Vísir - 22.08.1975, Side 8
'
íí-v*.'- '• ■ ■..■i ■
Mm
Landsliðsþjálfarinn Tony Knapp
Fœr Knapp
ekki að
fara utan?
„Það er á hreinu, að Tony Knapp
er ráðinn hingað sem þjálfari KR,”
sagði einn af forustumönnum KR
eftir aö við höfðum talað,við Bjarna
Felixson formann knattspyrnu-
deildar og hann varizt allra frétta,
er við spurðum hann að þvl I
morgun, hvort rétt væri, að KR hafi
neitað að lána landsliðinu Tony
Knapp I ferðina til Frakklands,
Belgiu og Rússlands I byrjun næsta
mánaðar.
Ileyrzt hefur að KR-ingar vilji
ckki að hann fari, þar sem staða
félagsins sé allt annað en glæsileg i
deildinni þessa stundina, og að
Knapp geti ekki hlaupið á brott, ef
KR þurfi að standa I aukaleik og
öðru vegna fallbaráttu.
„Á þessu stigi vil ég ekkert um
þetta segja,” sagði Bjarni —
„Þetta er mál sem KSt verður að
leysa, hvernig sem það verður
gert”.
Samkvæmt upplýsingum, sem
við fengum frá KSÍ, cn þar var
þetta mál rætt fram og aftur á
fundi I gærkvöldi, er þctta erfitt
mál að eiga við, og þarf að kanna
ýmsar leiðir, áður en einhver
ákvörðun verður tekin.
Á fundinum kom það skýrt fram,
að KR á allan rétt á Kapp, þegar
um landsliöið er annars vegar að
ræða, og að KSÍ verði að beygja sig
undir óskir KR-inga varðandi
landsliðsþjáifarann. -klp-
Þróttur eða
Breiðablik upp
í 1. deild?
Fyrstu leikirnir i úrslitakeppn-
inni i 3. deild islandsmótsins i
knattspyrnu fara fram i kvöld og
þá fer einnig fram „úrslitaleikur-
inn” i 2. deild.
Leikirnir i 3. deild i kvöld eru:
Fylkir — Stjarnan á Kaplakrika-
velli, Einherji — KA á Arbæjar-
velli og Þór — iBi á Valsvellinum.
Hefjast allir leikirnir kl. 19,00.
i 2. deild verða tveir leikir i
kvöld. Ármann inætir liði Selfoss á
Melavellinum kl. 20,00 og Breiða-
blik Þrótti á Kópavogsvellinum kl.
19,30. Það má segja að sé eins kon-
ar úrslitaleikur deildarinnar, þvi
ckki inunar nema einu stigi á liðun-
um og aðeins ein umferð eftir fyrir
utan leikinn i kvöld.
Þetta ætti að geta orðið hörku
leikur — eins og reyndar allir
lcikirnir, sem fram fara i kvöld —
spurningin er bara hvern á að
velja...
— klp —
b■p—pq
A
Visir. Föstudagur 22. ágúst 1975
Þetta hefur verið
stóri draumurinn"
— segir Karl Þórðarson, sem nú loks hefur verið valinn í landsliðshópinn
„Ég neita þvi ekki, að ég er
mjög ánægður með að hafa verið
valinn i landsliðshópinn,” sagði
Karl Þórðarson — tvimælalaust
einn vinsælasti knattspyrnumað-
ur landsins nú s.l. tvö sumur — er
við spjölluðum við hann smá-
stund i gær i tilcfni þess, að hann
hefur nú loks verið valinn i þehn-
an hóp beztu knattspyrnumanna
landsins.
„Það hefur verið draumurinn
að fá að klæðast landsliðspeys-
unni, og þó að það sé ekki öruggt,
að ég fái að fara i hana I þessari
ferð, er það þó áfangi að vera
kominn i hópinn.
Ég hef einu sinni komið i lands-
liðspeysuna áður, það var i lands-
leik við Luxemborg fyrir nokkr-
um árum, þegar ég var valinn I
unglingalandslið.Það var nú samt
heldur stutt, sem ég fékk að vera i
henni — spilaði aðeins annan
hálfleikinn — og siðan ekki sög-
una meir.”
Faðir Karls — Þórður Jónsson
— sem flestir knattspyrnuunn-
endur sáu leika eða hafa heyrt
talað um, klæddist f jórtán sinnum
landsliðspeysunni. „Ég man ekki
eftir honum i henni,” sagði Karl,
er við spurðum hann að þvi, hvort
hann myndi eftir föður sinum I
þessari peysu, sem allir vona, að
Karl fái nú að fara almennilega I.
„Ég var það ungur, þegar það
var, að ég hef sjálfsagt ekki feng-
ið að fara suður til Reykjavikur
til að sjá landsliðið leika.”
Karl er sá eini af þeim 22, sem
valdir hafa verið i leikina við
Belgiu, Frakkland og Rússland,
sem ekki hefur áður komið nálægt
landsliðinu á einn eða annan- hátt
- annaðhvort verið i hópnum i
sumar eða fyrra — eða leikið áður
i landsliðinu.
Hópurinn er þannig skipaður:
Árni Stefánsson
Þorsteinn Olafsson
Diðrik Ólafsson
Gisii Torfason
Björn Lárusson
Marteinn Geirsson
Jón Pétursson
Jón Gunnlaugsson
Ölafur Sigurvinsson
Janus Guðlaugsson
Ottó Guðmundsson
Jón Alfreðsson
Arni Sveinsson
Ölafur Júliusson
Karl Hermannsson
Grétar Magnússon
Hörður Hilmarsson
Elmar Geirsson
Matthias Hallgrimsson
Teitur Þórðarson
Karl Þórðarson
örn Óskarsson
f
/Áfram íslond'
ó landsleikjunum í Frakklandi og Belgíu
Mjög mikill áhugi mun vera
meðal knattspyrnuunnenda fyrir
ferðinni með íslenzka landsliðinu
til Frakklands og Belgiu i byrjun
næsta mánaðar. Landsliðið mun
Akurnesingurinn Karl Þórðarson hefur átt hvern stórleikinn á fætur
öðrum að undanförnu og landsliðsncfndinni þvi ekki lengur stætt á þvi
að halda honum fyrir utan landsliðshópinn. Ljósmynd Bj.Bj........
Eitt
heimsmet
ó dag!
t gærkvöldi bætti Bandarikja-
maðurinn Bruce Furniss sitt eigið
heimsmet I 200 metra skriðsundi
á miklu sundmóti, sem haldið er i
Kansas City þessa dagana.
Hann synti á 1:50,37 min„ en
gamla metið hans var 1:50,89 —
sett i júni I sumar. Þett er annað
heimsmetið, sem slegið er á
þessu móti — Tim Shaw Banda-
rikjunum bætti hitt fyrrakvöld,
eins og við sögðum frá í blaðinu i
gær. -klp-
halda áfram til Moskvu eftir
leikinn i Belgiu, en þessi ferð,
sem fyrirhuguð er með lands-
liðinu, nær ekki þangað.
Flugleiðir hafa skipulagt
ferðina, og verður farið frá Kefla-
vik til Luxemborgar 1. septem-
ber. Þaðan verður ekið til Parisar
og gist þar I þrjár nætur. Frá
Paris verður haldið til Nantes,
þar sem leikurinn við Frakkland
fer fram, og siðan gist þar eina
nótt.
Frá Nantes verður siðan haldið
til Legia I Belgiu — og þá farið
yfir Ardennafjöllin — en i Legia
verður dvalið I tvo sólarhringa og
þá m.a. horft á leik Belgiu og ís-
lands, sem þar fer fram 6.
september. Heim verður siðan
haldið frá Luxemborg daginn
eftir.
Ferðin kostar með uppihaldi og
öllu 49.500 krónur. Innifalið I
verðinu er m.a. aðgangur að báð-
um leikjunum svo og ferðir til og
frá hótelum og ýmislegt annað.
Sætafjöldi i þessa ferð er mjög
takmarkaður, en þeim, sem hafa
áhuga er bent á að hafa samband
við söluskrifstofu Flugleiða. Þeir
sem hafa þegar pantað far, þurfa
einnig að staðfesta pöntun sina
sem fyrst. -klp-
m
A,x i&f* £
'■ ' (. \ ’
1
tslandsmeistarar Vikings i handknattleik karla utanhúss 1975. Aftari röö frá vinstri: Hannes Guðmundsson, formaður handknattleiksdeildar Vik-
ings, Sigurgeir Sigurðsson, Elias Leifsson, Skarphéðinn Óskarsson, Þorbergur Aðalsteinsson, Viggó Sigurðsson, Ólafur Jönsson og Jón Aðal-
steinn Jónasson, formaður Vikings. Miðröð: Þorsteínn Jónasson og Jón Sigurðsson. Fremsta röð: Stefán Halldórsson, Páll Björgvinsson, Jón
Þór Rósmundsson, lukkutröll liðsins”, Rósmundur Jónsson og Magnús Guðmundsson. Ljósmynd Bj.Bj.
Tvöfaít hjó Víking!
Sigraði Fram í úrslitaleiknum í íslandsmótinu í handknattleik karla utanhúss í
gœrkvöldi og tók þar með bœði íslandsmótin 1975
i fyrsta sinn siðan 1948, að
keppt var i meistaraflokki karla i
handknattleik utanhúss, hafði
Vikingur sigur, cr liðið sigraði
Fram I úrslitaleik mótsins i gær-
kvöldi með 17 mörkum gegn 14.
Með þessu tryggði Víkingur sér
tvöfaldan sigur i handknattleik
karla I ár — islandsmeistara-
Næstsiðasta umferðin i 1.
deildarkeppninni i knattspyrnu
verður leikin um helgina, og eru
þar margir stórir og mikilvægir
leikir á ferð. Á morgun leika i
Keflavik ÍBK-ÍBV og á
La ug ar dals vellinu m leika
KR-FH. Á sunnudaginn leika á
L aug ardals vellinu m Vik-
ingur-Fram og á sama stað á
mánuda gskvöldið leika
Valur-Akranes. Þessi mynd er
frá leik ÍBV og Vals um siðustu
helgi og sýnir, þegar örn
Óskarsson skorar fyrir ÍBV.
titilinn innanhúss og einnig is-
landsmeistaratitilinn utanhúss.
Vikingarnir tóku leiknum i gær-
kvöldi heldur rólega — voru að
kanna meiðsli sinna manna og
liðsstyrk, þegar Framarar
hömuðust við að hita upp með þvi
að hlaupa og kasta boltanum á
milli sin.
Það kom lika i ljós I upphafi
leiksins, en þá voru Framararnir
prðnir vel „heitir” og náðu strax
tökum á leiknum. Höfðu þeir 3
mörk yfir i hálfleik 9:6 og virtust
stefna örugglega á sigur.
Þeir juku við forskotið á fyrstu
fimm minútum siðari hálfleiksins
— komust þá i fimm marka mun,
12:7. En þá var farið að hitna i
Vikingum og þeir tóku leikinn i
sinar hendur, en allt gekk á
afturfótunum hjá Frömurunum.
Skoraði liðið ekki mark i um 20
minútur, en á meðan sendu
Vikingarnir sjö sinnum boltann i
netið hjá þeim og komust þar með
yfir — 14:12. Á siðustu fimm
minútunum jafnaðist leikurinn ör
litið, en Vikingarnir gáfu samt
aldrei færi á sér og sigruðu með
3ja marka mun — 17:14.
Aður en þessi leikur fór fram
léku Valur og Haukar um þriðja
sætið og lauk þeirri viðureign
með öruggum sigri Vals 21:13. 1
hálfleik var staðan 10:5.
Mörkin i leik Vikings og Fram
skoruðu þessir: Páll Björgvins-
son 5(4 viti), Jón Sigurðsson 3,
Magnús Guðmundsson, 3, ólafur
Jónsson, 3, Skarphéðinn Óskars-
son 2 og Stefán Halldórsson 1.
Fyrir Fram skoruðu: Hannes
Leifsson 5, Pálmi Pálmason 4 (1
viti), Arnar og Árni 2 hvor og
Guðmundur 1 mark.
JORUNDUR ÞORSTEINSSON
DÓMARAHORNIÐ
Varnarmaður fer út fyrir
endamörk við hægri markstöng
til að gera andstæðing rang-
stæðan. Knettinum er spyrnt til
andstæðings og hann skorar
mark.
Hvað á að dæma?
A....Óbeina aukaspyrnu fyrir
rangstöðu — B.„. Dæma mark
— C... Áminna varnarmanninn
og láta knöttinn „falla”.
Rétt svar: í þessu tilfelli á að
dæma mark. Varnarmaðurinn
má ekki yfirgefa leikvanginn án
leyfis og reyna að hagnast á þvi.
Fœreyja
1 sumar var fyrirhugað að
unglingalandsliðið i knattspyrnu
færi utan til Færeyja til að endur-
gjalda heimsókn unglingalandsliðs
Færeyja hingað s.l. sumar.
Erfiðlega hefur gengið að koma
þessum leik fyrir, en nú hefur verið
ákveðið að hann fari fram á
miðvikudaginn i næstu viku. Fer ís-
Icnzka liðið utan á þriðjudag, en
kcmur heim daginn eftir leikinn.
Þennan sama dag eiga bikar-
leikir KSÍ, Akranes-Valur og
Keflavik-KR, að fara fram. Aðeins
einn af unglingalandsliðspiltunum
á að leika þetta kvöld — Albert
Guðmundsson Val — og verður
hann þvi ekki með i förinni.
-klp-
„Hann er
f róbœr"
„Þvi var haldið fram, að Celtic
gæti aldrei fundið mann, sem gæti
tekið við af hinni sögufrægu per-
sónu Celtic, Billy McNeil. En nú
eru menn komnir á aðra skoðun.
Sá, sem gat og hefur þegar farið I
skóna hans, er tslendingurinn
Jóhannes Eðvaldsson. Hann er i
einu orði sagt frábær
leikmaður”....
Þetta ásamt mörgu öðru
„góðgæti” mátti Iesa I einu skozku
blaðnna eftir leik Celtic og Hearts I
skozka deildarbikarnum á
miðvikudagskvöldið. Þar fær
Jóhannes mjög góða dóma fyrir
leik sinn I vörn Celtic — og þá ekki
siður fyrir þátt sinn I sóknar-
aðgerðum liðsins.
Hann skoraði eitt af þrem mörk-
um Celtic I leiknum — leikurinn fór
3:1 — með stórglæsilegum skalla
eftir hornspyrnu, eftir þvi sem
blöðin segja.
Þau bæta því við, að hann hafi
verið fyrirliði Valsliðsins, sem
Celtic eigi að mæta I Evrópukeppni
bikarmeistara i næsta mánuði — og
að hann eigi að mæta sinu gamla
liði bæði I Glasgow og heimabæ
sinum, Reykjavik, i þeirri keppni.
-klp-
Jóhannes Eðvaldsson.
WSææsM.