Tíminn - 13.10.1966, Side 2
FIMMTUDAGUR 13. október 1966
TÍMINN
r ■■
Kvenfélag Bústaðasóknar:
HEFUR KAFFISÖLU OG SKEMMT-
ANIR AD HÓTEL SÖGU Á SUNNUDAG
Á sunnudaginn verSa tvær
skemmtanir haldnar að Hótel
Sögu. Stendur Kvenfélag Bú-
staðasóknar fyrir þeim og nýt-
ur stuðnings ýmissa annarra,
sem vilja leggja baráttumáli fé
lagsins lið, en það er smíði
Bústaðakirkju.
Fyrri skemmtunin á sunnu-
daginn hefst kl. 3 síðdegis, og
er fyrir alla fjölskylduna, og
við það miðað, að bæði ungir og
gamlir fái eitthvað við sitt hæfi.
Ber þar fyrst að nefna mikla
tizkusýningu, þar sem sýnd
verður haust- og vetrartízkan,
fyrir fullorðna og unglinga.
Gefst fólki tækifæri til þess að
kynna sér það, sem tízkuverzl-
unin Eros býður kvenfólkinu
upp á um þetta leyti, en herra
fatnaðurinn er frá P.Ó. Þá
mun hinn vinsæli Ómar Ragn-
arsson skemmta með söng og
gamanyrðum, og nemendur úr
Dansskóla Hermanns Ragn-
ars sýna nýjustu dansana. Og
ekki má gleyma því, að kon-
urnar úr Bústaðasókn munu
baka fjölda af gómsætum kök-
um, sem þær bera fram með
kaffi, mjólk eða öli á sunnu-
daginn og ganga sjálfar um
beina.
Um kvöldið hefst svo önn-
ur skemmtun kl. 8.30, er hún
ætluð fullorðnum. Verða þar
flest sömu atriðin, og á síð-
degisskemmtuninni, en auk
þess syngur frú Sigurveig
Hjaltested við undirleik Skúla
Halldórssonar. Eftir skemmti
atriðin leikur hljómsveit Ragn
ars Bjarnasonar. Kynnir á báð-
um skemmtununum verður
Hermann Ragnar Stefánsson.
Þá gangast konurnar einn-
ig fyrir sölu á happdrættismið
um á sunnudaginn og eru vinn
ingarnir danskt postulín frá
Bingo Gröndal í Kaupmanna-
höfn, og auk þess eru bama-
leikföng frá Reykjalundi með-
al vinninga.
Er ekki að efa það, að Reyk-
víkingar og aðrir munu fjöl-
menna á Hótel Sögu á sunnu
daginn kemur bæði til þess að
skemmta sér og einnig til þess
að styrkja gott málefni. Að
undirbúningi þessa dags hafa
starfað Erla Magnúsdóttir,
Jenný Jónsdóttir, Kristfn Jóns
dóttir, Sigríður Axelsdóttir
Steinunn Berndsen, og Ebba
Sigurðardóttir, sem er formað
ur Kvenfélagsins. En þeim til
ráðuneytis hefur verið Unnur
Arngrímsdóttir.
Aðgöngumiðar að skemmt-
ununum verða seldir á Hótel
Sögu á laugardagseftirmiðdag,
milli kl. 2 og 4, og verða þá
gefnar þar allar nánari upp-
lýsingar.
Kvenfélag Bústaðasóknar hef
ur starfað ötullega svo til frá
því, að söfnuðurinn var
stofnaður, haustið 1962. Og á
síðasta aðalfundi félagsins,
Framhald á bls. 15
(Tímamynd: GE).
Sýningarstúlkurnar og nokkrar konur úr undirbúningsnefnd kvenfélagsins.
Vetrarstarf Leikfélags
Kópavogs er að hefjast
Leikfélag Kópavogs er að hefja
starfsemi sína. Fyrst verður tekið
aftur til sýningar og sýnt nokkr-
i m sinnum leikrit Sveins Hail-
dórssonar, „óboðinn gestur.“
En fyrsta nýja leikritið á þessu
Aikári verður nútíma gamanleik-
r „Douglas — Douglas", eftir
Eins og tilkynnt hefur verið,
i ínir S. G. T. til mikillar og glæsi
: t'grar spilakeppni á spilakvöldum
^inum í veturí Góðtemplarahúsinu
i Reykjavík. Keppt verður í allt
1 22 kvöld, einu sinni í viku
i á föstudögum) og geta menn
\ erið þátttakendur bæði sem ein-
-taklingar og sem „par“ (karl
og kona). Verðlaunin verða:
f fyrsta lagi, eitt flugfar til New
York og heim aftur.
í öðru lagi, flugfar fyrir tvo
;1 Glasgow og heim aftur, og í
franska leikritaskáldið Marc Cam-
oletti. Leikritið hefur verið þýtt
og staðsett við íslenzka staðhætti,
af Lofti Guðmundssyni, rithöfundi.
Leikstjóri verður Klemens Jóns
son. Leikritið fjallar um líf
þriggja flugfreyja, sem fljúga hjá
sitt hvoru flugfélagi.
þriðja lagi eitt flugfar til Kaup-
mannahafnar og heim aftur — allt
með flugvélum Loftleiða.
Mesta sigurmöguleika hafa að
sjálfsögðu þeir, er verða með frá
byrjun og eru duglegastir að spila
eða heppnir í spilum.
Reglur um keppnina geta menn
fengið ókeypis í Bókabúð Æsk-
unnar, Kirkjuhvoli, Rvík — en
keppnin sjálf hefst annað k/öid
(föstudag) 14. þ.m. kl. 9 og mun
vissara að tryggja sér þátttöku
þegar í byrjun.
Því næst verður tekið til sýn-
inga barnaleikritið „Ó, amma
Bína“, eftir Ólöfu Árnadóttur, leik
stjóri Benedikt Árnason.
Á þessu leikári verður L. K. 10
ára, 5. janúar 1967, og verður
þriðja leikritið helgað þeim tíma-
mótum félagsins og verður vand-
að til um val þess eins og kostur
er á.
f athugun er að halda 1 — 2
leiklistanámskeið og verður einn-
ig námskeið fyrir unglinga og þá
væntanlega í samráði við Æsku-
lýðsráð.
Tvö „skáldakvöld“ verða hald-
in eins og undanfarandi vetur.
Fyrra kvöldið verður í nóv., helg-
að Davíð Stefánssyni, en hið síð-
ara Halldóri Kiljan Laxness í jan.
Fyrsta sýning L.K. verður 17.
ok.t. 1966.
Núverandi stjórn Leikfélags
Kópavogs er þannig skipuð: Gunn
vör Braga Sigurðardóttir, form.,
Sigríður Einarsdóttir, gjaldkeri,
Þorbjörg Kristinsdóttir, ritari.
GLÆSILEG SPILAKEPPNI
ALFRED CAMPOLI LEIKUR MEÐ
SINEÓNÍUHUÓMSVEITINNI
Á fimmtudag verða tónleikar
sinfóníuhljómsveitarinnar í Há-
skólabíói og hefjast kl. 20.30.
fuIltrúará
ASÍ-ÞINGIÐ
EJ-Reykjavík, miðvikudag.
Eftirfarandi félög haía kosið
fulltrúa á Alþýðusambandsþing,
sem haldið verður í næsta mán-
uði:
Verkalýðsfélag Breiðdælinga
Breiðdalsvík: Aðalmaður Guðjón
Steinsson, varam. Bragi Björg-
vinsson.
Verkalýðsfélag Stöðvarfjarðar:
Aðalmaður Þorsteinn Kristjáns-
son, varam. Björn Kristjánsson.
Verkalýðsfélag A-Hún, Blöndu
ósi: Aðalmaður Ragnar Þórarins-
son, varam. Pétur Pétursson.
Verkalýðsfélag Grenivíkur:
Aðalmaður Arthur Wilhelmsson
varamaður Jakob Þórðarson.
Verkalýðsfélagið Hvöt, Hvamms
tanga, Aðalmaður Gústaf Halldórs
son, varamaður Daníel Pétursson.
Verkalýðsfélag Fáskrúðafjarð
ar: Aðalmenn Guðlaugur Guðjóns
son, og Óskar Þórólfsson, vara-
menn Óskar Sigurðsson og Trausti
Björnsson.
Verkalýðsfélag Tálknafjarðar:
Aðalmaður Kristján Hannesson,
varam. Guðmundur S. Guðmunds-
son.
Verkalýðs- og sjómannafélag
Djúpavogs: Aðalmaður Már Karls-
son, varamaður Snjólfur Björgvins
son.
Verkalýðsfélag ’ Presthóla-
Framhald á bls. 15
SÆMDIR
RIDDARA-
KROSSI
Forseti íslands hefur í dag
sæmt eftirgreinda menn riddara
krossi hinnar íslenzku fálkaorðu:
Árna Snævarr, verkfræðing, fyr
ir störf á sviði verkfræðilegra
framkvæmda.
Björn Tryggvason, skrifstofu-
stjóra, fyrir störf að bankamál-
um.
Erlend Einarsson, framkvæmda
stjóra fyrir störf í þágu íslenzkrar
samvinnuhreyfingar.
Pétur Danielsson, hótelstjóra, fyr
ir störf að veitingarekstri og gisti
húsamálum.
Reykjavík, 12. október, 1966.
Orðuritari.
Stjórnandi er Bodhan Wodiczko en
einleikari þetta kvöld verður Al-
fred Campoli og leikur hann
fiðlukonsert Beethovens.
Alfred Campoli fæddist í
Róm, sonur konsertmeistarans í
hljómsveit Santa Cecilia tónlistar
háskólans og konu hans, sem var
mikilhæf dramatísk sópransöng-
kona í byrjun þessarar aldnr.
Fimm ára að að aldri fór Campoli
til Lundúna, þar sem hann býr
nú. Hann var undrabarn, sem
hafði unnið svo mörg gullverðlaun,
silfurbikara og annað slíikt, að
þrettán ára gamall var hann beð
inn um að hætta alveg þátttöku
á alþjóðlegum samkeppnisvett-
vangi, því að honum var alltaf sig
urinn vís.
Campoli hefur æ síðan verið í
fremstu röð fiðluleikara okkar
tíma. Hann hefur nýlokið þriðju
tónleikaför sinni umhverfis jörð
| ina, þar sem hann hélt 68 tón-
I leika á einu ári. Fjórða förin
er nú i undirbúningi.
Á tónleikunum í kvöld mun 4.
sinfónían eftir tékkneska tón-
skáldið Bohuslav Martinu einnig
heyrast í fyrsta sinn á íslandi.
Fvrirlestur
f dag, flytur Julius C. Holmes
fyrrverandi ambassador Banda
ríkjanna í Iran, fyrirlestur í Amer
íska bókasafninu í Bændahöll-
inni. Fyrirlesturinn hefst kl. 20,45
og nefnist „Eftirlit með herstyrk
þjóða og afvopnun."
LeiSrétting
Leiðinleg mistök áttu sér stað
í fyrirsögn í blaðinu í gær. Á
bls. 14 stóð fyrirsögnin „Þrjú ný
félög tekin í BSRB“, en eins og
þeir, sem lásu fréttina, munu
strax hafa séð, er sú fyrirsögn
römg; — þrjú félög sóthi um
inngöngu í BSRB en ekki var tal
ið fært að veita þeim inngöngu á
þessu þingi bandalagsins.
„Uppstigning“
frumsýnd í kvöld
f kvöld verður frumsýning sjón
leiksins „Uppstigningar" eftir
Sigurð Nordal, sem Þjóðleikhús-
ið flytur nú í tilefni nýliðins átt
ræðisafmælis höfundarins. Leik-
stjóri er Baldvin Halldórsson. Leik
endur eru fjórtán, og hér sést
Erlingur Gíslason í hlutverki,
prestsins, annars aðalhlutverksins
í leiknum.