Vísir - 01.10.1975, Qupperneq 8
8
Vlsir. Miðvikudagur 1. oktúber 1975
S PÆ NSKA
i X-FLOKKUM: sem byrja átti 20. okt. hefst
strax. Þeir sem ætla að stunda nám í þeim
flokkum í vetur (I-IV. fl.) eru beðnir um að
mæta til viðtals við kennara sinn, Steinar
Árnason miðvikud. 1. okt. kl. 21 í Lindargötu-
skóla (í fundarsal).
FÖLKSBtLADEKK - VÖRUBÍLADEKK -
TRAKTORSDEKK
Fyrirliggjandi flestar stærðir af japönskum TOYO
hjólbörðum.
Einnig mikið úrval af hinum vinsælu HOLLENSKU
HEILSÓLUÐU HJÓLBÖRÐUM á hagstæðu verði.
Sendum i pústkröfu.
HJÓLBARÐASALAN
BORGARTÚNI 24
Slmi 14925. --
Smáauglýsingai' Visis
Markaðstorg
tækifæranna
Vísir auglýsingar
Hverfisgötu 44 sími 11660
Amerískar
KULDAÚLPUR
fyrir börn og fullorðna
MITTISÚLPUR
fyrir unglinga og fullorðna
Verð síðan fyrir gengisfellingu
cTMenningarmál
Austurbæjarbiú
„Skammbyssan” (frönsk-
itölsk)
Þegar misræmi hljóðs
og myndar er áberandi í
kvikmyndumog leikurinn
auk þess ekki sérlega trú-
verðugur, þá hættir
manni til að einblína á
allt það sem miður fer og
gleyma því sem vel er
gert. Þannig var um
þessa mynd.
italina virðist skorta
nothæfa leikara i ódýrari
myndir sínar og útkoman
verður því heldur nötur-
leg, jafnvel þótt efnið
gefi tilefni til annars.
Myndatakan fannst mér
skemmtileg á köflum, mynda-
vélar italanna eru ekki skrúfað-
ar fastar ofan i jörðina, heldur
eru þær notaðar til að færa
áhorfandann nær þvi sem er að
gerast með miklum hreyíingum
og tiðum klippingum.
Þegar þetta birtist verður
sennilega hætt að sýna myndina
en hún fjallar i störum dráttum
um fangelsisstjúra nokkurn sem
lendir i þvi óhappi að hafa i
fangelsinu fanga, sem getur
reynst „kerfinu” hættulegur.
Vondir menn ræna konu hans
og segja honum að koma þvi i
kring að fanginn sleppi úr fang-
elsinu ellegar muni hann ekki
þekkja konu sina aftur i sjón.
Hann hlýðir eftir árangurslaus-
ar tilraunir til að komast að þyi
hverjir vilji fangann lausan.
Hann heldur eðlilega að það séu
vinir fangans sem standa að
baki ráninu á konu hans en gerir
sér ekki grein fyrir þvi að
maðurinn skal út úr fangelsinu
til að verða drepinn.
Fanginn sleppur og brátt
tekst með þeim tveimur sam-
vinna til að hafa upp á sam-
eiginlegum óvini, sem reynist á
endanum vera „kerfið” og end-
ar myndin á þvi að fangelsis-
stjórinn sýnir „kerfinu” til-
hlýðilega virðingu og beygir sig
undir aga þess i auðmýkt.
Þótt söguþráður sé allur hinn
flóknasti er myndin rét þokka-
leg afþreying i haustkuldanum.
—RJ
Fórnarlömb
kerfisins
Byssuskot sem geigar
Þaú er ekki ofsögum sagt af
þeim vandkvæðum og erfiðleik-
um, sem mætt geta laganna
vörðum I starfi. Ekki núg með
það að þeir hætti llfi sinu dag-
lega I þjúnustu við þjúðfélagið,
heldur sæta þeir og ofsúknum og
aðkasti og eru hrjáðir á hvern
þann máta, sem hugsanlegt er,
Yfirfangavörður i itölsku
fangelsi er glæpamönnum ekki
auðunninn. Slikir menn sinna
oftast starfi si'nu af mikilli natni
og draga hreinar linur i afstöðu
sinni gagnvart glimunni milli
góðs og ills. Fáist slikir menn til
samstarfs við hin myrkari öfl
þjóðfélagsins, hlýtur það að
gerast með kúgun og ofbeldi. Á
þeim verður að finna veikan
punkt, sem hægt er að þrýsta
á, svo að undan meiði.
Kvikmyndin „Skammbyss-
an” fjallar einmitt um tilraunir
glæpamanna, til þess að fá
fyrirfangavörð i itölsku fangelsi
til samstarfs við sig. Þeir hafa
skoðað lif hans og fundið veikan
punkt — hafa fundið leið til að
kúga hann.
í upphafi myndarinnar er
eiginkonu fangavarðarins rænt
af sikileyskum „mafiósos” og
honum tilkynnt, að hún verði af-
lifuð hið snarasta, geri hann
ekki sem fyrir hann er lagt.
Eðlilega verður maðurinn ó-
kvæða við, en lætur samt, vegna
ástar sinnar á eiginkonunni,
leiðast til að hjálpa fanga einum
til að flýja fangelsið.
Þegar I stað hefst hinn æðis-
gengilegasti eltingaleikur og
KVIKMYNDIR
þrasflækja, þar sem fangavörð-
urinn er að eltast við glæpa-
mennina, glæpamennirnir elta
fangavörðinn og ennfremur elta
glæpamennirnir aðra glæpa-
menn og lögregluyfirvöld elta
allt og alla.
Gengur eltingaleikur þessi
um allar jarðir og allt til Paris-
ar, þar sem uppgjör milli allra
aöila virðist óumflýjanlegt. Þar
ákveður fangavöröurinn loks að
leita til lögreglunnar og fá þá
sér til aðstoðar, en án árangurs.
Þeir vilja ekki óhreinka hendur
slnar á máli þessu en benda
honum á leið, sem þeir bjóðast
til að greiða honum að nokkru
leyti. Þeir afhenda honum
skammbyssu og senda hann aft-
ur út i eltíngaleikinn.
Aö sjálfsögðu raknar siðan úr
öllu spilinu og það fær farsælan
endi fyrir þá, sem með sann-
girni geta krafist sanngjams
endis. Sigurinn verður þó eng-
um sætur.nema þeim.sem ekki
komu nærri lausn málsins.
Fangaverðinum ógnar svo, að
hann grætur, þrátt fyrir að hann
hefur endurheimt eiginkonuna
og sloppið frá ævintýrinu án
þess að glata ærunni.
Heldur þykir undirrituðum
lltið til myndar þessarar koma.
Er þar hvort tveggja, að sögu-
þráður hennar er næsta fjar-
stæðukenndur, þrátt fyrir að
hann er borinn fram af fullri al-
vöru, svo og hitt, að meira að
segja leikur Olivers Reed er til-
þrifalltill.
Handrit myndarinnar er
greinilega unnið af aðilum, sem
ekki hafa til að bera mikið hug-
myndaauðgi, enda er myndin öll
bragödauf og fátt, sem kryddar
hana að nokkru marki. Virðist
hvergi hugað að öðru en þvi,
hvemig mögulega megi sleppa
ódýrást frá gerð kvikmyndar.
Virðing framleiðanda fyrir
væntanlegum áhorfendum er
vægast sagt i lágmarki og
myndin getur ekki talist hafa
raunverulegt erindi á hvita-
tjaldið. Hún er talandi dæmi
um það hve hratter hægt að láta
ekkert gerast.
Leikurinn i myndinni er
hvergi yfir meðallagi, i flestum
tilvikum fyrir neðan það.
Skammbyssuskotið telst þvi
geiga og það heldur betur.
—HV
cTVlenningarmál