavlkur. Hestamannafélagiö Gustur I Kópavogi heldur firmakeppni á Kjóavöllum I dag, laugardag, kl. 3. 125 hestar, þar á meöal flestir beztu hestar félagsmanna, taka þátt I keppninni. A morgun, sunnudag, veröa vorkappreiðar á Vlöivelli, at- hafnasvæöi Hestamannafélagsins Fáks. Tvö stærstu hestamannafé- lög landsins, Fákur og Gustur, leiöa saman hesta slna, I orösins fyllstu merkingu. Keppnin hefst kl. 2.30. Aö- gangseyrir er kr. 300 fyrir full- orðna, 100 kr. fyrir stálpuö börn. Hins vegar er ókeypis aögangur aö firmakeppni Gusts. —óH Bílvelta Bfll valt á Úlfarsfellsvegi klukkan tæplega tlu I gærkveldi. Sex piltar voru I bllnum, og varö aö flytja fjóra á slysadeild. Aö sögn lög- reglunnar I Hafnarfiröi, þá sluppu þeir viö alvarleg meiösli. —JB

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.