Vísir - 30.06.1975, Blaðsíða 9
Vfsir. Mánudagur 30. júni 1975.
Elding í
Trevino
Eldingu laust niður á golf-
völlinn fOak Brook f Illinos á
laugardag — og þrir kunnir,
bandariskir golfmenn, sem
voru að keppa á vellinum,
slösuðust. Það voru þeir Lee
Trevino, Jerry Herd og
Bobby Nichols — en enginn
alvarlega. Mótinu —
Western Open Golf Champi-
onskip — var frestað.
Þrumuveður mikið gekk
yfir Illinois og voru golf-
mennirnir kunnu saman við
holu, þegar eldingu laust þar
niður. Trevino hélt á golf-
kylfu sinni og skall á völlinn.
Hann er enn á spitala, tals-
vert brenndur, en hinir tveir
sluppu betur, og fengu að
fara af spitalanum i gær.
Slys á golfvöllum i sambandi
við eldingar eru nokkuð tið
og fyrir nokkrum árum lézt
skozki landsliðsmaðurinn i
knattspyrnu, John White hjá
Tottenham, þegar hann varð
fyrir eldingu á golfvelli.
—hsim.
Belginn
sterki fannst
látinn
Belgiski lyftingamaðurinn
kunni, Serge Reding, lézt í
Manila á laugardag aðeins
33ja ára að aldri. Banamein
hans er sagt hjartaslag.
Reding var áður heims-
meistari ilyftingum og hlaut
silfurverðlaun á Olympiu-
leikum.
Belgiska utanrikisþjónust-
an tilkynnti lát Reding i gær
samkvæmt frétt frá belgiska
sendiráðinu i Manila.
Reding hafði verið saknað
frá heimili sinu I Brussel i 10
daga og belgiska lögreglan
var að undirbúa alþjóðlega
leit að honum. Serge Reding
tók þátt I heimsmeistara-
keppninni i Manila i septem-
ber siðastliðnum. —hsim.
Danir unnu
í tugþraut
Danir unnu mjög óvæntan
sigur á Bretlandi, Spáni og
Hollandi i Evrópukeppninni i
tugþraut I Kaupmannahöfn i
gær. Danska liðið, sem var i
þriðja sæti eftir fyrri daginn,
skauztupp i efsta sætið með
21.591 stig samtals. Bretland
varð I öðru sæti með 21.226
stig, Spánn I 3ja með 21.068
stig og HoIIand rak lestina
með 19.973 stig.
Eltjo Schutter, Hollandi,
var þó bezti einstaklingurinn
I keppninni með 7470 stig, en
Erling Hansen, Danmörku,
varð annar með 7415 stig.
Bretinn Kinder, sem Islend-
ingar kannast vel við, varð
fimmti með 7153 stig — en fé-
lagi hans, Nick Phipps, varð
að hætta keppni eftir vöðva-
slit i 110 m grindahlaupinu.
—hsim.
Evrópumet í
grindahlaupi
Franski grindahlauparinn
heimskunni, Guy Drut, setti
nýtt Evrópumet i 110 m
grindahlaupi með rafmagns-
timatöku I St. Etienne i
Frakklandi I gær. Þá sigraði
hann á franska meistara-
mótinu á 13.28 sekúndum.
Timi var einnig tekinn á
venjulegan hátt á Drut — það
er af tfmavörðum — og fékk
hann þá 13.1 sekúndu I hlaup-
inu. —hsim.
Keflvíkingar komu með
bœði stigin fró Eyjum
Sigruðu heimamenn 1:0 og sluppu við vítaspyrnu, sem allir sóu nema dómarinn
Keflvikingar heimsóttu Vest-
mannaeyjar á laugardaginn og
léku þar við heimamenn i 1. deild
íslandsmótsins i knattspyrnu. Sú
ferð var þeim ánægjuleg, þvi að
heim fóru þeir með bæði stigin
Þetta er hið umtalaða atvik
úr leik ÍBV og ÍBK á laugar-
daginn, Þórður Hallgrims-
son er á fullri ferð inn i vita-
teig ÍBK, en var brugðið af
einum Keflviking, sem einn-
ig ætlaði að spyrna I knött-
inn. Eyjaskeggjar vildu fá
vítaspyrnu á þetta, en dóm-
arinn dæmdi útspark frá
marki ÍBK....
ljósmynd GS..
eftir að hafa sigrað i leiknum með
einu marki gegn engu. Bjuggust
þeir ekki við þvi áður en þeir
héldu til Eyja, þvi að þeir voru
ekki með sitt sterkasta lið og áttu
eins von á þvi að fá „flengingu”
hjá Eyjaskeggjum.
Allt útlit var fyrir það fyrstu 15
minútur leiksins, en þá sóttu
Vestmannaeyingar án afláts og
sköpuðu sér mörg ágæt tækifæri.
Lá fyrsta markið i loftinu, en það
kom ekki þeim megin, sem Eyja-
menn bjuggust við — heldur hin-
um megin á vellinum.
Það var á 16. minútu leiksins,
að Steinar Jóhannsson fékk send-
ingu inn i vitateig IBV, þegar
vörn liðsins var sýnilega um allt
annað að hugsa en hann, og fékk
hann ágætan tima til að renna
boltanum i netið.
Eftir þetta mark ' dofnaði yfir
heimamönnum og Keflvikingar
lögðu allt upp úr að verjast, svo
að úrþessu varð litið annað en þóf
sem eftir var leiksins. Eitt bezta
tækifæri Vestmannaeyinga i fyrri
hálfleik átti Þórður Hallgrims-
son, er hann kom brunandi inn i
vitateig Keflvikinga með boltann
á tánum.
Þar var tekið hraustlega á móti
og endaði sprettur hans með þvi,
að einn varnarmanna IBK brá
honum. Allir bjuggust við að
Magnús „millirikjadómari” Pét-
ursson myndi dæma vitaspyrnu
— en það gerði hann ekki, heldur
útspark frá marki IBK!!
Þarna var þó um augljóst viti
að ræða, og sáu það allir — m.a.
Þorsteinn ölafsson markvörður
ÍBK, sem sagði eftir leikinn, að
þetta hafi verið augljóst viti.
Þorsteinn varði vel I þessum
leik — þar á meðal tvö góð skot
frá Erni og Sigurlási. Heldur var
rólegra hjá honum i siðari hálf-
leik, en sá hálfleikur var slakur
og gerðist fátt markvert i honum
fyrir utan að þeir Þorsteinn
markvörður og Grétar Magnús-
son IBK voru báðir bókaðir fyrir
tafir.
I hvorugu liðinu var mönnum
skipt inn á i leiknum, og var þó
full ástæða til þess i liði IBV, þar
sem vörnin var óörugg og li'till
kraftur I framlinunni. Eini mað-
urinn I IBV-liðinu, sem eitthvað
bar á, var Þórður Hallgrimsson.
I liði Keflvikinga átti Gísli
Torfason stórleik á miðjunni og
bar af öllum öðrum á vellinum.
An hans hefðu Keflvikingar
örugglega fengið þá „flengingu”
hjá Eyjamönnum, sem þeir
bjuggust við að fá, áður en þeir
yfirgáfu „landið”...
G.S.