Vísir - 01.10.1975, Blaðsíða 1
65. árg. — Mibvikudagur 1. október 1975 — 223. tbl.
DRÓ SÉR 2.6 MILLJÓNIR KRÓNA
Á fundi Borgarráðs i gærdag,
var samþykkt að visa til Saka-
dóms tii meðferðar, máli fyrrver-
andi gjaldkera Borgarverk-
fræðings. Talið er að gjaldkerinn
hafi dregið sér um 2.6 miiljónir
króna úr sjóðum Borgarverk-
fræðings, á sex ára timabili. Þeg-
ar rannsókn málsins hófst voru
hátt I fimm milljónir króna i
óreiðu hjá gjaidkeranum, en síð-
an hafa reikningar og skjöl komið
i ljós, sem skýrðu hluta þeirrar
upphæðar. Ennfremur gat gjald-
kerinn framvlsað fé, sem hann
hafði geymt einhvers staðar.
Rannsókn máls þessa hófst á
árinu 1974 og lét þá gjaldkerinn
þegar af störfum. Talið er að fjár-
drátturinn og óreiðan hafi byrjað
á árinu 1969.
Borgarendurskoðun hefur haft
málið með höndum fram að
þessu, en það hefur nú verið af-
hent sakadómi til venjulegrar
meðferðar.
— HV
Étum 120 þúsund dagskammta
f B m r % 7 F % — upplýsir Lyfja-
af amphetammi a an ^
Knútur Otterstedt um orkumól Norðurl.:
Milliorða
fjórfestingu
mátti f resta
Fimari en fjalla-
geiturnar :SsYN9DSJA
Jafnvel þótt fjallageiturnar ættu sjáifar mótorhjól, tæki það ef-
laust langan tfma fyrir þær aö ná jafn mikilli leikni og hann As-
mundur Gunnlaugsson, sem Loftur festi á filmu I sandgryfjunum
I Kópavogi. Sandgry fjurnar eru vinsæll staöur hjá strákum til að
spreyta sig og hjól sin á. Visismenn lögðu leiöslna þangað fyrir
stuttu. Má sjá árangurinn I myndsjá á bls. 9.
— Ýmsar spurningar til orkuráðherra
— sjá bls. 14
Svartur atvinnu-
maður
kominn
til
Lyfjanotkun tslendinga hefur
verið undir smásjánni undanfar-
ið, og i mörgum tilvikum ekki að
ástæðulausu.
Einkum eru það örvandi lyf,
amphetamin og skyld lyf, sem
hafa verið til umræðu, en það eru
þau lyf, sem einna helst verður
vart við misnotkun á i dag.
Hjá lyfjaeftirliti rikisins feng-
ust þær upplýsingar, að á árinu
1974 hefðu verið fluttir inn og af-
hentir til neyslu um 120 þúsund
dagskammtar af örvandi lyfjum,
eða um 600 dagskammtar á
hverja 1000 ibúa landsins.
Eftirlit með lyfjum þessum er
rikt, bæði innflutningi þeirra og
dreifingu. Innflutningur er háður
innflutningsleyfi islenskra yfir-
valda, auk útflutningsleyfi yfir-
valda þess lands sem lyfin eru
flutt frá. Með dreifingu er svo
fylgst með skráningu lyfja-
verslunarinnar á þvi hverjum er
selt og hvað mikið, og ennfremur
tilkynningaskyldu lækna og lyfja-
verslana.
Ennfremur eru sjúkrahús
skyldug til að tilkynna um notkun
sina á lyfjum þessum og er það
gert samkvæmt nýlegri reglu-
gerð.
Þrátt fyrir þetta hafa skyndi-
kannanir á notkun einstaklinga á
lyfjum þessum, sem fram-
kvæmdar eru af lyfjaeftirliti, leitt
i ljós að um ofnotkun á þeim er
viða að ræða. Hefur hver skyndi-
könnun, sem nær yfir mánuð i
senn, leitt i ljós nokkra tugi ein-
staklinga, sem neyta örvandi
lyfja i rikara mæli en eðlilegt er
talið.
Eðlileg dagneysla er talin um
15 milligrömm af amphetamini,
eða skyldum lyfjum, og þegar
einstaklingur neytir greinilega
tvöfalds þess magns, er læknum
gert aðvart, og sjá þeir siðan um
að halda i við viðkomandi.
Skyndikannanir þessar hafa
einnig leitt I ljós, að einstakir
læknar ávisa mjög misjafnlega
mikið á þessi lyf. Þyki læknir
dreifa óeðlilega miklu af þeim til
sjúklinga sinna, er það tilkynnt
landlækni, sem siðan sér um að
gera viðeigandi ráðstafanir.
Tölur um magn af róandi lyfj-
um og svefnlyfjum reyndist ekki
unnt að fá, enda eru slik lyf ekki
öll eftirlitsskyld.
Af sterkum kvalastillandi lyfj-
um notum viö mest af þetitini og
morfini. Af petitini er ársnotkun-
in um 25.000 dagskammtar og af
morfini um 20.000 dagskammtar.
Notkun þeirra lyfja hefur þó
farið siminnkandi hér undanfarin
ár, og er mun minni en i flestum
nágrannalöndum. — HV
Múhameð All, svarti „súper”-maöurinn hefur sannað það enn á ný, að hann er mesti hnefaleika-
maður, sem uppi hefur verið.
Dómarinn stöðvaði leik þeirra Alis og Joe Fraziers 114. lotu I nótt, en þá var Frazier svo illa farinn
undan höggum Alis, að ekki þótti rétt að halda leiknum áfram.
Þessi mynd er úr 13. lotu. Ali kemur miklu höggi á enni Fraziers og má segja, að þetta högg hafi gert
út um leikinn. — Þessi mynd hlýtur að vekja þá spurningu hvort ákvörðun islendinga um að banna
hnefaleika hafi ekki verið rétt.
Sjá mynd og frásögn á iþróttasföum.