Vísir - 03.09.1975, Blaðsíða 5
Vísir. Miðvikudagur 3. september 1975.
5
R E U T E R
AP/NTB
ÚTLÖNDÍ MORGUN ÚTLÖND í MORGUN ÚTLÖND Umsjón Guðmundur' Pétursson
Var Marilyn Monroe myrt?
Skríf hafín að ný/u um dular■
fullt andlát þokkadísarínnar
fyrír 13 árum. Fullyrt að
Kennedybrœður hafí veríð |
elskendur hennar
Bandariskur biaðamaður
heldur þvi fram, að kvikmynda-
disin, Marilyn Monroe, hafi ver-
ið myrt. Sönnununum hafi verið
leynt og sjálfsmorð sett á svið til
hlifðar John Kennedy heitnum
forseta og bróður hans, Robert,
sem ,,nær örugglega” hafi verið
„elskendur hennar”.
1 grein, sem Anthony Scaduto
hefur skrifað og birtast mun i
október-hefti timaritsins „Oui”
(gefið Ut af Playboy-útgáfunni),
heldur hann þessu fram fullum
fetum. — tJtgáfufyrirtækið lét
frá sér fara fréttatilkynningu i
gær, þar sem vakin var athygli
á þessum skrifum.
Marilyn Monreo kvaddi þenn-
an heim 4. ágúst 1962 og var
niðurstaða rannsóknar á andláti
hennarsú, að hún hefði fyrirfar-
ið sér.
Eiginmaður Monroe
heimildamaðurinn
Greinarhöfundur heldur þvl
fram, að Robert Slatzer, einn
fyrrverandi eiginmanna Mon-
roe, hafi sagt sér, að Monroe
hefði skömmu fyrir dauða sinn
verið reið vegna þess, að Robert
Kennedy ætlaði að svikja loforð
um að kvænast henni. — Það
átti siðar fyrir Robert að liggja
að láta lifið fyrir hendi tilræðis-
manns.
Innbrot hjá Monroe
Slatzer á að hafa sagt Sca-
duto, að Monroe hafi hótað að
kalla blaðamenn saman til
fundar og gera Kennedy þing-
mann beran að tryggðarrofun-
um. Scaduto segir, að Slatzer
hafi talið Marilyn Monroe ofan
af þessu áformi, þvi að það hefði
getað orðið henni hættulegt.
í grein Scaduto kemur fram,
að Monroe hafi með tregðu fall-
izt á þetta. Hefði hana grunað,
að innbrot, sem framið var til
þess að komast yfir dagbók
hennar, hafi staðið i sambandi
við tengsl heiinar við Kennedy-
bræðuma. Auk þess taldi hún
sig verða vara við, að simi
hennar væri hleraður.
Lét Hoffa hlera
síma Monroe?
Scaduto segist hafa orð Bem-
ards nokkurs Spindel, sem var
simhlerunarsérfræðingur (ný-
látinn), fyrir að hann hafi hler-
að sima Marilyn að beiðni
Jimmy Hoffa, fyrrum forseta
samtaka atvinnubilstjóra. — Sá
sami Hoffa hafði á sér orð fyrir
samvinnu við mafíuna og hvarf
með dularfullum hætti fyrir
nokkrum vikum. Er hann
ófundinn enn.
Eftir að Robert varð dóms-
málaráðherra lagði hann sig
fram við að fletta ofan af þeirri
spillingu, sem talin var hafa
grafið um sig innan samtaka at-
vinnubilstjóra undir forystu.
Hoffa. Var þá i undirbúningi
mál á hendur Hoffa (sem leiddi
John F. Kennedy, fyrrum forseti Bandarfkjanna, I
ræðustól. Þvl er haldiö fram, að hann og Robert
bróðir hans hafi verið ; meðal ástmanna leikkon-
Þokkagyðjan Marilyn Monroe, frægasta kyntákn
Holiywood fyrr og siöar, fannst látin I ágúst 1962.
Dánarorsökin var sögð vera sjálfsmorð.
siðar til þess, að hann var
dæmdur), og telur Scaduto, að
Hoffa hafi haft hug á að ná dag-
bók Monroe til þess að þvinga
Robert til samninga við sig.
En hljóðritununum með sim-
tölum Monroe var siðar stolið
frá Spindel, eftir þvi sem Sca-
duto skrifar. Heldur hann þvi
fram, að þær hafi haft að geyma
þær upplýsingar, sem Kennedy
vildi kaupa af Spindel fyrir 25
þúsund dali, en Spindel hafi
hafnað þvi boði.
Scaduto heldur þvi ennfremur
fram, að lögreglumenn i Los
Angeles hafi viðurkennt i einka-
viðræðum, að gagnasafn þeirra
hafi geymt 723 siðna skýrslu,
sem merkt var „Marilyn
Monreo-------morð”.
í morgun, þegar siðast frétt-
ist, hafði Kennedy-fjölskyldan
ekkert látið frá sér fara um
þessi skrif Scaduto.
Gísl í 16
mánuði
Franska stjórnin mun vera
reiðubúin til að greiða upp-
reisnarmönnum I Chad i Vestur-
Afriku allt að 35 milljón króna
lausnargjald fyrir franska konu,
sem þeir síðarnefndu hafa hótað
að taka af lifi.
Uppreisnarmenn hafa haft frú
Francoise Claustre á valdi sinu
siðustu 16 mánuði. Eiga þeir sér
fylgsni einhvers staðar I Tibesti-
eyðimörkinni. Rændu þeir frúnni,
sem er mannfræðingur, meðan
hún var að rannsóknum meðal
frumstæðra kynflokka.
Frönskum yfirvöldum hefur
verið legið á hálsi fyrir að hafa
ekki bjargað frú Claustrve úr klóm
uppreisnarmanna. Þvi hefur
jafnvel verið haldið fram, að fast-
heldni stjórnvalda á fé réði þvi,
að ekki hefði verið samið við upp-
reisnarmenn.
Talsmaður stjórnarinnar visaði
þessum ásökunum á bug, og
mátti á honum skilja i gær, að
stjórnin mundi reiðubúin til að
greiða allt að 35 milljóna kr.
lausnargjald. Vandinn lægi
einungis I þvi, hvernig unnt væri
að hafa samband við uppreisnar-
mennina og tryggja að þeir
slepptu konunni, þegar þeir hefðu
fengið lausnargjaldið.
Uppreisnarmenn hafa gefið
Frökkum frest til 23. september,
en þá segjast þeir munu taka kon-
una af lifi. Þeir hafa þegar liflátið
franskan liðsforingja, sem sendur
var inn i eyðimörkina til viðræðna
við þá um afhendingu lausnar-
fjár.
Leita að sönnunum
Skæruliöar kommúnista eru taldir vera valdir að sprengingu, sem
varð I nótt I Kuala Lumpur I hverfi, þar sem lögregian hefur aðal-
stöðvar sfnar og Ibúðir lögregluliðsins eru. — Tveir lögreglumenn
létu llfið og 39 særðust. — Myndin hér fyrir ofan var tekin I morgun,
þegar lögreglumenn voru aö leita á sprengjustaönum I birtingu að
einhverju, sem ieitt gæti þá á slóð tilræðismannanna.
Olíuhœkkanirnar
komu verst við
þróunarlöndin
— bandamenn Araba,
William Simon, fjármálaráðherra, varar
við alvarlegum afleiðingum nýrra
hœkkana á olíu á fundi Alþjóðabankans
t
„Látum oss ekki vanmeta,
hverjar yrðu afleiðingar nýrrar
verðhækkunar á oliu. Hún mundi
tefla alvarlega i hættu þvi jafn-
vægi, sem afturbati efnahagslifs
alls heimsins byggist algerlega
á,” sagði William Simon,
fjármálaráðherra Bandarikj-.
anna, á ársfundi Alþjóðabankans
og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins,
sem stendur nú yfir.
Hann rifjaöi upp fyrir öðrum
fjármálaráðherrum á fundinum i
gær, hvernig fjórföld oliuverð-
hækkun á árinu 1973 hefði leitt til
efnahagsörðugleika og nánast
kreppu yfir flest riki veraldar.
Verst hefði það þó komið niður
á þeim fátækari i hópi þróunar-
landanna.
Þessi ummæli fjármálaráð-
herrans eru vafalaust valin á
þessum tima með tilliti til þess,
að siðar i þessum mánuði veröur
fundur hjá samtökum oliusölu-
rikja, þar sem ákveða skal, hvort
hækka skuli oliuverð enn.
Borað eftir „svörtu gulli”, sem
vegna slfelldra hækkana hefur
komið efnahagskerfi fjölda
rlkja úr skorðum.