Tíminn - 29.09.1966, Side 1
Gerizt áskrifendur að
Tímanum.
Hringið í síma 12323.
Auglýsing 1 Tímanum
kemur daglega fyrir augu
80—100 þúsund lesenda.
221. tbl. — Fimmtudagur 29. september 1966 — 50. árg.
Newsweek fyrst ||AFA TVISVAR SLEGIÐ
ao auglysa her
í sjónvarpinu!
AF PRlSUM VID RIISSA
SJ—Reykjavík, miðvikudag.
Ráðgert er að hafa auglýsingar í
felenzka sjónvarpinu tvisvar á
kvöldi og 3 mínútur í senn. Eins og
skiljanlegt er hafa íslenzk fyrir-
tæki haft lítinn viðbúnað i sam-
bandi við gerð auglýsingamynda
fram að þessu, en búast má við, að
skriður komist á málið á næstunni.
Nokkur íslenzk fyrirtæki hafa pant
að auglýsingar fyrsta kvöldið og er
þar einkum um að ræða kyrrmynd-
ir, sem sýndar verða í 5 sekúndur.
Fyrsti erlendi aðilinn, sem hef
ur pantað tíma fyrir kvikmynd er
vi’kublaðið Newsweek. Kvikmynd
in tekur aðeins 7 sek. og kemur
hún að utan með íslenzku tali, og
var talað inn á myndina af ein-
hverjum íslendingi erlendis. Þá
má búast við, að umboðsmenn tó-
baksframleiðenda hugsi sér til
hreyfings, en sjónvarpið tekur
ekki við auglýsingum nema með
íslenzku tali, og vill að eins mikið
sé fjarlægt af erlendum orðum og
hægt er.
Er Tíminn ræddi í dag við Auði
Óskarsdóttur, auglýsingastjóra
sjónvarpsins, kvaðst hún vera
bjartsýn á framtíðina, en það væri
eins og allir væru að vakna til nm
hugsunar um sjónvarpsauglýsingar
fyrst í dag, og væri það skiVjan
legt. Sjónvarpið hefur sent leið-
beiningar og verðskrá til ýmissa
Framhald á bls. 14.
RAFMAGNS-
TRUFLUN EYÐI-
LAGÐI SJÓN-
VARPSUPPTÖKU
KJ—Reykjavík, miðvikudag.
Þegar eftir var að taka 10 mín
útur upp af þættinum „Blaða-
mannfundur1' hjá Sjónvarpinu í
, dag, fór rafmagnið skyndilega af,
! og skemmdist þar með 20 minútna
j upptaka af þættinum, sem tekin
var á myndsegulband.
Þetta var upptaka á fundi með
forsætisráðherra, fyrsta „Blaða
mannafundinum", sem sjónvarpað
verður n.k. föstudag. Orsök þess,
að rafmagnið fór af var sú, að
starfsmenn Rafveitunnar unna að
athugunum á strengjum í nærliggj
andi spennistöð, og mun ekki hafa
verið tilkynnt fyrirfram, að búast
mætti við rafmagnstruflunum, a.
m.k. var starfsmönnum Sjónvarps-
ins ekki kunugt um það. Þessi raf
magnstruflun, 3—4 míntur, hafði
það í för með sér, að endurtaka
varð allan þáttinn og má þar um
kenna, að Rafveitan tilkynnti ekki
fyrirsjáanlegar rafmagnstruflan-
ir.
HNKAINNRAS"A
FALKLANDSEYJAR
Stjórnin fcll
rr
NTB-Buenos Aires, miðvikud.
Fimm Argentínumenn neydda
í dag flugvél mcð 44 mönnutn
innanborðs til að Ienda á Falk-
landseyjum í Atlantshafi. Menn
þessir kalla sig Gammana og eru
aðgerðir þessar liður í „einkainn-
rás“ í eyjaklasann, sem lýtur
Bretum, að því er þeir sögðu.
Hafa Argentínumenn lengi gert
kröfu til eyjanna og merkja sér
þær á argentínskum landabréfum.
Samkvæmt síðustu fréttum M
Buenos Aires, lenti flugvélin
heilu og höldnu og skömmu síðar
sendu Gammarnir út tilkynningu
þess efnis, að „innrásin" hefði tek
izt vel og staðfesti yfirráða
rétt Argentínu yfir eyjunum.
Fréttamenn setja „innrás“ þessa
í samband við heimsókn hertog-
ans af Edinborg til Argentínu,
þar sem hann kemur fram fyrir
hönd Bretadrottningar í tilefni
af 150 ára sjálfstæðisafmæli lands
ins. Fyrir nokkrum mánuðum var
yfirráðarétturinn yfir Falklands-
eyjum tekinn á viðræðulista utan
ríkisráðherra Argentínu og Bret-
lands, en alltaf öðru hverju hafa
Argentínumenn endurnýjað yfir-
ráðakröfur sínar.
íbúar eynna eru nær eingöngu
brezkir að uppruna. Engar fastar
Framhald á bls. 14.
Myndin er frá hinum einstæSa atburði, er
þingmaður stjómarandstöðunnar í Suður-
Kóreu áréttaði ádeilu sína á stjórn landsins með því að kasta saur og
þvagi yfir forsætisráðherra landsins og fjóra samráðherra hans. Atburð-
ur þessi varð þann 22. þessa mánaðar. Þingmaðurinn Kim Du Han flutti
hvassa ádeiluræðu á þinginu og um leið og hann sté úr ræðustól skipti
engum togum, að hann hellti saur yfir Chung ll-Kwon, forsætisráðherra og
ráðherra þá, er næstir honum sátu. Sést forsætisráðherra og ráðherra
þá ,er næstir honum sátu. Sést forsætisráðherrann ósköp róiegur verka
gleraugu sín og hagVæða þeim. Atburður þessl leiddi til þess, að stjórn-
in sagði af sér, með þeim rökstuðningi, að hún hefði glatað áhrifum sfn-
um og virðingu vegna þessarar svívirðu.
En beir halda sig
við sama verð og
beir buðu í marz
SJ—Reykjavík, miðvikudag.
Þrátt fyrir það, að Síldarút-
vegsnefnd hafi tvisvar sinnum
oðið Rússum saltsíld á hag-
stæðu verði, hefur enn ekkert
þokazt í samkomulagsátt.
Rússar buðu ákveðið verð í
marzmánuði s.l. og hafa ekki
hvikað frá því verði síðan. í
dag ber mikið á milli, eftir
því, sem Sveinn Benediktsson,
framkvæmdastjóri, tjáði Tím-
anum.
Verðið á mjöli og þó sérstak-
lega lýsi fer enn lækkandi á heims
markaðinum, og sagðist Sveinn
ekki muna eftir því sl. fimmtán
ár, að verðið á lýsi hefði fallið
eins mikið og það hefur fallið
frá því í maímánuði. f ár er fram-
leiðslan meiri en markaðurinn
getur auðveldlega tekið við, og
þáttur Perúmanna er sérstæður að
því leyti, áð þeir líta á lýsið sem
aukaframleiðslu, þar sem aðal-
framleiðslugreinin hjá þeim ' er
mjölið. Þeir hafa litlar geymslur
undir lýsið og eru af þeim sökum
m.a. reiðubúnir að selja lýsi fyrir
svo til hvaða verð sem er.
Gunnar Flóvenz, sem annast
sölumál vegna Suðurlandssíldar,
hefur nýverið gengið frá samning
um um sölu á 20 þús. tunnum af
saltsíld til Póllands, og búizt er
við viðbótarsölu þangað. Verðið
er 18 shillingum hærra en áður
Framhald á bls. 14.
Landgræðslan þarfnast
nýrrar áburðarflugvélar
KJ-Reykjavík, miðvikudag.
— Rekstur nýju áburðarflugvél
arinnar gekk vel í sumar, en það
er fyrirsjáanlegt að hún annar
vart meiri verkefnum en fyrir
eru á sjálfum sandgræðslusvæðun
um, sagði Páll Sveinsson land-
græðslustjóri i viðtali við TÍM-
ANN í dag.
Nýja vélin afkastar miklu
meira en sú gamla en þrátt fyr-
ir það getur hún ekki annað því að
bera á fyrir hreppsfélög, á afrétti
og hins vegar ógróið land í byggð
Þyrfti því nauðsynlega að fá sér
staka flugvél í það verkefni. sem
er ekki síður brýnna en sjálf
sandgræðslan. Tilkoma tlugvéia
við áburðar og frædreifingu hér
er stærsta stökkið sem orðið hef
ur síðan skipule^ uppgræðsla
lands hófst, og er árangurinn af
starfi flugvélanna alltaf að koma
betur og betur í ljós sagði Páll.
Hvað viðvíkur nýju flugvélinni
þá flýgur hún hraðar og tekur
mpira magn áburðar i ferð, en
þær fyrri, en hún þarf aftur á
r^óti vandaðri flugbrautir, held-
ur en þær minni.
— Eins og undanfarin sumur
hefur aðalverkefnið verið á Hauka
dalsheiðinni, en auk þess var í
sumar unnið að gerð tveggja land
græðslugirðinga á Mývatnsöræfum
og verður þeim lokið næsta sum-
ar. Næsta sumar er einnig ráð-
gert að setja upp nýja girðingu
fyrir austan þá sem f.vrir er hér
í Gunnarsholti. Eftir er að semja til að hægt verði að byrja á
við landeigendur, en vonast er verkinu næsta sumar.
Gylfi missir
prófessorinn
F.B.-Reykjavík, miðvikudag.
Lögbirtingarblaðið, sem kom út
s. 1. laugardag, birtir tilkynmngu
þess efnis, að hinn 7- september
1966 hafi forseti íslands veitt
Gylfa Þ. Gíslasyni lausn frá pró-
fessorsembætti við Háskóla ís-
lands frá 15. þ. m.
Síðastliðinn vetur varð ráðherr
ann fyrir ámæli fyrir að halda
prófessorsembættinu í tíu ár. Varð
fátt um svör hjá ráðherra í ba®
skiptið en nú er sem sagt orðið
lýðum Ijóst, að hann heldur ekki
lonOIIT