Vísir - 28.06.1975, Síða 3
Vlsir. Laugardagur 28. júni 1975.
3
UNDIRBÚNINGUR AÐ BORGARFJARÐARBRÚ í GÓÐUM GANGI, EN
EKKERT ÖRLAR Á BRÚNNI ENN
Verið er að færa raf-
strengi, sem liggja yfir
Borgarfjörð þar sem
brúin á að koma, og er
það liður i undirbún-
ingsframkvæmdum að
væntanlegri brúargerð.
Þær hófust snemma i
júni, og er nú verið að
koma upp vinnubúðum
og skemmu, sem á að
verða framieiðsluhús.
Eins er verið að undir-
búa gerð á bryggjum,
sem verða lagðar út i
fjörðinn.
Allar þessar framkvæmdir
eru austan megin fjarðarins á
svonefndri Seleyri, en þar er
einnig vatnsból Borgnesinga.
Þaö þrengir verulega athafna-
rými við brúargerðina, og er nú
meðal annars i athugun mögu-
leiki á að færa vatnsbólið til.
Helgi Hallgrimsson, brúa-
verkfræðingur, sagði Visi að
varla væri hægt að segja, að til
væri nákvæm áætlun um hve-
nær brúargerðinni yrði lokið, en
stefnt væri að þvl að henni gæti
orðið lokið á árinu 1978. Brúin
sjálf verður aðeins tiltölulega
stutt, en uppfyllingar að henni
fram i fjörðinn beggja vegna.
Ætlunin er að steypa brúarbit-
ana ilandi og fleyta þeim fram i
fjöröinn, þar sem þeim verður
komiö fyrir á stöplana, en stöpl-
arnir verða steyptir á staðnum
frá flotprömmum.
— Nú eru 25-30 manns við
undirbúningsvinnu á Seleyri, en
liklegt að þeim fjölgi eitthvað,
er kemur fram á sumarið.
Borgnesingar hyggja gott til
að fá brúna, sem tekur land
kaupstaðarmegin við athafna-
svæði Vegagerðarinnar og mun
tengjast þjóðveginum vestur og
norður á móts við Dvalarheimili
aldraðra i Borgarnesi. Talið er,
að staðurinn muni mjög eflast
með tilkomu brúarinnar, og
hefur jafnvel verið hreyft þeirri
hugmynd að byggð muni
myndast Seleyrarmegin við
brúna — en þar var raunar
verzlunarstaður áður fyrr. —SHH
Bifröst:
Orlof fyrír fjóra f
viku fyrír 19,500 kr.
,,Við gæium við þá hugmynd að
stórir hópar taki sig saman og
taki staðinn á leigu”, sagði Guð-
mundur Arnaidsson fram-
kvæmdastj. sumarheimilis sam-
vinnumanna að Bifröst, þar sem
nú er orlofsheimilisrekstur I
stað gististaðar áður.
Guðmundur sagði að boðið væri
upp á ákaflega góð kjör. T.d.
gætu hjón með tvö börn dvalið I
eina viku fyrir 19.500 kr. Gisting
kostaði þá 10.500 en maturinn 9000
kr. Þá geta gestir dvalið á Bifröst
aðeins I gistingu án þess að borða
I matstofunni. Einnig geta þeir
fengið sérstakt afsláttarkort, sem
gildir fyrir 7 heitar máltiðir,
hvort sem er að degi eða kvöld^j og
kostar þá maturinn 350—360 kr.
Sama verð er þá á kjötrétti og
fiskrétti, ekki er um valkosti að
ræða.
Drjúgt hefur verið um pantan-
ir, en enn eru opin 7 tlmabil fyrir
almenning seinni partinn i júli og
I ágúst.
Þetta sumarheimili samvinnu-
manna að Bifröst var i upphafi
ætlað sem orlofsstaður hreyfing-
arinnar að sögn Guðmundar. En
samtakamátturinn reyndist samt
ekki svo mikill að heilar verk-
smiðjur tækju staðinn á leigu.
„Við erum samt mjög ánægðir
með þessa frumraun og aðalat-
riðið er, að vel takist til. Fyrirsjá-
anlegt er að ekki verður mikill
gróði en þetta stendur hiklaust
undir sér”, sagði Guðmundur.
-EVl-
KAUPA LÓÐ UNDIR BÍLASTÆÐI
FYRIR 1,1 MILLJÓN KRÓNA
„Verzlunarskólinn festi kaup á
Ióð við Grundarstig 23a nú fyrir
nokkru. Ráðgerir skólinn að nota
þessa lóð undir bilastæði fyrir
nemendur og kennara skólans.
Söluverð lóðarinnar var 1100.000
þúsund kr.”, sagði Jóhannes L.L.
Helgason, lögmaður Verzlunar-
skólans I viðtali við VIsi.
Ennfremur sagði Jóhannes, að
Verzlunarskólinn hefði ekki i
hyggju að byggja meira við skól-
ann við Grundarstig. Nú væri
skólinn búinn að fá lóð i grennd
við Hamrahliðarskólann og þar
myndi skólinn byggja upp starf-
semi sina i framtiðinni.
— HE
Spilar á gítar
Orn Arason. sein stund-
að hefur gltarleik um
árabil. nú sfðast i Barce-
lona. heldur tónleika i
dag. iaugardag, i Nor-
rama luisiiui. Tónleikarn-
ir hefjast klukkan fjögur.
og er efuisskráin mjög
fjölbreytt. meðal annars
l'rumllytur hann verk efl-
ir Spánverjann Graciano
Ta rrago.
f'V“3 ~*mai |r -vHyyrf
i •» »
Hn > S ffigl t\ - - Jwg íyyt-1
t. ■.úTm
1 W.-Æl
I A H
Vesturfararnir á sviði Þjóðleikhússins.
Þótt þú langförull legðir...
ÞJÓÐLEIKHÚSH) SENDIR
FIMMTÍU VESTURFARA
r
— til að skemmta Vestur-lslendingum
„Við munum sýna Vestur-ls-
lendingum hinn sameiginiega
arf afkomenda vesturfaranna
og heimaþjóðarinnar hvað
snertir bókmenntir og tónlist og
leitast viö að segja sögu tslands
frá sjónarhóli skáldanna okk-
ar,” sagði Gunnar Eyjólfsson
leikari, sem nú er að æfa dag-
skrá, sem um 50 manna hópur
frá Þjóðleikhúsinu mun flytja á
100 ára afmælishátlð islands
byggðar I Kanada nú I sumar.
„Kaflar úr Islandsklukkunni
og Jóni Arasyni verða fluttir á-
samt svipmyndum úr þjóðleg-
ustu leikritunum okkar eins og
Skugga-Sveini, Pilti og stúlku og
Gullna hliðinu.
Flutningur þessara verka
verður á íslenzku en dagskráin
verður þó tengd saman með
ensku tali,” sagði Gunnar
Eyjólfsson.
„Þjóðleikhúskórinn verður
með I förinni. Mun hann syngja
islenzk lög eingöngu, eftir bæöi
yngri og eldri tónskáld, bæði
vinsæl þjóðlög og ættjarðarlög.
Einnig verðum við með
myndvarpa, og munum við með
hjálp hans stikla á stóru um
sögu lands og þjóðar.
Við munum sýna bæði i leik-
húsuni og hinum ýmsu stofnun-
um. —Ferðalag þetta mun taka
21 dag. A þessum tima eigum
við að halda 10 sýningar. En
aðalhátiðin verður i Gimli en
hún mun standa I þrjá daga,”
sagði Gunnar að lokum.
—HE.
Eyjólfur J. Eyfells:
89 ARA OG FÆST ENN
VIÐ PENSLA OG LITI
Eyjólfur J. Eyfells, iistmái-
ari, scm nú heldur yfirlitssýn-
ingu I vesturálmu Kjarvals-
staða, hefur helgað sig málara-
listinni s.i. 60 ár. Hann hefur
málað fjölda mynda og selt öll
verk sln jafnóðum. Verði verka
sinna hefur hann stillt mjög i hóf
til þess aö sem flestir ættu þess
kost að eignast þau, eada prýða
þau heimili fólks af öilum þjóð-
félagsstéttum um land allt. Þá
munu allmargar af myndum
hans vera viös vegar erlendis.
Eyjólfur hefur haldið fjölda
málverkasýninga innanland og i
Brook St. Gallerie i London árið
1936.
Eins og fjölda manns er kunn-
ugt, hlaut hann i vöggugjöf dul-
ræna hæfileika, sem hann lagði
rækt við er hann náði fullorðins
aldri. Hann er einlætur spititisti
og einn þeirra, er telur sig muna
glefsur úr fyrri jarðvistum sln-
um. Hann telur sig i þessari
jarðvist hafa stigið það skref til
þroska að hafa að fullu sagt
skiliö við þann leiða löst mann-
kynsins, ágirndina.
Hann er 89 ára gamall, ern,
sjón- og handstyrkur enda fæst
hann enn við að handleika
pensla og liti.
—EVI—
Eyjólfur J. Eyfells viö nokkur verka sinna, sem sýnd eru I vestur-
álmu Kjarvalsstaða.