Vísir - 21.05.1975, Blaðsíða 12
12
Vlsir. Miðvikudagur 21. mai 19V5
Luxemborg — Nafnið
þekkja allir, og flestir
vita að það er smáríki í
Evrópu, er eitt af BENE-
LUX-löndunum svoköll-
uðu í EBE og Loftleiðir
hafa haft þar endastöð í
Atlantshafsflugi sinu um
árabil — en þar með er
Ifka vitneskja margra á
þrotum um þetta litla
land.
Stórhertogadæmið Luxem-
bourg.en svo heitir það með
réttu, er aðeins 2586 ferkiló-
metrar að stærð, og það gefur
auga leið að vegalengdir eru þar
ekki miklar, þar sem landið er
lengst frá norðri til suðurs er
það 82 km og frá austri til vest-
urs 57 kilómetrar.
Þúsund ár að baki
Luxemborg verður fyrst til á
spjöldum sögunnar um 50 fyrir
Krist, en þá bjó á þvi landsvæði,
sem nú er Luxemborg, belgisk-
ur þjóðflokkur, Treveri.
Um árið 400 e.Kr. hófu
germanskir þjóðflokkar að gera
sig heimakomna, en seinna
lenti landið undir yfirráðum
Karlamagnúsar.
Sem Luxemborg verður það
fyrst þekkt árið 963, en þá flytur
Siegfried greifi frá Ardenne sig
um set og reisir sér virki, þar
sem nú er höfuðborgin Luxem-
borg.
Varð landsvæðið þar i kring
greifadæmi, en siðar hluti hins
heilaga rómverska keisara-
LUXEMBORG
— smáríkið í hjarta Evrópu, sem staðið
hefur af sér mörg áföll á þúsund ára ferli
Séðyfir „gilið” i Luxemborg, en þar stendur elzti hluti borgarinnar, I baksýn má sjá eina af fjölmörgum
brúm sem tengja borgarhverfin saman. Meö þessari nýbyggðu hraðbrautarbrú hefur veriö sýnt fram á
að vel er hægt að fella svo saman gamalt og nýtt aö vel fari.
dæmis. Arið 1354 er landið gert
að hertogadæmi, og var það selt
undir yfirráð Búrgundættarinn-
ar 1443 og siðan Babsborgara
1483. Næstu 300 árin er landið
undir yfirstjórn Spánar og
Austurrikis sem hluti Niður-
landa. Á timum frönsku
byltingarinnar var landið undir
yfirráðum Frakka, en þegar
Niðurlönd voru gerð að
konungsriki 1815, var það gert
að stórhertogadæmi, en áriö
1839 gerði Belgia tilkall til og
innlimaði nærri helming þáver-
andi hluta landsins. Þetta land-
svæði er nú syðsti hluti Belgiu
og heitir enn Luxemborg.
„Gíbraltar noröursins"
Allt frá þvi árið 963 er fyrstu
greifarnir settu sig niður þar
sem nú er höfuðborgin Luxem-
borg, voru þar reist mikil og
öflug virki. Frá náttúrunnar
hendi var þar hin bezta aðstaða
til varnar, og sem aldir liðu var
bætt við virkið og það eflt svo,
að það varð óvinnandi með
vopnum, en það kom fyrir að
það tókst að vinna það með
umsátri og svelta ibúana til
uppgjafar. Var virkið svo öflugt
að það var kallað „Gibraltar
norðursins”.
Þegar þýzka sambandsrikið
var leyst upp árið 1867 var
ákveðið á stórveldaráðstefnu
að lýsa landið hlutlaust, sjálf-
stætt stórhertogadæmi, en jafn-
framt var það gert að skilyrði að
hið öfluga virki yrði afvopnað og
lagt niður.
Þrátt fyrir að landið hefði
verið yfirlýst hlutlaust riki,
kjarna Evrópu. Var loftferða-
samningur undirritaður i októ-
ber 1952, en ákveðið að hefja
flug vorið 1955. Aukning haföi
orðið á Atlantshafsflugi félags-
ins, eftir að það auglýsti lágu
fargjöldin á þeirri flugleið 1953,
milli Norðurlandanna og Bret-
lands.
Það varð að ráði að ungur
starfsmaður Braathens SAFE i
Noregi, en við það flugfélag
höfðu Loftleiðir náið samstarf á
þessum árum, flyttist
til Luxemborgar og tæki við
forstöðu skrifstofu Loftleiða
þar. Þessi maður er Einar
Aakrann, sem er mörgum ts-
lendingum að góðu kunnur fyrir
tveggja áratuga starf i þágu
Loftleiða. Var skrifstofan opnuð
1. mai 1955.
Fyrsta árið var flogið einu
sinni i viku á þessari flugleið, en
alls flaug félagið fimm sinnum i
viku yfir Atlantshaf þetta sum-
ar. Fyrsta árið voru farþegarnir
milli Luxemborgar og Reykja-
vikur fram og aftur 246 og milli
New York og Luxemborgar
343. 1959 voru Cloudmasterflug-
vélarnar teknar I notkun og óx
þá farþegafjöldinn i 768 til og frá
Lux.
Það er svo árið 1961 sem
'stóra stökkið verður, en þá
auglýsa Loftleiðir lágu fargjöld-
in milli Luxemborgar og New
York fram og aftur, sem félagið
hefur orðið einna þekktast fyrir
á þessari flugleið.
Þá vex farþegafjöldinn i 8.558
manns og enn árið eftir, en þá
eru fluttir milli landanna 30 þús-
und farþegar. Enn vex farþega-
fjöldinn er Loftleiðir festu kaup
á fyrstu Rolls-Royce skrúfuþot-
unni 1964, og enn aftur er DC-8-
63 þoturnar voru teknar i notkun
1970.1 dag er svo komið aö Loft-
leiðir flytja á hverjum degi
jafnmarga til Luxemborgar og
allt fyrsta árið, eða um þúsund
farþega.
Lætur nærri að nú, tuttugu ár-
um eftir að þessi áfangi hófst,
tiafi verið fluttar tæpar tvær
milljónir farþega á þessari flug-
leiö.
Hér sést hluti af hinu stórglæsilcga flugskýli, sem Cargolux hefur nú
nýverið tekið I notkun á Luxemborgarflugvelli.
i dag, 21. mai.eru liðnir réttir
tveir áratugir siðan merkur
áfangi hófst i Isienzkri flugsögu.
Það var laugardagsmorguninn
21. mai 1955 sem Skymaster-
flugvél Loftleiða, Edda, lagði
upp frá Reykjavik, og var
ákvörðunarstaðurinn Luxem-
borg. i fyrsta áfanga var flogið
til Gautaborgar og þaðan til
Hamborgar, en þar var gist
næstu nótt.
Edda, Skymasterflugvél Loft-
leiöa
Lyftistöng fyrir
bæöi löndin.
A þessum tveimur áratugum,
sem liðnir eru, hafa Loftleiðir
einnig komið við sögu i Luxem-
borg á öðrum sviðum. .
Arið 1969 keyptu Loftleiðir
flugfélagið International Air
Bahama, sem flýgur áætlunar-
flug milli Luxemborgar og
Bahamaeyja. 1 marz 1970 er
vöruflutningaflugfélagið Cargo-
lux stofnað, og eiga Loftleiðir
það að einum þriðja, ásamt
sænska skipafélaginu Salenia,
Luxair og nokkrum aðilum i
Luxemborg. Er Cargolux i dag
stærsta fyrirtæki sinnar tegund-
ar i Evrópu og eru i förum hjá
félaginu fimm skrúfuþotur af
gerðinni Rolls-Royce 400, sem
áður voru i flugi fyrir Loftleiðir
og einnig tvær þotur af gerðinni
DC-8.
Hélt Cargolux nú nýverið upp
á fimm ára starfsafmæli sitt
með þvi ,að flytja i nýjar bæki-
stöðvar á flugvellinum i Luxem-
borg, eru þar til húsa skrifstofur
fyrirtækisins og flugskýli. Flug-
skýlið, sem er um 9500 fermetr-
ar að flatarmáli, getur hýst i
einu tvær þotur af gerðinni DC-8
og þar fer fram öll þjónusta,
bæði við vélar fyrirtækisins, svo
og flugvélar Loftleiða og Air
Bahama. Hjá Cargolux starfa
nú um 300 manns, en
Morguninn eftir, 22. mai, var
flogiö til Luxemborgar. Múgur
og margmenni voru á flugvell-
jinumtilað fagna þessum merku
timamótum, er flugsamgöngur
voru hafnar milli Luxemborgar
og Bandarikjanna, með við-
komu á Islandi.
Meðal farþega i þessu fyrsta
Luxemborgarflugi Loftleiða
voru Ingólfur Jónsson sam-
gönguráðherra, Agnar Kofoed-
Hansen flugmálastjóri, Kristján
Guðlaugsson stjórnarformaður
Loftleiða, Sigurður Helgason
varaformaður, Alfreð Eliasson
forstjóri og Sigurður Magnús-
son blaðafulltrúi. Einnig voru
með I ferðinni sex islenzkir
blaðamenn, svo og 4 blaðamenn
frá Luxemborg, sem boðið hafði
verið hingað til lands i tilefni
þessara timamóta.
Við móttökuna voru fluttar
ræður og voru menn sammála
um aö smáþjóðirnar væru fylli-
lega samkeppnisfærar á sviði
flugsins.
Eftir nokkurra stunda viðdvöl
var snúið noröur á bóginn og
framundan var 8 stunda flug til
tslands með viðkomu i Ham-
borg.
ör þróun
Það var strax árið 1952 sem
forráðamenn Loftleiða fengu
augastað á Luxemborg sem við-
komustað i millilandaflugi.
Luxemborg er i hjarta Evrópu,
er vel I sveit sett hvað snertir
samgöngur við helztu þéttbýlis-
Flugfreyjurnar Sigriður
Gestsdóttir og Ingveldur Dag-
bjartsdóttir ásamt tveim flug-
freyjum frá Luxemborg á flug-
vcllinum þar við komu fyrsta
áætlunarflugsins.
Einar Aakrann hefur veitt skrif-
stofu Loftleiöa I Luxemborg for-
stööu I þá tvo áratugi, sem hún
hefur starfað.
framkvæmdastjóri hefur verið
frá upphafi Einar Ólafsson, sem
áður var stöðvarstjóri Loftleiða
i Lux.
Þá hafa Loftleiðir tekið þátt i
byggingu glæsilegs hótels, Hotel
Aerogolf, sem stendur við
Findel flugvöll og tekið var i
notkun yfir tveimur árum.
Þvi má segja að fyrsta
áætlunarflugið til Luxemborgar
fyrir tveimur áratugum hafi
lagt grundvöllinn að stórat-
vinnurekstri á Islandi og i
Luxemborg. —jr
Við komu fyrsta áætlunar-
flugs Loftleiða til Luxemborgar
fyrir 20 árum. Fremst á mynd-
inni er Ingóifur Jónsson ráð-
herra, þá Kristinn Oisen flug-
stjóri, Agnar Kofhed-Hansen,
Siguröur Magnússon, Sigurður
lleigason, Kristján Guölaugs-
son og Alfreð Eliasson.
í dag flytja flugvélar
Loftleiða jafnmarga
til Luxemborgar
á hverjum degi og
allt fyrsta árið
I LUXEMBORG
TVEIR ÁRATUGIR FRÁ
LANDNÁMI LOFTLEIÐA