Vísir - 03.09.1975, Page 16

Vísir - 03.09.1975, Page 16
VISIR Miðvikudagur 3. september 1975. Getum við selt heitt vatn fyrir 300 millj. ó óri? Hitaveita Reykjavikur hefur gert forkaupssamning við sam- tök nokkurra sænskra aðila, Wilong Gruppen Energy ab., um sölu á allt að 20-30 milljónum tonna árlega af umframvatni Hita veitunnar. Samningur þessi felur i sér, að sænsku samtökin hafi forkaups- rétt að vatnsmagni þessu, ef at- huganir leiða i ljós að hagkvæmt sé að flytja það út og ef þeir reynast reiðubúnir til að greiða lágmarksverð fyrir vatnið. Sviarnir munu fyrir næsta vor athuga markaðshorfur fyrir vatnið og flutningsmöguleika sina, en þeir hyggjast flytja vatnið út með stórum tank- skipum. Er þá reiknað með, að samningar geti gengið saman næsta sumar, ef niðurstöður at- hugana reynast jákvæðar. Sala þessi á umframvatni Hita- veitunnar gæti fært allt að 300 milljónir króna i þjóðarbúið ár- lega. -HV. Ringul- reið „Óperan fjallar um hina list- rænu samtlð, séða I gegnum skrlpagleraugu okkar”, sögðu höfundar óperunnar Ringulreið- ar, þeir Flosi ólafsson og Magnús Ingimarssson. „Ringulreið er dæmigert aft- urúrstefnuverk (arriére garde) en afturúrstefnan hefur leyst framúrstefnuna (avant garde) af hólmi, enda hefur sú slðast- nefnda endanlega gengið sér til húðar”, sögðu höfundarnir enn- fremur. Óperan verður fyrsta verkefni Þjóðleikhússins á þessu leikári. Veröur frumsýningin þann 9. september, en nú er verið aö æfa af kappi I Þjóðleikhúskjall- aranum. HE. Bóndi ó Svalbarðsströnd: 800 bœndur gœtu séð land- inu fyrir kjöti og mjélk — Eru nú 5220 ú 4984 jörðum Atta hundruð bændur, sem byggju stórbúi og fylgdust vel með timanum, ættu að geta séð þjóöinni fyrir allri þeirri mjólk og öllu þvi kjöti, sem hún þarf á að halda, að sögn Hauks Halldórssonar, bónda. Um sið- ustu áramót voru 4984 jarðir i ábúð á landinu og bændur voru skráðir 5220. Haukur Halldórsson býr stórbúi i Sveinbjarnargerði á Svalbarðsströnd, og hann ræöir um bú sitt og hina ýmsu erfið- leika landbúnaðarins i siðasta hefti tlmaritsins Frjáls verzlun. Haukur leggur mikla áherzlu á að fylgjast vel með nýjungum i landbúnaði, bæði hér og er- lendis. Eftir að hann útskrifað- ist sem búfræðingur frá Bænda- skólanum á Hvanneyri, fór hann til Sviþjóðar, Danmerkur og Englands og stundaði þar tungumálanám, lærði loðdýra- ræktun og kynnti sér félagsmál. Eftir að hann hóf búskap hefur hann lagt á það áherzlu að ferðast, þegar hann hefur átt þess kost, til að kynna sér nýjungar i landbúnaði. Hann les einnig mikið af fagtimaritum, bæði innlendum og erlendum. Haukur er aðeins þritugur, en hefur þegar komið á fót einu af stærstu kúabúum á landinu, með 80-90 kýr. Haukur telur i viðtalinu, að það sé ekki nein algild lausn á vandamálum bænda að fækka búum og stækka þau, eins og málum er nú háttað. Mikil verð- mæti lægju i byggingum til sveita og þvi mjög vafasamt fyrir þjóbfélagið i heild að fara út i þá breytingu. Hins vegar segir hann: — Ef allir byggju eins og ég, þyrfti ekki nema 3-400 bændur til að sjá um nægilega mjólk handa þjóðinni og annan eins hóp þyrfti fyrir kjötframleiðsluna. — ÓT. TOGSTREITA á milli Verkamannasambandsins og Jórnblendifélagsins — Við höfum farið fram á það við Járnblendifélagið, að það gerði ákveðinn rammasamning, sem kveði á um ýmis almenn atriði, — eins og aðbúnað verka- mannanna og fleira, sagði Þór- ir Danielsson hjá Verkamanna- sambandinu. Gætu verkamenn- irnir gengið beint að þessum samningi. En Járnblendifélagið vill láta hvern verktaka fyrir sig, sem vinnur fyrir félagið en þeir verða nokkuð margir, gera samning við verkamennina. — Við hjá Verkamannasam- bandinu teljum það mjög óhöndugleg vinnubrögð að þurfa að semja við hvern og einn verktaka, sagði Daniel að lok- um. — HE. Tœknikennarar enn í verkfalli — Viö erum enn í verk- falli og það er ekkert farið að tala við okkur, sögðu kennarar Tækniskóla ís- lands í morgun. Þeir fóru í verkfall i gær vegna óánægju með kjaramál og urðu 250 nemendur skólans að vera án visdómsaukn- ingar þann daginn. Þegar séð var, að framhald yrði á þvi, fóru nokkrir þeirra til viðræðna við fulltrúa mennta- málaráðuneytisins, en kennarar biðu i skólanum, enda var þetta frumkvæði nemenda sjálfra. Kennurum skildist þó, að ein- hver hreyfing væri komin á máiið i fjármálaráðuneytinu, þótt þeir hefðu ekkert heyrt beint frá þeim aðila. Vegna fréttar um þetta mál i gær hefur menntamálaráðuneyt- ið sent leiðréttingu, þar sem seg- ir, að báðum bréfum kennara hafi verið svarað samdægurs. í frétt- inni var raunar átt við, að kennarar hefðu ekki fengið „svar”, sem leysti vandann, en ekki var verið að efast um við- bragðsflýti ráðuneytisins. Þaö var hins vegar ekki nógu skýrt orðað i fréttinni og leiðréttingunni þvi komið á framfæri. — ÓT. Dýraspítalinn: Hús og tœki til — vantar lœkni og kunnúttufóik „Húsið fyrir dýraspitalann blð- ur tilbúið, en það eru fleiri ljón á veginum”, sagði Ólafur Jónsson fuiitrúi, sem tekið hefur að sér að félag verði stofnað um rekstur dýraspitaians. Það verður þó ekki gert fyrr en linur skýrast betur. Hann sagði að staðið hefði á þvi að fá kunnáttumenn til þess að setja nauðsynleg tæki i spitalann. Eins hefði Brynjólfur Sandholt héraðsdýralæknir ætlað að vinna við spitalann tvisvar i viku tvo tima á dag, til að byrja með. Slöan hefði Brynjólfur ekki getaö sinnt þessu vegna anna. „Stönd- um við þvi uppi dýralæknislaus- ir”, sagði Ólafur. Að visu er kona að læra dýra- hjúkrun úti i Englandi, en hún er ekki búin i námi fyrr en að ári liðnu. Ólafur sagðiaðþaðværihart að þurfa að biða með spitalann tilbú- inn i svo langan tima, en dýra- læknar lægju ekki á lausu. Ætlun- in er að hafa frekari viðræður um málið við yfirdýralækni og Brynjólf Sandholt til þess að ein- hver viðunandi úrlausn fáist.EVI Fœreyingar kaupa sína fyrstu flugvél Flogfélag Færeyja hef- ur nú fengið sína fyrstu flugvél og hana ekki af verri endanum. Það er 10 sæta Cessna 421 Golden Eagle með jafnþrýsti- kerfi fyrir flug í mikilli hæð. i Bandarikjunum og reyndar viðar telst hún til litlu lúxusvélanna, sem hafa verið kallaðar for- stjóravélar. Þetta er fyrsta vélin sem keypt er til Færeyja. — Þetta er alveg ný vél, sem við fengum beint frá Cessna verk- smiðjunum, sagöi Lars Larsen, hjá Flogfélaginu við Visi i morgun. Við munum einkum nota hana til að flytja skips- hafnir á skip, sem eru i Norður- sjónum i tengslum við oliu- boranirnar. Það er skipt um Færeyski fáninn er nú I fyrsta skipti á flugvélarstéli. Þetta er Cessna 421, vél Fiogfélagsins. skipverja með vissu millibili — enda úthaldið langt hjá skipun- um. — Þá verður hún einnig notuð i alls konar leiguflug og við höf- um þegar farið ferðir til Noregs Danmerkur og Englands. Flug- maðurinn er i danska flughern- um, en fékk leyfi frá störfum til að hjálpa okkur af stað með reksturinn. Við reiknum með að koma með vélina til íslands á næstunni og sýna hana vinum og samstarfsmönnum hjá Flug- félagi íslands. -ÓT.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.