Vísir - 30.07.1975, Qupperneq 6
6
Vísir. Miðvikudagur 30. júli 1975.
vísir
Otgefandi:
Framkvæmdastjóri:
Ititstjórar:
Fréttastjóri:
y Eitstjórnarfulltrúi:
Auglýsingastjóri:
Auglýsingar:
Afgreiðsla:
Ritst jórn:
Reykjaprent hf.
Sveinn R. Eyjólfsson
Jónas Kristjánsson
l>orsteinn Pálsson
Jón Birgir Pétursson
Haukur Helgason
Skúli G. Jóhannesson
Hverfisgötu 44. Simar 11660 86611
Hverfisgötu 44. Simi 86611
Siðumúla 14. Simi 86611. 7 linur
Askriftargjald 700 kr. á mánuöi innanlands.
t lausasölu 40 kr.eiptakiö. Blaöaprent hf.
Að lækna fyrirfram
Fyrir sjö árum var reiknað út á vegum borgar-
læknisembættisins, að hvert 18 ára ungmenni
hefði kostað þjóðfélagið nálægt þremur milljón-
um króna að meðaltali og var þá aðallega reiknað
með skólagöngukostnaði. Miðað við verðbólgu
siðustu ára er þessi upphæð varla undir tiu millj-
ónum króna á verðlagi ársins 1975.
Þessi útreikningur var á sinum tima gerður til
að sýna fram á, hve miklu það skiptir þjóðfélag-
ið, að sem flestir séu við góða heilsu og geti lagt
sitt af mörkum við að efla þjóðarhag. Þegar þjóð-
félagið leggur miklar fjárhæðir i heilbrigðismál,
er það i rauninni að vernda mikla fjárfestingu i
uppvexti og menntun einstaklinganna.
Þessa verða menn að minnast, þegar þeim vex
i augum hinn mikli kostnaður við sjúkrahús og
læknaþjónustu hér á landi. Siðasta hálfa annan
áratuginn hefur óhemju miklu fé verið varið til
bygginga og útbúnaðar sjúkrahúsa og til að bæta
aðstöðu heilbrigðisstétta. Þessi þróun mun vafa-
laust halda áfram á næstu árum, eftir þvi sem
fjárhagsgeta þjóðarinnar leyfir. Lita má á allt
þetta sem hagkvæma fjárfestingu.
En hinn mikli kostnaður við lagfæringar á
heilsu manna beinir athyglinni að þvi, hve nauð-
synlegt er að gæta heilsu manna, áður en hún bil-
ar, og verjast slysum á fólki, áður en þau gerast.
1 samanburði við dýra og viðamikla viðgerðar-
þjónustu heilbrigðisstéttanna er sáralitlu fé varið
til að kenna fólki að lifa rétt, temja sér hollar
lifsvenjur.
Sáralitið er gert til að benda fólki á að forðast
margvislegt óæti, sem selt er sem matur.
Sérstaklega er hættulegt, hve börn og unglingar
sækja mikið i ýmsan verksmiðjumat, sem er lltt
uppbyggilegur og jafnvel óhollur, en er gerður
bragðgóður með þvi að blanda i hann ýmsum
efnum.
Dálitið meira er gert til að hvetja fólk til úti-
vistar og likamlegrar áreynslu. Vitað er, að
margir hættulégustu sjúkdómar nútimans stafa
beint eða óbeint af kyrrsetum og sællifi. Starfið á
þessu sviði mætti samt vera miklu meira, eins og
sést hefur á mælingum á þreki íslendinga. Þær
benda til þess, að þrek Islendinga sé minna en
nágrannaþjóðanna.
Nokkru meira er gert að þvi að mæla heilsufar
fólks. Fyrst og fremst er það gert til að leita að
krabbameini og hjartasjúkdómum á frumstigi,
en i leiðinni koma fram ýmis önnur heilsufars-
vandamál, sem þá er tiltölulega auðvelt að lag-
færa.
Fyrst og fremst eru það félög áhugamanna,
sem hafa verið i fararbroddi i fyrirbyggjandi að-
gerðum i heilsugæzlu. Hið opinbera og mikill
meirihluti heilbrigðisstéttanna tekur litinn þátt i
þessu starfi. Hér má nefna iþróttafélögin, heilsu-
verndarfélögin, krabbameinsfélögin, náttúru-
lækningafélögin og berklavarnafélögin, svo að
dæmi séu nefnd. Frá heilsufræðilegu sjónarmiði
er starf þessara félaga að sumu leyti árangurs-
rikara en starf hinnar opinberu heilsugæzlu og
sjúkrahúsanna.
,,öll læknisfræðin stefnir og hlýtur að stefna i
auknum mæli inn á fyrirbyggjandi lækningar,
þ.e. að koma i veg fýrir sjúkdóminn eða stöðva
hann á frumstigi,” sagði landlæknir fyrir nokkr-
um árum.
— JK
Umsjón: GP
Fjórum mánuðum
eftir að hann tók við af
bróður sinum myrtum,
hefur Khalid konungur
fest sig vel i sessi ein-
valds Saudi Arabiu. En
frændi hans, Fahd prins,
er þó i raun og sann
valdamaðurinn að baki
hásætinu.
Þaö hefur þannig sannazt i
reynd, sem spáð var, þegar hinn
62ára gamli Khalid var valinn af
konungsfjölskyldunni til aö
setjast i hásætið eftir daga
Faisals konungs, sem skotinn var
til bana 25. marz af frænda sln-
um.
Khalid, hinn nýi konungur Saudi Arabiu, hefur þá fjöra mánuöi, sem
hann hefur setiö i hásætinu, treyst sig i sessi.
Eftir 4 mónuði á
valdastóli í
Saudi Arabíu
Hinn 53 ára gamli Fahd prins
þykir sterkari og ábúöarmeiri
persónuleiki. Hann gegnir em-
bætti fyrsta aðstoðarforsætisráð-
herra og innanrikisráðherra. —
Konungurinn er sjálfur forsætis-
ráðherra sinnar stjórnar.
Khalid konungur er maður
hjartveikur og hefur aldrei verið
fyrir það gefinn að berast mikið
á. Hann gegnir skyldum hásætis-
ins af kyrrlátri virðingu.
Fahd prins hefur á hinn bóginn
veriö á einiægum þeytingi. Hann
hefurheimsótt íran, frak, Kuwait
og Frakkland á þessum fjórum
mánuðum, sem liðnir eru frá frá-
falli Faisals. — En Khalid
konungur hefur farið i aðeins eina
opinbera heimsókn til annars
rikis, og það var til Egyptalands.
Egyptaland hefur lika alveg
sérstaka pólitiska þýðingu meðal
Arabalandanna, vegna fólks-
fjölda sins, legu landsins og þvi
óhjákvæmilega hlutverki, sem
Egyptar hljóta að gegna i átökum
við tsraelsmenn.
Stefna þessara tveggja landa I
innbyrðis samskiptum var mótuð
af þeim Faisal konungi og Sadat
forseta. Saudi Arabia, þetta fá-
menna eyðimerkurriki, sem býr
yfir meiri auð heldur en höfundar
Þúsund og einnar nætur létu sig
nokkurn tima dreyma um, er
ómissandi bandamaður Egypta-
lands. Hið siðara býr viö mesta
basl eftir útlátasamar styrjaldir.
Reyndar er Egyptaland frekar
snautt af náttúruauðlindum, en
hefur þó marga munna að metta,
þannig að striðsrekstri var tæpast
bætandi á efnahagsástandið, eins
og það var.
En Khalid konungi og Fahd
prins er mikið i mun að skapa sér
álit út á við, sem innan lands, og
þvi hafa þeir lagt sig fram við að
bæta sambúð rikis sins við fleiri
riki en Egyptaland eitt. Þeir hafa
þar á meðal snúið sér til landa,
sem forveri þeirra F'aisal
konungur, tortryggði. Óbeit
Faisals á þessum þjóðum átti sér
rætur að miklu leyti I trúarbrögð-
um, en Faisal heitinn var strang-
trúaður á kenningar Múhammeðs
spámanns.
En konungurinn gamli naut
þess álits á alþjóðavettvangi, sem
allur auður Saudi Arabiu getur
ekki fært eftirmönnum hans.
Eftir hans dag hefur Saudi
Arabia leitast við það að auka
samskipti sin við nágrannana.
An efa hefði sú orðið þróunin, þótt
Faisal hefði setið áfram við
stjórnvölinn, en henni hefur flýtt
eftir fráfall hans.
Nú eru ofarlega á baugi hug-
myndir um sameiginlegar
öryggisvarnir landanna við
Persaflóa og uppi ráðagerðir um
fund utanrikisráðherra sjö eða
átta rikja þar. A ráðstefnu utan-
rikisráðherra. Múhameðstrúar-
rikja, sem haldin var á dögunum i
Jeddah, notuðu þeir tækifærið og
ákváðu fundardag utanrikisráð-
herva landanna við Persaflóa.
Samband þriggja stærstu rikj-
anna, Irans, Iraks og Saudi
Arabiu hefur orðið innilegra með
hverri vikunni, sem liðið hefur.
Þykjast menn þekkja þar hand-
bragð Fahds prins, en Iran og
Irak höfðu þó bætt vinskapinn sln
á milli, áður en Faisal var myrt-
ur. — Munaði þar mestu um,
þegar rikin sættust á að loka
landamærum sinum fyrir ferðum
Kúrdanna.
Eitt af embættisverkum hinna
nýju valdhafa Saudi Arabíu var
að gera samkomulag við Irak um
skiptingu hlutlausa svæðisins,
sem skildi löndin að. Fahd prins
og Ahmed Zaki Yamani, ollu-
málaráðherra Saudi Arablu, hafa
einnig annazt milligöngu við að
jafna ágreining Iraks og Sýrlands
vegna nýtingar vatnsins úr ánni
Efrat. Þessi tvö riki hafa ekki
setið á sárshöfði, slöan Sýr-
lendingar gerðu Tabqastifluna,
sem traksstjórn þykir hafa orðið
til þess að draga mjög úr vatns-
magnínu i Efratfljóti.
Fahd prins hefur mjög lagt
áherzlu á það I þeim blaðaviðtöl-
um, sem birzt hafa, eftir að hann
kom til embættis, að Saudi Arabia
vilji eiga samskipti við sem allra
flest riki. — Fréttaskýrendur
hafa lagt út af þvi, að hugsanlega
eigi eftir að þiðna kalinn, sem
verið hefur milli Saudi Arabiu og
Moskvustjórnar.
Innanlands örlar ekki enn á
neinum stórvægilegum breyting-
um við tilkomu arftaka Faisals.
Enginn er þó I neinum vafa um,
að Khalid konungur og Fahd
prins njóta óskoraðs trausts
heimamanna. Tryggð manna við
konungsfjölskylduna er söm og á
dögum Faisals.
Myndir af Khalid konungi
hanga á veggjum opinberra
stofnana við hlið mynda af Faisal
konungi, bróður hans, og
Abdulaziz konungi, föður þeirra
beggja og stofnanda Saudi
Arabiurikis nýrri tima.
Saud konungur, sem tók við af
föður sinum Abdulaziz 1953, en
var hrakinn frá völdum 11 árum
siðar af konungsfjölskyldunni,
sem kaus heldur Faisal, er opin-
berlega gleymdur.
Þótt Khalid konungur láti ekki
mikið bera á sér i sviðsljósi
heimsmálanna, verður ekki það
sama um hann sagt heima fyrir.
Þar gætir þess i mörgu, að vel er
séð fyrir þvi, að völdin haldist
innan konungsfjölskyldunnar og
fari lltið út fyrir hana. Saudættin
situr I öllum áhrifamestu em-
bættunum, og ber þar mest á
Fahd prins og sex albræðrum
hans. — Nýlega voru svo fjórir
frændur til viðbótar skipaðir ráð-
herrar I stjórn Khalids, en allir þó
án ráðuneyta.
Kunnastur þessara fjögurra
slðastnefndu er Adham sjeik og
ráðgjafi konungs. Hann er bróðir
ekkju Faisals, sem fædd er og
ættuð I Tyrklandi. Adham var
mjög handgenginn Faisal og ráö-
gjafi hans I efnahagsmálum.