Tíminn - 02.09.1966, Side 12

Tíminn - 02.09.1966, Side 12
12 ÍÞRÓTTIR TÍMINN IÞROTTIR FÖSTUDAGUR 2. september 1966 Magnús Péturs son dæmir leik- inn í Swansea Alf-Reykjavík. — ÁkveðiS hefur verið, að Magníis Péturs- son, milliríkjadómari, dæmi leik Swansea og búlgörsku bik armeistaranna í Evrópubikar- keppni bikarhafa ,sem fram á að fara í Swansea 20. septem- ber n.k. Eins og kunnugt er, þá bað Evrópusambandið KSÍ að tilnefna dómara og línu- verði á leikinn. Línuverðir með Magnúsi verða þeir Grétar Norð f jörð og Einar Hjartarson. Club 1 de Nantes 3 CASTEL-SIMON-JORT-GRA80WSKi-ÖUD2INSKI-GONOrr-D€ MICHELE-R08IN-MAGNI- EON LECHENAOEC-SANTOS-SLANCHET-GEORGIN-MULUR-SUAUDEAU-ARWBAS ent. Frönsku meistararnir frá Nanfes, er leika hér í næstu viku á móti KR-ingum. Lið Nantes nær eingöngu skip- að frönskum landsliðsmönnum \ - liðið hefur unnið Frakklandsmeisfaratitilinn s.l. tvö ár Mótherjar KR í Evrópubikar- keppninni eru frá Nantes, sem er stærsta og mikilvægasta borg Bret- agne, norðvesturhluta Frakklands, en Bretagnebúar hafa löngum sótt á fiskimið hér við strendur og því fslendingum vel kunnir. Borgin stendur við ána Loire, u. þ. b. 50 km. frá ósum hennar, en hérað- ið beggja vegna árinnar ber heiti hennar og nefnist Loire-Atlantique Borgin er mjög gömul og á sér merkilega sögu. Var hún þegar á veldistíma Rómverja fyrir Krists burð orðin þýðingarmikil miðstöð verzlunar og samgangna. íbúar Nantes eru nú um 250 þús. og eru aðalatvinnuvegir þeirra iðnað- ur (skipasmíði, málmsteypa, vefn- aður, leðuriðnaður, gleriðnaður, efnaiðnaður og niðursuða) svo og verzlun, enda er borgin vel í sveit sett og áin Loire skipgeng upp að henni. Þótt Nantes sé gömul og rót- gróin sem borg, er F.C. Nantes tiltölulega ungt að árum sem knatt spyrnufélag. Allt fram að síðari heimsstyrjöldinni vorn í borginni mörg og smá knattspyrnufélug, sem lítið létu að sér kveða utan heimahéraðs síns. En fyrir atbeina og samvinnu leiðandi manna í íprótta- og athafnarlífi borgarinn- ar, var hinn 21. apríl 1943 stofnað nýtt knattspyrnufélag, F.C. Nantes, við samruna allra gömlu félaganna og með stuðningi margra helztu atv.rekenda borg- arinnar. Fyrstu tvö árin var F.C. Nantes eingöngtl áhugamannafé- lag, en 1945 tekur það(jafnframt upp atvinnumennsku^ pg vinnur sér sæti í 2. deild íronsku kfe'þþn- innar. Síðan skiptust á skin og skúrir hjá félaginu, en smám sam- an þokaðist það upp metorðastiga frönsku knattspyrnunnar. En fyrir þremur árum hófst sigurganga fé- lagsins, sem staðið hefur óslitið síðan. Árið 1964 hafnar félagið í Spennandi boðsundskeppni Akureyringa tii Grímseyjar Akureyri skipt í 5 hverfi. Eitt hverfanna 10 km frá markinu ÁI-AkureyrL — Skemmtileg og sérstæð boðsundskeppni hefur stað ið yfir á Akureyri síðustu vikur boðsundskeppni, sem öllum Akur- eyringum er heimil þátttaka í. Vegalengdin er 100 km, þ.e. frá Akureyri til Grímseyjar, og eru 5 þátttökusveitir á Akureyri, sem miðast við tiltekin hverfi. Til að fyrirbyggja misskilning, þá skal Úrslítaleíkur 12. deild háður n.k. sunnudag Alf-Reykjavík. — Ákveðið hefur verið, að úrslitaleikurinn í 2. deild íslandsmótsins í knatt spyrnu milli Fram og Breiða- blik fari fram á Laugardats- vellinum á sunnudaginn — 4. september — og hefst hann klukkan 16. Eins og kunnugt er, sigraði Breiðablik nokkuð auðveldlega í b-riðli, en Fram átti í miklu basli í a-riðlinum. Búast má við, að leikur lið- anna á sunnudaginn verði harð ur, eins og oftast, begar um hreina úrslitaleiki er að ræða. Fram og Breiðablik hafa einu sinni áður á þessu sumri mætzt í leik, en það var í Bikarkeppni KSÍ, og sigraði Fram þá 5:1. strax tekið fram, að sundið fer ekki fram í sjónum, heldur í sund- lauginni á Akureyri, og er liður í þeirri viðleitni að fá sem flesta til að synda 200 metrana í nor- rænu sundkeppninni. Hverfin 5 keppa sín á milli um það, hvert þeirra verður fyrst að synda 100 km vegalengdina, sem er miðuð við Grímsey. Er tala íbú- ánna, sem synda 200 metrana, lögð saman og vegalengdin reiknuð út frá því. Niður við Ráðhústorgið er sérstök tafla, sem sýnir frá degi til dags, hvernig keppnin stehdur. Um þessar mundir hafa íbúar hverfisins fyrir ofan Þórunnar- stræti forustu, og bafa synt 90 km og vantar því aðeins 10 km til að ná marki. íbúar Odd- eyri og Innbæjar hafa synt 80 km. íbúar Ytri-Brekku hafa synt 76 fem — og íbúar Glerárhverfis hafa synt 70 km. Eins og af þessu má sjá, er keppnin mjög spennaudi, og verð- ur gaman að vita hvernig fer. 8. sæti í 1. deild, en í henni leika 18 félög og árið eftir hreppa þeir Frakkl.meistaratitilinn í fyrsta ,sinn. En F. C. Nantes lætur ekki þar við sitja. Félagið vinnur 1. deild að nýju með yfirburðasigri s. 1. Vor og hafa því haldið titlinum sem bezta knattspyrnufélag Frakk lands tvö ár í röð. Auk sigurs isíns-í 1. deild komst F. C. Nantes í úrslit frönsku Bikarkeppninnar og var þar almennt spáð sigri, sem þþ varð ekki í raun. F.C. Nantes tekur því nú þátt í Evrópukeppni meistaraliða í annað sinn, eins og K.R. í fyrra var fé- lagið slegið úr keppninni af Parti- san frá Belgrad (2:2 og 2:0), sem síðan tapaði fyrir Real Madrid í úrslitum með 2:1. Frakkar binda miklar vonir við F. C. Nantes í þeirri Evrópukeppni, sem nú er að hefjast. Félagið hefur borið ægishjálm yfir önnur frönsk félög undanfarin tvö ár og auk þess hefur það hlotið þá reynslu, sem nauðsynleg er til árangurs í svo harðri keppni sem Evrópukeppni. F.C. Nantes er mjög stórt fé- lag. Auk atvinnumannaliða sinna, rekur félagið tvö lið áhugamanna og þrjú lið í hverjum aldursflokki yngri knattspyrnumanna. Fram- kvæmdarstjóri félagsins er Albert Heil, sem verið hefur hjá félaginu í rúm 20 ár, fyrst sem leikmaður síðar sem þjálfari og nú sem fram- kvæmdarstjóri. Aðalþjálfari félags ins er José Aeeibas. Hann kom til félagsins fyrir þremur árum, þá lítt þekktur, en árangur hans sem þjálfari á þessum þremur árum er slíkur að hann er nú viðurkennd- ur sem einn snjallasti þjálfari Frakka. f núverandi liði F.C. Nan tes eru 7 leikmenn sem leikið hafa í A-landsliði Frakka, svo og 4 leikmenn, sem hafa leikið í landsliði áhugamanna. í landsliðs- flokk þann, sem Frakkar völdu til æfinga og keppni vegna loka- keppni síðustu heimsmeistarakepp ni, voru valdir 5 leikmenn frá F.C. Nantes. Liðið kemur með 14 leikmenn auk aðalþjálfara félag sins, læknis, nuddara og fjögurra fararstjóra. Hér á eftir fara upplýsingar um leikmenn liðsins: Daniel Eon, 27 ára. Hefur leik- ið í A — landsliði. Hann hefur verið aðalmarkvörður F.C. Nantes s. 1. fimm ár. Georges Grabowski, hægri bafc vörður, 21 árs. Hefur leikið í ladnsliði áhugamanna og þykir líklegur að komast í A-lands lið innan skamms. Gabriel De Michele, vinstri bak- vörður, 25 ára. Hefur leikið í A- landsliði. Gilbert Le Chenadec, hægri fram vörður, 28 ára. Hefur leikið í A- landsliði. Robert Budzyniski, miðframvörí ur, 26 ára. Hefur leiki x A landsliði og þótti einn traustasti leikmaður Frakka í úrslitum heims meistarakeppninnar. J. Claude Suaudeau, vinstri fram vörður, 28 ára. Hefur leflrið i landsliði áhugamanna, svo og síð- Framhald á bls. 15. Fram til Tékkó- slóvakíu Alf—Rvík. — f dag, föstud. held ur m.fl. Fram í haqdknattleik í keppnisför til Tékkóslóvakíii til að endurgjalda heimsókn tékkn- eska liðsins Karvina, sem hingað kom í boði Fram s.l. haust. Fram- arar fara fyrst til Kaupmannahafn ar, en þaðan til Prag og síðan til Karviná. Ekki er vitað hverjir verða mótherjar Fram í leikjun- um í Tékkóslóvakíu, nema í hrað- keppni, sem liðið tekur þátt i, en auk Fram verða með í þeirri kcppni pólska landsliðið, tékkn- eska unglingaliðið og austur-þýzkt félagslið. Aðalfararstjóri er Hannes Þ. Sig urðsson, en aðrar í fararstjórn eru Birgir Lúðvíksson, form. hand knattleiksdeildar Fram, Hilmar Ólafsson og Sveinn Ragnarsson, 4 !

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.