Vísir - 01.10.1975, Blaðsíða 19
Vísir. Miðvikudagur 1. október 1975
19
í OAG | B KVÖLO | Q □AG □
Atriði úr kúrekamyndinni sem sjónvarpið sýnir i kvoiti. „Lltii stjarna úr tini” heiiir hún. Með aöalhlut-
verk fara meðal annars Henry Fonda og Anthony Perkins.
Sjónvarp
kl. 20.35:
„Aðrar stjörnur koma og fara
en Henry Fonda veröur alltaf
kyrr,” hefur verið sagt um
þennan kunna leikara, sem við
sjáum i sjónvarpinu i kvöld
ásamt fleirum góðum.'Þar á
meðal Anthony Perkins, sem
við þekkjum m.a. fyrir leik sinn
i Orient Express.
Þeir tveir, ásamt Betsy Palm-
er og Neville Brand fara með
aðalhlutverkin i myndinni „The
„Stjörnurnar konra og fara en
Fonda verður alltaf kyrr"
- góðir leikarar í „vestra" í sjónvarpinu í kvöld
Tin Star” i kvöld. Myndin er
bandarisk kúrekamynd frá ár-
inu 1957 og er byggð á sögu eftir
Barney Slater og Joel Kane.
Henry Fonda fæddist i Grand
Insland, Nebraska, árið 1905.
Hann byrjaði að leika sem
áhugaleikari ungur að árum, og
reyndar i byrjun með móður
Marlon Brando. 1928 varð hann
atvinnuleikari.
Kvikmyndir hans eru orðnar
mjög margar. Margar þeirra
hafa verið sýndar hér, svo sem
„Twelve Angry Men,” „Once
upon a time in the West” og
fleiri.
Fonda hefur verið kvæntur
fimm sinnum. Með annarri
konu sinni, Frances Seymour
Brokaw, eignaðisthann börn sin
tvö Jane og Peter, sem ekki eru
siður þekkt en faðirinn i dag.
—EA
Sjónvarp kl. 18.00 og kl. 18.35:
Fyrsta sígarettan
— og heimanóm
„Fyrsta sigarettan”
og „Heimanám” heita
tvær myndir sem sýnd-
ar verða i sjónvarpinu i
dag, Báðar eru mynd-
irnar stuttar banda-
riskar fræðslumyndir.
t myndinni Heimanám, sem
verður sýnd klukkan 6 i dag,
fylgjumst við með litlum strak
sem á i erfiðleikum með að
skipuleggja vinnudag sinn.
Hann lendir i mestu vandræðum
vegna þessa, þar sem hann get-
ur ekki lokið við heimaverkefni
sin áður en hann á að skila
þeim.
Við sjáum svo hvernig úr
þessu er bætt, svo honum gefist
bæði timi til leiks og vinnu.
Þetta er teiknimynd.
Klukkan rúmlega hálf sjö
verður svo sýnd myndin Fyrsta
sigarettan. Einsog nafnið bend-
ir til er þetta mynd um reyking-
ar.Rætterviðbörn, unglinga og
fullorðna. Þeir eru spurðir
hvers vegna þeir byrjuðu að
reykja, af hverju þeir haldi á-
fram eða hvort þeir geti ekki
hætt.
Myndin byggist að'mestu upp
á viðtölum en litið er farið út i
læknisfræðilega sálma. —EA
Útvarp kl. 20.00
Skiptir tón-
listin móli?
— P6I1 Heiðar Jónsson sér unt þótt
þar sem ýmsir hlustendur eru spurðir
„Þessi þáttur er gerður aö til-
mælum tóniistarstjóra, Þor-
steins Ilannessonar, svona til
þess að minnast hins alþjóðlega
tónlistardags. Nú að öðru leyti
ber Þorsteinn ekki ábyrgð á
þættinum heidur ég sjálfur”.
Það var Páll Heiðar Jónsson
sem sagði þetta þegar við höfð-
um samband við hann. „Skiptir
tónlistin máli?” heitir þáttur
sem hann sér um i útvarpinu i
kvöld. Það eru nokkrir hlust-
endur, sem svara spurningunni.
Páll sagði að þetta heiti á
þættinum væri einfaldlega
stytting á spurningunni um það
hvort tónlistin skipti máli i lifi
vibkomandi.
„Temað i þættinum er það að
leitaðertilnokkurra hlustenda i
þjóðfélaginu sem eiga litið og
kannski ■ ekkert sameiginlegt.
Þeir gegna ýmsum störfum sem
eru fjarskyld tónlist. Við kynn-
umst viðhorfum manna i lög-
fræðinni, fjármálaheiminum,
stjómarstörfum og ýmissa fleiri
manna.”
„Þorsteinn mun svo útskýra
tildrög þessa dags i fáeinum
orðum”, sagði Páll Heiðar að
lokum.
Þátturinn hefst klukkan 20.00 i
kvöld, og stendur i klukkutima.
— EA
ÚTVARP •
Miðvikudagur
1. október
13.00 Við vinnuna: Tónleikar.
14.30 Miðdegissagan: „Dag-
bók Þeódórakis”
15.00 Miðdegistónleikar
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.15 Veðurfregnir).
16.25 Popphorn
17.00 Lagið mitt
17.30 Smásaga: „Séni” eftir
Asa i Bæ Höfundur les.
18.00 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
19.35 í sjónmáliSkafti Harðar-
son og Steingrimur Ari Ara-
son sjá um þáttinn.
20.00 Skiptir tónlistin máli?
Nokkrir hlustendur svara
spurningunni. Umsjón: Páll
Heiðar Jónsson.
21.00 „Sögusinfónian” eftir
Jón Leifs Sinfóniuhljóm-
sveit Islands leikur. Stjörn-
andi: Jussi Jalas.
22,00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir. Kvöldsag-
an: „Rúbrúk” eftir Paul
Vad. Þýðandinn, Úlfur
Hjörvar, les (22).
22.35 Djassþáttur Jón Múli
Árnason kynnir.
23.20 Fréttir i stuttu máli.
Dagskrárlok.
SJÓNVARP m
Miðvikudagur
1. október1975
18.00 Heimanám. Stutt,
bandarisk teiknimynd um
námsvenjur. Þýðandi og
þulur Hallveig Thorlacius.
18.10 Höfuöpaurinn. Banda-
risk teiknimynd. Þýðandi
Stefán Jökulsson.
18.35 Fyrsta sigarettan. Stutt
mynd um reykingar. Þýð-
andi og þulur Hallveig
Thorlacius.
18.50 Kaplaskjól. Breskur
myndaflokkur byggður á
sögum eftir Monicu Dick-
ens. Góöverk Ragnars.Þýð-
andi Jóhanna Jóhannsdótt-
ir.
IHé
20.00 Fréttir og veður
20.30 Dagskrá og auglýsingar
20.35 Litil stjarna úr tini(The
Tin Star). Bandarisk kú-
rekamynd frá árinu 1957,
byggð á sögu eftir Barney
Slater og Joel Kane. Leik-
stjóri Anthony Mann. Aðal-
hlutverkin leika Henry
Fonda, Anthony Perkins,
Betsy Palmer, og Neville
Brand. Þýðandi Stefán Jök-
ulsson. Ungur lögreglustjóri
á fullt i fangi með að halda
uppi reglu, uns ókunnur
maður kemur til bæjarins.
Reynist hann lögreglustjór-
anum hin mesta stoð og
stytta.
22.05 Norsk-islcnska ung-
lingahljómsveitin. Sjón-
varpsupptaka frá tónleik-
um, sem haldnir voru i Há-
skólabiói 23. ágúst siðastlið-
inn. Hundrað manna hljóm-
sveit, skipuð norskum og is-
lenskum ungmennum, lék
þar verk eftir Herbert H.
Ágústsson, Wolfgang Ama-
deus Mozart og Egil Hov-
man. Hljómsveitarstjóri
var Karsten Andersen, en
einleikari á pianó Gisli
Magnússon. Stjórn upptöku
Tage Ammendrup.
22.55 Dagskrárlok.
Fyrstur með fréttimar, VÍSH