Tíminn - 13.09.1966, Qupperneq 13

Tíminn - 13.09.1966, Qupperneq 13
ÞRIÐJUDAGUR 13. september 1966 ÍÞRÓTTlk TIMINN ÍÞRÓTTIR 13 Framkv.stjórn íþrótta- sambands íslands, ásamt framkvæmdastjóra. Stjórn in var endurkjörin á íþrótta þingi á ísafirði 3.— 4. sept. sl. og hefur skipt með sér verkum, en Gísli Halldórs son var kosinn forseti á íþr. þinginu. Á myndinni eru talið frá vinstri, Hermann Guðmundss. framkvstj., Gunnlaugur J. Briem, gjald keri, Sveinn Björnsson rit ari, Gísli Halldórsson, Guð jón Einarsson, varaforseti og Þorvarður Árnason fund arritari. (SlANDSMEISTARATimLINN BLASIR VID KEFLVlKINGUM Clayhélt titlnum! Cassius Clay hélt heimsmeistara titli sínum í þungavigt, þegar hann sigraði Þjóðverjann Karl Mildenberger í 12. lotu í Frank furt á laugardag. Evrópumeistar- inn barðist hetjulega gegn manni, sem var greinilega miklu meiri, hnefaleikari og þunghöggvari. Mestan hluta hinna 12. lota hlaut hann meiri barsmíð en nokkur annar hnefaleikamaður, sem hef- ur skorað á Clay, — en hann kom einnig fleiri höggum á meistar- ann. Það lék ekki vafi á því, að hann var sigraður af meistara, sem var honum miklu fremri, þrátt fyrir þá staðreynd, að þetta er í fyrsta sinn, sem Clay verður að leggja að sér í keppni sinni í Evrópu. Enski dómarinn, Teddy Waltham stöðvaði leikinn í 12. lotu eftir að Mildenberger hafði legið í hringn um í fimmtu, áttundu og tíundu lotu. Vinstra auga hans var sokk- ið og bloðhlaupið og Mildenberg að þrotum kominn. Öðru sinni blasir nú fslands meistaratitillinn í knattspyrnu við Keflvíkingum. Þeir sigruðu KR á sunnudaginn á Laugardalsvellin- um með 2-0 og hafa því hlotið 14 stig úr leikjum sínum — og að eins Valur getur hlotið sömu stiga tölu. Valsmenn leika við Þrót.t annað kvöld og með sigri — sem ætti að vera öruggur gegn fall- liðinu — standa þeir jafnfæt- is Keflvíkingum og aukaleik- ur verður að skera úr, hvort liðið hlýtur sæmdarheitið „Bezta knatt spyrnufélag íslands 1966.“ En Keflvíkingar verða að leika betur, en á sunnudaginn til að hljóta þann titil — ef til úrslita Ieiks kemur. Leikur þeirra víð KR var vægast sagt lélegur, en þeir höfðu þó vilja til að sigra, hvað KR-inga skorti algerlega. KR-liðið, sem lék svo vel gagn Nantes á dögunum, var óþekkjan legt frá þeim leik, þótt sömu leik menn klæddust KR-búningunura. Enginn vilji til neins — og þótt möguleikar liðsins í mótinu væru Tottenham skoraði tví- vegis á lokamínútunum! Aðalleikurinn á laugardaginn í ensku deildarkeppninni var milli Trottenham og Manch. Utd. og varð að loka hliðum leikvangs ins löngu fyrir leik. Manch. Utd. lék betur og Law skoraði í fyrri Fram vann Eins og kunnugt er af iréttum er meistaraflokkur Fram í hand- knattleik á keppnisferðalagi um Tékkoslóvakíu. Fyrsti leikur íé- lagsins var 6. sept. gegn Dukla Vyskov, sem leikur í 2. deild í Tékkóslóvakíu. Fram sigraði í leiknum með 25-24 eftir spenn- andi leik„ en liðið var þó langt frá sínu bezta. Ekki hafa nýrri fréttir borizt af Fram. N. Steinhauer keppir á Laugardalsvelli í kvöld í kvöld, 13. sept. efnir Frjáls íþróttasamband íslands til keppni á Laugardalsvellinum. Meðal þátt takenda verður hinn heimsfrægi, bandaríski kúluvarpari Neal Stein hauer, sem undanfarna daga hefur leiðbeint íslenzkum frájlsiþrótta mönnum í kúluvarpi og kringlu- kasti. Á mótinu í kvöld vérður keppt i eftirtöldum íþróttagreinum: 100 m hlaupi karla 100 m hlaupi sveina 100 m hlaupi drengja 100 m hlaupi kvenna 400 m hlaupi A flokkur (fyrir keppendur sem hafa náS betri árangri en 55 sek. í þessari grein l 400 m hlaup B flokkur (55 sek. og þar yfir). 1000 m hlaup 4x100 m boðhlaup Kúluvarp, kringlukast Langstökk, hástökk. Keppnin hefst kl. 18.30. hálfleik. Þannig stóð þar til þrjár mínútur voru eftir, en þa'ð nægði Tottenham. Gilzean og Greaves skoruðu og Tottenham hlaut því heldur óverðskuldað bæði stigin. Annars var merkilegt í 1. deild, Framhald á bls. 12. sama og engir — afsakar það þó ekki frammistöðuna. Á sjötta þúsund áhorfendur mættu á leikinn og ramminn fyr ir hann var því óvenjugóður, en hvílík vonbrigði. í hinar 90 mín útur, var varla um gott skot á mark að ræða, — og þótt Keflvík- ingar skoruðu tvívegis í fyrri hálf leik, var það ekki eftir fallegan samleik eða góð skot, en hvort tveggja „pot-mörk“, sem létt hefði átt að vera að koma í veg fyrir. En sigur Keflvíkinga var réttlátur, og þeir voru skárri að- ilinn í leiknum. Jón Jóhannsson og Einar Magn ússon skoruðu mörk Keflvíkinga en beztu menn liðsins voru lands liðsmennirnir Magnús Torfason og Sigurður Albertsson, og Sigurður var áberandi traustasti leikmaður sem við eigum í stöðu miðvarðar í dag. í framlínunni bar mest á Karli Hermannssyni. Hjá KR var Óskar Sigurðsson bezti maður- inn, einkum eftir að hann lék sem miðvörður í stað Ársæls Kjartanssonar, sem meiddist í leiknum. Aðrir leikmenn liðsins léku langt undir styrkleika. FH SLEPPUR VIÐ FYRSTU UMFERÐINA 21 lið taka þátt í Evrópu bikarkeppni og er FH á með al þeirra. Á handknattleiks ráðstefnunni í Kaupmanna- höfn um síðustu helgi voru 10 liðanna dregin saman í fyrstu umferð keppninnar, en hin liðin koma síðar i hana. FH-ingar voru heppn ir, því að þeir sleppa við að leika í fyrstu umferð- inni, en koma inn í keppni 16 liða, sem verða eftir. Það sama skeði í keppninni síð ast, þá sluppu FH-ingar við fyrstu umferð, en mætfu norsku meisturunum frá Fredinsborg í annarri um ferð. Íþróttasíðan hefur þetta eftir Valgeiri Ársælssyni cr var fulltrúi fslands á ráð- stefnunni £ _ Kaupmanna- höfn ásamt Ásbimi Sigur- jónssyni, formanni HSÍ. Valgeir sagði, að engin ákvörðun hefði verið tekin á ráðstefnunni varðandi þátt töku Túnis í HM. Fram- kvæmdaaðilar lokakeppn innar, Svíar, vissu ekki betur en Túnir urðu með a.m.k. hefðu Túnismenn ekki sent afboð ennþá. — alf. JÓHANN ÖRN SIGRAÐI Á hraðskármóti Taflfélags R- víkur, sem fram fór nýlega, voru tefldar 9 umferðir eftir Monrad kerfi, hver umferð tvöföld. Sigur vegari varð Jóljann Öm Sigur- jónsson með 14 vinninga. f 2. og 3. sæti urðu þeir Guðmundur Ágústsson og Björn Þorsteinsson með 1314 vinning hvor. Pétur Eiríksson og Ólafur Kristjáns- son skipuðu 4. og 5. sæti með 11!4 vinning /.vor. Þátttakendur voru þrjátíu tals- ins. Frá og með 15. sept. n.k., verður Framhald á bls. 12. Jón Jóhannsson skorar fyrra mark Keflvíkinga. Tímamynd Bj. Bj.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.