Vísir - 22.08.1975, Side 1
Knapp EKKI
að fara utan
með
landsliðinu?
— sjá íþróttir í opnu
„Kúgun"
-segir Magnús
„Kvittun"
• segir Pétur
— baksíða
•
Ætlar Barzel
að miðla
málum?
— baksíða
Minkar
á vakki
í Keflavík
— baksíða
•
Hafa Kópa-
vogsbúar
sœtt sig við
leiðakerfið?
— bls. 2-3
VIÐSKIPTAKJÖRIN
V/EDCM A CMIJ Komumst enn ekki
¥ tHllllM S1111 úr öldudalnum
Viðskiptakjörin hafa enn versn-
að. Vöruskiptajöfnuður hefur
verið mjög óhagstæður, en þó hef-
ur innflutningur minnkað hátt i
það, sem vænzt var. Útflutn-
ingurinn hefur hins vegar ekki
orðið eins mikill og vonir stóðu til,
og veldur miklu um það, að verð-
lag hefur ekki hækkað, heldur
frekar lækkað.
Verðið á áli riður baggamuninn
um, að útflutningsverð hefur
lækkað. Það hefur fallið talsvert
siðan i vetur. Verð á öðrum út-
flutningsvörum hefur sveiflazt og
er nokkurn veginn óbreytt, þegar
. á heildina er litið.
Þessar upplýsingar fékk blaðiö
hjá Ólafi Daviðssyni, hag-
fræðingi, Þjóðhagsstofnun. Inn-
flutningsverðlagið hefur haldið
áfram að hækka siðan i vetur, en
þó ekki meira en við var búizt,
þegar á allt er litið.
Viðskiptakjörin, hlutfallið milli
verðs á innfluttum og útfluttum
vörum, hafa orðið okkur i óhag
áfram á öðrum ársfjórðungi. Töl-
ur um júli og ágúst liggja enn ekki
fyrir, enda örðugt að henda reiður
á breytingum um skamman tima.
Viðskiptakjörin höfðu versnað
talsvert siðastliðinn vetur, eins og
fólk hefur fengið að þreifa á i
samdrætti á ýmsum sviðum.
— HH
VÖRUSÝNINGIN HEFST í DAG:
Svefngalsi í monnum
— sem voru að Ijúka frúgangi kaupstefnunnar í morgun
Þessir kappar voru að leggja siðustu hönd á bás i Laugardaishöllinni I morgun. Alit átti að vera tilbúið
klukkan átta, og segja má.aðþaöhafi tekizt. Aö visu vareftiraösópa gólfiö hjá þessum, en kústhausinn
cr skammt undan, ef skaftiö hefur fundizt. — Ljósm. JIM.
Það var afslappað
andrúmsloft i Laugar-
dalshöllinni, þegar
menn voru að leggja
siðustu hönd á sýning-
arbásana i morgun um
átta leytið.
Visismenn höfðu komið meö
það i huga að lýsa bæði I mynd
og máli taugastriði þeirra, sem
væru með allt á siöustu stundu,
en urðu fyrir hálfgerðum
vonbrigðum meö öll rólegheitin.
Sem dæmi um þetta var for-
stjóri Iðntækni, sem lagöist til
svefns I sýningarbásnum sin-
um, þvi hann var svo þreyttur
eftir erfiði næturinnar, enda
básinn hans með þeim stærstu á
vörusýningunni.
Reyndar var einn sýningar-
básinn alveg tómur, þvi
vörurnar, sem sýna átti, höfðu
ekki borizt til landsins, en þessu
sem öðru var tekiö með miklu
jafnaðargeði.
Flestir þeirra, sem voru við
vinnuí Laugardalshöllinni I
morgun, voru búnir að vaka alla
nóttina og var kominn svefn-
galsi i menn. Aðrir, sem þegar
voru búnir aö ganga frá eigin
sýningarbás, ráfuöu um
„Höllina” til aö skoða aöra
sýningarbása og bera saman
við eigin bás, þvi samkeppnin er
hörð og mikið I húf.i, að vöru-
sýning sem þessi, sem er bæði
fjárfrek og góö auglýsing fyrir
viökomandi fyrirtæki, takist
vel.
Gisli B. Björnsson,
auglýsingateiknari og fyrrver-
andi skólastjóri Handiða- og
Myndlistaskólans, er verkstjóri
vörusýningarinnar. Hann
kvaöst hafa starfaö við átta
vörusýningar og veriö verk-
stjóri þriggja þeirra. Sagði hann
að fólkið heföi aldrei haft eins
litinn undirbúningstlma viö að
koma vörusýningunni upp og
núna. Þó gengi allt betur og
væri skipulagðara en áöur.
Smiðirnir hefðu meira að segja
fengið að sofa i þrjá til fjóra
tima á sólarhring þessa fimm
daga, sem unnið hefði verið i
Höllinni, en slikt hefði heyrt til
undantekninga áður, sagði
GIsli.
„Stemmninginn er mjög góð.
hér eru heilar fjölskyldur mætt-
ar til leiks og gaman er að
fylgjast með, hve samhentar
þær eru.
Allir hafa unnið hér mjög gott
starf, einkum hafa raf-
virkjarnir gert hér stórvirki.”
Sýningin hefst klukkan fjögur
I dag. Þá veröur ýmsu fyrirfólki
borgarinnar boðið aö skoða
sýninguna og kampavin veröur
á borðum. Klukkan sex verður
svo sýningin opnuð fyrir al-
menning og mun hún standa til
7. september. -HE.
Verð á grásleppuhrognum fallandi