Tíminn - 29.09.1966, Side 7

Tíminn - 29.09.1966, Side 7
FIMMTUDAGUR 15. september 1966 TÍMINN NÝIR SÖLUSKILMÁLAR OLÍUFÉLAGANNA í meira en tvo áratugi hefur álagning á vörur þær, sem olíufélögin selja verið ákveðin af verðlagsyfirvöldum. Segja má, að allan þann tíma hafi álagning á fuelolíu, gasolíu og hílabenzín verið þannig ákveðin, að hún hafi tæplega staðið undir kostnaði við innflutning og dreifingu á þessum vör- um, hvað þá, að sala þeirra skilaði eðlilegum hagnaði. Fjár magnsþörf ólíufélaganna, til þess að standa undir aukinni sölu og vegna þynningar gjaldmiðilsins hefur hinsvegar, svo sem augljóst má vera, aukizt ár frá ári. Stefna verðlagsyfirvalda hefur því óhjákvæmilega leitt til þess, að olíufélögin hafa stöðugt orðið að leita til við- skiptabanka sinna um aukin lán til þess að standa undir auknum innflutningi og hækkandi kostnaði. Viðskiptabank- arnir hafa eðhlega talið þessa þróun bæði óæskilega og hættulega. ' Af þessum ástæðum var svo komið í júlímánuði s. 1., að viðskiptabankar olíufélaganna synjuðu um opnun ábyrgða fyrir oljuförmum frá Rússlandi, og hélzt það ástand fram yfir miðjan ágústmánuð, en á því tímabili höfðu útflytjend- nr í Rússlandi sent þrjá olíufarma til félaganna, án þess að ábyrgðir væru opnaðar fyrir þeim samkvæmt gildandi samningum við Rússa, sem olíufélögin hafa tekið að sér að framkvæma í umboði ríkisstjórnarinnar sem samningsaðila gagnvart hinum rússnesku útflytjendum. Til þess að koma 1 veg fyrir að olíuinnflutningur stöðvað- ist, féifust bankarnir loks á, að opna nauðsynlegar ábyrgðir, gegn því skilyrði, að olíufélögin tækju upp nýja hætti, að því er varðar útián og innheimtu. í samræmi við þetta hefur aú verið ákveðið, að taka upp í allri olíusölu staðgreiðslu- vSfeldpti, að svo miklu leyti sem mögulegt er. Til þess að hvetja tii staðgreiðsluviðskipta hafa verðlagsyfirvöld heim ilað olíuíélögunum að taka sérstakt aukagjald, ef viðskipti eru e&kj. staðgreidd. Reykjavík 13. september 1966 OLÍUFÉLAGID H.F. OifUVERZLUN ÍSLANDS H.F. OLfUFÉLAGIÐ CKELJUNGUR H.F. i)' Mí Samkvæmt þessu gilda eftirfarandi reglur frá 1. október n. k.: 1. Öll smásala frá benzínstöðvum skal fara fram gegn staðgreiðslu. Ef um félög eða firmu er að ræða, sem hafa minnst 5 bíla eða tæki, er heimilt að selja gegn mánaðarviðskiptum, enda sé greitt aukagjald, kr. 25.00 fyrir hverja afgreiðslu, vegna vinnu við bók- hald og innheimtu. '-á?: 2. Öll sala til húsakyndinga skal fara fram gegn stað- greiðslu. Ef viðskiptamaður af einhverjum ástæðum greiðir ekki við afhendingu vörunnar skal reikna sér- stakt aukagjald, kr. 100.00, fyrir hverja afhendingu, vegna vinnu við bókhald og innheimtu. :víid: it mi i J Mr. 3. Önnur vörusala olíufélaganna beint til notenda skal að jafnaði vera gegn staðgreiðslu. Þó skal olíufélög- unum heimilt að semja við stóra viðskiptamenn um mánaðarviðskipti, enda greiði þeir sömu aukagjöld og um getur í 1. og 2. gr. Skulu þeir greiða úttektir sínar fyrir 15. dag næsta mánaðar eftir úttektar- mánuð. Hafi mánaðarviðskiptamaður ekki greitt skuld sína að fullu fyrir lok greiðslumánaðar, skal reikna hon- um dráttarvexti, 0,83% á mánuði, miðað við skuld í lok úttektarmánaðar að frádregnum innborgunum í greiðslumánuði. Jafnframt skal stöðva reiknings- viðskipti og hefja venjulegar innheimtuaðgerðir.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.