Tíminn - 29.09.1966, Page 16

Tíminn - 29.09.1966, Page 16
ÍMÍMI 121. tbl. — Fimmtudagur 29. september 1966 — 5Ó. árg. Gísli Arni er enn aflahæsta skipið HZ-Reykjavík, miðvikudag. Samkvæmt upplýsingum, sem EGGERT KRIST- JÁNSSON STÓR- KAUPMAÐUR LÁTINN FB-Reykjavík, miðvikudag. f dag lézt í Reykjavík Eggert Kristjánsson stórkaupmaður. Hann var fæddur 6. okt. 1897 í Mýrdal í Hnappadalssýslu, og voru foreldrar hans Kristján Eggertsson og Guðný Guðnadóttir kona hans. Gagnfræðingur varð Eggert frá Flensborg árið 1918. Hann settist að í Reykjavík og stofnaði fyrirtækið Eggert Kristj- ánsson & Co. h.f. og var forstjóri og stjórnarformaður til dauða- dags. Hann var einn af stofnend- um Kexverksmiðjunnar Frón og keypti nokkru síðar hluta í kex- verksm. Esju og var forstjóri beggja verksmiðjanna. Eggert átti m.a. sæti í stjórnum Félags ísl. stórkaupmanna, Verzlunarráðs ísl. Félags ísl. iðnrekenda, Vinnuveit- endasambands íslands. Aðalræð- ismaður Finnlands var hann frá 1954. Kvæntur var Eggert Guð- rúnu Þórðardóttur frá Vogósum í Selvogi. Fiskifélagi íslands hafa borizt, höfðu skip fengið einhvern afla á síldveiðunum norðanlands og aust an sl. iaugardag. Af þessum flota hafa 170 skip fengið 100 lestir eða meira og mun skrá yfir þau skip verða birt í blaðinu fljótlega. Tvö síldveiðiskip hafa aflað langmest, Gísli Árni og Jón Kjartansson, og samkvæmt fréttum um síldveiði, þessa viku, hafa þau stórlega bætt við sig. Verður hér birt skrá yfir þau skip, sem fengið höfðu 5000 lestir eða meira, sl. laugardags- kvöld. Gísli Árni RE 7.056, Jón Kjart ansson, SU 6.909, Jón Garðar, GK. 5.608, Þórður Jónasnon, EA, 5.324, Sigurður Bjarnason EA 5.294, Snæfell EA 5.202, Barði NK 5.139, Lómur KE 5.126, Ásbjörn RE 5.053, Dagfari ÞH 5.020. Framhald á bls. 14. Prestakallaskipun- in aðalmál kirkju- bings Kirkjuþing hinnar íslenzku þjóð kirkju hefur verið kvatt saman í Reykjavík sunnudaginn 2. októ- ber. Hefst þingið með guðsþjón- ustu í Dómkirkjunni kl. 5 e.h. þann dag. Séra Þorsteinn B. Gísla son prófastur prédikar. Þingið verður háð í safnaðar- heimili Neskirkju eins og undan- farin ár, og hefjast þingstörf á mánudagsmorgun kl. 10 f.h. Kirkjuþingið stendur hálfan mánuð og verður meginverkefni þess endurskoðun á prestakalla- skipuninni. Aðalfundur FUF í Reykjavík Aðalfundur Félags ungra Fram sóknarmanna í Reykjavík verður haldinn, miðvikudaginn 12. okt. n. k. Dagskrá: Venjuleg aðalfundar störf. Fundarstaður verður nán ar auglýstur síðar. Stjóm FUF. BÆNDAFARIR TIL NDRDUR- LANDANNA A NÆSTA SUMRI r KJ—Reykjavdk, miðvikudag. Á næsla sumri gengst Búnaðar- félag íslands fyrir einni eða tveim bændaförum til Danmerkur, Nor egs og Svíþjóðar, og mun þegar vera fullskipað í fyrri ferðina, en þátttakendur verða allt að 80 í hvorri ferð. Má segja, að þetta séu fyrstu al mennu ferðirnar, er Búnaðarfélag ið skipuleggur til Norðurlandanna Framhald a ols. 14 Beinamjöls- verksmiðja í Grímsey GJ—Grímsey. Hér í Grímsey er um þess ar mundir vérið að reisa nýja beinamjölsverksmiðju, og á hún að vera tilbúin næsta vor. Það er Haraldur Jóhannesson, sem byggir Fraimtoald á bls. 15. ÚTGERÐARRÁÐ ER SAMMALA UM UNDANÞÁGUR FYRIR TOGARANA SJ-Reykjavík, miðvikudag. v S. 1. föstudag var í borgarráði rætt um hag bæjarútgerðarinnar og ráðstafanir til að bæta bag togaraútgerðarinnar almennt. Á fundinum voru mættir Sveinn Benedlktsson, formaður útgerðar ráðs og Marteinn Jónasson, fram kvæmdastjóri, og veittu þeir ýms ar upplýsingar og skýrðu frá af stöðu útgcrðarráðs, sem hélt fuiul um málið sama dag. Eftir því sem Tíminn hefur frétt, samþykkti útgerðarráð með öllum greiddum atkvæðum að styðja þá kröfu Félags íslenzkra botnvörpueigenda, að gerðar verði undanþágur varðandi veiðar is- lenzkra togara innan landhslginn ar. Farið er fram á, að togararnir fái að veiða inn að 4ra mílna land helginni, eins og hún var árið 1952. Gert er ráð fyrir að alþingi komi til með að fjalla um þetta mál í vetur, því að breyta þarf lagasetningum ef undanþágur verða veittar. Ætla má, að alþing ismenn verði ekki á eitt sáttir í þessu máli. Undanfarið hefur nefnd á veg um Sjávarútvegsmálaráðuneytisins kannað þetta mál, en ekki skilað neinu áliti svo vitað sé, og hefur þar verið fjallað um ráð til úr- bóta, s- s. hækkun styrkja, fækk un manna um borð í togurunum, lækkun olíuverðs og að endingu að leyfa togurunum veiðar innan núverandi landhelgi. Blaðburðarfólk óskast til að bera blaðið út á eftirtöldum stöðum: Sörlaskjól — Nesvegur — Kleppsvegur — Boga- hlíð — Grænahlíð — Álftamýri — Laugarteigur Hofteigur — Sigtún — Fornhagi — Kvisthagi — Ægissíða — Hæðagarður — Hólmgarður — Efsta- sund — Skipasund — Þórsgata — Lokastígur — einnig sendisveina fyrir hádegi. mm Bankastræti 7, sími 1-23-23. Farangur Sigríðar hestakonu er hún týndi á Arnarvatnsheiði fyrir 3 árum fundinn HZ-Reykjavík, þriðjudag. Eins og mepn rekur minni til, týndist hin fræga hestakona Sigrfður Jóna Jónsdóttir á Arnarvatnsheiði hinn 20. júlí 1963. Var gerður út mikill leit arleiðangur, sem fann Sigríði ekki, en hins vegar fundu veiði menn við Skammá, hjá Arnar- vatni hinu mikla bæði Sigríði og Ljóma, hinn jarpa hest hennar, viku seinna. Var Sigríð- ur illa haldin, enda hafði hún legið úti í hríðarveðri og kulda í margar nætur. Hafði hún tap- að hnakk sínum og beizli auk tveggja hnakktaska og stíg- véla. Rúmum hálfum mánuði síðar var Sigríður stöðvuð á Hveravöllum, er hún ætlaði að leita að föggum sínum á Ar- arvatnsheiði, ein síns liðs. Hef ur allt dót hennar verið týnt í þrjú ár og ekke'rt af því frétzt, fyrr en hinn 16. þ. m., Þá fundu gangnamcnn úr Víðidal allar föggur hennar. Hafði veðríð unnið á stígvél- unum og hnakktöskunum, sem orðnar voru fúnar, en hins veg ar tóku gangnamenuirnir hnakkinn og beizlið meö sér. Framhald á bls. 14 FENGU HELM- INGLAUNANNA KJ-Reykjavík, miðvikudag. Ekki kom til vinnustöðvunar þeirrar, hjá Byggingafélaginu, BRÚ, sem yfirvofandi var, vegna vanskila fyrirtækisins við verka- menn, trésmiði og múrara. Upphaflega átti að koma til vinnustöðvunar hjá fyrirtækinu á laugardaginn, svo sem fram hefur komið í TÍMANUM en BRÚ fékk frest til dagsins í dag. í gær fengu svo verkamenn, trésmiðir og múr- arar þeir, sem kaup áttu inni, helming inneignarinnar greidd an, og jafnframt var fyrirtækinu veittur annar frestur til n.k. þriðju dags að greiða hinrj helminginn. Verði hann ekki greiddur þá, kem ur til vinnustöðvunar þeirrar, sem áður hafði verið boðuð. Það voru starfsmenn, sem unnu við Borgar sjúkrahúsið á vegum Brúar, er hótað höfðu vinnustöðvuninni. Venjulegur útborgunardagur vikulauna er á föstudögum, og hafa því verkamennirnir, tré- smiðirnir, og múraramir veitt fyrirtækinu tiltölulega ríflegan Framhald á bls. 14.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.