Vísir - 05.07.1975, Síða 5
Visir. Laugardagur 5. júli 1975.
5
ERLEND MYNDSJÁ
Umsjón ÓT
HANN ER BEZTUR
Voff í Moskvu
Moskvubúar eru ákaflega
hundelskir og hundahald leyfilegt
i þeirra borg. Fróðir segja, að
hundum hafi fjölgað eftir þvi sem
börnum hefur fækkað vegna fjöl-
skylduáætlanagerða. Aður áttu
menn 5-6 börn, en nú ekki nema 1-
3. Hundarnir fylla i skarðið.
Þetta litla skott heitir „Sky-
Terrier” og fékk stóra gullmedal-
iu á hundasýningu i Moskvu i
júni.
Konungleg
köfun
Karl Svíakonungur sýndi
þaö i heimsókninni/ aö
kóngafólk lætur ekki vætu
á sig fá. Fyrir nokkru fór
hann í köfunarleiðangur
fyrir utan Stokkhólm og
kafaöi niður i herskipið
,/Dalarö", sem sökk þar
árið 1676. Til minningar
um dýfuna negldi hann
litla skífu á flakið með
nafni sinu og heimsóknar-
degi.
Muhammad Ali átti allskostar
viö Joe Bugner, þegar hann varði
heimsmeistaratitiiinn i Kuala
Lumpur á dögunum. Hann haföi
yfirhöndina svotil allan timann.
og þegar áskorandanuni tókst
einstaka sinnum að komast i
sókn, dansaði Ali i kringum hann
,,eins og fiðrildi” eins og hann
hefur sjálfur sagt: Hann sannaði
þvi enn einu sinni, að hann er
mestur og beztur, en það hefur
hann lika sjálfur sagt — oft.
Ólafur 72 óra 2.
Nei, norska þjóðarskútan er
alls ekki að sökkva. Þvcrt á móti
er allt útlit fyrir, að Norðmenn
verði allir orðnir oliumillar eftir
nokkur ár. Hvað snertir stýri-
manninn á þessari mynd, þá er
það Ólafur Noregskonungur, sem
er þarna á ferð. Myndin var send
júlí
frá NTB i tilefni af þ\ i. að þeirra
vinsæli þjóðarleiðtogi átti 72 ára
afmæli 2. júli siðastliðinn.
Algeng sjón i Beirut i Libanon
þessa dagana: Hægri og vinstri
menn berast þar á banaspjótum
og hundruö hafa fallið og særzt á
siðustu dögum. Hinn nýi forsætis-
ráðherra Hashid Karami og
skæruliöaforinginn Yassir Arafat
hafa nú fyrirskipað vopnahlé og
hóta hörðum refsingum þeim.
sem rjúfi það.