Vísir - 12.09.1975, Blaðsíða 11

Vísir - 12.09.1975, Blaðsíða 11
10 Ðl Mó CFÉU .. *S*S*?t^ w§«;í B-riöill: Valur, Vikingur, Þróttur og Fylkir. Næstu leikir verða svo sunnu- daginn 21. september. Þá leika kl. 14:00 1R — Armann og Vikingur — Fylkir. Um kvöldið verður mótinu svo haldið áfram, og þá leika kl. 19:00 Fram — Leiknir og Valur — Þróttur. Ekki gefst handknattleiks- mönnum mikill timi til hvilda — keppni verður haldið áfrarn þriðjudags-og miðvikudagskvöld. Á þriðjudagskvöldið leika KR — Leiknir og Valur — Fylkir, en á miðvikudagskvöldiö Fram — 1R og Valur — Vikingur. 1 fyrra urðu Framarar Reykjavikurmeistarar — sigruðu Valsmenn auðveldlega i úrslita- leiknum, en árið þar áður voru það Vikingar, sem urðu meistar- ar eftir eitt af þessum leiðinlegu kærumálum. Viðbúið er, að ekki verði i fyrstu nein snilld i handboltanum i vetur, þvi að nú eru fimm af okkar beztu handknattleiksmönn- um i Vestur-Þýzkalandi og er það mikil blóðtaka fyrir handknatt- leikinn. —BB Fírmakeppni innanhúss Hin árlega firmakeppni Gróttu i innanhússknattspyrnu verður haldin tvær siðustu helgarnar i september. Mjög mörg fyrirtæki hafa tekið þátt i þessari keppni á undanförnum árum, og er búizt við, að i ár verði hún einnig góð. Þau fyrirtæki, sem hafa hug á að senda lið i keppnina að þessu sinni, eru beðin að tilkynna það til Garðars Guðmundssonar i sima 85471 og 37526 fyrir sunnudaginn 14. september n.k. HJATRUIN MEÐ ÍBK í BIKARNUM Liðið, sem hefur slegið Víking út úr Bikarkeppni KSÍ hefur œtíð sigrað, en Skagamenn eru úkveðnir í, að svo verði ekki ú sunnudaginn Reykjavíkurmótiö í handknatt- leik — það 30. i röðinni — hefst annan laugardag, 20. september i Laugardalshöilinni kl. 15:30 með leikjum Fram — KR og Þróttar — Fylkis i meistaraflokki karla. Keppni i eldri aldursfiokkunum lýkur 8. október — en í yngri fiokkunum 13. desember. Reykjavikurmótið hefur aldrei verið stærra i sniðum. Verður nú t.d. i fyrsta skipti tekin upp keppni i 5. aldursflokki og nú sendir tþróttafélagið Leikn- ir i Breiðholti alla flokka til keppni, en sendi i' fyrra aðeins einn flokk — meistaraflokk. Leikið verður i tveim riðlum og eru þeir þannig skipaðir: A-riðill: Fram, KR, Leiknir, IR og Ár- mann. Handknattleiksvertiðin hefst á laugardaginn I næstu viku með fyrstu leikjunum I Reykjavikurmótinu. Leikmenn Vals og tR, sem eru á þess- ari mynd, eiga þá fri, en daginn eftir verða þau bæði I sviðsljósinu. Sigurður Thorarensen. Sigurður Veizla í l.verðlaun A morgun verður háð eitt síðasta innanfélagsmótið á vegum Golf- klúbbs Ness á þessari „golfvertiö”, sem nú er að ljúka á velli félagsins á Suðurnesi á Seltjarnarnesi. Er það keppni um Veitingabikar- inn og hefst hún kl. 13.00. Þar verður að sjálfsögöu keppt um veg- lega bikara — eins og venjulega, þcgar golfmenn eru með mót — og einnig vcrðlaun, sem þeir þurfa hvorki að fægja né pússa. Eru það fyrstu verðlaun með for- gjöf, sem er boð fyrir sigurvegar- ann og maka hans í veitingahúsið Naust. Þar verða dýrindis kræsing- ar á boðstólum að vanda, og sjálf- sagt mun sigurvegarinn njóta þeirra vel — enda ekki á hverjum degi, sem hægt er að snæða verð- laun, sem unnin eru i iþróttakeppni hér á landi. Þau eru fastari en svo undir tönn. Knötturinn spryngur þegar honum er spyrnt af afli i markslána, en fer i markvörð- inn og þaðan inn fyrir marklinu. Ilvað á dómarinn að dæma? A.... Mark. B.... Hornspyrnu. C.... Fá annan knött og láta hann falla, (þ.e. „dómara- kast”? Svar: Rétta svarið er að finna i C-lið. Knötturinn er ólög- legur um lcið og hann spryngur. Þvi er ekki hægt að skora mark með knetti sem hcfur sprungið áður en hann fer i markiö. „Það er ljóst, að salan má ekki verða miklu minni en þetta,” sagði Gunnlaugur Briem, stjórnarformaður is- lenzkra Getrauna í við- tali við Visi i morgun. Við lögðum þá fyrir hann þá spurningu, hvort rétt væri, að sala á getraunaseðlunum hefði dregizt verulega saman eftir að verð hvers miða var hækkað um helming fyrir rösku ári. „Ég tel hækkunina ekki orsök- ina fyrir þvi, hve illa gengur með söluna, heldur hitt, að þeir aðilar, sem sjá um dreifinguna og söluna á seðlunum, hafa misst áftug- ann,” sagði Gunnlaugur. Það eru iþróttafélögin, sem sjá um söluna með aðstoð góðra fé- laga — en ef svona heldur áfram, getur svo farið, að við séum neyddir til að taka þessa starf- semi frá þeim. Félögin fá 25% af allri sölunni, og i fyrra var þeirra hlutur um 10 milljónir króna. Það er þvl nokk- uð erfitt að átta sig á þessari deifð — eða áhugaleysi — þar sem svona miklir fjármunir eru I húfi. Við vitum, aö þaö eru yfirleitt sömu mennirnir, sem hafa staðið I þessu fyrir félögin ár eftir ár, og þeir þvi orðnir þreyttir, og þvi verður að fá nýja menn til starfa. Enn eru samt nokkur félög, sem selja vel — en þvi miður eru þau ekki nógu mörg.” Um að hækka verð seðlana um helming, sagði Gunnlaugur, að það hefði veriö nauðsynleg ráö- stöfun, prentkostnaður heföi margfaldazt svo og öll önnur vinna, og þetta þvi auðveldasta leiðin til að mæta þeim kostnaði. „Engar breytingar verða samt gerðar á starfseminni I vetur, en við erum með ýmislegt á prjón- unum — og vel getur farið svo, aö við breytum fyrirkomulaginu eitthvað á næsta ári. En það fer að sjá.lfsögðu eftir þvi, hvernig starfsemin gengur I vetur,” sagöi Gunnlaugur að lokum. Sigurgeir Guðmannsson hjá Is- lenzkum getraunum sagöi okkur, að fyrstu leikvikuna hefðu get- raunaseðlar verið seldir fyrir 599.600 kr. — en á sama tima I fyrra fyrir 487.100. önnur leikvik- an skilaði 708.500 kr. á móti 710.100 og þriðja leikvikan 743.900 á móti 745.600 kr. á sama tlma I fyrra. I slðustu leikviku fannst einn seðill með 12rétta og varö eigandi hans rúmum 300 þúsund krónum ríkari fyrir þá getspeki sína. —BB Akurnesingar komust I úrslit I bikarkeppninni með þvi að sigra Val I undanúrslitunum, en Keflvikingar með þvi að sigra KR -með marki skoruðu á siðustu sekúndu leiksins. Þessi mynd er frá þeim Ieik og það er Atli Þór Héðinsson, sem þarna á I höggi við einn varnarmann ÍBK... Þetta eru piltarnir úr liði tþróttabandalags Vestmannaeyja, sem sigruðu Hauka I úrslitaleiknum á ts- landsmótinu I 2. flokki nú I vikunni með þremur mörkum gegn engu. Þaö er Helgi Danielsson stjórnar- maður KSt — sá eini sem hefur verið heima nú siðustu dagana — sem þarna afhendir þeim sigurlaunin, sem voru góður plástur á sárið eftir fall aðalliðs tBV 12. deild um siðustu helgi. Verður hjátrúin með Keflvik- ingum á sunnudaginn — eða tekst Skagamönnum að vinna „tvö- falt”, þegar þeir leika gegn Kefl- vikingum I úrsiitum I Bik- arkeppni KSt? Þessari spurningu fæst ekki svar við fyrr en eftir leik iiöanna á sunnudaginn. Svo einkennilega vill til, að öll þau lið, sem hafa slegiö Viging úr keppninni undanfarin ár, hafa oröið bikarmeistarar þaö árið. í ár voru það Kefl- víkingar, sem það gerðu — og þvi hafa þeir þessa hjátrú með sér, þegar þeir hlaupa inn á völl- inn á sunnudaginn kl. 14.00. Skagamenn hafa sex sinnum verið I úrslitum I keppninni, en þeim hefur aldrei tekizt aö verða bikarmeistarar. Fyrst léku þeir I úrslitum 1961 við KR og töpuöu þeim leik 4:3 og siðast i fyrra, en þá töpuðu þeir fyrir Val 4:1. Bandaríkin slegin út Mexico sló Bandarikin út úr undankeppni olympiuleikanna i knattspyrnu i gær með þvi að sigra i siðari leik þjóðanna — i Bandarikjunum — með 4 mörkum gegn 2. Mexikanarnir voru nokkuð öruggir með að komast áfram eftir fyrri leikinn, sem fram fór I Mexikó borg fyrir nokkru, en I þeim leik sigruðu þeir með hvorki meira né minna en 8 mörkum gegn engu. Það má þvi segja, að eins konar álög séu á liði þeirra I þessari keppni. En Skagamenn hafa sagt, aö svo sé ekki — og það ætli þeir að sanna með þvi að sigra i leikn- um á sunnudaginn. Keflvikingar hafa ekki af miklu að státa i Bikarkeppninni. Þeir komust þó lálægt þvi að verða bikarmeistarar 1973, þegar þeir áttu hvað mestri velgengni að fagna undir stjórn Joe Hooley — en töpuðu þá fyrir Fram I úrslit- um 2:1, eftir framlengdan leik. Hjá Baldri Jónssyni, vallar- stjóra á Laugardalsvellinum, fengum við þær upplýsingar i morgun ., að völlurinn væri i ágætu ásigkomulagi eftir við- gerðina, sem gerð var á honum um daginn. En ekki yrði mikið um grassprettu úr þessu, þvi að þeir hefðu t.d. mælt þriggja stiga frost niðri viö jörðu i nótt_bb Aston V B Evertoi. - NovvC Ipswich - Liverpool . eic^stí O.est Ham . ið c f I | | pj | .. i. — iVlia..oh %J J. . . . . Sheff. Utd. - Coventry . . Xfjf-e TÞLffif'p Tottenham - Derby . Wolv -<!’ Tvrr-i i hiv Sunderland - W.B.A. ppi « ■ ■ ■ Reykjavíkurmótið hefst annan laugardag með leikjum Fram - KR og Þróttar - Fylkis. Keppnin í meistaraflokki hespuð af ó rúmum hólfum mónuði JÖRUNDUR ÞORSTEINSSON DÓMARAHORNIÐ Handboltavertíð- in að hefjast! Eusébio da Silva Ferreira londs! Franska blaðiö Le Monde hefur skýrt frá þvi, að hinn heimsfrægi knattspyrnumaöur frá Portugal — Eusebio — hafi undirritað samning við franska I. deildarliðið Red Star og muni leika með þvi næstu tvö ár- in. Eusebio, sem margir islenzkir knattspyrnuunnendur muna ef- laust eftir frá þvi að hann kom hingað með Bcnfica fyrir nokkrum árum, hefur i sumar dvalið i Bandarikjunum, þar sem hann lék með liði frá Dallas fyrir góðan pen- ing. Að sögn blaðsins var hann ekki á- nægöur þar og viidi komast aftur til Evrópu, og hafi Red Star séð uin, að sá draumur hans rættist. Eusebio var eitt frægasta nafn í knattspyrnunni fyrir nokkrum ár- um — þekktastur varð liann i og eftir HM-keppninni i Englandi 1966 — en nú siðari ár hafa meiðsl háð honum og jafnframt aldurinn. End- aði þetta meö þvi, að Benfica gaf honum leyfi til að hætta, og freista gæfunnar upp á nýtt. Kom hann sér þegar frá Portu- gal, þar sem hann á miklar eignir og fé i bönkum, og til Bandarikj- anna, þar sem hann hefur dvalið þar til nú, að hann fer til Frakk- lands að sögn blaðsins. Tvöfaldur sigur Dana Danska kvennalandsliðið i hand- knattlcik, sem tekur þátt i HM- keppninni i Sovétrfkjunum i haust, hefur æft sig vel í allt sumár með það fyrir augum að ná langt i keppninni. I.iöið er nú byrjað að leika æf- ingaleiki við aðrar þjóðir, og fóru tveir þeir fyrstu fram um sfðustu helgi. Kom þá norska kvennalands- liðið i heimsókn til Danmerkur og mátti þola tap i báðum leikjunum. í fyrri leiknum sigruöu dönsku stúlkurnar 10:6 og i þeim síðari 15:7. Norsku blööin scgja, að dönsku stúlkurnar hafi haft mikla yfirburöi i báðum leikjunum og spá þvi, að þær nái langt i HM-keppni, ef þær haldi svona áfram. Hóta að myrða tennis- stjörnurnar fró Chile 1155 vopnaðir lögregluþjónar, 107 hundar, 43 hestar, 280 bilar, 2 þyrlur og um 30 bátar. Þetta er m.a. það, sem sænska lögreglan þarf aö hafa til reiðu um næstu helgi, þegar tenniskeppnin — Davis Cup — á milli Svíþjóöar og Chile fer fram i Bastad i Sviþjóð. Astæðan fyrir öllu þessu er sú, að Holbæk — danska liðið sem Jó- liannes Eðvaldsson lék með i sumar — er nú i fyrsta til öðru_ sæti i dönsku deildarkeppninni þegar lokið er 21 umferð af 30. Holbæk sigraöi B 1903 á útivelli i vikunni með 3 mörkum gegn 1, og hcfur hlotið 29 stig, cða jafn- inörk og Köge, sem er með hag- stæðari markatölu. Næstved kemur i þriðja sæti ýmis vinstrisinnuð félög i Sviþjóð, og flóttafólk frá Chile, hafa hótað að koma i veg fyrir, að þessi keppni geti fariö fram. Ef ekki meö þvi að trufla keppnina, þá með þvi að ganga af keppendum Chile dauðum. Sænska tennissambandiö hefur þegar selt 6000 miða á keppnina — mcð 26 stig, en á botninum berj- ast B 1909 og Slagelse bæði með 13 stig, cða 3 stigum minna en Frem-liöin bæði..... Frem og Freni A. Eins og inálunum er nú háttað er allt útlit fyrir að Holbæk lendi i cinu af þremur efstu sætunum — og mun þá Jóhannes fá send sin verölaun i pósti til Skotlands. til útvaldra aðila — en mótmæl- endur hafa hótað að koma með 8 til 10 þúsund manns. Moröhótun frá þeim hefur borizt til foreldra hinna þriggja ungu keppenda, og einnig til fararstjóra fyrir hópn- um. „Við erum ekkert hræddir,” sögðu þeir i viðtali við blaðamenn i New York i gær. „Við trúum þvi ekki, að þetta fólk geri alvöru úr hótun sinni. Þaö má vel vera, að það verði einhver læti, en aö það ætli að myrða okkur, trúum við aldrei.” Keppendurnir koma til Sviþjóð- ar á sunnudaginn — hvar og hvenær er ekki látið uppi — þá þegar tekur lögreglan við að gæta þeirra og mun ekki sleppa af þeim augunum þá viku, sem þeir dvelja i landinu. Kostnaðurinn viö þessa gæzlu og við að verja leik- vanginn er áætlaður sex milljónir sænskra króna. —klp— Holbœk og Köge efst sigraði Siguröur Thorarensen GK sigr- aði með yfirburðum í siðustu opnu stigakeppninni i golfi, sem háð var á Iivaleyrarvellinum um síðustu helgi. Var hann nálægt þvi að sigra bæði með og án forgjafar — en eftir 36 holu aukakeppni um 1. verðlaun- in með forgjöf varð hann að láta þau eftir handa Sveini Sigurbergs- syniGK, sem varð drengjameistari islands á Akurcyri i sumar. í aðalkeppninni — án forgjafar — var Sigurður 5 höggum á undan næsta manni. Lék hann 36 holurnar á samtals 155 höggum, en Þórhall- ur Hólmgeirsson GS á 160 höggum. i þriðja til fjórða sæti urðu jafnir meö forgjöf — á 147 höggum — og voru aftur jafnir eftir 18 liolu auka- keppni. Þurftu þcir þvi aðrar 18 holur og tókst þá Sveini að hafa sigur. Þriðji maöur með forgjöf varð Atli Arason GR, sem var á 152 höggum nettó. Lœknarnir slú um sig A morgun halda læknar, lyfja- fræðingar, tannlæknar, dýralækn- ar og aðrir, sem vinna svipuð störf, sina árlegu golfkeppni. Fcr hún fram á velli GR i Grafarholti og hefst kl. 9.00 i fyrramálið. Fjöldi fólks úr þessum stéttum leikur golf sér til dægrastyttingar, og hefur Austurbakki hf. nú eins og áður gefið verðlaun til að keppa um i mótinu. Búizt er viögóðri þátttöku bæði byrjenda og lengra kominna og mikill hugur I mörgum doktorn- um að standa sig sem bezt i barátt- unni.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.