Vísir - 24.07.1975, Side 7

Vísir - 24.07.1975, Side 7
Vlsir. Fimmtudagur 24. júli 1975. Björn Þ. Guðmundsson er borgardómari og mikili áhugamaður um félagsstörf. Þrátt fyrir mikið annrlki hefur hann gefið sér tóm til að skrifa 2 doðranta um lög- fræði. Hvorug þessara bóka er þó ætluð sem kennslubók. Seinni bókin kom út I þessum mánuði og heitir „Formála- bókin þln”. Þar er að finna það form sem vanalegast er að hafa á flestum þeim skjöl- um er útbúa þarf á Ilfsleið- inni. Vlða er vitnað I Lögbók- ina þina sem er fyrri bók Björns og er I henni að finna útskýringar á flestum þeim lagahugtökum sem hér eru notuð. I þessari formálabók eru skjölin flokkuð niður eftir hinni venjulegu bálkun lög- fræðinnar. Þannig eru að- skilin efni sifjaréttar persónuréttar og hugverka- réttar. Höfundur segir I formála að skýringartextar séu hafð- ir eins knappir og framast var unnt. Þeim mun meira rými er fyrir formálana. Lesandinn mun þvl vænt- anlega fræðast mest um gildi bókarinnar með þvl að skoða nokkra af formálunum. Vandamálin sem leysa þarf I lifinu eru margs konar og er ætlunin með þessum sýnis- hornum að sýna hvernig á að leysa þau. IIIMIM 1 - SÍÐAN = Umsjón: Berglind Ásgeirsdóttir Æ,HVERNIGÁ ÉG NÚ AÐ FYLLA ÞETTA ÚT? Formálarnir hefjast yfirleitt á þvi, eftir að dagsetning hefur verið sett i hornið, að efni bréfsins er reifað. Reykjavík, 1. júni 1974. Efni: Jónina Jónsdóttir, Vesturgötu 200, Reykjavík, óskar faðernisviðurkenningar og meðlagsúrskurðar. Slðan myndi bréfið hefjast. Svipting lögræðis. Sigrlður Sigurðardóttir býr við það vandamál, að eig- inmaðurinn, Jón Jónsson, neytir örvandi lyfja og drekkur meira en góðu hófi gegnir. Hann fær engan veginn séð heimilinu farborða. Konan telur að eina leiðin til að hann megi öðlast nokkurn bata sé að koma honum á hæli. Jón neitar að fara sjálfviljugur. Hún neyðist til að fara fram á, að ráðin verði tekin af hon- um. skuldbindi ég mig til að sækja hann sjálfur á heimili hans og skili honum þangað aftur á kvöldin. Þá fer ég einnig fram á að drengurinn megi, ef hann samþykki sjálfur, fara með mér i útilegu einu sinni á sumri hverju enda hafi ég þá fullt samráð við móður hans um þaö hvaöa tlmi teljist heppilegastur. Ef önnur úrræði duga ekki sé ég mig tilneyddan að fara fram á að dag- sektum verðibeitt til að fullnægt verði umgengnisrétti mlnum. Meðfylgjandi er umsögn barnaverndarnefndar en að ósk minni hefur fulltrúi hennar kynnt sér heimilishagi og aðstæður minar. Virðingarfyllst Jón Jónsson TÚ Dómsmálaráðuneytisins Reykjavik. Jónsson, Vesturgötu 200, Reykjavik, en ég er sonur hans og Jóninu Jónsdóttur, en þau gengu aldrei I hjú- skap. Meö eiginkonu sinni, Sigriði Sigurðardóttur, átti faðir minn 2 börn, Jóninu og Guðmund, sem eru bæöi fjárráða eins og ég. Ég bjóst við þvi að samband yrði haft við mig vegna væntanlegra skipta á dánarbúinu, en þegar ég fór að grennslast fyrir um málið hjá skiptaráðandanum I Reykjavlk, komst ég að þvi að hinn 20. janúar 1974 fengu ekkjan og hálfsystkini mín leyfi til einkaskipta, án þess að minnzt væri á erfðarétt minn. Ég hafði þá samband við þau og höfum við haldið skiptafundi I dánarbúinu, en þar sem nú er útséð um að samkomu- lag verði með okkur um búskiptin, krefst ég þess lögum samkvæmt að skiptaréttur Reykjavikur taki búið til opinberra skipta. Virðingarfyllst Sigurjón Jónsson. Gjafaloforð Þau er öruggast að hafa skrifleg upp á sönnun til að gera, enda þótt munnleg loforð séu ekkert siður bind- andi. Ég undirritaður, Jón Jónsson, Vesturgötu 220, Reykja- vlk, lofa hér með að gefa fósturbróður mi'num, Guð- mundi Guðmundssyni, öngstræti 10, Reykjavlk, bóka- safn mitt, alls 320 bindi, sbr. viðfesta skrá. Gjöfina skuldbind ég mig til að inna af hendi fyrir 1. sept. næst- komandi. Reykjavfk, 1. júni 1974 Jón Jónsson. Vitundarvottar: Árni Árnason Jóna Jónsdóttir. Atvinnuumsóknir Það vefst fyrir mörgum að sækja um fyrstu atvinn- una og jafnvel þeir, sem hvað oftast skipta um störf vita oft ekki hvað á að taka fram. Reykjavik, 1. júni 1974. Hér með leyfi ég mér, undirrituð, að sækja um starf vélritara viö Innkaupastofnun Reykjavikur, sem aug- lýst var I dagblöðunum 28. mai siðastliðinn. Ég er fædd I Reykjavik 15. júni 1954, dóttir hjónanna Sigrlðar Sigurðardóttur og Jóns Jónssonar, vélstjóra, hér I borg. Ég lauk landsprófi frá Gagnfræðaskóla Vesturbæjar vorið 1970 og stundaði slðan eitt ár nám við Kvennaskólann I Reykjavlk og lauk þaðan prófi. Báðum prófunum lauk ég með 1. einkunn. Sumarið 1971 sótti ég námskeið I vélritunarskóla Jónu Jóns- dóttur og lauk þaöan prófi. Frá hausti 1971 hef ég starf- að sem vélritari hjá Verkfræðistofu Sigurðar Sigurðar- sonar hér i borg. Meðfylgjandi eru staðfest endurrit prófsklrteina og meömæli skólastjóra Kvennaskólans og Siguröar Sig- urössonar verkfræöings. Virðingarfyllst Jónlna Jónsdóttir Til forstjóra Innkaupastofnunar Reykjavlkur Reykjavlk. Beiðni um dánarúrskurð Menn hverfa stundum án þess að unnt sé að sanna að þeir séu látnir. Heimild er fyrir þvi að fá úrskurð um lát svo framarlega sem viss skilyrði eru uppfyllt. Hér er ein beiðni: Reykjavik, 1. júni 1974 Reykjavik 1. júni 1974 Ég undirrituð, Sigriður Sigurðardóttir, Vesturgötu 220, hér íborg, leyfi mér hér með að fara þess á leit, að eig- inmaður minn, Jón Jónsson, til heimilis á s.st. verði með dómi sviptur lögræði, bæði sjálfræði og fjárræði. Þá myndi Sigriður rekja ástæðurnar til beiðninnar. — Kröfu minni fylgir skirnar- og fæðingarvottorð mannsins mins, hjúskaparvottorð okkar hjóna, um- sögn heimilislæknis okkar og Félagsmálastofnunar Reykjavlkurborgar, svo og vottorð tveggja manna, sem nákunnugir eru heimilishögum okkar. Virðingarfyllst Sigriður Sigurðardóttir. Til sakadómaraembættisins Reykjavik Umgengnisréttur. Hjónin skildu 1966 eftir 7 ára hjónaband og fékk kon- an forræði sonar þeirra, Sigurjóns. Ekki var sérstak- lega rætt um að Jón faðir hans fengi að umgangast drenginn, en engin vandkvæði voru á þvi' fyrr en siðast- liðið haust. Sigriður móðir Sigurjóns ber þvi'við, að það spilli samskiptum Sigurjóns og stjúpföður hans, ef hann hitti sifellt föður sinn. Jón skrifar þvl: Reykjavik 1. júni 1974 Með vísan til 48. gr. 1. nr. 60/1972 fer ég undirritaður þess á leit að dómsmálaráðuneytið kveði á um rétt minn til umgengni við son minn, Sigurjón, f. 30. júni 1964 sbr. 47. gr. áðurnefndra laga. Síðan rekti Jón hvað hefði knúið hann til að skrifa. — Nú fer ég þess á leit að ákveðið verði að ég megi hafa son minn hjá mér a.m.k. einn dag i hverjum hálfum mánuði og helzt á laugardegi eða sunnudegi, enda Erfðaskrár Þær eru ákaflega mismunandi, sumar eru aðeins 1—2 setningar, I öðrum er hvert einasta stykki talið upp og hvert það á að fara. Oftast eru það einstakling- ar og/eða barnlaus sem gera erfðaskrár. Ég, Jón Jónsson, verkamaður, Vesturgötu 200 Reykja- vlk geri hér með svofellda ráðstöfun eigna minna eftir minn dag: Sigriður Sigurðardóttir, ráðskona min, til heimilis að Vesturgötu 200 hér i borg skal hljóta i arf íbúð mina i austurenda á 1. hæð i húseign nr. 200 við Vesturgötu hér i borg, ásamt tilheyrandi hlutdeild i sameign og lóðarleiguréttindum. Eignin telst 30% heildareignar- innar og er kr. 900.000.— að fasteignamati. Fósturbróðir minn, Guðmundur Guðmundsson, öng- stræti 10 i Reykjavik, skal hljóta aðrar eignir minar. Reykjavik, 1. júni 1974. Jón Jónsson (handsalað) Ari Arason, hrl. Breiðgötu 25, Reykjavik. Opinber búskipti Sigurjón i þessum formála er fæddur utan hjóna- bands en það bréytir engu um það að hann erfir for- eldra sina jafnt og skilgetnu börnin. Nú hefur hann gef- iztupp á að tjónka viðhálfsystkinin og skrifar: Reykjavfk, 1. júni 1974 Til Borgarfógetaembættisins Reykjavlk. Hinn 1. jan. 1974 andaðist hér i borg faðir minn, Jón Til sakadómaraembættisins Reykjavik. Hinn 1. nóvember 1973 hvarf Sigurjón Jónsson I fjall- gönguferð en talið er að hann hafi ætlað að ganga á Súl- ur. Umfangsmikil leit fór fram næstu daga en hún bar engan árangur. Talið er vistað hann hafi orðið úti. Sigurjón Jónsson var fæddur 1. mai 1939 (nafnnúmer 1234-5678). Hann var ókvænturog barnlaus og bjó á heimili móður sinnar að Vesturgötu 200 hér i borg. Til arfs eftir Sigurjón heitinn ganga móðir hans, Sig- riður Sigurðardóttir, Vesturgötu 200, Reykjavfk, og al- systir hans, Jónina Jónsd, öngstræti 10, Reykjavlk. Erfingjarnir hafa falið mér að annast einkaskipti á dánarbúi Sigurjóns heitins. Til þess að skipta megi fara fram á búinu er nauðsynlegt að úrskurðað verði um dauða mannsins. Virðingarfyllst Ari Arason, hrl. Beiðnb* um að halda skemmtanir Gamlir kunningjar koma oft saman, stundum er fjöldinn það mikill að sækja þarf um leyfi til að halda megi samkomur: Reykjavik, 1. júnl 1974. Stúdentar, útskrifaðir frá Menntaskólanum i Reykja- vík vorið 1964, sækja hér með um leyfi til að mega halda kvöldskemmtun i matsal Gamla Garðs þann 16. júni næstkomandi i tilefni af 10 ára stúdentsafmæli. Skemmtunin á að hefjastklukkan 8.30 og ljúka kl. 2 eft- ir miðnætti. Fjöldi stúdenta i þessum árgangi er 54. Virðingarfyllst f.h. MR-stúdenta 1964. Jón Jónsson ■

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.