Vísir - 28.06.1975, Blaðsíða 1
65. árg. — Laugardagur. 28. júnl 1975 —143. tbl.
HVAÐA BARNAHÓPUR SKYLDI ÞETTA VERA?
Allt eru þetta þjóðkunn andlit, sem eiga eitt sameiginlegt. Hvaö skyidi það vera? Sjá bls. 21.
FLUGLEIÐIR UM UMSÓKN AIR VIKING:
„TÓMT MÁIAÐ TALA UM"
,,Þaö er tómt mál að tala
um Kaupmannahafnar-
flug Air Viking á meðan
loftferðasamningarnir eru
óbreyttir", sagði Kristján
Guðlaugsson, stjórnarfor-
maður Flugleiða, þegar
Vísir spurðist fyrir um
umsögn þá er flugmála-
stjóri hafði óskað eftir frá
hálfu Flugleiða um beiðni
Air Viking um fastar áætl-
unarferðir til Kaupmanna-
hafnar.
„Mér sýnir það vera ljóst, að
forsvarsmenn Air Viking hafi
ekki kynnt sér gildandi loftferða-
samninga”, sagði Kristján enn-
fremur. „Það væri brot á þeim
samningi að samþykkja beiðni
Air Viking, en hann gerir ráð
fyrir ákveðnum takmörkunum á
sætaframboði og i þeim samningi
er einnig gert ráð fyrir að IATA-
gjöld gildi á þessari leið.
Fyrst er að fá breytingu á loft-
ferðasamningnum i samráði við
Dani áður en islenzk flugmála-
yfirvöld geta samþykkt beiðni Air
Viking”, sagði Kristján.
Umsóknin barst samgöngu-
málaráðuneytinu fyrir nokkrum
vikum, en ráðuneytið vildi leita
umsagnar flugmálastjóra, sem
svo aftur leitaði umsagnar Flug-
leiða um umsóknina. Flugmála-
stjóri hefur nú fengið þá umsögn
og haldið enn fund með sinum
mönnum eftir að hún barst hon-
um i hendur. „Við höldum annan
fund um málið á þriðjudaginn i
næstu viku, en siðan gerum við
fastlega ráð fyrir að senda ráðu-
neytinu umsögn okkar”, sagði
Agnar Kofoed-Hansen, flugmála-
stjóri, þegar Visir hafði tal af
honum i gærkvöldi.
Blaðinu tókst ekki að ná tali af
Guðna Þórðarsyni, forstjóra Air
Viking, vegna máls þessa.
—ÞJM
EIGUM VIÐ AÐ
— Grein og myndir á bls. 14—
FELA ÞA FÖTLUÐU?
15
Undirbúningur
gengur vel
— en brúin sést
ekki strax — bls. 3
Mœlt með
söltun á sjó?
— Baksíða
Senda fimmtíu
vesturfara
— bls. 3
Hemlarnir
biluðu
— lenti á lögreglu-
þjóni — Baksíða
KOMINN SKRIÐUR Á TOGARAFLOTANN
byrjað að „ísa" og „gera klárt"
i,.Það verður farið um leið og samningarnir hafa veriö samþykktir;
sagði Sverrir Erlendsson skipstjóri á Þormóði goða. En Visismenn
hittu hann niðri á togarabryggju, þar sem hann var að fylgjast með,
þegar verið var að ,,isa” skipið.
„Við vorum einna fyrstir inn þegar verkfallið skall á.Ég hef ekki
komizt I eins langt verkfall siðan 1951”, sagði Sverrir. „Ætli maður
sé ekki búinn að taka sér fri fyrir næstu tvö árin.
Nú verðég að drifa mig I að ráða nokkra menn. Sumir þeirra, sem
voru hjá mér fyrir verkfall, eru annaðhvort farnir að vinna I landi,
komnir á bát eða eru á fyllirii”.
— Hvað segja menn um samningana, Sverrir?
„Eftir þvi, sem ég hef heyrt, eru menn sæmilega ánægðir. En það
er merkilegt, að það þurfi að taka svona langan tima að semja við
togarasjómenn, þegar það tekur önnur félög mun styttri tlma,eins
og raun ber vitni”.
—HE