Vísir - 03.07.1975, Page 6

Vísir - 03.07.1975, Page 6
6 Vfsir. Fimmtudagur 3. júll 1975. VÍSIR Útgefandi: Framkvæmdastjóri: Ritstjóri: Fréttastjóri: Ritstjórna riulltrú i: Auglýsingastjóri: Auglýsingar: Afgreiösla: Ritstjórn: Reykjaprent hf. Sveinn R. Eyjólfsson Jónas Kristjánsson Jón Birgir Pétursson Haukur Helgason Skúli G. Jóhannesson Hverfisgötu 44. Simar 11660 86611 Hverfisgötu 44. Slmi 86611 Síðumúla 14. Simi 86611. 7 linur Askriftargjald 700 kr. á mánuöi innanlands. i lausasölu 40 kr.eiptakiö. Blaöaprent hf. Ný rök gegn niðurgreiðslum Suðurnesjatiðindi tóku nýlega undir gagnrýni Visis á niðurgreiðslukerfið og studdu röksemd- imar um, að kerfið ruglaði verðsamræmi i land- inu og spillti verðskyni almennings. En Suður- nesjatiðindi bentu lika á atriði, sem ekki hefur verið gaumur gefinn, að islenzkir skattgreiðend- ur greiða lika niður neyzlu varnarliðsmanna. Blaðið segir frá skýrslu um sölu Osta- og smjörsölunnar, Mjólkursamsölunnar og Slátur- félags Suðurlands til varnarliðsins. í þeirri skýrslu kemur fram, að islenzkir skattborgarar greiða 27 milljónir króna á ári i niðurgreiðslur á neyzlu varnarliðsmanna á islenzkum land- búnaðaraf urðum. Þessi ábending blaðsins minnir um leið á, að is- lenzkir skattgreiðendur borga lika landbúnaðar- afurðir fyrir hina mörgu erlendu ferðamenn, sem hingað koma. Ekki er auðvelt að reikna, hve mik- il þau fjárútlát eru, en þau eru alténd snöggtum meiri en útlátin vegna vamarliðsins og skipta vafalaust mörgum tugum milljóna króna á ári hverju. Samtals nemur aukakostnaður þjóðarinnar gagnvart útlendingum vegna hins hrikalega niðurgreiðslukerfis áreiðanlega meira en 100 milljónum króna á ári og ef til vill nokkmm hundruðum milljóna. Þessi dæmi varnarliðs og erlendra ferðamanna eru enn ein röksemdin fyrir þvi, að niðurgreiðslur verði lagðar niður og fjölskyldubætur teknar upp i staðinn. Með slikri aðgerð mætti spara i einu vetfangi þær niðurgreiðslur, sem nú renna til varnarliðsins og erlendra ferðamanna. Aður hefur verið bent á, hve nauðsynlegt er að koma á verðsamræmi og efla verðskyn neytenda. Mjólkin er orðin ódýrari yfir búðarborðið en undanrennan. Með sama áframhaldi verður smjörið senn ódýrara en smjörlikið og lamba- kjötið ódýrara en fiskurinn. Þetta kerfi kostar skattgreiðendur um fjóra og hálfan til fimm milljarða á ári og stuðlar þar á ofan að neyzlu á dýmm vörum i stað ódýrra. Tjón þjóðarbúsins af þeirri tilfærslu á neyzlu er einnig unnt að meta til fjár. Áður hefur einnig verið bent á, að fjölskyldu- bætur i stað niðurgreiðslna mundu gera neytend- um kleift að velja sér neyzlu eftir aðstæðum og beina kaupum sinum að þeim vörum, sem hafa mest næringargildi i hlutfalli við verð. Fyrir fjöl- skyldubótafé geta sumar fjölskyldur haldið áfram að kaupa mjólk, smjör og lambakjöt, en aðrar fjölskyldur fært neyzluna yfir i ávexti, smjörliki og fisk og sparað sér töluvert fé um leið. Ennfremur hefur áður verið bent á, að niður- greiðslurnar þrengja framleiðslumöguleika bænda. Þær draga úr, að framleiddar séu ali- fuglaafurðir og kjöt af öðrum skepnum en kind- um. Við höfum nýlega séð, að niðurgreiðslur dilkakjöts hafa gert nautakjöt svo óseljanlegt, að orðið hefur að selja það úr landi á 20-40 krónur kilóið, þótt það kosti 330-380 krónur i fram- leiðslu. Mismuninn greiðir rikið, — til gifurlegs tjóns fyrir skattgreiðendur. Allir neita þvi, að niðurgreiðslurnar séu i sina þágu, ekki sizt talsmenn landbúnaðarirís. Þeir ættu þvi að geta verið sammála Visi um, að þetta bitbein verði látið hverfa úr sögunni, — niður- greiðslunum verði breytt i fjölskyldubætur. — JK Eitt af þvf, sem gagnrýnt var á ráhstefnunni var aO hana sátu stjárnsklpaftir fulltrúar. „Venjulegar konur” eins og þessar mexikönsku mæftur, áttu ekki aftgang aft henni. SUNDRUNG Á SYSTRAÞINGI SÞ í MtXÍKÓ Kvennaráðstefnu Sameinuðu þjóðanna i Mexikó lauk i gær. 1 fljótu bragði verður ekki annað séð, en hún valdi miklum vonbrigðum. Frá henni kemur hrað- soðin og ófullkomin áætlun um jafnréttismál kvenna næsta áratuginn og vegna þess, hve ósamlyndið var mikið, vannst ekki timi til að ræða nærri öll atriði hennar. Sameinuðu (kven) þjóðirnar Stjórnmálafréttaritarar hafa oft fjallaft um hversu tilgangs- laust, pólitískt eigir.hagsmuna- þvarg, sé að finna í umræðum á allsherjarþingi Sameinuðu þjóð- anna, þar sem karlmenn eru I al- gerum meirihluta. Þvl miður virðist sem konurnar séu með sama marki brenndar, ef þessi ráðstefna er dæmiger. Pólitiska linan þrædd í mörgum tilfellum runnu umræöur um hagsmunamál kvenna Ut I sandinn, urðu að þoka fyrir háværu rifrildi um beinlinis pólitlsk atriði. Þannig rifust kon- ur, frá 64 þróunarlöndunum og svo aðrar frá vesturlöndum, harkalega um hvort rlkisstjórnir skuli hafa leyfi til að þjóðnýta hvað sem er. Það urðu einnig miklar deilur um tillögu um að beina þvl til kvenna heimsins að hjálpa til við að afnema Zion- isma, nýlendustefnur, hernám og kynþáttamisrétti. Sjálfsagt geta allir oröið sammála um að af- nema þrennt það síöastnefnda, en þvl fyrsta er beinlínis beint gegn tsraelsrlki. mmmm Umsjón: Ófi Tynes Gengu af fundi Það þykir skjóta skökku við, þegar á ráðstefnu um almenn mannréttindi kvenna skuli borin fram tillaga um afnám rikis. tsrael varð aftur bitbein þegar fulltrúinn þaðan tók til máls. Þá gengu fjölmargar konur af fundinum i mótmælaskyni og urðu það sár vonbrigði, þeim sem höfðu vonað að konur gætu kannski lagt eitthvað til málanna, til að koma á sáttum á þvi svæði. FrU Helvi Sipila, frá Finnlandi, sem er bæði aðalritari ráðstefn- unnar, og Alþjóðlega kvennaárs- ins, hefur gagnrýnt alltof miklar pólitiskar umræður. „Sumar þessara kvenna eru svo algerlega sammála stjórn- málastefnu landa sinna að jafn- rétti kvenna var aukaatriði hjá þeim.” Hagsmunaárekstrar Það hefði verið óeðlilegt að bú- ast við að ráðstefna sem þessi gengi snurðulaust fyrir sig. Þarna eru saman komnar konur frá 133 löndum og mörg eru svo geróllk I þjóðfélagsháttum að það væri beinllnis furðulegt ef þær yrðu allar sammála um allt. En margir þeirra sem hafa fylgzt með ráðstefnunni telja að það hafi þvert á móti verið ágreiningsefnin, sem fóru langt fram Ur því, sem búast hefði mátt við. Það kom ekki ósjaldan fyrir að þeim hreinlega tókst ekki að skilja sjónarmið hver annarr- ar. Það var eins og þær kæmu frá mismunandi sólkerfum. Konur frá þróunarlöndunum eru I flestum tilfellum mun verr settar en vestrænar kynsystur þeirra og þeim fannst I sumum tilfellum að baráttumál þeirra væru hreinn hégómi. Vestrænum konum gekk hins vegar illa að þurfaaðfara lOOáraftur itimann til aö reyna að gera sér grein fyrir hvers hinar I rauninni þörfnuðust. Sama með aukaráð- stefnuna Jafnframt þessari opinberu ráðstefnu, söfnuðustfimm þúsund konur saman til óopinberrar ráð- stefnu I Mexlkó. Hún var eigin- lega haldin I nokkurs konar mót- mælaskyni við landskipaða full- trúa SÞ. ráðstefnunnar. En hún gekk þvi miður ekkert betur. Þar var jafnvel enn heitara I kolunum og ýmis uppátæki sem gerðu lltið tilað auka veg kvenna. Þær „frelsuðu” t.d. karlaklósett I fundarbyggingu sinni og máttu þeir leita annað ef náttúran kall- aði. Þá kom það fyrir að nokkrar þeirra urðu svo reiðar, að þær stóðu og örguðu hver á aðra og hafði þá sú orðið, sem sterkust hafði raddböndin. Eins og mennirnir Fréttamaður sem fylgdist með ráðstefnunum sagði: „Hvað sem hinar 2000 millj. konur heimsins eiga sameiginlegt, þá eru þær jafnsundraðar og karlmennimir I skoðunum á stjórnmálum og öðr- um mikilvægum þjóðfélagsmál- um. Samt ánægð FrU Sipil a, frá Finnlandi, sagði fréttamönnum að hún væri þrátt fyrir allt ánægð meö ráöstefnuna. Það væri að mínnsta kosti gott að það hefði heyrzt frá konum um heimsmálin og að þær hefðu sýnt rikisstjórnum sinum að þær gætu talað eins vel um þau og karl- menn.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.