Vísir - 12.09.1975, Blaðsíða 6

Vísir - 12.09.1975, Blaðsíða 6
6 Vísir. Föstudagur 12. september 1975. VÍSIR Útgefandi: Reykjaprent hf. Ritstjóri og ábm: Þorsteinn Pálsson Ritstjóri frétta: Árni Gunnarsson Fréttastjóri erl. frétta: Guómundur Pétursson Auglýsingastjóri: Skúli G. Jóhannesson Auglýsingar: Hverfisgötu 44. Slmar 11660 86611 Afgreiðsla: Hverfisgötu 44. Simi 86611 Ritstjórn: Siöumúla 14. Simi 86611. 7 linur Askriftargjald 800 kr. á mánuöi innaniands. t iausasölu 40 kr. eintakiö. Biaðaprcnt hf. Mál er að linni Völd og áhrif eru þeir meginásar, sem öll þjóð- félagsbarátta snýst um. Stjórnmálaflokkar berjast um völd og áhrif. Það gera lika samtök launþega og vinnuveitenda og mýgrútur annarra hagsmuna- samtaka. Áhrifa- og valdaaðstaða mótar oft og ein- att afstöðu mánna og flokka til málefna hverju sinni. Eitt skýrasta dæmið þar um er alkunnur hringlandaháttur stjórnmálaflokka þegar þeir skipta um hlutverk, fara úr stjórn i stjórnarand- stöðu eða öfugt. Handhafar rikisvaldsins, Alþingi og rikisstjórn, eiga eðli máls samkvæmt að hafa mest áhrifavald i þjóðfélaginu. Á siðari árum hefur gætt vaxandi til- hneigingar til þess að draga æ fleiri verkefni en áð- ur undir verksvið opinberra aðila. Þingmenn allra stjórnmálaflokka hafa tekið meiri og minni þátt i þeim leik. Hvort sem þingmenn eru dregnir i dilk með frjálshyggju eða miðstjórnarvaldi, virðast þeir allir vera á eitt sáttir um að draga sem flest verkefni undir rikisvaldið. Tilgangurinn er efalaust sá að fá þakkir almennings. Svo langt hefur verið gengið i þessum efnum að uppbygging barnaheimila hefur verið lögð undir eina stjórnardeild i Reykjavik. Það er rétt eins og þingmenn vilji sem minnst vita um frumkvæði sveitarfélaga og einstaklinga eða sam- taka þeirra. A sama tima og ýmis konar ný verkefni hafa með þessum hætti verið dregin undir rikisvaldið hefur áhrifamáttur rikisstjórnar og Alþingis á hverjum tima og þá um leið stjórnmálaflokkanna farið þverrandi. Ýmis hagsmunasamtök i þjóðfélaginu hafa smám saman treyst svo aðstöðu sina að þau móta að talsverðu leyti afstöðu stjórnmálaflokk- anna og viðbrögð i tilteknum málum. Engum vafa er undirorpið að aðilar vinnu- markaðarins hafa nú allveruleg áhrif á framvindu efnahagsmála. Rikisstjórn, hver sem hún er, getur aðeins haft takmörkuð áhrif þar á. í sjálfu sér er mjög eðlilegt að reyna að dreifa þjóðfélagsvaldinu svo sem kostur er. Að hinu verður þó að gæta að i þvi sambandi er mjög mikilvægt að saman fari bæði vald og ábyrgð. Ljóst er að i ýmsum efnum hafa einstakir þjóð- félagshópar umtalsvert áhrifavald án þess að bera ábyrgð samkvæmt þeim lýðræðislegu hefðum sem við þekkjum og höfum búið við. Hér getur verið fólgin ákveðin hætta fyrir lýðræðislega stjórnar- hætti. í atvinnulifinu háttar svo til, að eignarráð yfir fyrirtækjum eru yfirleitt i höndum tiltölulega fárra manna. Enginn stjórnmálaflokkur hefur i alvöru borið fram tillögur um sérstakar aðgerðir til þess að auðvelda almenningi að taka þátt i atvinnu- rekstri með beinni eignaraðild. Hverjum manni má þó vera ljóst, að einmitt aðgerðir af þvi tagi stuðla. að æskilegri dreifingu f jármálavaldsins i þjóðfélag- inu. Það er harla furðulegt hversu stjórnmálamenn sem kenna sig við frjálshyggju eru deigir við að koma fram umbótum er miða að aukinni valddreif- ingu. Þeir virðast heldur kjósa að fara þá auðveldu leið að skrifa tillögu til þingsáiyktunar þar sem lagt er til að rikisvaldið leysi öll mannleg vandamál. Þetta er uppgjafarstefna. Mál er að linni. Umsjón: GP ::iaa SSSuSSSSSSSSSm a:aaaaaa:aaa:a:aa:a:a:iaaaaaa:::aaa:a:a: M) ŒfflS FRANSKA skal það vera, —segja yfirvold í Quebec, sem innleitt hafa nýja reglugerð til þess að viðhalda franskri tungu og menningu í fylkinu Skölaárið er að hefj- sækja i vetur ensku- ast hjá John Andric, mælandi skóla, þann átta ára gömlum kana- sama og hann sótti i diskum dreng í fyrra og þar áður. Montreaí. Hann mun ' || Timarnir hafa breytzt sföan Charles de Gaulle, forseti Frakklands, I opinberri heimsókn I Quebec vakti hrifningu franskra þjóöernis- | sinna f Kanda meö ræöu sinni, sem um leiö hneykslaöi þó ;: meginþorra kaiiadfsku þjóöarinnar, þar sem ræöan þótti óviöur- |: kvæmileg afskipti Frakklandsforseta af innanlandsmálum Kanadamanna. Trudeau, fqrsætisráöherra, hefur visaö á bug áskorunum um aö beíta sér gegn nýju lagasetningunni sem krefst þess aö franska sitji I fyrirrúmi fyrir ensku. En systir hans aftur á móti, Szesdanna, tiu ára, fer i frönskumælandi skbla. — Óneitanlega nokkuö flækjukennt fyrir heimilið. „Allir vinir minir fara aftur i enska skólann,” segir Szes- danna. ,,Ég vildi lika fara þang- að, en fæ það ekki.” Svipað ástand rikir á mörgum heimilum i Quebec eftir að hið umdeilda frumvarp stjórnar- innar, kallað „frumvarp nr. 22”, tók gildi. Það miðar að þvi að styrkja frönsku tunguna i þessu fylki, þar sem franskan var fyrrum yfirgnæfandi móðurmál flestra. Foreldrar, kennarar og jafn- vel sumar skólanefndirnar hafa andmælt þessari skólareglugerö og kallað hana fiflsku og ósann- gimi. Ekki ganga þó margir eins langt og Franco Giglio, sem heldur syni sinum heima og sendir hann ekki i skólann. Marco sonur hans átti að fara i franskan skóla. Þrjh systkini hans munu fara i enskan skóla, og leiðir af þvi, að Marco yrði að rækja sitt nám óstuddur, án þessarar sam- vinnu bekkjarsystkina eða bara systkina heima við hafa sin á milli við lexiurnar og heima- verkefnin. Frumvarp nr. 22 lætur fleira til sin taka en einvörðungu skól- ana. Verkfallsmenn verða hér eftir, að nota franska orðið „greve” á spjöld sin, þar sem þeir notuðu áður „on strike” (i verkfalli). Eins er með ýmis al- menn viðvörunarskilti, sem hingað til hafa borið enskar áletranir einsog „beware of the dog” (hundurinn bítur), en verða hér eftir með frönskum áletrunum. Mönnum er þó i sjálfsvald sett, hvort þeir hafa ensku áletrunina lika, eða sleppa henni alveg. Læknar, lögmenn, hjhkrunar- konur og opinberir starfsmenn, sem ganga til vinnu i Quebec, verða að hafa lært frönsku, áður en þetta ár er á enda, ef það ekki kann hana fyrir. Stjórnin i Quebec vonast til þess, að þessar ráðstafanir muni viðhalda tungu og menn- ingu sex milljóna franskra Kanadamanna, sem eru innan um þær 200 milljónir, sem byggja Norður-Ameriku, og eru flestar enskumælandi. Fram til 1960hafði engan órað fyrir þvi, að slik lagasetning kynni að þykja nauðsynleg ein- hvem tima. Hinir kaþólsku frönskumælandi Kanadamenn hafa átt miklu barnaláni að fagna, og þurftu þvi ekki að ótt- ast að raðir þeirra þynntust Ut, meðan enskumönnunum fjölg- aði. Auk þess halda þeir inn- byrðis hópinn og þvi ekkert sér- lega næmir fyrir ensku áhrifun- um. Svo tóku áhrif kirkjunnar að þverra. Pillan birtist á sjónar- sviðinu, og barneignum fækk- aði. Sjóndeildarhringur hinna yngri vikkaði, eins og gerzt hef- ur um heim allan. Þetta bitnaði á frönskunni. Fyrstu tilraunir til að innleiða lög, sem stemmdu stigu við þessu strax á skólaskyldualdri barna, höfðu nær leitt af sér uppreisn fyrir tiu árum. Þær kæfðust þvi i fæðingu. Nýja reglugerðin virðist ætla að fá svipaðar móttökur. Hafin er undirskriftasöfnun með áskorun, sem beint hefur verið til Pierre Trudeau, forsætisráð- herra Kanada. Um 60.000 manns hafa skrifað undir hana. Þar er skorað á forsætisráð- herrann að beita sér gegn þess- um lögum, eða láta hæstarétt skera úr. Trudeau, sem sjálfur er franskættaður Kanadamaður, er flugmælskur á fleiri en eitt tungumál. Hann hefur þegar visað þessari áskorun á bug. Kaupmenn standa utan þess- ara andmæla, nær eina stéttin, sem ekki hefur látið þetta til sin taka með eínhverjum hætti. Þeir benda á, að 80% ibúa Quebec tali frönsku, og bæta við: „Viðskiptavinurinn hefur jh alltaf rétt fyrir sér.” SéiaaasaaaaaaaaaaaaaaBBaaaiMiaaaaBBanaaaaaBaaMaaaaaaaaii laaaaaaaaaaBaMBaaaaBasaaaaMMaaaaaaaaaaaaeaaBaaaaaaa1

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.