Vísir - 12.09.1975, Blaðsíða 2

Vísir - 12.09.1975, Blaðsíða 2
2 Vísir. Föstudagur 12. september 1975. VfelRSm: Ertu ánægö(ur) meö frammi- stööu ísienzka landsliösins i keppnisferðinni til Frakklands, Rússlands og Belgiu? Vilhelm Andersen, l'ormaður Knattspyrnudeildar Vikings: „Mér finnst frammistaða þeirra frábær. Ég bjóst fastlega við að þeir færu miklu ver Ut Ur leikjun- um. Einkum var frammistaða Arna Stefánasonar, markvarðar, frábær.” En það er verst að nU eigum við á hættu að missa hann til einhvers erlends atvinnuliðs eftir þessa góðu frammistöðu. Richard Pálsson, skrifstofumað- ur: Landsliðið stóð' sig mjög vel, einkum þó markvöröurinn. Páll Sigurbjörnsson, simavirkja- nemi: Þeir stóðu sig alveg frá- bærlega vel, strákarnir. Ég bjóst alls ekki við svona góðum Urslit- um. Arni markvörður var beztur. Jón Þorgeirsson, vélstjóri: Árangurinn var mjög góður og þessi frammistaða alveg einstök i sögu knattspyrnunnar og held ég, að allir geti verið mér sam- mála um það. Leikmennirnir voru mjög jafnir hvað frammi- stöðu snerti. Sigurlaug Emilsdóttir, þingrit- ari: Frammistaða þeirra var sæmileg að minu áliti, ég bjóst ekki við þeim svona góðum. Auð- vitað fylgist ég með knattspyrnu, þó ekki reglulega. Sæmundur Guölaugsson, skrif- stofumaöur: Þeir stóðu sig þokkalega. Bezta frammistaðan var gegn Frökkunum. HRINGIÐ í SÍMA: 866 11 Hvers vegna ekki bridge- kennsla? Bridgeáhugamaöur skrifar: „Mig langar til þess að koma á framfæri nokkrum spurningum til stjórnar Bridgefélags Reykjavikur og vonast eftir svari við þeim hér i þessum dálki. 1. Hvernig stendur á þvi að Bridgefélagið hefur ekki staðið fyrir bridgekennslu, eins og margsinnis hefur verið lofað? 2. Hefur sú hugmynd aldrei komið upp að Bridgefélagið aðstoðaði félagsmenn sina við að finna meðspilara? 3. Hér i borg eru starfandi að minnsta kosti 2 bridge- klhbbar. Þótt þeir séu stjórn Bridgefélags Reykjavikur sennilega óviðkomandi langar mig til að spyrja. Eru þetta al- gjörlega lokaðir klúbbar? Ef svo er ekki, hvernig er hægt að komast inn i þá.” Karl Sigurhjartarson for- maður Bridgefélags Reykja- vikur svarar: 1. Mér er ekki kunnugt um að Bridgefélag Reykjavikur hafi lofað að standa fyrir bridgekennslu án þess að efna það. Þó slikt námskeið, sem hlyti að vera byrjendanám- skeið, veki ekki mikinn áhuga félaga B.R. sem flestir eru þrautreyndir spilarar er stjórn B.R. ljóst að mikill áhugi fyrir sliku er meðal al- mennings og hefur fullan hug á að reyna að koma þvi á. Eitt það sem hefur staðið framkvæmd fyrir þrifum er skortur á leiðbeinanda, sem fyrir utan það að vera góður i bridge, þarf að kunna að koma leiðbeiningu á framfæri og hafa tima og vilja til. 2. Stjórn B.R. hefur alltaf verið reiðubúin til að aðstoða við að mynda par ef óskað er. Reynsla okkar er samt sú, að sárasjaldan er um þetta spurt. 3. 1 Reykjavik eru starfandi 4 bridgefélög, sem eru aðilar að Bridgesambandi Islands. Bridgefélag kvenna, Tafl- og bridgeklúbburinn, Bridgedeild Breiðfirðinga og Bridgefélag Reykjavikur. öll þessi félög eru opin og þarf að- eins að láta skrá sig hjá stjórn viðkomandi félags.” Kostor þá 650 milljónir króna að rétta úr sérM Hún er ekki amaleg að innan þessi Beechcraft King Air flugvél. Sv’einn Haraldsson skrifar: ,,Að sögn yfirflugstjóra Land- helgisgæzlunnar, er aðalkostur- inn við Fokker Friendship vél- arnar fram yfir Beechcraft King Air að i Friendship geta áhaifn- irnar rétt úr sér, en i Beechcraft King Air ekki. Eftir þvi sem ég bezt veit, á meðalmaður á hæð að geta stað- ið uppréttur i Beechcraft King Air vélum og geta gengið rúma fimm metra fram og til baka. En áhafnirnar hjá Landhelgis- gæzlunni virðast þurfa um tutt- ugu metra langt svæði, til að geta rétt úr sér. Það er 650 milljón króna úrrétting. Beechcraft vélin hefur alla þá kosti sem þarf til landhelgis- gæzlustarfa, svo sem: Skrúfu- hverfla, jafnþrýstiklefa, full- komin blindflugsflugleiðsögu- og fjarskiptatæki, afisingar- tæki, salerni, flugdrægi 1000 sjómilur, flugþol sex klst, og fullnægjandi vinnuaðstöðu fyrir fjögurra manna áhöfn. Fram yfir Friendship vélina hefur hún verðið, sem er meira en sjö sinnum minna. Valið virðist vera auðvelt, 5 flugvélar i stað einnar.” HVER BORGAR LAG- LAUNABÆTUR BÆNDA? Borgarbúi hringdi: ,,Ég hef alltaf haldið að bóndi væri sjálfstæður at- vinnurekandi. Hann á að minnsta kosti i mörgum tilfellum búið, sem hann býr á. Hverig vikur þvi þá við að hann á að fá láglaunabætur? Hver borgar það? Rikið? Hvernig væri þá með þessa sem eru með einhvers konar heimaiðnað. Geta þeir fengið láglaunabætur lika, ef tekjurnar eru litlar?” Bína húsmóðir hringdi: ,,Nú er blessuð nauta- kjötsútsalan afstaðin og fengu færri en vildu af þessum 200 tonnum, sem raunar voru aðeins ætluð þeim sem áttu frystikistu og stór heimili. Þaö gefur auga leið að einhleypir hafa litið að gera við 1/8 úr nautsskrokk heima i isskáp hjá sér. Þvilik lækkun lika. Ódýrasti parturinn á rúmar 200 krónur kilóið á meðan útlendingar keyptu það holt og bolt fyrir 20-40 krónur kilóið. En eigum við ekki að halda áfram með útsölurnar. Hvað á að gera við þessi 500 tonn af rækju, sem enn liggur óseld i landinu. Á kannski að selja hana lika til útlendinganna fyrir 20 krónur kilóið. Mér finnast góðar rækjur, og ég gæti bara trúað þvi að svo fyndist fleirum. Litlar 1200 krónur kostar kilóið i búð hérna. Hvað skyldum við fá fyrir hana i útlandinu? Ég legg alla vega eindregið hversdags mat fram að jólum, til að við getum haft hana i áður en hún skemmist.” Flugvéldkaup landhelgisgœzlunnar: RÆKJUR í HVERSDAGS- MAT FRAM AÐ JÓLUM

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.