Vísir - 12.09.1975, Blaðsíða 1

Vísir - 12.09.1975, Blaðsíða 1
Heimsmeist- araeinvíginu verður að fara að Ijúka O — sjá grein Guðmundar G. Þórarinssonar fyrrum forseta Skáksambandsins - bls. 9 að Islendingar vœru andlega sinnaðir menn Sigvaldi Hjálmarsson rœðir við indverskan jóga B-24 SPRENGJUFLUGVÉL: Aftur til íslands eftir 31 ár „Flytjum heim til íslands að lokum" Rœtt við Mick Magnússon, íslendinginn sem er fréttastjóri hjá BBC — sjá baksíðu „Ekki samið nema Bretar líti málið raunsœjum augum" — sagði Geir Hallgrímsson, forsœtisráðherra í morgun | Samningavið- ræður um fisk- veiðilögsögu- mál milli Breta og tslcndinga fóru fram i gær i Reykjavik og báru ekki annan árangur en þann, að ákveðið var, að annar fundur skyldi haldinn i byrjun október. Visir leitaði til Geirs Ilallgrim ssonar forsætisráð- herra, og spurði hann um skoðun hans á lyktum þeirra viðræðna, sem fram fóru i gær. Forsætisráðherra sagði: ,,Við- ræðurnar að þessu sinni náðu ekki lengra en að aðilar skýrðu sjónar- mið sin. Hafi Bretum ekki verið það ljóst, að viðræður leiða ekki til samninga nema verulegur samdráttur verði i aflamagni þeirra, skipafjölda og veiðisvæð- um, þá ætti þeim að vera það ljóst nú og ennfremur, að nauðsynlegt er, að Islendingar njóti þeirra tollasamninga,' sem búið var að gera. Þegar fulltrúar þjóðanna hittast að nýju, mun koma i ljós, hvort Bretar lita raunsæjum aug- um á málið. Ef svo verður ekki, þá takast samningar ekki.” Um það hvort rætt hafði verið um að hætta við viðræður við Vestur-Þjóðverja vegna nýrra upplýsinga um starfsemi þeirra og veiðar á miðunum hér við land, sagði forsætisráðherra: „Það hefur ekki verið rætt um að falla frá fundi Genschers og Ein- ars Ágústssonar, utanrikisráð- herra i New York og ég býst við, að af honum verði, ef aðstæður utanrikisráðherra leyfa.” For- sætisráðherra sagði einnig, að framhald viðræðna að loknum fundi utanrikisráðherranna byggðist á þvi, hvað þeim færi á milli og þvi, hver framkoma v- þýzkra skipa hér við land yrði á næstunni. Haustið er komið, en er hægt að tala um að sumarið sé farið? Kom það nokkurn tlma? t þessu árferði segja sumir Sunniend- ingar, að tsiand sé aðeins fyrir hrafna og tófur. — Það var napurt I miðborginni I gær, og þessi mynd segir meira um veðrið en nokkur texti. -Ljósm:JIM Mikið af bandormi í fiski í Hafravatni — Þar veiddust allt að sex punda urriðar í sumar „Við rannsóknir mlnar I sumar fann ég mjög mikið af bandormi I urriöa og bleikju, sem ég veiddi I Hafravatni”, sagði Jakob V. Hafstein, yngri, fiskiræktarfulltrúi Reykjavfk- urborgar, „Það er vitað að bandormur er I vatna- fiski víða á landinu, en ég held að óhætt sé að segja, að I Hafra- vatni sé óvenjumikið um hann”. Jakob hefur í sumar rannsak- að hluta af vatnasvæði Reykjavíkurborgar og mún fljótlega skila skýrslu um þær rannsóknir. Hann sagði, að við rannsóknir á fiski I Rauðavatni fyrir nokkrum árum hefði kom- ið i ljós., að talsvert var af band- ormi i fiskinum, Það kann að koma á óvart, að fiskur sé i Rauðavatni, en þar var sleppt seiðum fyrir nokkrum árum. Bandormurinn er aðallega i og við maga og fannst einnig i þunnildum. Ekki mun hann hættulegur mönnum, en heldur hvimleiður er hann. Jakob sagði, að til væru ýms- ar tegundir af bandormi og að hann gæti borizt i vötnin eftir ýmsum leiðum, og þá meðal annars með fugli. Annað kvað Jakob eftirtekt- arvert við veiðina I Hafravatni, en það er hve stór fiskur veidd- ist þar. Fékk hann allt aö sex punda urriða. Telur hann að svo mikið sé af fiski I vatninu að nauðsynlegt kunni að reynast að „grisja” það: veiða mikið af fiski I net svo árgangarnir nái að þroskast. AG

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.